Morgunblaðið - 15.10.1989, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. OKTOBER
C 15
Oldspn hikaði við að mæla með
Clark, en „sá ekki ástæðu til að
hafna honum“. Clark starfaði hjá
fyrirtækinu 1977-1979. Forstjóran-
um, Jim Roberto, fannst hann „dá-
lítið einkennilegur". Til dæmis borð-
aði hann alltaf einn í Volkswagen-
bifreið sinni í hádeginu og hlustaði
á sígilda tónlist í útvarpinu, en hafði
lágt stillt.
Roberto „kunni þó einhvern veg-
inn vel við hann“ og vorkenndi hon-
um af einhveijum ástæðum. Ro-
berto átti í erfiðleikum í hjónaband-
inu og talaði um það við Clark,
sem„kvaðst hafa orðið fyrir sömu
reynslu og vita hvað ég væri að
fara . . . Hann gaf í skyn að hann
hefði sjálfur orðið fyrir vondri
reynslu".
„Mjög sjúk kona
í október 1979 var Clark ráðinn
fjármálastjóri í kassagerð í Aurora,
suðaustur af Denver. Byijunarlaun-
in voru 300 dollarar á viku. Hann
mun hafa fengið meðmæli frá Ro-
berto, en starfsferilsskýrsla Clarks
hvarf úr skjalasafni hans og hann
virðist hafa tekið hana með sér.
Skömmu áður hafði Clark kynnzt
tilvonandi eiginkonu sinni, Dolores
Miller, í kirkjuboði. Clark virðist
hafa haft það náðugt hjá kassa-
gerðinni, en vinnutíminn var lang-
ur. Enga persónuiega muni var að
sjá á skrifstofu hans, en róleg,
klassísk tónlist heyrðist úr útvarps-
viðtæki hans, sem hann hafði lágt
stillt.
Launin hækkuðu í 490 dali á
viku. Frístundir sínar notaði hann
til að vera með Dolores og vinna
sjálfboðaliðastörf fyrir lútherska
söfnuðinn. „Hann talaði svo mikið
um kirkjuna að það gat orðið þreyt-
upp í apríl 1986. „Okkur þótti leitt
að sjá hann fara,“ sagði Bassler.
Clark stofnaði þá eigið ráðgjafa-
fyrirtæki, Robert Clark Services.
Hann og Dolores höfðu gifzt nokkr-
um mánuðum áður, í nóvember
1985. Þá höfðu þau búið um tíma
í lítilli íbúð hennar í fjölbýlishúsi í
Montebelio skammt frá Denver.
Einu persónulegu eigurnar, sem
Clark flutti í íbúðina, voru kassar
fullir af skattagögnum.
Myndin í blaðinu
Nágrannakonu að nafni Wanda
R. Flanery grunaði strax að Clark
væri ekki sá sem hann segðist vera
og að fiskur lægi undir steini. Fyr-
ir tveimur árum sá hún mynd af
List í æsifréttablaði og þóttist sjá
hvers kyns var. Hún hringdi þó
ekki í lögregluna og sýndi frú Clark
blaðið í staðinn. „Dolores sagði að
þetta væri ekki Bob,“ sagði frú
Flanery, „og ég lét við það sitja.“
Frú Flanery sýndi Clark aldrei
myndina. „Ég óttaðist að eitthvað
gæti gerzt, ef hann væri maður-
inn,“ sagði hún. Hún varaði sig á
honum-eftir það. Frú Clark viður-
kenndi eftir handtöku manns síns
að hún hefði séð myndina, ensagði:
„Ég neitaði því að þetta væri hann,
því að mér fannst það ekki geta
verið satt. Ég trúi því ekki enn að
það geti verið rétt.“
Efnahagsástandið í Denver og
nágrenni var bágborið um þetta
leyti og Clark átti erfitt með að
standa á eigin fótum. Hann var
heima við og Dolores sagði frú Flan-
ery að „hún yrði vitlaus eða færi
frá honum, ef hann færi ekki út
og fengi sér eitthvað að gera“.
