Morgunblaðið - 14.01.1990, Page 15

Morgunblaðið - 14.01.1990, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. JANÚAR 1990 C 15 Minning: Bergþóra S. Þor- bjamardóttir Fædd 22. febrúar 1902 Dáin 4. janúar 1990 Bergþóra Sólveig Þorbjarnar- dóttir, tengdamóðir mín, lést 4. jan- úar sl. eftir stutt veikindi en erfið síðustu ár. Hafði hún oft óskað þess að fá hvíldina, þvf að það versta í hennar huga var að þurfa að láta aðra hafa fyrir sér. Hún fæddist á Kleppi við Reykjavík 22. febrúar 1902, en þar bjuggu þá um tíma foreldrar henn- ar, Þorbjörn Finnsson, ættaður frá Álftagróf í Mýrdal, og Jónía Jóns- dóttir, fædd í Elliðakoti í Mosfells- sveit, en móðurætt sína rakti hún austur á Síðu. Þorbjörn Finnsson var lengstum kenndur við Áitún við Elliðaár, þar sem hann bjó um margra ára skeið, eða frá 1906 til 1930. Ólst Bergþóra þar upp í for- eldrahúsum ásamt systkinum sínum, Jónu, Guðfinni og Jóni, sem eru nú öll horfin héðan. Bergþóra stundaði nám í Kvennaskólanum í Reykjavík í tvo vetur og stóð sig þar með mikilli prýði. Ber þess vott silfurskeið ein mikil, sem hún hlaut að verðlaunum úr minningarsjóði Þóru Melsteð fyr- ir góðan námsárangur er hún út- skrifaðist þaðan 1924. Bergþóra giftist 3. apríl 1926 Karli Runólfssyni vélsmiði. Bjuggu þau fyrst í Reykjavík, en fluttust um haustið 1926 til Keflavíkur, þar sem Karl tók þátt í stofnun og rekstri fiskimjölsverksmiðju sem hann rak og stjórnaði um margra ára skeið. I Keflavík bjuggu þau til ársins 1944, en fluttust þá til Reykjavíkur og bjuggu 'þar síðan. Karl andaðist 1970. Þau Karl og Bergþóra eignuðust tvö börn: Þorbjörn, f. 1927, prófess- or í vélaverkfræði við Háskóla ís- lands og Kristrúnu, f. 1928, grunn- skólakennara á Húsavík. Bergþóra var mjög félagslynd kona. I Keflavík tók hún virkan þátt í starfsemi Ungmennafélags Kefiavíkur og var um hríð einn aðalkrafturinn í leiklistarstarfi fé- lagsins. Þá unni hún mjög sönglist og söng um langt skeið í kirkjukór Keflavíkursóknar og átti um tíma sæti í sóknarnefnd. Þegar þau Karl fluttust aftur til Reykjavíkur gerð- ist Bergþóra félagi í söngfélaginu Hörpu og síðar Samkór Reykjavík- ur, sem Róbert A. Ottósson stjórn- aði og söng þar um margra ára skeið. Fór hún þá m.a. tvisvar í söngferðalög til Norðurlanda með kórnum. Minntist hún þessa tíma oft og var greinilegt að veran í Hörpu og Samkórnum var henni til ómældrar ánægju. Þegar starfsemi Samkórsins lagðist niður, gerðist hún félagi í kirkjukór Laugarnes- kirkju og söng þar allt til sjötugs- aldurs. Bergþóra var mikil hannyrða- kona og á þeim árum sem hún bjó í Keflavík kenndi hún stúlkun hann- yrðir í Barnaskóla Keflavíkur. Alit fram á síðustu ár vann hún mikið í höndunum og var það allt mjög fallegt og einstaklega vel gert. Eru þeir ófáir munirnir til merkis um það sem prýða heimili allra í fjöl- skyldunni, þ. á m. stórt teppi sem hún vann 85 ára gömul. Síðustu árin er aldurinn færðist yfir var Bergþóra í dagvistun aldr- aðra á Dalbraut. Síðan bjó hún um tíma á heimili aldraðra í Seljahlíð, en síðast var hún á Droplaugarstöð- um. Vil ég nota tækifærið og þakka & Ármúla 29 símar 36640 - 666100 