Morgunblaðið - 01.10.1989, Side 17

Morgunblaðið - 01.10.1989, Side 17
sama róli og hinar stöðvamar. Markús Öm Antonsson útvarps- stjóri treysti mér til að gera breyt- ingar og ég lagði fram greinargerð með hugmyndum að nútímalegu afþreyingar- og upplýsingaútvarpi í dagsins önn.“ — Mættirðu engri mótstöðu? „Jú, margir töldu þetta hið mesta glapræði. Ein kenningin var sú, að það ætti að leggja Rás 2 niður, önnur að hún ætti að vera með popptónlist í samkeppni við Bylgj- una og Stjömuna. En við fengum starfsfrið og smám saman þróaðist þetta. Skoð- anakönnun frá 8. september sl. sýn- ir að enn aukum við hlustun meðan hún minnkar hjá öðrum útvarpS- stöðvum.“ Nú er útvarpsstjóri yfirlýst'ur sjálfstæðismaður, en því verið fleygt að á dægurmálaútvarp- inu starfi eingöngu „kommar", hvernig gengur samstarfið? „Mér finnst ágætt að vinna með Markúsi. Staðreyndin er sú að við höfum lagt faglegan metnað í þetta útvarp og höfum bæði ánægða og óánægða hlustendur án tillits til pólitískra skoðaná þeirra, sem ég tel vera mjög jákvætt. Við emm með 70 til 80 talmálsliði á viku, svo það gefur augaleið að við hittum margt fólk. Samfelld gagnrýnin umfjöllun er það sem gildir." — En hvar ert þú annars í pólitíkinni? „Ég er maður breytinganna," segir hann og ætlar ekki að láta króa sig af. „Vissulega var hér ákveðinn titr- ingur fyrst,“ heldur hann áfram, „og sagt að þetta væru allt „komm- ar“ . á dægurmálaútvarpinu. Það hefur aldrei valdið mér áhyggjum, enda rangt. Hitt hef ég heyrt og finnst öllu alvarlega, og það er að þettasé „karlaútvarp". Hér á Rás 2 starfa mjög færar konur en þær eru fáar á dægur- málaútvarpinu. Við þurfum að fá fleiri til liðs við okkur. Ekki einung- is til að fá annan tón og áferð, heldur einnig til að fá aðrar hug- myndir. Konur hafa rætt um að þær eigi erfitt uppdráttar á vinnustöðum og það getur verið rétt. Hér hjá okkur eins og annars staðar. Þegar staða losnar hér á dægurmálaút- varpinu, þá sækja um tíu karlmenn á móti einni konu og við þurfum fólk með reynslu. Þetta er hart keyrð lítil ritstjóm, blóð og sviti allan daginn, við störf- um hér átta og sendum út í fimm klukkustundir hvern virkan dag. Því gefast fá tækifæri til að þjálfa upp nýtt hæfileikafólk. En vonandi breytist það nú þegar við erum orð- in stór og sterk. Varðandi samstarfið á deildinni, þá hefur það gengið vel. Félags- andinn er góður en við erum hörð hvert við annað, kyngjum bæði hrósi og ákúrum á hveijum degi.“ — Þetta er harður heimur? „Já, þetta er harður heimur, en ég held að vel hafi til tekist.“ — Verður þú aldrei þreyttur á þessu? „Ekki þreyttur á starfinu, en auðvitað er maður oft úrvinda og kemur út með skottið milli lappanna þegar illa hefur gengið. Hins vegar fæ ég mikil viðbrögð frá fólki og þau em nærandi. Þau em orkulindin mín.