Morgunblaðið - 14.01.1990, Page 31

Morgunblaðið - 14.01.1990, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ SAMSAFNIÐ SUNNUDAGUR 14. JANÚAR 1990 C 31 ♦ Félagar í Orator áriö 1947. Á myndinni eru meðal annars í efri röð Þorvaldur Garðar Kristjánsson, Geir Hallgrímsson, Eggert Jónsson, Ingvi Ólafsson, Sigurður Bald- ursson, Rannveig Þorsteins- dóttir, Sveinn Sveinsson, Magnús Torfason, Árni Hall- dórssonj Gunnar Helgason og Tómas Árnason og í neðri röð Páll Ásgeir Tryggvason, Ólaf- ur Jóhannesson, OlafurLárus- son, Jón P. Emils og Ásgeir Pétursson. Frá réttarhöldum í Orator árið 1947. SlMTALID... ER VIÐINGÓLF SVEINSSON GEÐLÆKNI Að nota kreppuna 602600 Kleppsspítali. — Góðan daginn, gæti ég feng- ið að tala við Ingólf Sveinsson? Andartak. Halló. — Ingólfur, komdu sæll, ég heiti Kristín Matja Baldursdóttir og er blaðamaður á Morgunblað- inu. Má ég eiga við þig örstutt spjall? Jú, það er velkomið. —- Eg las það,.í lesendadálkum dagblaðanna fyrir jól að þjóðin væri að kafna úr þunglyndi. Hvað segir geðlæknirinn um það? Það er sterkt til orða tekið. — En hafa þrengingarnar í þjóðfélaginu haft einhver áhrif á andlega heilsu manna? Við spítaladeildina þar sem ég starfa er alltaf verið að vísa fólki frá vegna skorts á rými þannig að við vitum ekki hvað biðröðin er löng, og á stofunni hjá mér er langur biðlisti. Ég veit það ekki, en hitt er ljóst, að fólkið sem kem- ur á við þau vandamál að etja sem mest er talað um í þjóðfélaginu eins og t.a.m. gjaldþrot. Annars virðist mér 'dapurleikinn koma fram í tilgangsleysinu. Maður heyrir á fólki að það vill sem minnst heyra eða vita af stjórn- málamönnum og mér þykir það vond staða þegar fólk er orðið svo leitt á stjórnmálum að það er hætt að búast við neinu úr þeirri átt. Það hef- ur ekki einu sinni skoðun með eða á móti. — Já, þetta hef ég líka orðið vör við. En segðu mér, nú hef ég heyrt að þú ræðir um streitu við hjarta- sjúklinga sem eru í endurhæfingu á Reykjalundi. Hvaða þætti legg- urðu mesta áherslu á? Jú, hjartasjúklingar hafa sjúk- dóm sem má í mörgum tilfellum tengja ofkeyrslu og of miklu álagi umfram hvíld. Þetta er gjarnan duglega fólkið, sem hefur bætt nóttu við dag, og ekki bætir -ef það notar nikótín og kaffi til að hressa sig á, því það eykur spenn- una og streituna. En það er svo margt fleira. Verðbólguþjóðfélag er í sjálfu sér óhollt umhverfi. Fólk er knúið af ábyrgðarlausum stjórnmálamönnum iil að eyða um efni frám, ög þáð rúglar að sjálf- sögðu fólk að búa við slík lögmál árum saman. Menn verða oft þreyttir held ég á uppskrúfuðum og rugluðum lífsmáta sínum. Hjartasjúklingum má líkja við menn sem hafa lent í árekstri út af of hröðum akstri. En þeir hafa allt að vinna og við þá segi ég: í öllum bænum, sofið átta tíma. Ef þið getið það ekki án hjálpar lyfja, þá notið lyf til að byija með, en lærið síðan að sofa með eðlilegum hætti. Og þótt það sé til siðs að þamba tíu bolla af kaffi í vinnunni. . . — Kannast við það. Já, þessu getum við stjórnað sjálf með því að taka ábyrgð á hraða akstursins. Koma okkur út úr arginu og finna til eðlilegrar þreytu með því að fara t.d. í gönguferð. Ég vildi að ég væri sá maður sem gæti auglýst þá hug- mynd að nota kreppuna okkur til blessunar. Lækka flugið, taka stjórn á eigin lífi og hrekjast ekki alltaf undan