Morgunblaðið - 15.10.1989, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 15.10.1989, Blaðsíða 32
32 C MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. OKTOBER BAIiÞANKAR STÓÐUPROF í námsefni 7., 8., og 9., bekkjar grunnskóla Prófin greina þá náms- < þætti sem þárf að undir- byggja betur. Prófin eru samin af reyndum kennurum. * Farið verður yfir úrlausnir með nemendum og þeir fá í hendur greiningu á einstökum þáttum prófsins. Prófað verður í: íslensku, stærðfræði, ensku ogdönsku Engar skuldbindingar um nám tengjast próftökunni. Látið ekki lélega undirstöðu í námsefni grunnskólans stöðva skólagöngu ykkar í framhaldsskóla. Allar frekari upplýsingar um stöðuprófin eru veittar í síma 79233 kl. 14.30- 18.30. Nemenáaþjónustan sf Þangfatea 10, Mjódd WordPerfect 5,0 Byrjendanámskeið í notkun ritvinnslu- forritsins WordPerfect 5,0 (Orðsnilld). Tími: 23., 25., 30. okt. og 1. nóv., kl. 13 - 17. WP 5,0 uppfaersla Framhaldsnamskeið fyrir þá sem vilja Qrn Guðmundsson læra ítarlegri aðgerðir í WordPerfect. viðskipta- og Tími: 20. oe 27. okt. kl. 13-17.korfisfræðin8ur' TÖLVUFRÆÐSLAN Borgartúni 28 sími 687590 jr. tilefni 35 ára afmælis okkar 6. nóvember næstkomandi bjóðum við okkar ágætu viðskiptavinum úrvals rétti, eins og okkur er ávallt lagið, bæði íhádeginu og á kvöldin. 1954-1 1989 PRTATIU OG FIMM Frákr. 520,- íhádeginufyrirsúpuog fisk og á kvöldinfiákr. 1.490,- fyrir fjórréttaðan mat Fro 29. október- 2. nóvember Pönnusteikt gœsalifur i hunangssósu Rabarbarasorbet Tumbauti með madeir- asósu og furusveppum Afmœliskaka „Naustsins" Kr. 1490,- Fra8.-12.október Pönnusteiktur smokkfiskur í hvitlaukssósu Sítrónusorbet Lambalundir á sveppamauki Jarðarberjais meó heitri súkkulaðisósu Kr. 1490,- Fra 16.-19.október Léttreyktur Eyjalundi á piparrót Melónusorbet Grisahnetusteik meó camembert- og portvinssósu Súkkulaóifrauó Kr. 1490,- Frá 22.-26. október Rjómabœtt humarsúpa Vínberjasorbet Léttsteikt gæsabringa meó rjómasósu ogeplasalati Vanilluís meóferskum ávöxtum Kr. 1490,- Borðapantanir í súna 17759 daglega -'■mm 'mm P T- ' - - ngMi Hægt er að fá einkasal fyrir aJIt að 30-40 martns í mat Fagnið með okkur og njótið Ifsins íNausti 100 millj- óna menn Við höfum öll séð þá i sjón- varpinu, mennina. Þeir standa á malarkambinum með risavaxið hábyggt frystihús í baksýn með tölvuvæddum vinnslulínum, togarinn njörv- aður með inn- siglum við bryggjukantinn, saltfiskurinn undir lás og slá, allt á heljar- þröm, fyrirtækið gjaldþrota. skuldirnar metnar á 100 millj- ónir minnst. Vindurinn grípur í hattbarðið, spyrillinn stingur fram hljóðnemanum og spyr þennan myndarlega athafna- mann, hvað er til ráða? Það verður að skapa okkur bærilegt rekstrarumhverfi, segir skulda- kóngurinn. Sá sem skuldar 100 milljónir er maður með mönnum. Allir vilja eiga við hann orðastað, hann sér ekki fram úr kokteil- partýum, fjármálamenn hringja í hann auðmjúkir, hvenær viltu ljá mér eyra elska, þetta er maðurinn sem aldrei fær að borga reikninginn á Hótel Holti. • Þetta er hinn sanni landstólpi, mæður sem ógiftar fegurðar- drottningar líta hann hýru auga. Það er jafnvel talað um hann í baráttusæti. Hinn venjulegi Jónatan hlýt- ur að spyrja sjálfan sig daufur í dálkinn. Hvers vegna kemur enginn og talar við mig? Og svarið er einfalt: Þú skuldar bara eina milljón aulinn þinn. Og það sem verra er, þú ert slíkur asni að þú reynir að standa í skilum. Aðeins ein ógæfa getur hent 100 milljón króna manninn. Það er ef skuld hans fer að síga mikið yfir fjögur hundruð millj- ónir. Ef að bankastjóranum tekst að telja hann á það yfir Irish Coffe að breyta skuldinni í erlent lán þá er voðinn vís. Því í útlöndum þykir ekki fínt að skulda fimm hundruð millj- ónir. Þar eru allskyns dónar sem gerast jafnvel svo frekir að vilja fá borgað á gjalddögum. Hvílík ósvinna! Það mætti halda að þeir hefðu enga þörf fyrir landstólpa þar ytra. Eitt svívirðilegasta dæmið sem við höfum nú fyrir augum er aumingja Pappandreó. Hann fékk lánað þetta ámóta og venjulegur kaupfélagsstjóri og fær engan frið. Skuldastaðan er meira að segja farin að bitna á kvennamálum hans sem voru þó í ærnu klandri fyrir. Nei, við ættum að bjóða Grikkjum að skuldbreyta hít Pappendreó í íslenskar krónur. Okkurmunar ekkert um það! Það er aðeins eitt ráð hægt að gefa þeim sem skuldar eina milljón. Rífðu þig upp úr meðal- mennskunni maður! Sýndu að þú berir þjóðarhag fyrir brjósti. Fjárfestu í einhverju sem getur örugglega iarið á hausinn. Frystihús, flugfélag, kaupfélag, skipafélag, hugsaðu stórt mað- ur . . . brátt fer að vænkast þinn hagur og sannaðu til, símalínurnar glóa, sjónvarps- menn beija utan húsið, brátt geturðu setíð sallarólegur fram- an við skerminn, konan skenk- ir þér kaffi, og þú sérð sjálfan þig standa á malarkambinum, sannan landstólpa á land- stólpavísu, þú heyrir sjálfan þig segja, það verður að fella geng- ið, það verður að skapa okkur bærilegt rekstrarumhverfi. Þegar kemur að auglýsing- um, snýrðu þér að konunni og segir: Heyrðu elskan, ég hef verið að velta því fyrir mér, var ekki einhver Amerikani hér í fyrra, mætur maður, að tala um það í sjónvarpinu að upplagt væri að ala krókódíla á fiskúr- gangi í hverunum. Það hljómar arðvænlega, satt best að segja, þegar maður fer að hugleiða málið. eftir Ólaf Gunnarsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.