Morgunblaðið - 01.10.1989, Blaðsíða 19
f
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. OKTOBER 1989
C 19
Fyrirtækin tílkynni sig
m ilkynningareyðublað verður sent öllum
þeim sem taldir eru virðisaukaskattsskyldir. Eyðublað
þetta er áritað með upplýsingum um viðkomandi
starfsemi.
Ef þú færð eyðublað með upplýsingum sem þú
telur ekki vera réttar ber þér að leiðrétta þær.
Tilkynningareyðublaðið á að senda skattstjóra fyrir
31.október1989.
Bókhald og reikningsform
fyrirtækja þarf að vera tilbúið
ítækatíð
íauðsynlegt er að fyrirtæki fari að búa sig
undir virðisaukaskattinn nú þegar. Það er mikilvægt fyrir
þau að bókhald og tekjuskráning séu í góðu lagi.
Sérstök athygli skal vakin á því að innskattur fæst
ekki dreginn frá útskattlnema innskatturinn komi fram á
löglegum reikningi.
Upplýsingar um
virðisaukaskatt
um allt land munu veita
um virðisaukaskatt. Upplýsingarit hefur
sent til gjaldskyldra fyrirtækja.
Fyrirspurnum um einstök vandamál varðandi
virðisaukaskatt er svarað í sérstökum upplýsingasíma
RSK.
Hvers vegna
virðisaukaskattur?
rkmið stjórnvalda með því að taka
upp virðisaukaskatt er að bæta samkeppnisstöðu
íslenskrarframleiðsluvöru, bæði innanlands og á
erlendum mörkuðum. Víðast í Vestur-Evrópu hefur
virðisaukaskattur verið tekinn upp.
Virðisaukaskattur er einnig taiinn treysta
skattskil, jafnframt því að auðvelda innheimtuna.
• Frádráttarheimild virðisaukaskattsins bætir
samkeppnisstöðu íslenskra fyrirtækja gagnvart
erlendum fyrirtækjum, bæði innanlands og á
erlendum mörkuðum. Ástæðan er sú að innskattur af
rekstrarvörum fæst frádreginn.
• Samkeppnisstaða íslenskra fyrirtækja jafnast
innbyrðis.
Fyrirtæki sem er að byggja upp aðstöðu og búnað,
þ.e. þarf að fjárfesta, ber í núverandi kerfi meiri
kostnað af söluskatti en rótgróið fyrirtæki. Þetta
vandamál erúrsögunni í virðisaukaskatti.
• Virðisaukaskatti er ætlað að treysta skattskil.
Innheimtan dreifist á fleiri aðila og þar af leiðandi
verða upphæðirnar lægri hjá hverjum. Einnig verður
stór hluti skattsins innheimtur í tolli en það treystir
skattskil.
• Skýrari reglur um skattskyldu ásamt færri
undanþágum auðvelda innheimtu.
RSK
RÍKISSKATTSTJÓRI