Morgunblaðið - 14.01.1990, Side 14

Morgunblaðið - 14.01.1990, Side 14
14 C MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. JANUAR MALTfl... MALTA FOR GLASNOST! GLASNOST FOR MALTA? alternattiva demokratika ST J ÓRNMÁLIN Flokkapólitík á efsta stigi T* f VEIR flokkar, Verkamanna- flokkurinn og Þjóðernis- flokkurinn, skipta með sér atkvæðum á Möltu. Þjóðernisflokk- urinn tók við völdum eftir 16 ára stjómarandstöðu 1987. Hann fékk 50,9% atkvæða en Verkamanna- fiokkurinn 49,1%. Fólk fæðist inn í f lokkana og það er algjör undantekn- ing ef það skiptir um flokk. Flokka- pólitík setur svip á allt. Fyrrverandi barnaskólakennari hélt því fram að hann gæti ekki sagt að vegirnir hefðu skánað án þess að það væri tekið sem pólitísk stuðningsyfirlýsing við Þjóð- emisflokkinn. Og hann lenti í vand- ræðum þegar hann bað börnin að koma með dagblöð að heiman til að nota við föndur. Foreldrarnir héldu að hann væri að njósna um stjórn- máiaskoðanir þeirra. Flokkarnir gefa út sitthvort dag- blaðið. Haus hægri blaðsins, In Nazz- jon Taghna, er blár og vinstri blaðs- ins, 1-orizzont, rauður. Dagblaðið The Times er á ensku og var stofnað 1978. Það er hlutlaust og lesið af stuðningsmönnum beggja flokka - haus þess er svartur, Ungur maður, sem kynnti uppbyggingu frihafnar á Möltu fyrir fréttamönnum þegar leið- togar stórveldanna hittust þar ( byij- un desember, hélt að rauða blaðið væri ekki selt i blaðasöiu fréttamið- stöðvarinnar. „Þetta er fundur Þjóð- ernisf lokksins," sagði hann og fannst skiljanlegt að snepill stjórnarand- stöðunnar væri þá ekki á boðstólum. En hann hafði rangt fyrir sér, 1-orizzont lá falið innan um önnur blöð. Edward Fenech-Adami, forsætis- ráðherra, sagði á blaðamannafundi að það væri viðurkenning á utanríkis- stefnu stjórnar sinnar að leiðtogar stórveldanna kusu að ræðast við undan ströndum Möltu. „Fundurinn hefði ekki verið haldinn hér fyrir þremur árum,“ sagði hann. Eyjan var höll undir Sovétríkin og Líbýu í stjórnartíð Verkamannaflokksins, hún gekk í bandalag hlutlausra ríkja og tafði fyrir lokaniðurstöðu Ráð- stefnunnar um öryggi og samvinnu í Evrópu í Madríd. Þjóðin er enn í bandalagi hlutlausra ríkja en Fenech- -Adami benti á að bestu ríki, eins og Noregur og Kanada, ættu áheyrn- arfulltrúa á fundum þess. Ríkisstjórn Möltu vill nálgast Vestur-Evrópu á nýjan leik og ætlar að sækja um aðild að Evrópubandalaginu innan tíðar. Wenzu Mintoff, bróðursonur Dominics Mintoffs, sem stjórnaði Möltu og Verkamannaflokknum í áraraðir, hefur sagt skilið við flokkinn og gengið til liðs við samtök um lýðræðislegan val- kost. Verkamannaflokkurinn telur það varhugavert. Honum fannst ltka varasamt að herskip stórveldanna kæmu inn í lögsögu Möltu, Carmelc Mifsud-Bonnici, formaður hans, gerði múður út af hugsanlogum kjarnorkuvopnum um borð og f lokk- urinn boðaði til friðarsamkomu og útitónleika í tilefni fundarins. Sam- komunni var aflýst vegna veðurs og tónleikarnir haidnir innan dyra. Mifsud-Bonnici gerði sem minnst úr hlut Möltubúa í leiðtogafundinum og sagt er að aðeins stuðningsmenn Þjóðernisflokksins hafi fagnað Bush og Gorbatsjov við komu þeirra til landsins. Þeir gerðu það rækilega og hylltu foringja sinn, forsætisráð- herrann, með-söng og dansi þegar leiðtogarnir voru farnir um borð í báta sina. Flokkarígurinn gengur oft út í öfgar. 23 lögregluþjónar særðust til dæmis í sumar þegar stuðningsmenn Verkamannaflokksins hófu skothrið á Fenech-Adami og aðstoðarmann hans þegar þeir mættu í þorpið Zejt- un til að vera svaramenn við brúð- kaup. Þorpið er þekkt vinstriþorp og Þjóðernisflokknum hefur verið bann- að að halda f lokksfundi þar af örygg- isástæðum. Nokkrir áhugamenn um mannrétt- indi og umhverfið eru orðnir lang- þreyttir á pólitíkinni og hófu útgáfu mánaðarblaðsins alternattiva, eða GAMUR ER GÓÐ GEYMSLA Leigjum og seljum , gáma af ýmsum |stærðum og gerðum Edward Fenech-Adanii, forsætisráðherra, sagði að það væri stefnu stjórnar sinnar að