Morgunblaðið - 06.02.1990, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. FEBRÚAR 1990
Stöð 2:
Fyrri aðaleigendur
leggja fram hlutafé
FYRRI aðaleigendur Stöðvar 2, ásamt nokkrum öðrum aðilum,
lögðu í gær fram 150 milljóna króna hlutafé í Stöð 2. Er það í
samræmi við hlutafjárloforð sem þeir skrifuðu undir um síðustu
áramót. íslandsbanki hefur staðfest að hlutaféð hafí borist og er
það greitt Stöð 2 í peningum.
Hlutaféð skiptist þannig, að
Ólafur H. Jónsson leggur fram 50
milljónir króna, Jón Ottar Ragn-
arsson 15 milljónir, Hans Kristján
Ámason 10 milljónir, Húsvirki hf.
26 milljónir, Sólninghf. 18 milljón-
ir, Teppabúðin 14 milljónir, Hörður
Jónsson leggur fram 15 milljónir
og Hallgrímur Sandholt leggur
fram 2 milljónir.
Hans Kristján Ámason og Jón
Óttar Ragnarsson sendu fyrir
nokkm frá sér yfirlýsingu þar sem
þeir gagnrýndu hlutafjársölu
Eignarhaldsfélags Verslunarbank-
ans, og var líkum leitt að því að
þeir myndu yfirgefa Stöð 2. Jón
Óttar Ragnarsson sagði við Morg-
unblaðið í gær, að hann stæði í
samningaviðræðum við stjóm ís-
lenska sjónvarpsfélagsins um
framtíð sína þar, og það kæmi í
ljós á næstu dögum hver staða
þeirra yrði í fyrirtækinu.
„Án tillits til hver sú niðurstaða
verður, mun það verða megin-
verkefni okkar þremenninganna
að tryggja að þetta félag verði
opnað upp á gátt fyrir fjármagni
frá atvinnulífínu og gert að raun-
veralegu almenningshlutafélagi
þar sem enginn hefur meirihiuta.
I framhaldi af því viljum við opna
félagið fyrir starfsfólki Stöðvar 2
og áskrifendum. Ef ekki tekst að
opna félagið tel ég að áður en langt
um líður muni Stöð 2 heyra sög-
unni til,“ sagði Jón Óttar Ragnars-
son.
Þorvarður Elíasson varaform-
aður stjórnar Eignarhaldsfélags
Verslunarbankans og sjónvarps-
stjóri Stöðvar 2 segir að íslands-
banki hafi staðfest að greiðsla
hafi borist. Stjómarfundur Eign-
arhaldsfélagsins verður í dag, þar
sem lögð verða fram gögn frá
bankanum um hlutafjárgreiðslum-
ar.
Morgunblaðið/Sverrir
Frá félagsfundi járniðnaðarmanna í Reykjavík í gærkveldi.
Járniðnaðarmenn samþykkja
kjarasamningana nær einróma
FÉLAG járniðnaðarmanna sam-
þykkti nýgerða kjarasamninga
Alþýðusambands íslands með 52
atkvæðum gegn 5 og 4 seðlar
voru auðir á almennum félags-
fundi í gærkveldi. Þá samþykkti
verkalýðsfélagið Árvakur á Eski-
fírði einnig samningana með 39
atkvæðum gegn 5.
Starfsmannafélagið Sókn gekk
frá kjarasamningi við ríki,
Reykjavíkurborg og sjálfseignar-
stofnanir um kvöldmatarleytið í
gær. Samningurinn er nánast
samhljóða þeim kjarasamningum
sem Alþýðusamband íslands og
Bandalag starfsmanna ríkis og
bæja gengu frá við sína viðsemj-
endur fyrir helgina.
