Morgunblaðið - 15.10.1989, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. OKTÓBER
C 7
Frá 1897 til 1950, þegar Þjóðleik-
húsið tók til starfa, var hér eina starf-
ándi leikhúsið í höfuðstaðnum. Um
hin listrænu gæði þarf ekki að fjöl-
yrða. Vitnisburður þeirra er að unnt
var að ljúka upp atvinnuleikhúsi í
Þjóðleikhúsinu eins og hendi væri
veifað, með kjarnanum af leikurum
Leikfélags Reykjavíkur. Himinlifandi
fluttu þeir, þá eins og nú, í nýtt
hús, sem hannað hafði verið sem
leikhús og þar sem allir vegir sýnd-
ust færir — og reyndust vera það.
Þá sáu aftur á móti hugsjónamenn
að ekki dygði að leggja niður Leik-
félagið gamla í Iðnó. í menningar-
borg er rúm fyrir tvö leikhús og hér
hefur meira að segja reynst hljóm-
grunnur fyrir mörg leikhús. Leik-
starfsemi Leikfélags Reykjavíkur
hélt því ótrauð áfram og henni eigum
við að þakka að nú er nýtt Borgar-
leikhús mannað með sæmd. Því skal
aldrei gleymt, að það var hér sem
íslensk leiklist ruddi sér braut til
þess vegs sem hún nýtur nú.
í þau átta starfsár ævi minnar,
sem ég gaf hug minn allan þessu
húsi af miklum metnaði fyrir þá
stofnun sem þar var rekin, var Leik-
félag Reykjavíkur að vinna að því
staðfastlega, svo sem bæði fyrr og
æ síðar, að komast í annað hús —
hús sem gerði okkur kleift að sækja
enn á listrænan brattann — að kom-
ast sem fyrst í Borgarleikhúsið. Nú
hefur sá draumur ræst. En allan-
þann tíma vissi ég hvað ég vildi að
yrði um Iðnó í framtíðinni og ég lifi
enn við þann óskadraum. Þar hefur
verið leikið alla þessa öld og í draumi
mínum er Iðnó leiklistarsafn, þar sem
menn geta, eins ogi svipuðum húsum
erlendis, gengið á fund minninganna,
skoðað myndir og minjar um for-
Uðina og hugleitt sögu um menning-
arafrek sem fremur hefur verið hljótt
um en er sómaauki þessari þjóð.
Og inni í því safni á ætíð að vera
lifandi leikhús til að skapa nýjar
minningar.
snúa við sokkunum af svo miklum
leikara. (Ég veit ekki hvort ég tæki
það að mér í dag. Jafnvel þó Erling-
ur ætti í hlut). En þarna sem ég stóð
í hliðarvængnum og beið eftir næstu
fataskiptingu hjá Erlingi, þurfti ég
mikið að hafa fyrir því að falla ekki
í þá freistni að ganga bara eitt skref
og inn á leiksviðið, segja við aðalleik-
arana, sem voru í einhveiju miðju
skondnu samtali. „Varþáð ekki hing-
að sem ég átti að sækja þvottinn?",
eða eitthvað álíka gáfulegt. Það hefði
verið gaman að sjá hvort þau myndu
ekki bjarga málunum með því að
fara að spinna á móti mér. Eg var
þá alveg ákveðinn í að vera þá eins
lengi inni á sviðinu og mér væri
stætt. Eiga bara eins kvölds leikhús-
feril. Það hefði getað verið dálítið
geggjað eins og krakkarnii’ segja.
En ég læt það ekki eftir mér svo
síðan ei’ ég búinn að vera viðloðandi
þetta ágæta hús í (núna) 26 ár. Þessi
ár hefur Iðnó hefur verið staður
ótæmandi reynslu af öllu tagi. Gleði,
sorgar, sigurvímu, vonbrigða. Hátíða
og hversdaga, reiknisskila og nýrra
áætlana. Nú var ég næstum búinn
að segja: En aldrei hefur þetta hús
verið dautt, en jú, það hefur verið
það. Fátt hefur mér fundist dauða-
legra en að koma í húsið autt og
mannlaust á miðjum sumrum þegar
ekkert hefur verið að gerast þar.
Leikhús lifir ekki raunverulega nema
með því starfi sem þar fer fram.
Nema myð eftirvæntingunni sem
fylgir leitandi fólki sem þar starfar.
Það ér góðs viti að ungir leikarar
eru farnir að vinna „niður frá“ þó
Leikfélagið hafi flutt. Eigum við ekki
öll að heita því að þetta söguríkasta
menningarhús okkar haldi áfram að
lifa og dafna? Þess óska ég. Sjáumst
í Borgarleikhúsinu.
Myndlistarmenn
Erum að opna glæsilega sýningarsali í Aust-
urströnd 6, Seltjarnarnesi.
Hafið samband í síma 625997 eftir kl. 18.00.
Nesgallery.
Hraðlestrarnámskeið
Vilt þú margfalda lestrarhraða þinn?
Vilt þú lesa meira af fagurbókmenntum?
Vilt þú auðvelda þér námið með auknum
lestrarhraða og bættri námstækni?
Svarir þú játandi, skaltu skrá þig á næsta
hraðlestrarnámskeið, sem hefst miðviku-
daginn 18. október nk.
Skráning öll kvöld kl. 20-22 í síma 641091.
Hraðlestrarskólinn
TURBO PASCAL
Byrjendanámskeið í forritunarmálinu Turbo
Pascal fyrir þá sem vilja auka við þekkingu
sína á sviði forritunar.
Leiðbeinandi: Sigfús Halldórs verkfræðingur.
Tími: 23/10, 25/10,27/10, 30/10
og 1/11, kl. 19-23.
.©
Tölvufræðslan
Borgartúni 28 sími: 687590
MARKAÐ URINN
VÖL VUFELLI
SKÓR - FATNAÐUR
- SKARTGRIPIR
o.m.fl.
Tökum upp
nýjar vörur reglulega
Munið filmumóttökuna.
MYNDSÝN býður filmu
með framköllun.
Opnunartími:
Frá kl.13-18 mánudag-föstudags
og 10-14 laugard.
Hlaupaköttur
Nýlegur og nánast ónotaður hlaupaköttur til sölu.
Rafdrifin ipn- og útfærsla, lyftigeta 1000 kg.
Upplýsingar í síma 687760 virka daga kl. 8.00—16.00.
Blesugróf
AUSTURBÆR
I h ð
" Meirci en þú geturímyndad þér!
Grunn II
25-26. október kl. 9-13
Námskeið fyrir lengra komna. Farið verður í
algengustu skipanir MS-DOS stýrikerfisins með æfingum.
ATH: VR og fleiri stéttarfélög sfyrkja félaga sina til þátttöku.
. Allar nánari upplýsingar og bókaniF hjá Ásrúnu Matthíasdóttur
Einari J. Skúlasyni hf. Grensásvegi 10, sími 686933.
Tölvuskóli Einars J. Skúlasonar hf.