Morgunblaðið - 01.10.1989, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ
VELVAKANDI SUNNUDÁgUR l. OKTÓBKR 19S9
CT3£
leitist við að svelta dreifbýlið þjón-
ustulega sagðist Methúsalem telja
stundum of mikið úr þessum mis-
mun gert og hvað varðaði trygging-
ur og bankamál þá væru höfuð-
stöðvar þeirra mála í Reykjavík og
þar væri fullur skilningur á þörfum
landsbyggðarinnar.
Örðugleikar í rekstri
fyrirtækja
Að lokum ræddi fréttaritari við
Eyjólf Sigurðsson en hann rekur
steypustöð og vörubílaútgerð. Hann
sagði að vissulega heyrðust raddir
um ákveðna örðugleika í rekstri
fyrirtækja hér og á stöðum eins og
Vopnafirði, þar sem undirstaðan
væri útgerð og fiskvinnsla. Gerðu
öll samdráttareinkenni mjög fljótt
vart við sig í þjónustugreinum líka.
Eyjólfur tók fram að vont gæti ver-
ið að átta sig á hvort um raun-
verulegan samdrátt í t.d. bygginga-
iðnaði væri að ræða, þar sem allar
slíkar framkvæmdir væru mjög
breytilegar á milli ára og undanfar-
ið hefðu nær eingöngu verið reist
hér einingahús út timbri. Einnig
nefndi Eyjólfur að alltaf væri eitt-
hvað um verkefni í nærliggjandi
byggðarlögum og þá aðallega
Bakkafirði.
B.B.
Kaldriíjuð
meðferð
á börnum
Til Velvakanda.
Það er í Kringlunni. Faðir ber
barn sitt á öxlum, heldur í það
með annarri hendi en í hinni hefur
hann logandi sígarettu. Reykurinn
liðast upp meðfram höfði barnsins
sem hlýtur að anda að sér óloftinu.
Sama stað. Kona situr á bekk,
barnavagn fyrir framan hana. Hún
er að reykja. Gusurnar ganga yfir
barnið í vagninum. (Hvernig er það
annars, ber ekki forráðamönnum
Kringlunnar að hlíta landslögnm?
Lög um tóbaksvarnir eru fortaks-
laus um að þarna sé. bannað að
reykja.)
Flugvél á leið heim úr sólar-
landaferð. Flestir farþegarnir velja
reyklaust. Nokkrir kjósa þó reyk-
svæðið aftast í farþegarýminu.
Ekki aðeins fyrir sig heldur líka
börnin sín, sum fárra ára. Svælan
er gegndarlaus.
Því miður, aðeins þijú dæmi af
nýmörgum um vægast sagt kald-
rifjaða meðferð fullorðinna á börn-
um sem þeir ættu að vernda, en
víla þó ekki fyrir sér að eitra fyrir
þeim andrúmsloftið um leið og
þeir fylla sín eigin lungu af óhroð-
anum.
Er ekki mál að linni?
Faðir
Góð stemmn-
ing í Skíða-
skálanum
Til Velvakanda.
Það eru óneitanlega á margan
hátt forréttindi að vera Reykvíking-
ur. Eitt er það, hve örstutt er að
skreppa út í ósnortna náttúruna,
og þekkt hef ég menn, sem árum
saman höfðu aukið þætti við
lífshamingju sína með því að fara
á hveijum sunnudegi árla morguns
í slíkar ferðir, og voru komnir aftur
heim til sín í hádegisverð. Einn
þeirra átti bílinn og áhugann, hinir
áhugann einan.
Veturinn setti að sjálfsögðu tak-
mörk fyrir þessum ferðum, enda
þekktust ekki torfærubílar þá. En
eftir að skíðaáhugi vaknaði fyrir
alvöru, með tilkomu Skíðaskálans
í Hveradölum, breyttist öll aðstaða
til útivistar að vetrarlagi, og allir
sem vettlingi gátu valdið, streymdu
þangað þegar þess var nokkur kost-
ur, og þaðan eigum við margar
aldnir borgarar ógleymanlegar
minningar, og þykir vænt um þann
stað. Það var einhvern tíma í sum-
ar, á sunnudegi, að Ieið okkar hjón-
anna lá útúr bænum að kvöldlagi,
og ferðinni heitið austur Hellis-
heiði. Þegar komið var í Hveradali,
datt okkur í hug, að drekka kvöld-
kaffi í Skíðaskálanum, uppá gamlan
kunningsskap við þann stað.
í skemmstu máli urðum við stór-
hrifin. Þarna var gamli skálinn ris-
inn úr öskustó, glerfínn og elskuleg-
ur griðstaður, með þessa einu
sönnu, notalegu stemmningu, sem
ekki verður annars staðar fundin.