P. ÞORGRÍMSSON & CO Armstrong LDFTAPLDTUR WMKDPLMTT GÓLFFLÍSAR IjjABBAPLAST EINANGRUN VINKLARÁTRÉ öllu starfsfólki á þessum stöðurn, sém var henni svo hjálplegt og gott þessi síðustu ár. Ég þakka Bergþóru öll árin sem við áttum saman, og bið Guð að leiða hana til nýrri heima. Svala Sigurðardóttir Við viljum með örfáum orðum minnast ömmu okkar, Bergþóru Sólveigar Þorbjarnardóttur, sem lögð verður til hinstu hvíldar á morgun. Við munum minnast hennar sem glaðlyndrar og duglegrar konu. Aldrei var hún þung í skapi heldur jafnan glöð og reif. Amma Begga var glæsileg kona, létt í spori og bar sig vel Hún hafði gaman af að ganga og fór í langar gönguferðir þar til heilsunni fór að hraka. Hún var vandvirk kona og kappsfull í þeim Verkum sem hún tókst á hend- ur, éins og til dæmis má sjá í öllum þeim fallegu hannyrðum sem hún vann að. Amma var félagslynd og gestris- in. Þegar við heimsóttum hana bauð hún jafnan jólaköku og flatkökur sem voru hennar sérgreinar. Þá var stjanað við mann, en aftur á móti vildi amma láta hafa sem minnst fyrir sér. Það þurfti alltaf að beita fortölum til að fá að aka henni heim þegar hún kom í heimsókn. Henni fannst bæði eðlilegt og skyn- samlegt að hún hálfáttræð gengi sjö til átta kílómetra til að spara manni ómakið. Og ef stöðvað var við gatnamót sagði amma allaf: „Heyrðu, elskan mín, ég get nú alveg gengið héðan.“ En nú er hún amma Begga dáin." Síðustu árin voru erfið, bæði fyrir hana og okkur sem þótti vænt um hana. Erfiður sj.úkdómur náði sífellt meiri tökum á henni og hún var farin að þrá hvíldina. Nú hefur hún fengið hana. Guð blessi minningu elsku ömmu. Þurí, Begga og Helga Electrolux ■ ROWGnra GAGGENAU* I G N I S DŒWOO SVISSNESKU GÆÐAÞVOTTAVÉLINA OKKAR KÖLLUM VIÐ BÁRU Electrolnx ffl Ryksuga Z 239 Electrolux ÓTRÚt-EGT tilbo? • ÖFLUG OG STILLANLEG VINDING • 16 PVOTTAKERFI • SÉR HITASTILLING • EINFÖLD I NOTKUN • TÖLVUPROFUÐ FYRIR AFHENDINGU (Computer approved) • STERK - SVISSNESK - ÖDÝR KR. 43.990,- Uppþvottavél BW 310 FÆR HÆSTU EINKUNN I GÆÐAPRÓFUN SÆNSKU NEYTENDASAMTAKANNA 22*45:- MJÖGÖFLUG 1150w RYKMÆLIR • SÉRSTÖK RYKSlA TENGING FYRIR ÚTBLASTUR LÉTT OG STERK KR. 12.990,- KR. 49.999,- ÖRBYLGJUOFN FUNAI MO 6V DAEWOO 20" litsjónvarp með þráðlausri fjarstýringu KR. 39.999,- METSÖLUOFNINN OKKAR EINFALDUR EN FULLKOMINN MJÖG HENTUG STÆRD KR. 17.850,- FUNAI Myndbandstæki VCR 6500 IMPERIAL 27" litsjónvarp með þráðlausri fjarstýringu 8&$Tg,- KR. 79.990,- Rowenla grillofn FB 36 TILVALINN PEGAR MATBÚA “ PARF FYRIR 1, 2, 3 EÐA FLEIRI. PÚ BAKAR, STEIKIR, GRILLAR, GRATINERAR O.FL, O.FL. MARGUR ER KNÁR, PÓTT HANN SÉ SMÁR. 39x41x36,5 cm. i&QTZ),- KR. 12.990,- 1 HQ (high quality) kerfi ' PRÁÐLAUS FJARSTÝRING STAFRÆN AFSPILUN (digital) SJÁLFLEITUN SlÐUSTU UPPTÖKU HRAÐUPPTAKA RAKAVARNARKERFI (Dew) SJÁLFVIRK BAKSPÓLUN FJÖLHÆFT MINNI SJÁLFLEITUN STÖÐVA EINFALT OG FULLKOMIÐ JAPÖNSK GÆÐI KR. 29.999,- Rowenta vatns- og ryksuga RU 11,0 FJÖLHÆF OG STERK. HENTAR BÆÐI FYRIR HEIMILI OG VINNUSTAÐI. KR. 10.685,- 'Öiljrerð miSast við staðgreiftslu Vörumarkaðurinn hf KRINGLUNNI S. 685440

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.