“ Hefur „skelin" ef til vill harðnað í þessum óvægna heimi? Nei, ég tek það jafn nærri mér og fyrr ef mér finnst eitthvað fara úrskeiðis. En ég er kannski fljótari að afgreiða ómaklega gagnrýni, er hættur að láta hana pirra mig. Fyrst þegar við byijuðum vorum við alltaf í varnarstöðu, en það gild- ir ekki lengur. Ég tel mig þekkja útvarp það vel að ég geti lagt kalt mat á þá gagnrýni sem við fáum. Tilfínningaleg hitamál eru erfið- ari. Við fjölluðum um ástandið á Patreksfirði þegar mest gekk á og vorum með sérstakan símatíma. Þarna var fólk að missa eigur'sínar og það hljómaði kannski kaldrana- lega þegar ég spurði viðmælanda MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. OKTÓBER 1989 C 17 Qtvarpspersóna mín er VONANDISKÝR, EKKISÚ PERSÓNA SEM ÉG ER HEIMA HJÁ MÉR A KVÖLDIN EÐA HJÁ FORELDRUM MÍNUM Á SUNNUDÖGUM. ÉG ER KANNSKIFLJÓTARI AD AFGREIÐA ÓMAKLEGA GAGNRÝNI, ER HJETTUR AÐ LÁTA HANA PIRRA MIG. ÉG TREYSTIÞVÍ ALLTAF AÐ FÓLK MUNDIKOMA NIÐUR Á JÖRÐINA, OG ÞEGAR ÞAÐ KOM ÞÁ TÓKUM VID Á MÓTI ÞVÍ.“ minn: Af hveiju flyturðu ekki til Reykjavíkur? En ég lít ekki svo á að hlutverk mitt sé að láta vita hvar samúð mín liggur. Ég spurði á þennan hátt til að fá sannleikann fram og skýr svör. Það komu fram mikil viðbrögð við þessum þætti og ég fékk að heyra það frá mörgum að þetta hefði verið gott útvarpsefni. En það komu líka hvít blóm og kort áritað eitthvað á þessa leið: Patreksfjörður var tekinn af lífi þ. 10 sept. sl, útförin hefur farið fram í Þjóðarsál- inni, blóm og kransar vinsamlegast sendist til Reykjavíkur. - Þetta eru harkalegustu viðbrögð sem ég hef fengið, næstum eins og morðhótun. Þarna hefur einhver orðið sár. Mér fannst ég samt ekki hafa gert neitt rangt. En ég las kortið upp í þættinum, kom því á framfæri að ég hefði móttekið þetta.“ — Þú ert nú dálítið frakkur. „Já, það er ég. Vinnuaðferð mín er að vera snöggur upp á lagið. Ég tel það móðgun við hlustendur að vera ekki ákveðinn. Samband útvarpsmannsins og hlustandans getur orðið svo firrt. Eg er alla jafna ekki að hugsa um viðmælanda minn, ég er að hugsa um hlustand- ann þegar ég bý til útvarp, ekki að koma mér í mjúkinn hjá ein- hveijum." Mörgum finnst Stefán vera með eigin skoðanir í útvarpinu og ég nefni það við hann. Hann leiðréttir mig og segist vera með skoðanir, en alls ekki eigin nema þegar umræður leyfa. En að hvað miklu leyti telur hann að útvarpsmaður eigi að halda per- sónu sinni til baka? „í þeirri tegund sem útvarp okk- ar er göngum við langt í því að vera persónuleg, ég hvet fólk mitt til að vera persónulegt án þess þó að reka áróður. Við erum félagar fólksins í dagsins önn, bæði góðir og slæmir eins og gerist með fé- laga, en alltaf fólk af holdi og blóði sem talar við hlustandann. Útvarpspersóna mín er vonandi skýr, ekki sú persóna sem ég er heima hjá mér á kvöldin eða hjá foreldrum mínum á sunnudögum. Ég held að allir útvarpsmenn ættu að spyrja sig: Hvernig útvarps- persóna vil ég vera? Og þróa hana síðan. Ég vonast ef til vill eftir að fólk telji mig vera víðsýnan „húmanista“ og ég tel mig raunar vera það. Það TT—I-------' I- , ! I , i" auðveldar mér oft að vera kald- hæðinn. Það á þó ekki alltaf við, ekki þegar haft er viðtal við litla stúlku sem hefur tapað kisunni sinni. Það er alltaf ákveðinn þrösk- uldur sem maður fer aldrei yfir.