Ágreiningur í ríkisstjórn um niðurskurð:
Líklegast að hægt verði á ýmsum
framkvæmdum eða þeim frestað
ÓLAFUR Ragnar Grímsson, fjármálaráðherra, mun á ríkisstjórnar-
fundi í dag kynna tillögur sína um niðurskurð á ríkisútgjöldum, til
þess að vega upp á móti kostnaði þeim sem ríkissjóður ber vegna
nýgerðra kjarasamninga. Búist er við því að hann geri tillögur um
liðlega eins milljarðs króna sparnað í ríkisútgjöldum á þessu ári, og
að þær verði einkum í þá veru að hægt verði á ýmsum framkvæmd-
um á vegum ríkisins, eða þeim frestað. Þegar hafí verið þrengt svo
að rekstrarliðum ríkisins að um frekari niðurskurð geti ekki orðið
að ræða á því sviði.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins er ágreiningur um það
innan ríkisstjómarinnar með hvaða
hætti eigi að skera niður ríkisút-
gjöld, svo og um það hvort nauðsyn
beri til slíks niðurskurðar. Ljóst
virðist að formaður Alþýðubanda-
lagsins, Ólafur Ragnar Grímsson,
ijármálaráðherra og varaformaður
sama flokks, Steingrímur J. Sigfús-
son, landbúnaðar- og samgöngu-
ráðherra, era ekki samstíga í þessu
máli, þar sem Steingrímur hefur
lýst því yfir að hann telji með öllu
útilokað að skera ríkisútgjöld niður
um einn milljarð króna.
Guðmundur Bjarnason, heil-
brigðisráðherra og Steingrímur J.
Sigfússon, samgönguráðherra,
munu báðir vera þeirrar skoðunar
að nú þegar hafi verið svo þrengt
að fagráðuneýtum þeirra, hvað nið-
urskurð varðar, að ekki verði lengra
gengið á því sviði. Niðurskurður til
vegamála er 600 milljónir króna frá
vegaáætlun, og telja samgönguráð-
herra og fjölmargir þingmenn að
ófært sé að skerða framlög til vega-
mála frekar.
Svavar Gestsson, menntamála-
ráðherra, hefur lýst því yfir að ekki
komi til greina að fjárframlög til
verkefna á vegum hans ráðuneytis
verði skert frekar, en samkvæmt
upplýsingum Morgunblaðsins er þó
talið líklegast að lagt verði til að
framkvæmdir við endurbætur Þjóð-
leikhússins hefjist ekki fyrr en á
miðju þessu ári, og það verði þann-
ig lokað í tvö ár í stað eins. Jafn-
framt er búist við að lagt verði til
að hægt verði á framkvæmdum við
endurreisn Bessastaðastofu, auk
þess sem talið er líklegt að íjárfram-
lög til Lánasjóðs íslenskra náms-
manna verði eitthvað skert. Talið
er að auðveldasta leiðin til sparnað-
ar eða niðurskurðar ríkisútgjalda
sé að hefja nýframkvæmdir síðar
en áætlað var og/eða hægja á þeim
framkvæmdum sem þegar era
hafnar. Þannig megi spara mikla
ijármuni.
Þórunn Sveinbjörnsdóttir, for-
maður Sóknar, sagði í samtali við
Morgunblaðið, að í viðræðunum
hefði það verið auðfundið að það
væri ekkert annað sem stæði til
boða, samningsaðilar hefðu verið
mjög ákveðnir í að fara þessa leið.
Hvað desemberappbót varðar
fylgir kjarasamningur Sóknar
ákvæðum kjarasamnings BSRB og
er hún rúmar 22 þúsund krónur
miðað við laun nú og fullt starf.
Sama gildir um launaauka til þeirra
sem era á lægstu laununum. Endur-
skoðunarákvæði samningsins fylgja
hins vegar samningi ASI og vinnu-
veitenda, enda Sókn með beina að-
ild að Alþýðusambandinu.
Stefnuskrá Málefíialistans kynnt:
Alþýðuflokkur afealar
sér valdi á framboði
- segir Birgir Dýrfjörð
FULLTRÚARÁÐ Alþýðuflokksins lagði i gær fram málefnasamning
og drög að stefnuskrá Mále&ialistans. Á þeim grunni leitar flokkur-
inn samstarfs við Alþýðubandalagið, Birtingu og óháða kjósendur
um sameiginlegt framboð til borgarstjórnarkosninganna í vor að
undangengnu opnu prófkjöri. Birgir Dýrfjörð formaður fúlltrúaráðs
Alþýðuflokksins segir að flokkurinn sé með þessu að afsala sér valdi
á framboði flokksmanna sinna í Reykjavík.
