Morgunblaðið - 06.02.1990, Qupperneq 12
12
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. FEBRUAR 1990
Morgunblaðjð/Rax
Mokstur hefiir gengið erfíðlega á Flateyri að undanförnu og bílar víða á kafí í snjó.
Enn ófært á Vestfjörð
um en hlé framundan
Veðurstofan spáir kólnandi veðri og hlánar því ekki
ÍBÚAR á norðurhluta Vestfjarða fengu á ný að fínna fyrir snjó-
komu, skafrenningi og blindbyl í fyrrinótt og gærmorgun eftir
tveR83a sólarhringa hlé, en að sögn Veðurstofu er gert ráð fyrir
skaplegra veðri næstu daga. Hláka er samt ekki yfirvofandi, því
spáð er kólnandi veðri. Fjallvegir eru ófærir og víðast þungfært.
Flateyringar fylltust bjartsýni á afianum þar sem löndunarkraninn
iaugardag, „er nærri sást tii sól-
ar“, eins og Ægir E. Hafberg odd-
viti orðaði það í samtali við Morg-
unblaðið. Hafist var handa við
snjóruðning og tókst að opna veg-
inn að flugvellinum í Holti við
Önundarfjörð, en það var skamm-
góður vermir — bylur um heigina
sá tii þess að flug hefur legið niðri
og götur á Flateyri, sem búið var
að moka, urðu aftur ófærar. „Það
hefur ekkert upp á sig að moka,
þegar veðrið er svona,“ sagði Páll
Ónundarson, vörubílstjóri. Hann
sagði að vissulega væri fannfergið
mikið, enda nær linnulaus úrkoma
í hálfan mánuð, en munurinn nú
og áður væri sá að nú hefði snjón-
um kyngt niður á mun skemmri
tíma. Blíðviðriskaflinn fyrir helgi
gerði það hins vegar að verkum
að snjórinn þéttist og ekki er hætta
á snjóflóði eins og er, að sögn
Ægis.
Dráttarvélin með blásaranum,
sem kom tii Flateyrar frá Patreks-
firði fyrir helgi, bilaði á sunnudag
og var ekki komin í gagnið í gær.
Línubátamir komust í róður á
laugardag og fengu fimm til sex
tonn hvor og togarinn Gyllir kom
inn vegna veðurs í fyrrinótt með
40 tonn, en ekki var hægt að landa
var bilaður, að sögn Eiríks Finns
Greipssonar hjá Hjálmi hf.
Ekki snjóaði mikið á Þingeyri
um helgina, en hljómsveitarmenn
frá Reykjavík, sem skemmtu þar
á þorrablóti á laugardalskvöld,
voru enn veðurtepptir í gær.
Á Suðureyri er allt á bólakafi,
en þar var töluverð úrkoma í fyrri-
nótt og auk þess skóf mikið. Flug
hefur legið niðri síðan 5. janúar,
en snjóþykktin á flugbrautinni er
tveir til þrír metrar. Reynt er að
halda athafnasvæðinu við höfnina
opnu, en hætta er á að bændur
þurfi að fara að hella niður mjólk
vegna ófærðar.
Ástandið var svipað í Bolungar-
vík, en þangað hafa vöruflutninga-
bílar ekki komist á aðra viku. Ár-
mann Leifsson komst með tvo bíla
fulla af vörum að sunnan til
Hólmavíkur 26. janúar, en sneri
þeim við á laugardag, þar sem ljóst
var að ekki yrði mokað um helg-
ina. „Það er hörmungarástand
varðandi moksturinn," sagði Ár-
mann. „Við erum ekki að biðja um
mokstur í vitiausu veðri, en það
verður að vera hægt að treysta
mokstursdögunum eða næsta degi
á eftir ef með þarf.“
Aftakaveður var á ísafirði að-
faranótt mánudags; hvasst og
skyggni ekkert, en lítil úrkoma.
Af nógu var samt að taka og í gær
var unnið við að hreinsa bæinn.
Vegurinn til Bolungarvíkur var
ruddur og útlit fyrir að opnað yrði
til Súðavíkur, en Sveinbjörn Vetur-
liðason verkstjóri hjá Vegagerðinni
sagði að ekki yrði átt við Djúp-
veginn fyrr en veður skánaði.
Morgunblaðið/Rax
Guðmundur Betúelsson 94 ára bóndi að Kaldá rétt innan við Flat-
eyri hefur mokað frá frá gluggum, svo hann sjái út á íjörðinn.
Morgunblaðið/Rax
Snjóflóðahætta var við Ólafstón á Flateyri í síðustu viku, en hún er liðin hjá, íbúarnir fluttir aftur inn
og aðstæður um helgina voru krökkunum svo sannarlega að skapi.
Morgunblaðið/Rax
Á laugardag náðu snjómoksturstæki loks að komast í gegnum u.þ.b. 500 m breitt snjóflóðið við Sela-
bólsurð, um sjö km frá Flateyri.