Dolores vann í vörugeymslu lækna-
miðstöðvar landhersins, en þau
gátu ekki lifað af tekjum hennar
febrúar 1988. Fyrir um ári festu
hjónin kaup á litlu, einnar hæðar
einbýlishúsi í Brandermill, suðvest-
ur af Midlothian í Virginíu. Dolores
var skráður eigandi. Húsið kostaði
76.000 dali og 12.000 dalir voru
greiddir við undirritun kaupsamn-
ings. Þau kynntust fáum nágrönn-
um, en grönnunum fannst þau við-
felldin, þótt fáskiptin væru.
Hlynntur Þjóðverjum
Tveir nágrannanna, Joseph og
Jacqueline Stefano, telja að Clark
hafi mikinn áhuga á heimsstyrjöld-
inni 1939-1945 og Hitler. Clark og
Stefano fóru nokkrum sinnum í
„stríðsleiki" og Clark vildi alltaf
stýra þýzku heijunum. Stefano seg-
ir að Clark hafi stundum orðið svo
æstur að sviti hafi sprottið fram á
enni hans.
Eitt sinn spurðu Stefano-hjónin
Dolores um uppruna hennar og
manns hennar. Hún fór undan í
flæmingi og Clark gaf til kynna að
honum væri þvert um geð að ætt-
erni hans væri rætt. Vinur Clarks
í Richmond sagði: „Faðir hans var
þýzkur; hann hafði áhuga á öllu
því sem þýzkt var og það var allt
og sumt.“ Fortíðin hefði aldrei virzt
skipta hann máli og hann hefði
aðeins einu sinni séð hann reiðan.
„Ég hafði gengizt undir aðgerð á
auga og læknirinn skipaði mér að
reyna ekki á mig. Þegar Bobby sá
mig taka upp ritvél hrópaði hann:
„Leggðu þetta frá þér áður en aug-
að dettur úr þér . . .“
Clark-hjónin hafa verið í krögg-
um í marga mánuði, þar sem þau
hafa átt í vanskilum út af íbúðinni
í Colorado. Dolores sagði í bréfi til
vinkonu sinnar, frú Flaherty, fyrir
síðustu jól að þau „væru að missa
aleiguna" og þunglyndi sækti að
. Hús Clark-hjónanna í Richmond: fingrafór og ör sannfærðu lögregluna um að Clark væri List.
andi,“ sagði einn forstjóra fyrirtæk-
isins, Robert Bassler.
Þegar Bassler spurði Clark um
fjölskylduna „minntist hann óbeint
á Michigan eða Minnesota . . .
Hann kvaðst hafa verið kvæntur
áður, en sagði að konan hefði verið
haldin ólæknandi sjúkdómi og væri
látin. Dauði hennar hefði haft gífur-
leg útgjöld í för með sér. Okkur
datt ýmislegt í hug, til dæmis að
hann væri barnlaus, úr því að kon-
an var svona veik.“ Seinna sagði
Clark vinum sínum í Richmond að
fyrri kona hans hefði verið drykkju-
sjúklingur og eyðslukló og dáið úr
krabbameini og hann ætti dóttur,
sem „væri dálítið erfitt að ráða við“.
Dolores Clark sagði eftir að mað-
ur hennar var handtekinn að hann
hefði sagt að fyrri kona hans væri
„mjög sjúk kona“. Hún kvaðst vona
að ásakanirnar gegn honum væru
rangar, en ef þær ættu við rök að
styðjast hlyti hann að „hafa verið
úndir svo miklu álagi að eitthvað
hafi brostið innra með honum . . .
Ég er honum trú.“
Clark fékk lof fyrir störfin í
kassagerðinni, en þegar tölvutækni
var tekin upp í bókhaldinu hafði
fyrirtækið minna gagn af honum
en áður. Starf hans óx, en það varð
honum ofviða. Honum var því sagt
og lentu í vanskilum með greiðslur
af lánum á íbúðinni.
Síðla árs 1987 svaraði Clark
auglýsingu í staðarblaði frá ráðn-
ingarskrifstofu í Richmond, Virg-
iníu. Hann sagði einum af forráða-
mönnum skrifstofunnar, Steve
Reed, að hann vildi fá vinnu á stað,
þar sem ekki þyrfti að hafa áhyggj-
ur af efnahagsástandinu. Einnig
kann að hafa skipt máli að frú Clark
á ættingja í Maryland, sem er
skammt frá Virginíu.