Það sem upphaflega átti að vera
kaffibolli í skyndi, varð að stórfeng-
legri veislu, innan um svignandi
hlaðborð herlegra kræsinga, og
mátti hver borða eins mikið og hann
gat í sig látið, fyrir verð, sem var
ótrúlega lágt miðað við alla þessa
dýrð. Þessi helgarheimsókn verður
okkur ógleymanleg. Á leiðinni heim
hvarflaði hugurinn til þess tíma
þegar við gömlu hjónin, ásamt ótal
öðrum Reykvíkingum, tókum þátt
í krónuveltunni sem efnt var til
forðum daga í þeim tilgangi að
koma upp þessum sælustað.
Ætli maður hafi nokkru sinni á
ævinni varið krónu betur?
Atli Már
Eyjólfúr Sigurðs-
son eigandi
steypustöðvar-
innar Steiney.
. *
Otakmarkað vald
spillir öllu
Til Velvakanda.
Allir frelsisunnandi menn hljóta
að fylgjast vel með gangi mála í
kommúnistaríkjunum, þegar fólkið
loksins eftir marga áratuga kúgun,
fær að tjá sig. Kerfið er svo gersam-
lega búið að ganga sér til húðar, að
eftir stendur fólk svo útarmað að
ekki er hægt að auka vinnuafköstin
sakir langvarandi skort á matvælum
og ómennskum aðbúnaði á vinnu-
stöðum. Þetta er árangurinn af göf-
ugum hugsjónum marxismans, sem
var svo fallegar á pappírnum að
menntafrömuðir Vesturlanda trúðu
og féllu fram og tilbáðu kenninguna.
Þeir virðast alveg hafa gleymt því,
að ótakmarkað vald spillir alltaf öllu.
Sérréttindin kunna sér aldrei hóf.
Kommúnisminn átti öllu að bjarga
í heiminum. Hér á Islandi komu
„hugsjónamenn" fram sem trúðu að
kaupfélögin með Sambandið gætu
bjargað bændastéttinni. Sambandið
átti að flytja inn vörur á besta verði
fyrir þá og annast afurðasöluna líka
á besta verði. Framsóknai-flokkurinn
lagði svo til öll fríðindin. „Hugsjóna-
mennirnir" hugsuðu bara um bænda-
stéttina og heildsalarnir í Reykjavík
og „Grimsby-lýðurinn" á mölinni
gátu étið það sem úti fraus.
Hvernig standa svo málin í dag?
Almenningur hefur fundið það fyrir
lifandi löngu, að vöruverðið er hæst
hjá kaupfélögunum. Allir muna
hvernig Dagur á Akureyri brást við
þegar Hagkaup fór að versla þar.
Blaðið hefur örugglega verið að
gæta hagsmuna bæjarbúa, ekki síður
en gert hefur verið í kommúnistaríkj-
unum. Ef vel á að ganga í Austur-
Evrópu, þá hljóta að fara mörg SIS-
sambönd norður og niður, og for-
stjórarnir munu bölva. íslenska þjóð-
in mun lifa áfram þótt SIS fari á
hausinn, eins og svo oft gerist með
fyrirtæki sem ekki eiga fyrir skuldum
og eru orðin baggi á þjóðinni. Skúli
fógeti mundi þá gráta þurrum tárum
væri hann ofar moldu núna.
Húsmóðir
KJOLFOT - SMOKING
OG ALLT TILHEYRANDI
♦Smokingleiga*
V atnsveita
Reykjavíkur
80 ára
í tilefni af afmæli veitunnar mun verða
haft „opið hús“ í dælustöðvunum í
Heiðmörk, sunnudaginn 1. október nk.
í því tilefni munu Strætisvagnar
Reykjavíkur halda uppi ferðum frá
Lækjartorgi að Gvendarbrunnum.
Vagnarnir verða merktir „Vatnsveita
Reykjavíkur 80 ára“ og er tímatafla
vagnanna sem hér segir:
TÍMATAFLA
Mín. yfir heila klst.
Frá Lækjartorgi...............15
Hlemmur.......................20
Grensás..................... 28
Stengur..................... 32
Rofabær..................... 35
Rauðhólar.................43 og
síðan að Gvendarbrunnahúsi
Ekið er á klukkustundarfresti
Fyrsta ferð frá Lækjartorgi kl. 13.15.
Síðasta ferð frá Lækjartorgi kl. 17.15.
Þar sem umferð einkabíla er ekki levfð innan
verndarsvæðanna. er þeim sem í einkabílum
koma. bent á að geyma bílana í Rauðhólum
nálægt afleggjaranum inn á verndarsvæðið.
Strætisvagn mun verða í ferðum frá Rauðhólum
til Gvendarbrunna.