Morgunblaðið - 01.10.1989, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. OKTÓBER'1989
C 15
Sökn-
uður og
minning
Bókmenntir
Erlendur Jónsson
Steinunn Eyjólfsdóttir:
BÓKIN UTAN VEGAR.
Bókrún. Reykjavík, 1989.
Bókin utan vegar eftir Steinunni
Eyjólfsdóttur kom út fyrir tveim
árum. Nú er hún send á markað í
annarri prentun ásamt enskri þýð-
ingu eftir Karl J. Guðmundsson og
Ragnhildi Ófeigsdóttur. Útgefandi
gerir eftirfarandi grein fyrir efni
bókarinnar í fréttatilkynningu:
)>Bókin utan vegar er ort í minn-
ingu sonar höfundar sem lést af
slysförum tvítugur að aldri. Hún
er tileinkuð foreldrum sem verða
fyrir slíkri reynslu og öllum hinum
líka. Ljóðin verða óður til lífsins sem
oft er ekki vitað hvers virði er fyrr
en dauðinn gerir vart við sig.«
Bókin utan vegar geymir í senh
minningar- og saknaðarljóð. Þau
lýsa heitri tilfinning og sárum
trega. Styrkur þeirra felst hins veg-
ar í hlutlægu raunsæi. Lífið er ekki
hafið upp í neins konar loftkennda
draumsýn heldur er það lofsungið
eins og það er. Skáldkonan tjáir
harm sinn óhikað og opinskátt:
En ég get ekki sofnað.
Ég fer aftur inn í rökkvaða stofuna.
Sest niður í kertaeimnum
meðan aðrir sofa
og rétti út opna lófa.
Mig dreymir að ég finni handtök
sterkra vinnuhanda
í tómum lófum.
Mig dreymir að þú kijúpir
og ég kyssi dökka hárið þitt.
Elegy to my Son nefnist svo
enska útgáfan. Óneitanlega er f
nokkuð ráðist að gefa ljóðin út á
ensku því hingað til hefur gengið
fremur treglega að koma íslenskum
bókmenntum á framfæri í hinum
enskumælandi heimi, meðal annars
vegna nánast ótakmarkaðrar
stærðar bókamarkaðarins og for-
gangs þeirra sem hafa bolmagn til
að auglýsa sig og verk sín. En vissu-
lega eiga þessi ljóð Steinunnar Ey-
jólfsdóttur erindi til hvers sem er
og hvar sem er. Ef ljóð hennar ná
að vekja einhveija athygli utan
landsteinanna má það teljast afrek
út af fyrir sig.
í Kaupmannahöfn
FÆST
í BLAOASÖLUNNI
Á JÁRNBRAUTA-
STÖÐINNI,
KASTRUPFLUGVELLI
OG Á RÁÐHÚSTORGI
Annað bindi fullt af MA-stúdentum
Steinunn Eyjólfsdóttir
Bókmenntir
Jóhanna Kristjónsdóttir
Æviskrár MA-stúdenta II 1945-
1954
Ritstjóri Gunnlaugur Haraldsson
Útg. Steinholt bókaforlag 1989
Þar sem mjög dróst úr hömlu að
skrifa um fyrsta bindi stúdentatals
MA er nú ráð að gera bragarbót
og geta um þetta næsta af fimm
sem er alveg nýkomin út.
Svipað form er á því og fyrsta
bindinu, myndir af hveijum stúd-
entabekk fyrir sig og síðan stuttar
æviskrár og er þetta ljómandi að-
gengilegt. A hinn bóginn rakst ég
á fáeinar villur í þessari bók, á stöku
stað höfðu makar eða börn dottið
út og virtust-þó viðkomandi hafa
gefið upplýsingarnar sjálfir. En hjá
slíku verður vart komist.
Það er ágæt leið að auðkenna
með stjörnu þá sem ekki hafa sent
upplýsingarnar sjálfir. Einnig eftir-
téktarvert hversu tiltölulega fáir
þeir eru og ber það vott um elju:
semi og dugnað ritnefndarinnar. I
henni sitja auk ritstjórans Knútur
Óskarsson, Málfríður Þórarinsdótt-
ir, Björgvin Þorsteinsson, Kristján
Pálmar Arnarson og Hulda Ólafs-
dóttir.
Það er sjaldnast þakklátt verk
að standa í undirbúningsvinnu að
uppsláttarriti eða æviskrárbók með-
an á henni stendur, en eins og vik-
ið hefur verið að fyrr sýna menn
gjarnan mikinn áhuga á að glugga
í slík rit þegar þau eru fullbúin
komin í lesenda hendur.
Kostur við stúdentatalið er líka
að þarna má fá greinagóðar upplýs-
ingar á einum stað um marga í
stað þess að ella þyrfti að leita í
hinum aðskiljanlegustu tölum. Það
er sjálfsagt að benda fleiri mennta-
skólum á að taka MA-menn til fyrir-
myndar þó svo að verkið sé seinunn-
ið.
Mér þykir í þessu riti býsna at-
hyglisvert hversu nýjar upplýsingar
virðast oft vera, svo að þeir í út-
gáfustjórninni hafa greinilega verið
á tánum fram á síðustu stund og
er það til fyrirmyndar.
Af hálfu útgefandans og ann-
arra sem hafa komið nærri þeirri
hlið málsins er sem fyrr allt gott
að segja.
j
VIST
ER
VERÐ-
LÆRRUN
Ny sendtng — fjölbreytt úrval.
Allt að
á öllum
kynningarafsláttur
20%
innihuróum
næstu 2 vikur.