Islenzkur vísindamaður ferst
undan ströndum N-Karólínu
DR. EINAR B. Ólafssson, sjávarlíffræðingur, lést af slysförum
undan strönd N-Karólínu í Bandaríkjunum þann 18. janúar
síðastliðinn, 39 ára að aldri. Einar var við annan mann að vinna
að rannsóknum, sem hann hafði hlotið til styrk frá sænsku
vísindaakademíunni. Þeir voru á opnum báti skammt undan
Morehead City í N-Karólínu þegar veður og skyggni versnuðu
skyndilega. Báturinn rakst á siglingabauju og hvolfdi. Einar
týndist en björgunarmenn fúndu félaga hans hætt kominn og
þrekaðan. Lík Einars rak á fjörur síðastliðinn föstudag um það
bil 2 mílur frá slysstaðnum.
Einar B. Ólafsson fæddist 14.
mars 1950, sonur hjónanna Ás-
dísar Kristjánsdóttur og Ólafs
Hauks Ólafssonar læknis en
hann lést á síðasta ári. Einar var
í Menntaskólanum í Reykjavík
1966-1969 er hann fluttist til
Lundar í Svíþjóð þar sem foreldr-
ar hans vora þá búsettir. Þar
hefur hann verið búsettur síðan
og lauk doktorsprófí frá háskó-
lanum í Lundi vorið 1988. Frá
því í mars á síðasta ári hafði
hann unnið að sjávarvistfræði-
rannsóknum við sjávarlíffræði-
stofnun háskóla Norður-
Karólínu en til þeirra hafði hann
hlotið styrk frá sænsku vísinda-
akademíunni.
Einar B. Ólafsson lætur eftir
sig 18 ára gamla dóttur, Kristínu
Áslaugu. Hún er búsett í Lundi.
Einar B. Ólafsson
í málefnasamningi Málefnalist-
ans er tekið fram að hann tryggi
sjálfstæði listans gegn yfirráðum
stjórnmálahreyfinga. Frambjóðend-
ur listans verði valdir í opnu próf-
kjöri og skiþi um leið borgarmála-
ráð Málefnalistans. Að auki skuli
þær stjórnmálahreyfingar, sem að
framboðinu standa, tilnefna tvo
fulltrúa hver í ráðið, en þeir hafí
ekki atkvæðisrétt.
Hluti samningsins er verkefna-
listi sem aðilar skuldbinda sig til
að vinna að í borgarstjórn. Fram-
bjóðendur í prófkjöri listans verða
að undirrita bæði málefnasamning-
inn og verkefnalistann.
Stefnuskrá Málefnalistans er
byggð á samþykkt Alþýðuflokks-
félaganna í Reykjavík frá 20. jan-
úar. Þá var stjórn fulltrúaráðsins
heimilað að vinna að samkomulagi
við ýmsa aðila um sameiginlegan
framboðslista. Af þeim hefur Borg-
araflokkurinn hafnað samstarfí en
Alþýðubandalagið í Reykjavík mun
taka afstöðu til málsins á fundi í
kvöld. í frétt frá fulltrúaráði Al-
þýðuflokksins segir að Alþýðu-
bandalagsfélagið Birting hafi fagn-
að tillögunni og samþykkt skilmála
hennar. Þá hafí nokkrir einstakling-
ar í áhugamannafélögum í borginni
lýst áhuga sínum á þátttöku.
Sjá fréttaskýringu um fram-
boðsmál minnihlutaflokkanna
í Reykjavík á miðopnu.
Annasöm nótt
á snjóbílnum
ísaflrði.
FÓLK í tveimur bílum tepptist
vegna fannkomu sitt hvorum
megin Skutulsfjarðar aðfaranótt
mánudags. Engum varð meint
af, en snjóbíll Hjálparsveitar
skáta á ísafírði sótti fólkið og
bílana.
Fyrst aðstoðuðu skátarnir feðgin
á föstum bíl á Hnífsdalsvegi og um
klukkan 5 um nóttina fólk í jeppa
á Súðavíkurhlíð. Þaðan hélt snjóbill-
inn rakleitt til ísafjarðar og hóf að
flytja starfsfólk Fjórðungssjúkra-
hússins til vinnu og vaktinni lauk
með því að sjúklingur var sóttur
og fluttur á spítalann. Auk þessa
má nefna að um nóttina var lög-
reglubíli frá ísafírði dreginn út úr
skafli. Úlfar
Sjá ennfremur frétt á bls. 12
af fannferginu á Vestfjörðum.