Morgunblaðið - 15.10.1989, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 15.10.1989, Blaðsíða 14
MÖRGUNiiiLaÍðÍÐ SÚNNUDAÍXÍR l's.' ökTÖBER % % - S tjórnandi þáttarins fékk þekktan myndhöggvara til að gera brjóstmynd af List eins og hann kynni áð líta út nú eftir öll þessi ár. Áhorfandi í Colorado tilkynnti að myndin væri ótrúlega lík 63 ára gömlum bók- haldara, Robert Clark að na.fni, sem hefði búið þar í allmörg ár, en væri fluttur til Virginíu. Bókarinn var þegar í stað hand- tekinn. Hann vildi hvorki játa því né neita að hann væri hinn seki, en ör og fingraför hans bentu til þess að hann væri John List. Síðan var hann framseldur til Newark í New Jersey og ákærður fyrir morðin fimm í Westfield í nóv- ember 1971. Skömmu síðar sagði talsmaður FBI að verið gæti að Clark væri einnig illræmdasti flugvélarræningi í sögu Bandaríkjanna. Maðurinn, sem hann átti við, kallaði sig „D. B. Cooper“ og rændi Boeing 727 þotu Northeastern-flugfélagsins 24. nóvember 1971 — á þakkar- gjörðardegi Bandaríkjamanna og hálfum mánuði eftir morðin í West- field. Rannsókn er hafin á því hvort flugvélarræninginn og morðinginn hafí verið einn og sami maðurinn. „Djarfasta flugránið“ Boeing-þotan var á leið frá Port- land í Oregon þegar meinleysislegur farþegi rétti flugfreyju miða, þar sem sagði að hann væri með sprengju og mundi taka við stjórn flugvélarinnar. „Cooper,“ eins og hann kallaði sig, neyddi flugstjór- ann til að lenda í Seattle. Þar krafð- ist hann þess að fá fjórar fallhlífar og 200.000 Bandaríkjadali í 20 dala seðlum gegn því að hann sleppti farþegunum og nokkrum úr áhöfninni. Frá Seattle flaug Boeing-þotan áleiðis til Mexíkó, en einhvers stað- ar í grennd við eldfjallið St. Helens suður af borginni spennti „Cooper“ á sig fallhlíf og batt töskuna með peningunum við aðra fallhlíf. Um leið skipaði hann flugstjóranum að lækka flugið í 10.000 fet, fljúga áfram í þeirri hæð og láta aftari landgöngustigann síga. Flugræn- inginn stökk því næst út með alla peningana og ekkert spurðist til hans eftir það. Flestir töldu að hann hefði iátizt, en ekkert lík fannst þrátt fyrir margra mánaða leit. Einu ummerk- in, sem fundust, voru 5.800 dollarar af ránsfengnum, sem rak á land á sandrifi í Columbia-fljóti níu árum síðar. Margir hölluðust að því að villidýr hefðu étið hann lifandi. Athæfi „D.B. Coopers“ hefur verið kallað „ dirfskufyllsta flugvél- arrán sögunnar" og hann varð svo frægur að um hann var gerð kvik- mynd. Hann kom við sögu í dægurlagatext- um og um hann voru sagðir ótal brandarar. Nær- bolir með áletr- unum um hann urðu vinsæl sölu- vara. Guðhræddur Lýsingar á „Cooper" gætu vel átt við Robert P. Clark, sem talið er víst að sé morðinginn List. Ástæðan til þess að hann vakti ekki grun að ráði fyrr en sjónvarps- þátturinn var sýndur í vor yar sú að hann lifði venjulegu og fábreyttu lífi og lét lítið á sér bera samkvæmt könnun The New York'Times. Líf hans snerist um starfið, garðrækt, sjónvarpið og lúthersku kirkjuna. Samkvæmt lýsingu FBI á sínum tíma var John Emil List „snyrtileg- ur til fara,“ ef til vill vopnaður og „áreiðanlega mjög hættulegur“. Vinur Clarks/Lists í Richmond, Virginíu, varð þess hins vegar aldr- ei var að hann væri ofbeldishneigð- ur og taldi hann sauðmeinlausan. Hann hafði áhuga á hafnabolta, tímaritinu National Geographic og fréttum og heimildaþáttum í sjón- varpi. Hann var svo guðhræddur að hann baðst