Morgunblaðið - 14.01.1990, Page 30

Morgunblaðið - 14.01.1990, Page 30
30 C MORGUNBLAÐIÐ SAMSAFIMIÐ 'SUNNUDÁGUR '14. JANÚAR 1990 ÆSKUMYNDIN... ER AF JAKOBIFRÍMANNIMAGNÚSSYNI, HLJÓMLISTARMANNI ÚR MYNDASAFNINU ÓLAFUR K. MAGNÚSSON — Kurteis og hugmyruia- ríkur drengur JAKOB FRÍMANN Magnússon fæddist í Kaupmannahöfin hinn 4. maí 1953. Hann er sonur hjón- anna Magnúsar Guðmundssonar og Bryndísar heitinnar Jakobs- dóttur. Jakob er sambýlismaður Ragnhildar Gísladóttur, söng- konu, og eiga þau tveggja ára dóttur, Bryndísi, auk Ernu, 12 ára, sem Ragnhildur átti fyrir. Jakob hefur stundað tónlistar- og kvikmyndastörf i íjölda ára og komið viða við. Ekki síst er hann þekktur fyrir þátt sinn í jafnvinsælustu hljómsveit Is- lands, Stuðmönnum. Verjandi, Geir Hallgrímsson, flytur mál sitt. Sækjandi, Þorvaldur Garðar Krisfjánsson, er lengst til hægri og í sæti dómara er Páll Ásgeir Tryggvason sendiherra. Aðrir málsaðilar eru til vinstri á myndinni og voru það einnig félagar í Orator sem fóru með þeirra hlutverk. Fyrstu ár ævinnar ólst Jakob upp á Akureyri. Meðan hann var þar var hann nokkurs konar heima- gajigur hjá herra Pétri Sigurgeirs- syni, sem seinna varð biskup, og frú Sólveigu Ásgeirsdóttur. Sólveig segir að Jakob hafi verið afskaplega skýr og skemmtilegur drengur og reynst mjög músíkalskur þegar í bernsku. „Hann er mjög trygglynd- ur og hefur alltaf verið okkur af- skaplega kær,“ segir Sólveig. Um fimm ára aldurinn fluttist fjölskyldan til Reykjavíkur, nánar tiltekið í Eskihlíðina. Pétur Péturs- son, útvarpsþulur, bjó í sömu blokk og kynntist Jakobi vel. „Jakob var afskaplega kurteis og prúður drengur og þá þegar var hann með þennan sterka Hvítár- síðusvip — hávaxinn og mjög ljós yfirlitum. Og hann var alltaf að fást við eitthvað. Þarna í blokkinni var mikill fjöldi krakka á öllum aldri og mikill sam- gangur, svo mikill að beinlínis var stofnað til félagslífs og þar var Jakob fremstur í flokki enda dugn- aðarstrákur. Við stofnuðum Vetrar- klúbbinn, sem gekkst fyrir skemmt- unum í kjallaranum og fylltum þvottahúsið og geymslurnar af fólki. Ég er ekki frá því að Jakob hafi fengið rokk-köllun sína á einni skemmtuninni, en þá fengum við Arnþór Jónsson til þess að koma fram með gítar og hann stældi El- vis Prestley af miklum móð og við mikinn fögnuð viðstaddra.“ Jón Gíslason matvælafræðingur var góður vinur Jakobs í Hlíðunum. „Við Jakob og Ragrtar B. Ragnars- son, sem líka bjó þarna, vorum sam- an í fyrstu hljómsveit Jakobs. Ekki man ég nú hvað hún hét, enda ætluðum við ekki áð gera annað en að sýna látbragð við undirleik segulbands. Nema hvað stóra stundin rennur upp á skemmti- kvöldi Vetrarklúbbsins, við höfðum leigt okkur trommur og fengið gítara einhvers staðar til þess að allt liti nú vel út, en þá tekur segul- bandið upp á því að bila! Nú voru góð ráð dýr, ekki var hægt að svíkja áheyrendur um skemmtunina, svo við sungum bara Oxar við ána með tilheyrandi látbragði og undirleik Jakobs, sem var sá eini okkár, sem kunni fyrir sér í tónmennt. Þar með lauk hljómsveitaferli mínum en hófst hjá Jakobi!" Fljótur til máls „Hann var fljótur til máls og óhræddur við að ræða málin. Og afskaplega forvitinn.“ Fyrsti málflutn- ingur í Orator Félagar í Orator, félagi laganema við Háskóla Ísíands, hafa lengi haldið þeim sið að setja á svið mál- flutning, þar sem laga- nemar sjálfir setjast í sæti dómara og mál- flutningsmanna og sækja og verja tilbúin sakamál samkvæmt lag- anna bókstaf. Á tímabili fengu landsmenn að kynnast þessum mál- ingi Orators þar sem formaðurinn Þorvaldur Garðar var í hlutverki sækjanda og Geir Hallgrímsson, fyrrum forsætisráð- herra og formaður Sjálf- stæðisflokksins, var í hlutverki veijanda, en Páll Ásgeir Tryggvason sendiherra var í sæti dómara. Ekki fer sögum af lyktum þessa máls en svo vel hefur tekist til flutningi Orators í sjónvarpinu, en það var löngu