Morgunblaðið - 14.01.1990, Page 23

Morgunblaðið - 14.01.1990, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ MENNINGARSTRAUMAR SUNNUDAGUR 14. JANÚAR 1990 C 23 STALLOIME BREYTIR UM STÍL GETUR VERIÐ að Stan- ley Kubrick ætli að gera næstu mynd sína eftir handriti Silvester Stall- one? Nei, en handritið er „frábært" mun Kubrick hafa sagt eftir að leikar- inn sendi honum það í þeirri von að fá leikstjór- ann fræga til að vinna fyrir sig. Um hvað er handritið? Edgar Allan Poe. Hver á að leika Poe? Sly. að hann sé einhver Rambó: „Rambó er aumingi". Stallone vill sumsé fara út í bitastæðari verkefni eftir 13 ár í ofurmanna- deildinni. Hann lítur svo á að þetta að gera fram- haldsmynd eftir framhalds- mynd sé að fara með hans eigin sköpunargáfu og sjálfsvirðingu í vaskinn. Hann kennir ekki Holly- woodkerfinu einu um hvernig ímynd hans hefur orðið aðhlátursefni. Hann kennir sjálfum sér um. „Ég veit að ég hef verið að leika þessa einsatkvæða kjöt- hlúnka,“ segir hann^ „en maður festist í því. Þu ger- ir samninga og það er ekki svo auðvelt að losna undan þeim. Og þeir eru mjög girnilegir. Mjög girnilegir (hann hefur 38 milljón doll- ara í árslaun, myndir hans eftir Rocky hafa halað inn 1,2 milljarða dollara sam- Stallone og Russell í „Tango and Cash“; „Rambó er aumingi." anlagt). Þeir veita öryggi. Og áður en ég vissi af var fólk farið að segja: Hahn hefur selt sig djöflinum. Ég hef fátt til varnar. Ég verð að viðurkenna að ég hef verið kærulaus.“ Og seinna segir hann: „Núna er ég að reyna að vera eins og ég var áður, gera tilraunir . . . ekki aðeins að hugsa um doll- aramerki og láta eins og málaliði.“ Dagsatt. Stallone er að finna sér nýja ímynd þessa dagana og það gengur á ýmsu. Hann er sjálfur orðinn manna leið- astur á Rambóí- myndinni. í handritinu sem hann skrifaði að Rocky 5 læt- ur hann Rocky deyja í götubar- daga orðinn þjálfi annarrar upprennandi stjörnu. En United Artists vildi ekki heyra minnst á annað eins. Hörkutól deyja seint og illa; Stallone gerði nýlega samning um gerð fímm hasarmynda. En hann gerði líka samning um aðrar fimm, firrtar hasar og hetj- um með gáfnavísitölu úr dýraríkinu. í nýjustu mynd- inni sinni, „Tango and Cash“, þar sem hann leikur á móti Kurt Russell, segir sá sem hann leikur, að- spurður hvort hann haldi Stallonemý ímynd Marlon Brando; David Lean; Lean vill. Brando skal. David Lean myndar Conradsögu FYRIR eitthvað um tuttugu árum lagði handrits- höfundurinn Robert Bolt („A Man for All Seasons") til við leikstjórann David Lean að hann fihnaði sög- una Nostromo eftir Joseph Conrad um menn nokkra sem klikkast útaf silfurnámu í S-Ameríku. En Lean komst aldrei í gegnum söguna. Eg reyndi það fjórum eða fimm sinnum,“ segir hann, „og örvænti.“ Þá gerðist það að Kvik- myndafélagið við Oxford- háskóla gerði skoðana- könnun á meðal meðlima sinna um hvert næsta verk- efni Leans ætti að vera og meirihlutinn nefndi Nost- romo. „Svoleiðis að einn daginn settist ég niður með bókina og sagði, ég skal sannarlega komast í gegn- um hana,“ sagði Lean. Honum tókst það. Christopher Hampton (Hættuleg sambönd) skrif- aði handrit, sem Bolt end- urskrifaði og framleiðand- inn Serge Silberman (,,Ran“) útvegaði peninga svo nú er ekkert eftir nema velja leikara í 30 milljón dollara framleiðsluna. „Núna eru gerðar sögur um smákrimma. Við höfum gleymt stóru persónuleik- unum, sem Orson Welles og Charles Laughton áður túlkuðu." Lean sendi þvi handritið til stórleikarans Marlon Brandos óg vildi fá hann til að leika harðsvír- aðan s-amerískan hers- höfðingja. „Ég mundi ekki segja að þetta væri stórt hlutverk en hann mundi gera það stórt,“ segir Lean. Brando sagðist jafnvel reiðubúinn og Lean er sannfærður um að hann muni taka hlutverkið að sér. George Carafas og Liam Neeson munu fara með önnur hlutverk í myndinni. H NICK Nolte og Eddie^ Murphy leika aftur lögguna og bófann í framhaldsmynd- inni „48 HRS 11“. Núna em þeir komnir til Las Vegas en leikstjóri er Walter Hill sem fyrr. Framleiðandi er Lawrence Gordon og gert er ráð fyrir að myndin verði frumsýnd í