fyrir þegar hann snæddi á hamborgarastöðum og svo löghlýðinn að hann ók aldrei á ólög- legum hraða. Þegar leitað var að List sunnu- dagaskólakennara eftir morðin í nóvember 1971 var slóð hans rakin mmm ERLEND ■ HRINCSfÁ eftir Guðm. Halldórsson í desember 1971 fundust sundurskotin lík móður, eig- inkonu og þriggja barna meinleysislegs bókhaldara í reisulegu íbúðarhúsi frá síðustu öld í bænum West- field, New Jersey, í Banda- ríkjunum. Bókhaldarinn, John Emil List, sem var sunnudagaskólakennari í lút- herstrúarsöfrmði i hjáverk- um, hafði horfið tæpum mán- uði áður. Nú, tæpum 18 árum síðar, virðist bandaríska haftíSr!lan<FBI)hafa VAR HANN EINN “pp,ýs. ILLRÆMDASTI FLUGRÆNINGI huguluín áhorfanda að sjón- r SÖGUNNAR ? varpsþætti um óleyst saka- mál, sem milljónir Banda- ríkjamanna fylgjast með. til Kennedy-flugvallar í New York. Bifreið hans fannst þar, en slóð hans hvarf. Starfsferilsskýrsla, sem Cooper samdi síðar, hefst 1972. Samkvæmt henni starfaði hann fyrst hjá fyrir- tækinu R.C. Miller í Wheatridge, norður af Denver, Colorado. Ekkert slíkt fyrirtæki fyrirfinnst þar og virðist aldrei hafa verið til. Ef til vill var það engin tilviljun að kona Clarks, Dolores, hét Miller áður en þau giftust og að R.C. eru upphafs- stafir Clarks. Engum sögum fer af Clark árið 1972, en „um 1973“ var hann mat- reiðslumaður í Holiday Inn West í Golden, vestur af Denver, og vann á næturvöktum. Hann bjó þá í hjól- hýsi, sem hann kom fyrir í stæði andspænis hótelinu. I Golden kynntist hann 71 árs gömlum verkamanni, Bob Wetmore, sem hafði alið mestallan aldur sinn með- al misyndismanna í skuggahverfum og kúasmala á stórbýlum. Wetmore var kominn ofan úr fjöllunum í atvinnuleit. Hann var einn af fáum vinum, sem Clark eignaðist á þessum árum. Þeir röbb- List áður fyrr, bijóstmyndin (t.v.) og Clark eftir handtökuna: lét lítið fara fyr- „Innhveríúr“ Nafn Clarks var birt í símaskrá Denvers í fyrsta sinn 1974. Um það leyti fékk hann starf matreiðslu- 'manns í skemmtiklúbbi í Parker, suðaustur af Denver, og útvegaði Wetmore starf við ræstingar þar. Síðan vann Clark um tíma í veit- ingastofu í stórverzlun í Denver. Að því er hann sagði Wetmore sótti hann námskeið til að afla sér þekk- ingar á því að hjálpa fólki að telja fram til skatts, svo að hann gæti drýgt tekjur sínar. í júní 1975 gekk hann í söfnuð lútherstrúarmanna í Denver. Wetmore hjálpaði Clark að flytja aftur til Wheatridge 1977. Þá voru rúm fimm ár síðan morðin höfðu verið framin og Clark sótti um starf bókara hjá teppaheildsölu í Denver, Roberto Distributing. Einn af for- stöðumönnum bókhaldsfyrirtækis nokkurs, Ted Oldson, tók að sér að tala við þá sem sóttu um starfið. Á Clark var að skilja að hann hefði fengizt við bókfærslustörf, en Old- son minnist þess ekki að hann hafi haft meðmæli. „Hann var mjög innhverfur," sagði Oldson við JVew York Times. „Hann talaði hægt og rólega, nán- ast í hálfum hljóðum. Hann hafði búið við þröngan kost og kvaðst þurfa að komast í fullt starf. Ég hafði á tilfinningunni að hann hefði rétt til hnífs og skeiðar og ætti varla fyrir húsaleigunni og ýmsu smálegu." uðu oft saman yfir kaffibolla, en aldrei um persónuleg málefni. Wet- more hjálpaði Clark að flytja fátæk- lega búslóð sína til Denver. Wanda R. Flanery: sannfærðist um að Clark væri List þegar hún sá mynd í blaði. MORBNGNN semfór huldu höjbi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.