þakka að Bush og Gorbatsjov kusu að talast við undan ströndum Möltu. valkostur, í vor. Þeir vonast til að hrista upp í tvíflokkakerfinu og draga úr togstreitu í landinu. Ósam- komulag flokkanna um þjóðhátíðar- daginn er eitt dæmi um hana. Malta fékk fullt sjálfstæði frá Bretum 1964 en hafði haft heimastjórn frá 1921. Þjóðernisflokkurinn var í stjórn 1964 og ákvað að 21. september yrði hátí- ðardagur þjóðarinnar, en þá var breski fáninn dreginn frá húni. Verkamannaf lokkurinn gat ekki sætt sig við þetta og f lutti daginn nokkr- um sinnum til þegar hann komst til valda en kaus endanlega 31. mars sem þjóðhátíðardag. Síðustu herstöð Breta á eyjunni var lokað þann dag árið 1979. Flokkarnir hafa nú sæst á að gefa 5 opinbera frídaga á ári. Stuðningsmenn Þjóðernissinna halda mest upp á 21. september og Verka- mannaflokksins 31. mars. Stjórnmálasamtök útgefenda alt- ernattiva kallast Alternattiva demo- kratika. Wenzu Mintoff, bróðursonur Dominics Mintoffs, fv. forsætisráð- herra Verkamannaflokksins, gekk nýlega til liðs við þau. Hann er 29 ára og var kjörinn á þing fyrir flokk- inn 1987. Hann er óánægður með gömlu forystuna og áttl ekki samleið með flokknum eftir að hann gagn- rýndi hann opinberlega, Verka- mannaí’lokkurinn var samfleytt í stjórn frá 1971 til 1987, Þjóðernis- flokkurinn fékk þó knappan meiri- hluta atkvæða 1981 en Verkamanna- flokkurinn hlaut meirihluta þingsæta og sat áfram. Stjórnarskránni var breytt fyrir síðustu kosningar svo að þetta endurtaki sig ekki. Mintoff segir að flokksforysta Verkamanna- flokksins sé spillt, hún styðji óbeint pólitískt ofbeldi og kyndi undir múg- æsingu. Hann barðist fyrir hreinsun í forystunni og að stjórnarandstaðan yrði málefnaleg en án árangurs. Fulltrúar lýðræðislega valkostsins segja að Verkamannaflokkurinn hafi rekið landið að nirfilshætti. Þjóðar- búið var skuldlaust en engu var held- ur haldið við, vegakerfið var gatslit- ið, símakerfið ómögulegt, heilbrigð- isþjónustan léleg og svo mætti íengi telja. Ríkið er nú rekið með tapi en fólk sér árangur af því sem stjórnin eyðir peningum í. „Það er aftur farið að halda við opinberum görðum," sagði stuðningsmaður samtakanna. „Það skiptir ekki meginmáli en gleð- ur augað.“ Hann sagðist styðja aðild að Evropubandalaginu. „Þjóðin stóð af sér stjórn útlendinga í 2.000 ár og óstjórn Verkamannaflokksins í tæp 20. Ég er viss um að hún mun standa sig vel í fijálsri samkeppni og samvinnu innan Evrópubanda- lagsins." Hagvöxtur á Möltu á síðasta ári var tæp 10%. Ríkisgeirinn er um 42% af þjóðarframleiðslu, framleiðsla um 27% og þjónusta 24%. Landbúnaður er lítijl vegna smæðar eyjunnar og eins byggingarframkvæmdir. Há- tækniframieiðsla hefur aukist og Möltubúar státa af að vera sam- keppnishæfir i rafeindaiðnaði í Evr- ópu. Þjóðernisflokkurinn hefur fyllt þjóðina eldmóði og nýtur þess enn hversu þreytt hún var orðin á stjórn Verkamannaflokksins. En fylgis- munurinn er lítill og nauðsynlegt að vera á varðbergi. Búast má við að kosningabaráttan fyrir kosningarnar 1992 hefjist þegar árið 1990! HAFNARBAKKI Suöurbakka, Hafnarfjarðarhöfn Sími 652733/652753 Næstu vikurnar býður Hótel Holt gestum sínum upp á sérstakan matseðil í hádeginu, þar sem léttleikinn og hollustan eru í fyrirrúmi. Forréttur, aðalréttur og eftirréttur sem hver velur að vild, með gæði og góða þjónustu að leiðarljósi sem fyrr. Forréttir Hreindýrapáte Rækjur og reyktur lax í ostasósu Gæs og avocado í pastasalati Rjómasúpa með fersku grænmeti Fitusnautt pastasalat með jógúrtsósu Aðalréttir Grísasneiðar með sveppafyllingu og hvítlauks-rauðaldinsósu Grillað heilagfíski Heitt sjávarsalat í pastahreiðri Hreindýrasmásteik í púrtvínssósu Steikt karfaflök með spínatsósu Eftirréttir Heitt epli með vanillusósu Sítrónubollur með hunangi Forréttur, aðalréttur og eftirréttur kr 995 Hafðu það fyrsta flokks - það kostar ekki meira. Bergstaðastrœti 37, Sítni 91-23700

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.