Morgunblaðið - 01.10.1989, Page 12
íá c?......- uömjm^mMAMNúFé^sri^úMW^ÉÆSMM. .ÖKÍ'ÖBEÉ’.lá'á&'! .
MflTUR OG DRYKKUR 'Hvers
vegnagekk Lodvík XV med kartöflugras
í hnappagatinu?
Frænka
Bellu Donnu
Ó, KARTAFLA, þú hnellna suður-ameríska senjoríta, afætt nátt-
skuggans, eins og tómaturinn og tóbakið og hin banvæna Bella
Donna. Formæður þínar fluttust frá Perú til Spánar um 1565 og
seigluðust norður eftir álfunni, þar til nokkrar þeirra höfnuðu í
garði Hastfers baróns á Bessastöðum 1758 eftir að liafa velkst lengi
í hafi. Enn lengur fúlsaði landslýður við þeim, utan stöku fyrir-
menni upplýst, en nú er svo komið að hvert, og eitt okkar hesthúsar
55 kg af þínum líkum á ári hverju, ó, kæra kartafla, þrútin af mjölva,
fjör- og steinefhum. Þú ert ekki bara þögull stuðningsmaður lamba-
kjötsstjórnarinnar, heldur besti bandamaður þeirra sem vilja eða
verða að borða vel og ódýrt, enda ættum við öll að fara í kartöflukúr
á haustin þegar þú ert safarík og þung af C-vítamíni. Hvað er betra
en ný, íslensk kartafla með dilli, salti og drjúpandi smjöri af hverjum
fingri?
En þú gerðir Loðvíki XIII ljótan
grikk hér um árið þegar hann
ætlaði að kynna þig fyrir hirð sinni.
Reyndar var ekki við þig að sakast
heldur yfirsoðbúrsfant hans hátign-
ar sem vissi ekki
að litlu, grænu
berin þín, sem ná
sem betur fer
sjaldan þroska hér
á landi, eru ban-
eitruð. Þau matbjó
hann í fávisku
sinni og gjörvöll
hirðin lagðist
eftir Jóhönnu
Sveinsdóttur
ósjálfbjarga með uppsölum og nið-
urgangi.
Þetta leiðindaatvik hefti landnám
þitt um Frakkaveldi í hálfa aðra
öld, eða þar til ráðgjafi Loðvíks XV,
Parmentier, fékk konung til að
ganga með þitt græna gras og eitr-
aða ber í hnappagatinu í áróðurs-
skyni fyrir ágæti þínu í hungurs-
neyðinni miklu 1769. Reyndar
beittu þeir félagar fleiri bellibrögð-
um. Eftir það fékk ekkert stöðvað
sigurför þína í Mið- og Norður-
Evrópu undir nafninu „konungs-
hnýði“. Og þið Parmentier, hinn
ókrýndi kartöfluprins, tengdust
þaðan í frá órjúfanlegum böndum
á matseðlum veitingahúsa um víða
veröld — og á síðustu árum hefur
meira að segja Steinunn Sigurðar-
dóttir bundist þér, hér um bil með
silkiböndum og uppskipunarköðl-
um, í ljóðabók sinni Kartöfluprins-
essunni. Vegur þinn er mikill orð-
inn, kæra vinkona, hirð þín stór.
Ofhbakaðar kartöflur
parmentier
ið brauðmylsnunni saman við og
setjið yfir kartöflurnar. Bakið við
180 gr. í u.þ.b.. 45 mín. — Fallegt
er að skreyta tilbúinn réttinn með
því að raða yfir hann miðjan tóm-
at- og eggjabátum til skiptis (1
tómatur, 1 egg), svo að þeir myndi
blóm, og stinga e.t.v. steinselju-
kvisti í miðjuna.
Rösti
Þessar svissnesku kartöflu-
pönnukökur eru fínár með hrásalati
eða sem meðlæti með ýmiss konar
kjöti og pylsum. Uppskrift handa
fjórum.
4 stórar bökunarkartöflur eða 8-12
minm
salt, pipar, timjan
100 g smjör
1. Afhýðið kartöflurnar, rífið þær
gróft og leggið þær innan í tvö
viskustykki til þurrkunar. Kryddið
svo með salti, pipar og timjan (eða
öðrum kryddjurtum).