Bandaríkjunum næsta sumar. M SKYLDI sumarið 1990 verða enn meira framhalds- myndasumar en ’89? „RoboCop 11“ er á leiðinni með Peter Weller í hlut- verki tölvustýrðu stállögg- unnar með mannlegu til- finningarnar. Hann er nú orðinn viðurkenndur sem einn af Detroitlöggunum, eltfst'við nýtt eiturlyf framt- íðarinnar og fæst við nýjan, endurbættan RoboCop. ■ LEIKSTJÓRINN Michael Apted („Gorillas in the Mist“) stjórnar Gene Hackman og Mary Eliza- beth Mastantonio í nýju réttardrama. Og talandi um réttardrama: Greta Scacc- hi mun leika á móti Harri- son Ford í Alan J. Pa- kula-myndinni Uns sekt er sönnuð eftir samnefndri bók Scott Turows. ■ LESLIE Nielsen leikur bráðlega í framhaldsmynd- inni „Naked Gun 11“ en þangað til fer hann með hlutverk særingarmannsins í grínútgáfu af hrollvekj- unni „The Exorcist". „Ég leik Max von Sydow,“ seg- ir Nielsen. Og hver ætli leiki andsetnu stelpuna? Engin önnur en Linda Bla- ir. Myndin heitir Endurset- in. ÍBÍÓ Kvikmyndahúsin í Reykjavík voru til skamms tíma blessunar- lega laus við auglýsinga- flóðið en það er að breytast svo mjög að sumstaðar hefst kvikmyndasýningin heilu korteri eftir auglýst- an sýningartíma. Þá er búið að sýna uppí fimm auglýsingar og svo úr þremur næstu myndum. Maður heyrir að fólk er óánægt með þessa þróun - það hefur ekki keypt sig inn til að horfa á -auglýs- ingar - en vonandi verður hún ekki eins og víða úti í heimi þar sem fullur hálftími líður áður en myndin loksins hefst. Skyldi Cruise fá Óskarinn? FÆDDUR ÞANN FJÓRÐA JÚLÍ KVIKMYNDI Ron Kovic: bæklaði víetnamhermaðurinn ir frá því að hann hafi farið til Víetnam til að verða hetja uppfullur af dýrð og hetju- dýrkun stríðsmynda á borð við „Sands of Iwo Jim“. En hann komst fljótlega að því að raunveruleikinn bjó ekki í Hollywood. „Ég heyrði aldrei blásið í lúður þegar ég særðist. Það rann upp fyrir mér að raunverulegt stríð var ekkert líkt teikni- myndasögunum eða bíó- myndunum.“ Tom Cruise hefur fengjð sérlega góða dóma fyrir leik sinn og þykir sanna enn að hann er annað og meira en fallegt brosið; að baki býr alvarlegur, metnaðarfullur og þrumugóður leikari. Eins og bókin fylgir „Bom“ sögu Kovic í svipmyndum frá uppvaxtarárum á Long Is- land, til reynslunnar í Víet- nam og frægrar ræðu sem hann hélt á ráðstefnu demó- krata fyrir forsetakosning- arnar 1976. Víetnamatriðin voru tekin á Filippseyjum og lýsa því þegar Kovic skaut af slysni til bana bandarískan hermann, árás sveitar hans á búðir borg- ara, sem gerð var fyrir mis- tök, og því þegar hann fékk kúlu í sig sem lamaði hann frá mitti og niðrúr. Á sama hátt fylgir mynd- in ákveðnum stefnumark- andi þáttum í sögu Kovic eftir að hann kemur heirn úr stríðinu; ómanneskjulegri meðferð sem hann hlaut á herspítölum, heimkomunni og drykkjuskapnum og hvernig hann reif sig upp og gerðist opinber andstæð- ingur stríðsins og m.a. hróp- aði niður Richard Nixon árið 1972. Það munaði litlu að leik- stjóranum William Friedkin tækist að gera mynd eftir bókinni strax og hún kom út. Pacino var tilbúinn í A1 Pacino átti að leika aðalhlutverkið í henni fyrir tólf árum. Oliver Stone hefur langað til að gera hana allan þann tíma og hún á senni- eftir Arnold Indrióoson lega eftir að færa Tom Cruise óskars- verðlau- naútnefn- ingu; hún setti hann a.m.k. á forsíðu bandaríska vikuritsins Time, sem er einskonar Óskar. Þetta er nýjasta Oliver Stone-myndin, „Born on the Fourth of July“, um víet- namhermanninn Ron Kovic, sem kom bæklaður heim úr stríðinu og gerðist ákafur andstæðingur þess. Kovic skrifaði samnefnda bók um reynslu sína, opinskáa sjálf- sævisögu þar sem hann seg- Tom Cruise sem Ron Kovic í myndinni „Born on the Forth of July“; að berjast gegn stríði. aðalhlutverkið eins og áður sagði en handritið var eftir Stone. Fjórum dögum áður en tökur áttu að hefjast var hætt við myndina. En Stone gafst ekki upp og sagði við Kovic: „Ef ég einhverntíma fæ tækifæri, ef mér ein- hvertíma tekst að slá í gegn sem leikstjóri.'kem ég aftur og sæki þig.“ Það hefur hann nú gert. 1

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.