fyrir tíma sjónvarpsins að þessi málflutningur var tekinn upp í félaginu. Það var árið 1947 og var Þorvaldur Garðar Kristjáns- soij alþingismaður þá formaður fé- lagsins. Svo skemmtilega vill til, að í myndasafni Ólafs K. Magnússonar fundust myndir af fyrsta málflutn- að ástæða þótti til að halda slíkum málflutningi áfram innan félagsins. Hópmyndin af laganemum var tekin við sama tækifæri, í hófi sem haldið var að loknum málflutningi. Ekki tókst að nafngreina alla á myndinni og eru hlutaðeigendur beðnir vel- virðingar á því. STARFIÐ HULDA GUÐMUNDSDÓTTIR TÖLVUNARFRÆÐINGUR Hulda Guðmundsdóttir Fjölbreytt og skemmtilegt „STARFIÐ ER bæði fjölbreytt og skemmtilegt. Það felst í rekstri tölvu fyrirtækisins sem er af gerðinni VAX 3600, hönnun og þróun hugbúnaðar, vali á tölvu- búnaði og aðstoð við notendur tölvunnar," segir Hulda Guð- mundsdóttir, tölvunarfræðingur hjá Fjárfestingarfélagi íslands. Hulda lauk námi í tölvunarfræði frá Háskóla íslands árið 1982 og að því búnu innritaðist hún í rafmagnsverkfræði og lauk því námi árið 1984. Þegar komið var að því að leita eftir vinnu var mark- aðurinn fyrir rafmagnsverkfræð- inga þröngur svo að tölvunarfræðin varð fyrir valinu. Fyrst vann hún hjá fyrirtæki að nafni Atlantis og síðustu þijú árin hefur hún starfað hjá Fjárfestingarfélaginu. Hulda situr einnig í stjórn DECUS á ís- landi, sem er félag fyrir notendur svokallaðra DEC-tölva. Auk þess starfar hún í tæknihóp, sem skipað- ur var vegna hönnunar á nýju tölvu- kerfi fyrir Verðbréfaþing íslands. Hún segir að starfið hafi gefið sér tækifæri á ferðalögum erlendis, en tvívegis hefur hún sótt Evrópuráð- stefnur DECUS. Hulda segir að örar breytingar eigi sér stað í tölvubransanum og því sé nauðsynlegt að fylgjast vel með. Starfið henti ekki síður konum en körlum. Hulda á eitt barn og hún segir að starfið og heimilið falli ágætlega hvort að öðru. ÞETTA SÖGÐV ÞAU ÞÁ . . . Sir Josep Banks, vísinda- madurog ís- landsvinur. Hraustir sjóliöar Ekki eru til harðgerðari menn í þessum heimi (íslending- ar). Myndu þeir í framtíðinni ekki skipta óverulegu máli sem sjóliðar í breska flotanum. Bréf til Bathursts jarls, form- anns breska verslunarráðsins og verslunarmálaráðherra, 16. apríl. 1809. BÓKIN Á NÁTTBORÐINU Gunnar Em- il Pálsson pípulagninga- meistari Eg hef verið að lesa bókina „The Rise and Fall of the third Reich" sem fjallar um uppgang og fall Þýskalands á nasistatímanum. Svo var ég að lesa Hamlet sem er afar þungmelt dæmisaga. I afgrciclslu- AteggÆHN kona Unglingabókin „Krakkar í klípu“ er á mínu náttborði. Strákurinn minn fékk hana í jólagjöf og finnst mér hún fín. Því miður fékk ég enga bók í jólagjöf sjálf, en ég les flestar þær spennubækur sem ég kemst yfir og nota bókasafnið mik- ið. PLATAN Á FÓNINUM MYNDIN ÍTÆKINU Undanfarnar vikur hef ég verið að hlusta á nýju plöturnar með Síðan skein sól, Bubba og hljóm- sveitinni Nýdönsk. Af erlendum vettvangi eru hljómsveitirnar U2 og Cure efstar á vinsældalistanum hjá mér. Eg hef aðallega veVið með tvær plötur á fóninum. Annars vegar er það hljómplatan með Todmobile „Er nokkuð til betra“ og hinsvegar hef ég verið að hlusta á tónlistina úr kvikmyndinni „The Mission“ með Robert de Niro og Jeromy Irons í aðalhlutverkum. Hafdís Þor- steinsdótt- ir nemi Við vinkonurnar vorum að horfa á hrollvekjuna Halloween 4 sem er alls ekki góð mynd. Það er svo sem í lagi með hana en endirinn var lélegur. Hrollvekjumyndir e_ru svo sem ekki mitt uppáhald. Ég horfi töluvert á grínmyndir og enn meira er ég fyrir alvarlegu raun- veruleikamyndirnar. * Eg var síðast að horfa á grínmyndina„The Naked Gun“. Þetta er algjör þvæla, en léttir manni óneitanlega skammdegið. Ég horfi á alls konar myndir. Þó er ég ekki fyrir kvikmyndir, sem inni- halda mikið af sálrænum truflun- um. Maður sér nóg af slíku annars staðar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.