Morgunblaðið - 14.01.1990, Side 32

Morgunblaðið - 14.01.1990, Side 32
♦ 32 C MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. JANUAR 1990 BAIiÞANKAR Ó-menning Gleðilegt ár Helga mín (á ég kannski að segja Helga lang- brók!). Veistu ég á mér draum! Síðasti draumur minn, að fá að skrifa í Morgunblaðið, rættist. Það er nú sjálfsagt draumur allrá að sjá eitthvað eftir sig á prenti í því menningarblaði. En mikið vill meira Helga mín, nú dreymir mig um að fá að skrifa eftir Eddu Björgvins. næst í „okkar blað" undir dul- nefni! Þá mundi ég skrifa undir nafn- inu „Reykjavíkurbréf', „Víkverji" eða jafnvel „Velvakandi". Kunn- ingi minn sagði við mig um dag- inn: „Nei sko, í dag er það gamli rykfallni fýlupúkinn sem fær að ónotast i Víkverja." Kunningi minn skiptir nefnilega höfundum Víkverja niður i þrjá leiðindagaura, eins og hann segir sjálfur, það er „illilegi unglingurinn, grái fiðring- urinn og gamli fýlupúkinn". Hann segist greina aldur þeirra á milli línanna og reyndar er það ekki það eina sem hann les út úr skrifum þeirra. en satt að segja er það ekki prenthæft! í „okkar blaði" er stundum fjall- að um menningu. Við íslendingar erum menningarþjóð. í minni orða- bók (Menningarsjóðs) er menning skilgreind sem: „þroski mannlegra eiginleika mannsins". Ég verð að segja alveg eins og er að ég á alltaf bágt með að koma auga á „þroska" mannsins þegar ég hugleiði vín- menningu okkar íslendinga og einnig þegar ég skoða umferðar- menningu okkar. Þegar þetta tvennt ber á góma þá dettur mér frekar í hug að nota orðið „ómenn- ing" sem í orðabókinni er skilgreint „siðleysi, ósiður”. Ég leyfi mér að fullyrða að vindrykkja okkar ís- lendinga varð ekki „menningar- v legri" við það að flytja inn þann skandinaviska ósið sem við nefn- um „jólaglögg". íslendingar tóku þessum útlendagesti fagnandi, hér var komin góð afsökun fyrir því að vera rallhálfur hvern dag í des- ember. Gleðilega hátíð! Þarna var jafnvel komin afsökun fyrir því að setjast undir stýri eftir að hafa innbyrt vínsull með rúsínum og kanel — í nafni jólanna. Við skulum heldur ekkí gleyma þeim straumhvörfum sem urðu í menningarlífi okkar íslendinga þegar sala á sterkum bjór var leyfð hér á landi. 1. mars 1989 varð að þjóðhátíðardegi okkar íslendinga. Upphófust nú mikil fagnaðarlæti og á mörgum heimilum er enn ver- ið að hampa þessum mikla gleði- gjafa og menningarauka — bjórn- um. Jesús Kristur hefði ekki feng- ið aðrar eins móttökur ef hann hefði birst hér á landi 1. mars 1989. Það hefði enginn tekið eftir honum, því það var annað og meira ljós sem hafði náð að skína hingað norður í rassgat — loksins! Þar með var hafið nýtt „vínmenningartimabil" þjóðarinn- ar. Allar götur síðan hefur verið reynt að ljúga því að okkur að áfengisneysla landsmanna hafi minnkað verulega með tilkomu bjórsins. Húrra! Smám saman hef- ur þó sannleikurinn komið i ljós. Áfengisneysla hefur stórlega auk- ist og i beinu framhaldi hefur- of- beldi aukist bæði á heimilum og á götum úti. ölvunaraksturstilfellum hefur íjölgað óhugnanlega mikið og svo mætti lengi telja. Þetta er ölviman, hvernig verða timbur- mennirnir? Ég vona að allir 17 ára unglingar hafi fengið „Bókina um bjórinn" i jólagjöf. Næsta ár verður væntanlega gefin út „Bókin um heróínið", sem við getum laumað í skóinn. Góðir íslendingar, við skulum horfast í augu við það að við höfurrt staðnað í þroska. Aðrar þjóðir eru loksins að opna augun fyrir þeim hörmungum sem fylgja þessum ísmeygilega heimilisvini — bjórn- um. Þær eru líka að opna augun fyrir þeirri villimennsku sem hon- um fylgir og birtist m.a. í hörmung- ^ um umferðarslysa. Á meðan bros- um við eins og fífl, bjóðum bjórinn velkominn, bölvum hraðahindr- unum og finnst við vera menning- arþjóð! Jæja, Helga mín, ég veit að þú ert mér hjartanlega sammála. Mínar bestu kveðjur að Hlíða- renda, þó sérstaklega til Gunnars. Höfundur er í Áhugahópi um bætta umferðarmenningu. 3: 2^L^nttPLj 0 GO X cz < m X3 co VERSLUNARHUSINU MIÐBÆR HÁALEITISBRAUT 58-60 S: 38050 105RVK. KOPAL þak- og veggklæðningarpappi Mjög hagstætt verð Takmarkaðar birgðir. Einnig DECRA stólkiæðning á þök, 5 litir. Villadseris UMBOÐIÐ Sigvaldi Jóhannsson & Co., Ármúla 16 - sími 91-83030 Ævintýraferð fyrir minna verð Flugfar til Thailands kostar litlu meira en til evrópskra sólarlanda. Á móti kemur að verðlag í Thailandi er svo lágt að í heildina er ódýrara að ferðast til Thailands en annarra sólarlanda. Upplifun í Thailandsferð verður hins vegar ekki jafnað við venjulega sólarlandaferð. í Thailandi kynnist þú framandi menningu, fjölskrúðugu mannlífi, stórkostlegu landslagi og glæsilegri baðströndum en finnast annars staðar, Er ekki kominn tími til að breyta til? 17 daga ferð til Bangkok og Pattaya kostar aðeins kr. 97.610* fyrir manninn í tvíbýli. Innifalið er m.a. flug, gisting á fyrsta flokks hótelum og morgunverður. Allt að 50% afsláttur fyrir börn undir 12 ára. Bæklingur um Thailand liggur . frammi á öllum ferðaskrifstofum. Par færðu allar nánari upplýsingar um Thailandsferðir. * Verð miðast við gengi og fargjöld 10. janúar. FLUGLEIDIR Sími 69 03 00 /////SAS Laugavegi 3, sfmi 62 22 11

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.