veðrinu. — Já, satt se- girðu. En Ingólfur, ég ætla ekki að tefj.a þig lengur, ég þakka þér kær- lega fyrir spjallið og vertu sæll. Jú sömuleiðis, vertu sæl. Ingólfur Sveinsson Verkfræðingurinn að störfum í dag. Egill Skúli Ingibergsson verk- fræðingur var töluvert í sviðs- ljósinu á árunum 1978 til 1982. Vinstri meirihlutinn sem komst til valda í höfúðborginni í sveit- arstjórnarkosningunum 1978 ákvað að ráða sérstakan ópólitískan borgarstjóra í stað þess að velja hann úr eigin röð- um og úr varð að Egill Skúli tók við starfinu. Nú sjö árum eftir að hann lét af embætti borgarstjóra er hann aftur kominn þangað sem hann var er þess var fárið á leit við hann að taka við embættinu, það er hann vinnur nú sem verkfræð- ingur hjá Rafteikning hf. og er einn af eigendum þeirrar verk- fræðistofu. Egill Skúli segir að helstu verk- efnin sem stofan vinni nú að sé hönnun rafbúnaðar í Blöndu- virkjun og Nesjavallavirkjun, út- sýnishúsið í Öskjuhlíð og uppsetn- ing sviðsbúnaðar í Þjóðleikhúsinu. Auk þess eru fjöldi smærri verk- efna til úrvinnslu hjá Rafteikn- ingu. Áhugamál Egils Skúla eru flest tengd vinnunni en eitt þeirra er tengt veru hans í borgarstjóra- stólnum og það eru störf að mál- efnum lamaðra og fatlaðra. “Einn eftirminnilegasti atburð- urinn í mínum huga frá þeim árum sem ég var borgarstjóri var er samtök lamaðra og fatlaðra ák- váðu að halda sérstakan baráttu- dag í borginni," segir Egill Skúli. HVAR ERUÞAU NÚ? EGILL SKÚLIINGIBERGSSON Aftur á upphafs- reit “Undirbúningsnefnd á þeirra veg- um kom að máli við okkur og fór þess á leit að við yrðum með kaffi- veitingar á Kjarvalsstöðum í lok dagsins fyrir þá sem tækju þátt í kröfugöngunni og var það auð- sótt mál. Þeir reiknuðu með að 100 til 150 manns myndu koma i kaffið en sú varð raunin að 6-700 manns mættu.“ í máli Egils kemur fram að þetta hafi orðið upphafið af af- skiftum hans af málefnum þessa hóps. Hann var einn áf stofendum “Félags velunnara Borgarspítal- ans“ sem nú hefur starfað í fimm ár og átti sæti í einni af undir- nefndum Norðurlandaráðs sem fjallar um málefni þessa fólks. Áuk þess má nefna að Egill hefur Egill Skúli Ingibergsson í ræðustól í borgarstjórn. tekið þátt í “ísbliss“ verkefninu sem Jón Hjaltalín Magnússon hef- ur átt frumkvæði að, það er að gera fólki, sem á erfitt með að tjá sig vegna fötlunar, kleyft að gera slíkt með táknmyndakerfi. Þegar Agli Skúla Ingibergssyni var boðin staða borgarstjóra var hann nokkurn tíma að bræða það með sér hvort hann ætti að þyggja stöðuna eða ekki. “Fjölskylda mín hafði blendnar tilfinningar gagn- vart þessu þar sem hún hafði aldr- ei áður verið í sviðsljósi fjöl- miðla,“ segir hann. “Ég var for- maður Verkfræðingafélags ís- lands er þetta koma upp og ræddi þetta mál nokkuð innan þess fé- lags. Verkfræðingar hafa löngum þótt hlédrægir og hafa þóttst skorast undan því að taka við ábyrgðarstöðum á opinberum vettvangi. Því voru félagar mínir áhugasamir um að ég tæki við þessu verkefni og það vóg þungt í endanlegri ákvörðun minni.“ Egill segir að hann sjái ekki eftir þessari ákvörðun sinni á neinn máta. Starfið hafi reynst lifandi og skemmtilegt og hann eignaðist marga nýja vini og kunningja í því sem hann hefur haldið samskiptum. við æ síðan. I

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.