“ — Nú ert þú framfærinn maður, varstu svona sem barn? „Mér finnst ég ekki framfærinn." — Nú jæja, en hvernig uppeldi telurðu þig hafa fengið, hvað mót- aði þig? Hann hlær: „Á ég nú að fara að tala um pabba og mömmu!?“ Svo verður honum orðfátt, sem kemur ekki oft fyrir, segir svo loks eftir að hafa horft á tölvuna sína drykklanga stund: „Hvaðan kemur áhugi á einhveiju? Ég held að ákveðin heimsleg sýn hafi verið á heimili mínu. Móðurafi minn var skipstjóri, faðir minn var einnig sjómaður og átti mikið safn siglinga- og ferðabóka sem ég drakk í mig. Það var mikið hlustað á útvarp heima og ég man að alltaf áður en ég fór í tímakennsluna til séra Árelíusar þá hlustaði ég á Axel Thorsteinsson segja Lundúna- fréttir. í útvarpsleikritum var alltaf þoka og spenna í Lundúnum. Þetta kom allt heim og saman. Því hlust- aði ég andaktugur á Axel áður en ég fór út í hríðina til að læra að stafa. Ég var heillaður af útvarpinu og þessum stóra heimi. En ég var ekk- ert ákveðinn í að gerast útvarps- maður og kannski geri ég eitthvað annað seinna, vonandi." Stefán Jón hefur stundum „hald- ið framhjá" Ríkisútvarpinu og starf- að á vegum Rauða krossins við hjálparstörf í þriðja heiminum. Ég spyr hann hvaðan áhuginn á slíkum málefnum sé kominn. „Árið 1979 fór ég í frí til Suð- austur Asíu. Maður hættir auðvitað aldrei að vera útvarpsmaður, og þar fylgdist ég með starfsmönnum t rrn---------------------------- Rauða krossins í Thailandi og Kambódíu og fannst þetta afar merkilegt fólk og duglegt. Ég fór á námskeið hjá Rauða krossinum og var sendur til höfuðstöðvanna í Genf 1984. Þaðan ferðaðist ég til Eþíópíu og Súdan sem upplýsinga- fulltrúi, en á þessum tíma ríkti mikil hungursneyð í þeim löndum. Síðan hef ég unnið við fleiri störf í Afríku. Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á málefnum þriðja heimsins. Ég held að þekking á fjarlægum lönd- um sé ein leiðin til að vera gildandi í starfi útvarpsmannsins.“ Skoðanakannanir sýna að Rás 2 blómstrar meðan einkastöðv- arnar njóta minni vinsælda og ég spyr Stefán Jón hver skýringin sé á því? „Ríkisútvarpið fékk rafstuð þeg- ar einkastöðvarnar byijuðu. En einkastöðvarnar byggðu á veikum grunni, það skorti ekki áhugann og kraftinn en úthaldið höfðu þeir ekki. Þetta var eins og maraþonhlaupari sem byijar á því að taka á sprett og springur því fljótlega. Svo fannst mér þeir hlaupa í öfuga átt líka, en það er þeirra mál. Við höfðum 60 ára sögu að baki okkur og ég vissi að við mundum vinna á úthaldinu. Rás 2 fékk reyndar líka óskastartið á sínum tíma, þetta var eitthvað nýtt og fólk hlustaði. Íslendingar eru nýj- ungagjarnir. En þegar nýjabrumið er farið, hvað þá? Við höfum haft tíma hér og höf- um ekki tekið þátt í samkeppni frá degi til dags, heldur hugsað fram í tímann. Ég hef mynd í kollinum af því hvernig útvarpið okkar verð- ur eftir tíu ár.