Morgunblaðið - 01.10.1989, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 01.10.1989, Blaðsíða 28
62 0 28 e 68ei aaaörao. MORGUNBLXÐIÐ ,-SUNNUE Stjörnu- speki Umsjón: Gunnlaugur' Guðmundsson Heilsa Meyjunnar í dag er það meyjarmerkið (23.ágúst - 23.sept.) með til- liti til líkamsfræði og heilsu- mála. Eins og áður er rétt að benda á að önnur merki en sólarmerki hvers og eins hafa einnig sit.t að segja. Ef við eigum t.d. í erfiðleikum með Tunglið í korti okkar er allt eins líklegt að tunglmerk- ið hafi meira að segja varð- andi sjúkdóma heldur en sól- armerkið. Eftirfarandi getur því einnig átt við þá sem eru með Tungl eða Rísandi í Meyju. Meltingarfœri Einn ágætur vinur minn og góður húmoristi sagði, bæði í gamni og alvöru, að eftir að Neptúnus fór inn í Meyjar- merkið 1929 hefðu melting- arsjúkdómar komist í tísku. Það sem hann álti þarna við er að Meyjan stjómar melt- ingarfærunum en Neptúnus tísku hvers tímabils. Aðal- lega stjórnar Meyjan innyfl- unum eða maga, ristli og þörmum. Þegar Meyjan er undir álagi er hætt við að þessi starfsemi fari úr skorð- um og hún fái í magann. Meltingartruflanir niður- gangur.ristilbólga, kviðslit og Iífhimnubólga eru t.d. meðal kvilla sem Meyjan er veik fyrir. Fœðið Það er sjálfsagt engin tilvilj- un að margar Meyjar eru sérstaklega aðgætnar varð- andi mataræði. I einstaka til- vikum verður þetta að sér- visku á háu stigi. Þá er farið að spá mjög nákvæmlega í það hvaða áhrif hver einstök fæðutegund hefur á líkam- ann. Sennilega eru hlutfalls- lega flestar grænmetisætur í Meyjarmerkinu af ölium merkjunum. Þó slíkt eigi kannski ekkí við allar Meyjar er rétt að taka það fram að þegar þær eru undir álagi, hvort sem það tengist vinnu eða einkalífi, að þá gæti þær þess sérstaklega að borða léttan og auðmeltanlegan mat. Taugar Þar sem stjórnandi Meyjar- innar, Merkúr, hefur einnig með taugakerfið að gera á þetta ágæta merki einnig til að vera viðkvæmt á taugum. Meyjan þarf að gæta sín á því sviði. Allt rót og óregla á vinnufélögum og sambýlis- fólki o.þ.h. getur t.d. farið illa í taugarnar á Meyjunni og kallað á hið fræga tuð, sem sjálfsagt er ekki síður slítandi fyrir Meyjuna sjálfa en umhverfið. Fullkomnunarþörf Hvað varðar hinn sálræna þátt, sem örugglega getur haft slæm áhrif á heilsuna þegar ekki er allt í lagi, má nefna fullkomnunarþörfina og útfrá því sjálfsgagnrýni sem getur á háu stigi leitt til þunglyndis, sjálfspyntinga og niðurrifs. Meyjan þarf að gæta þess að gera ekki meiri kröfur til sjálfrar sín en nauð- syn krefur og gæta þess að vera ekki alltaf að gagnrýna sjalfa sig útaf smáatriðum. Hún þarf að læra að slaka á og vera svolítið kærulaus. Að slaka á Meyjan á einmitt oft og tíðum erfitt með að slappa af, það er stundum eins og hún sé drifin áfram af innri mótor sem aldrei stöðvast. Þannig á Meyja til að slíta sér út á vinnu. Heilsumerkið Að lokum má geta þess að Meyjan er oft kölluð heilsu- merkið, sökum oft og tíðum brennandi áhuga á öllu sem viðkemur heilsumálum. GARPUR BRENDA STARR Fyfi/flGEFBO.. EH SEC. /Héfí. ~ ffl/EBAJIG FÉKF£TV WWU6A 'A BiAÐA- /V/eajnskohm/ r. SMAFOLK I KNOU) IM NOT 5UPP0SEP TO BE HERE, MARCIE, BUT I KEPT THINKIN6 ABOUT YOU ANP CUUCK UP HERE T06ETHER, ANP IT U)A5 PRIVING ME CRAZV! Ég veit að ég á ekki að vera hérna. Magga, en ég var alltaf að hugsa til þín og um Kalla hjá þér og ég var að verða vitlaus! Hvar er Kalli? Ég vil hitta hann. Hann varð einmana og langaði að hitta hundinn sinn svo að hann fór heim. BRIDS Umsjón: Guðm. Páll Arnarson Sumir samningar hafa á sér yfirbragð fiskistofna — þeir eru vænir og gefa góðan arð, en þrátt fyrir hraustlegt og gott útlit eiga þeir til að hrynja ef ekki er farið að með ýtrustu gát. Slemman hér að neðan er af því taginu: Suður gefur; NS á hættu. Vestur ♦ G6. ¥8742 ♦ 73 ♦ ÁKG96 Norður ♦ ÁK1075 ¥ — ♦ KD986 ♦ 842 Austur ♦ D942 II ¥ Á1095 ♦ 10 ♦ D1075 Suður ♦ 83 ¥ KDG63 ♦ ÁG542 ♦ 3 Vestur Norður Austur Suður - - - 1 hjarta Pass 1 spaði Pass 2 tíglar Pass 3 lauf Pass 3 tíglar Pass 4 tíglar Pass 5 lauf Pass Pass 6 tíglar Pass Pass Vestur spilar út laufás, en skiptir síðan yfir í trompþrist. Hvernig er best að spila? Meginkeppikeflið er að losna við að trompsvína fyrir hjarta- kóng — reyna að gera blindan góðan. En til þess þarf að stinga tvö lauf heima og e.t.v. tvo spaða heima, ef liturinn brotnar 4—2. Hér er því þörf á nákvæmari tímasetningu. Af ótta við yfirtrompun í spaða er skynsamlegt að taka fyrsta slaginn á kóng blinds. Trompa svo lauf, spila spaða inn á ás og trompa aftur lauf. Nú er spaða spilað á kóng og spaði stunginn með gosa. Hjarta trompað, spaði trompaður með Í.s, hjarta trompað, síðasta rompið tekið og Bingó. Þessa áætlun þarf að gera strax í upphafi — það er of seint þegar búið er að drepa annan slaginn heima. SKÁK Umsjón Margeir Pétursson Á opnu móti í Cappelle la Grande í Frakklandi í febrúar kom þessi staða upp í skák sovézka stórmeistarans Naum Rashk- ovsky (2. 520), sem hafði hvítt og átti leik, og landa hans, al- þjóðameistarans Okhotnik. (2.400). 34. Hxb2! (Vinnur strax, því svartur verður mát eftir 34. - Dxb2, 35. Dc8+) 34. - Dd6, 35. Dc8+ - Hf8, 36. Rxfö - Bxb2, 37. Re6+ - Kf7, 38. Db7+ og svartur gafst upp. Rashkovsky sigraði á þessu móti ásamt enska alþjóðameistaranum Mark Hebd- en.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.