2. Hitið smjörið á litlum pönnum,
deilið rifnum kartöflunum á þær
og þjappið þeim vel saman svo að
þær myndi þétta pönnuköku. Steik-
ið við vægan hita þar til neðra byrði
þeirra er orðið brúnt og stökkt,
snúið þeim bá við og bakið hinum
megin. Berið strax fram.
Kartöfluklattar
Mjög fljótlegir og handhægir
klattar sem má borða við öll tæki-
færi: sem morgunverð eða eftirrétt
og þá með t.d. með eplamauki og
sýrðum rjóma, sem léttan hádegis-
verð eða forrétt og þá t.d. með sýrð-
um ijóma og grásleppuhrognum
eða reyktri síld. Síðan eru þeir til-
valinn náttverður ef óvænta gesti
ber að garði.
Uppskriftin er fyrir 3-4. 5 dl rifn-
ar hráar kartöflur
4 msk. smátt saxaður laukur
1 tsk. salt
2 stór egg
nokkrar msk. raspur, hveiti eða
hveilhveiti
1. Afhýðið og rífið kartöflurnar og
leggið milli tveggja viskustykkja til
að pressa úr þeim safann. Hrærið
saman við þær smátt söxuðum eða
mörðum lauknum, salti, tveimur
eggjum og bindið hræruna saman
með raspi eða hveiti, þar til ykkur
finnst hún vera orðin vel sam-
hangandi. Malið að lokum svartan
pipar saman við.
2. Hitið smjör og olíu til helminga
á pönnu, setjið á hana kúfaðar
matskeiðar af deigi og fletjið það
varlega út. Steikið klattana við
miðlungshita þar til þeir eru orðnir
gulbrúnir og stökkir og sporðrennið
þeim samstundis, sjóðheitum, með
sýrðum ijóma og því meðlæti sem
þið hafið valið.
LÆKNISFRÆÐI/Var karlinn í
krambúbinni geggjabur?
Smásjáin opnar
nýja heima
Ekki höfðu þeir allir bréf upp á læknakunnáttu mennirnir sem
stigu stóru skrefin á þróunarbraut læknisfræðinnar. Pasteur var
efhafræðingur, Röntgen eðlisfræðingur og sá sem varð fyrri til en
aðrir að klambra saman smásjá og virða fyrir sér blóðkorn og bakt-
eríur verslaði með álnavöru.
Hann hét Antoni van Leeuwen-
hoek (frb. Leivenhúk), fæddist
í Delft á Hollandi árið 1632 og átti
þar heima mestalla ævi. Drengurinn
missti ungur föðui' sinn en móðir
hans hugðist setja
hann til mennta.
Skólagangan varð
endaslepp því að
sextán ára gerðist
stráksi lærlingur
og búðarloka hjá
klæðskera í Amst-
erdam. Eftir fimm
eða sex ára dvöl
eftir Þórorin
Guðnason
þar sneri hann aftur til heimabæjar
síns og stofnaði klæðaverslun.
Hann kvæntist og eignaðist mörg
börn en þau munu fæst hafa orðið
langlíf enda var ungbarnadauði
mikill í flestum löndum heims fyrr
á öldum. Samhliða kaupmennsku
tók hann að sér að líta eftir ráð-
húsi bæjarins og sjá um að þar
væri allt í röð og reglusemi.
Kaupsýslan og eftirlitsstörfin
voru ekki ýkja tímafrek svo að Lee-
uwenhoek gat löngum dundað við
það sem honum fannst skemmtileg-
ast en það vat' að slípa sjóngler og
raða þeim á ýmsa vegu í málm-
hólkum. Hann var tíður gestur á
verkstæðum gleraugnasmiða, gaf
nánar gætur að öllu sem þeir tóku
sér fyrir hendur og varð að lokum
flestum þeirra slyngari í glerslípun.
Málmhólkana smíðaði hann sjálfur
því að hann var laginn í höndunum
við fleira en gler, og efnið í þá
sníkti hann hjá kopar- og silfur-
smiðum sem hann heimsótti oft eins
og gleraugnamennina og gerðist
meira að segja gullsmíðanemi um
skeið. En allt vat' þetta umstang
til þess gert að fullkomna sig í
slípun sjóngleija og koma saman
kíki sem tæki fram öllum þeim
stækkunargleijum sem völ var á.