“ Ekki vill hann lýsa þeirri mynd, en segir svo að Stjarnan hafi verið „útvarpspartý" þar sem menn skemmtu sér og dönsuðu fram á rauða nótt, en daginn eftir voru allir farnir og ekkert eftir nema tómar flöskur. „Ég er líka viss um, að hefði Bylgjan haldið áfram á þeirri braut sem hún byijaði á, en ekki farið út í samkeppni við Stjörn- una sem poppútvarp, þá stæði hún betur að vígi núna. Á fyrsta ári tóku þeir líka mikið af rekstrarfé til að greiða hluthöfum arð. Ég treysti því alltaf að fólk mundi koma niður á jörðina, og þegar það kom þá tókum við á móti því.“ — Hver heldurðu að þróunin verði hjá sjónvarps- og útvarps- stöðvum hér á landi? „Mér finnst Stöð 2 vera ævin- týralegt dæmi, sjálfsagt senda þeir út áfram ef fjárhagurinn gengur upp. En mér sýnist þeir ætla að setjast á myndlyklana sína svo ekk- ert bendir til að þriðja sjónvarps- stöðin sé væntanleg. Ég hef þá trú að hér verði áfram ein eða tvær útvarpsstöðvar sem verða að mestu með popptónlist, missterkar að vísu, því hér er alltaf ákveðinn hópur sem vill fá sitt popp! Útvarpið okkar hentar ekki öllum í einu. En hvað okkur varðar þá erum við búin að sanna að Ríkisút- varpið nýtur hylli hlustenda. Fólk var spurt í skoðanakönnun til hvaða stofnunar það bæri mest traust til. RÚV var efst, 66% sögðust treysta Ríkisútvarpinu. Þannig að fólk hlustar á Ríkisút- varpið sem fyrrum. Aftur á móti kann framtíð þess að ráðast af pólitískum ákvörðunum. Okkar líf er undir pólitík komið. En ef tekin verður ákvörðun um að skera af RÚV, draga úr hlut- verki þess, þá óska ég eftir að slíkt verði tilkynnt opinberlega. Ekki að Ríkisútvarpinu verði látið blæða hægt út í þeirri von að enginn taki eftir því.“ fl Laeriö í USA: k5- o O Fræðslufundur um nám við Pacific Lutheran University Pacific Lutheran University (PLU) var stofnaður af norskum innflytjendum árið 1890 og hefur ávalit haldið sambandi við IMorðurlöndin. Margir kennarar og nemendur eru af norrænu bergi brotnir og yfir 60 nemendur frá IMorðurlöndum (þ.á.m. nokkrir íslendingar) stunda nú nám við PLU. VZ terkur og k-/ hagkvæmur auglýsingamiöill! s PLU er mjög vel metinn einkaháskóli. Hann er frekar litill (u.þ.b. 4000 nemendur) og þægilegur, og er staðsettur í Tacoma í Washington-fylki, 60 km. suður af Seattle, við vesturströhd Bandaríkjanna. Meðal þess sem skólinn býður upp á er: • B.A. nám í fjölmiðlafraeði, kennslufræðum, listum, tónlist og skandinavískum fræðum; • B.S. nám í tölvuverkfræði, hjúkrun og íþróttum; • B.B.A. og M.A. nám í viðskiptafræði; • B.S. og M.A. nám í tölvufræði. Á vegum skólans eru í boði styrkir, sem borga a.m.k. hluta af skólagjaldinu. IJöfðar til 11 fólks í öllum starfsgreinum! JltarðiiiiWafrffr Charles Nelson, háskólaritari hjá PLU, er kominn til landsins í heimsókn og mun halda fræðslufund um nám við PLU: miðvikudaginn 4. október, kl. 20.30 í Norræna Húsinu. Allir velkomnir! (|®I)PACIFIC LUTHERAN UNIVERSITY Tacoma, Washington 98447 VETRARSTARHD HAFID! Innritun í alla flokka SUÐURVER HRAUINIBERG S. 83730 S. 79988 FÍD.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.