Reed setti Clark í samband við
Charles S. Jóyner, annan tveggja
eigenda bókhaldsfyrirtækis í Rich-
mond. Clark flaug til Richmond og
fékk starfið. Launin voru 24.000
dollarar. „Mestu annirnar við aðstoð
vegna skattframtala voru að hefjast
og við urðum að fá nýjan starfs-
mann,“ sagði Joyner.
Joyner treysti þeim upplýsingum
ráðningarskrifstofunnar að Clark
hefði næga menntun og starfs-
reynslu. Reed viðurkennir að ekki
hafi verið reynt að fá úr því skorið
hvort Clark hefði stundað nám í
háskólanum í Michigan eins og
hann hafði haldið fram, en raunar
hafði Clark BA- og MA-próf í við-
skiptafræði frá þeim skóla og var
löggiltur endurskoðandi.
Frú Clark fluttist til Richmond í
henni. Hún fékk sér starf á snyrti-
stofu einn dag í viku og Clark tók
að sér að sjá um skattframtöl fyrir
fólk.
Clark gat sér gott orð hjá fyrir-
tæki Joyners í Richmond. Um helg-
ar dundaði hann í garðinum og
horfði á sjónvarp. Hinn 21. maí sl.
settist hann niður til að fylgjast
með eftirlætisþætti sínum á sunnu-
dögum, America’s Most Wanted,
sem fjallar um eftirlýsta glæpa-
menn. Sér til skelfingar sá hann
að þátturinn að þessu sinni snerist
um morðin í Westfield.
Hinumegin í Bandaríkjunum sat
Wanda Flanery einnig stjörf við
skjáinn. Þegar hún sá brjóstmynd
myndhöggvarans Frank A. Bender
í Fíladelfíu af morðingjanum John
Emil List, eins og líklegt væri að
hann Iiti út nú þegar hann væri
kominn af léttasta skeiði, var hún
í engum vafa um að hann væri
enginn annar en fyrrverandi ná-
granni hennar, Robert Clark.
Tengdasonur hennar, Randy Mitch-
ell, hringdi fyrir hana í símanúmer,
sem var sýnt á skjánum, og lét FBl
vita. Um 300 aðrar ábendingar
bárust, en lögreglan trúði engum
betur en frú Flanery, sem sagði:
„Ég er hrygg og hef áhyggjur af
Dolores."
OPUS
bókhaldskerfi
Námskeið í ÓPUS fjárhags-, viðskiptamanna-,
sölu-, pantana- og birgðabókhaldi.
Leiðbeinandi: Baldur Sigurðsson.
Tími: 24/10, 26/10, 31/10
og 2/11 kl. 13-17.
Tölvufræðslan
Borgartúni 28 sími: 687590
PC
Byrjenda-
námskeið
Skemmtilegt og gagnlegt nám-
skeið fyrir þá sem eru að byrja
að fást við tölvur.
Tími: 17., 19., 24. og 26. okt., kl. 19-23.
BSRB, ASÍ og VR styðja félaga sína
til þátttöku á námskeiðunum.
Leiðbeinandi: Stefán Magnússon.
Tölvufræðslan
Borgartúni 28, sími 687590
Nýrogbetri veislusalur
Meiriháttar mótstaður
Borgartúni 18
Afmœlisveislur
Árshátíðir
Blaðamannafundir
Brúðkaupsveislur
Dansleikir
Danssýningar
Erfidrykkjur
Fermingarveislur
Fundir
Grímudansleikir
Jólaböll
Matarboð
Ráðstefnur
Skákmót
Sumarfagnaðir
Vetrarfagnaðir
Porrablót
Ættarmót
Eða bara stutt og laggott:
Alltfrá A — Ö
Fullkomið hljóðkerfi sem hentar
bœði hljómsveitum, diskóteki sem
ráðstefnum.
EITT SÍMTAL - VEISLAN í HÖFN.
MANNÞING,
símar 686880 og 678967.