Með því móti gæti hann skoðað
margt forvitnilegt en svo smátt, að
það var hulið augum annarra dauð-
legra manna. Athygli hans beindist
í fyrstu að litlum flugum, flóm og
lúsum. Þær sáust að vísu með ber-
um augum en Leeuwenhoek lang-
aði að grannskoða þær, til að mynda
gá að hvernig broddurinn á flónni
liti út og sömuleiðis skankarnir á
lúsinni. Fluguhausa lék hann sér
að að opna og virti heilann í þeim
fyrir sér af mikilli aðdáun á sköpun-
arverkinu.
En þó að margt væri merkilegt
að sjá og tíminn fljótur að líða í
skoðunarferðum um þessa undra-
heima gaf hann sér tóm til að slípa
ný og ný gler og endurbæta upp-
finningu sína jafnt og þétt. Smá-
sjám hans fjölgaði og skiptu þær
tugum áður en lauk. Eftir því sem
þær urðu fullkomnari varð forvitni
hans ágengari. Hann vildi sjá fleira
og smærra, leita fanga víðar og
kafa dýpra, en hann sagði fáum frá
ævintýrinu og fór með þessa_ iðju
sína eins og mannsmorð. Ohjá-
kvæmilega fengu nábúar þó pata
af stússi hans og stungu saman
neíjum um hvort karlinn í krambúð-
inni væri genginn af göflunum.
Leeuwenhoek vissi um pískur sam-
borgara sinna og lét sér fátt um
finnast. Hitt þótti honum mikils um
vert að Konunglega vísindafélagið
í Lundúnum hafði sýnt athugunum
hans áhuga. Læknir í Delft og trún-
aðarvinur Leeuwenhoeks, de Graaf
að nafni, skrifaðist á við félags-
menn í Konunglega út af dálitlu sem
hann hafði tekið eftir þegar hann
var að kryíja lík, einhveijum undar-
legheitum í eggjastokkum sumra
kvenna. Hann minntist einu sinni í
bréfi á glerjagrúskarann_ vin sinn
og taldi að hann hefði frá mörgu
að segja ef hann fengist til að leysa
-
Nægir sem aðalréttur handa fjór-
um ásamt ómældu nýju brauði,
annars sem meðlæti handa sex
ásamt naumt skömmtuðu kjöti.
u.þ.b. 700 g kartöflur
'íi laukur, saxaður
u.þ.b. 2 msk. smjör
3 msk. hveiti
2 dl sýrður ijómi
1 h dl rifinn ostur, gjarnan sterkur
1 dl mjólk
2 msk. söxuð steinselja
salt, nýmalaður pipar, paprikuduft
2 harðsoðin egg, í sneiðum
2 tómatar, niðursneiddir
1 h di'ný brauðmylsna
1. Sjóðið kartöfiurnar í saltvatni í
u.þ.b. 10 mín., afhýðið þær síðan
og skerið í sneiðar.
2. Steikið saxaðan laukinn í 1 msk.
af smjöri þar til hann er orðinn
meyr. Minnkið hitann og hrærið
hveitinu saman við, þá sýrðum
rjóma, rifnum osti, mjólk, steinselju,
saiti, paprikudufti og pipar. Hrærið
í þar til osturinn er bráðnaður. Setj-
ið nú kartöflurnar út í sósuna.
3. Smyijið grunnt, eldfast fat og
setjið helming kartöflugumsins þar
í, raðið eggja- og tómatsneiðum
yfir og skellið hinum helmingi
gumsins yfir þær.
4. Bræðið 1-2 msk. af smjöri, bland-
PHILIPS
FRYSTISKÁPAR OG KISTUR
FALLEG GÆÐAVARA
AFB716
Rúmmál 140 lítrar. Þrjár
hlllur með loki að framan og
frystibúnaði. Ein skuffa.
Mál: Breidd 55, Hæð 85,
Dýpt 60 cm.
AFB717
Rúmmál 220 lítrar. Fjórar hillur
með loki að framan og frysti-
búnaði. Ein skúffa. Sérstök
hraðfrysting.
Mál: Breidd 59, Hæð 120, Dýpt
60 cm.
AFB718
Rúmmál 290 litrar. Fjórar hillur með loki
að framan og frystibúnaði. Ein skúffa.
Sérstök hraðfrysting.
Mál: Breidd 59, Hæð 140, Dýpt 60 cm.
Rúmmál 330 litrar. Sex hillur með loki að framan og
frystibúnaði. Ein skúffa. Hjól til að færa skápinn.
Mál: Breidd 59, Hæð 160, C ýpt 60 cm.
d