Morgunblaðið - 06.02.1990, Page 16
16
MORGUNBLAÖIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. FEBRÚAR 1990
Gönuskeið utan-
ríkisráðherra
eftir Hrein Loftsson
Jón Baldvin Hannibalsson ut-
anríkisráðherra, spyr um afstöðu
Sjálfstæðisflokksins til afvopnunar
á höfunum í grein í Morgunblaðinu
30. janúar sl. Eftir lestur greinar-
innar er þó eðlilegt að menn spyiji
hvað hann sjálfur hyggist fyrir og
mun ég víkja að því áður en ég
svara spurningu Jóns Baldvins.
Lítum til dæmis nánar á eftir-
tektarverðar mótsagnir í málflutn-
ingi ráðherrans. Á einum stað í
greininni segir hann: „Afvopnun á
höfunum má að ýmsu leyti líkja við
nánast ónumið land. Málefnið er
tiltölulega lítt kannað þrátt fyrir
nokkra umræðu og athuganir á
síðustu árum. Greinilegt er að
málið þarf að nálgast á annan
veg en afvopnun á landi. Það er
því ljóst að undirbúningur mun
taka sinn tíma.“
i þessum tilvitnuðu orðum felst
í fyrsta lagi viðurkenning á því að
Jón Baldvin hefur sett fram hug-
myndir um afvopnun á höfunum
að óathuguðu máli, en það virðist
raunar vera verklag ráðherrans í
fleiri málum, sbr. hugmyndir hans
um breytingar á utanríkisþjón-
ustunni og iokun sendiráða. Hann
hefur m.ö.o. gefið sér niðurstöður
fyrirfram af umfjöllun málsins sem
hann segir sjálfur að sé varla hafin.
Þá er einnig athyglisvert að aðeins
tveimur málsgreinum síðar virðist
utanríkisráðherra hafa skipt um
skoðun miðað við efni framan-
greindrar tilvitnunar, því þar segir
Jón Baldvin orðrétt: „Ég hef ekki
enn heyrt nein rök fyrir því, að
það sé einhver meginmunur á
afvopnun á landi og höfunum, út
frá öryggishagsmunum Atlants-
hafsbandalagsins, sé tekið tillit til
þess í hversu mismiklum mæli ríki
e'ru háð höfunum."
Mótsagnakenndur málflutningur
sem þessi vekur menn til umhugs-
unar um ástæður þess, að Jón Bald-
vin hefur ekki tekist að fá aðra
forystumenn Atlantshafsbanda-
lagsins í lið með sér, sbr. ummæli
Hans van den Broek, utanríkisráð-
herra Hollands, í fréttatíma Stöðvar
2 30. janúar sl., þar sem hann sagði
að hugmyndir um afvopnun á höf-
unum væru ekki tímabærar. Hingað
til hefur Jón Baldvin haldið því blá-
kalt fram, að innan Atlantshafs-
bandalagsins séu það aðallega
Bandaríkjamenn sem séu andvígir
hugmyndum hans og segi „njet“ í
hvert sinn sem rætt séu um af-
vopnun á höfunum. Ummæli van
den Broeks ásamt nýlegum yfirlýs-
ingum Ditleves Simonsens, varnar-
málaráðherra Noregs, taka af öll
tvímæli um það, að innan Atlants-
hafsbandalagsins er almenn og
djúpstæð andstaða við ótímabærar
og illa ígrundaðar hugmyndir Jóns
Baldvins Hannibalssonar varðandi
afvopnun á höfunum.
í Atlantshafsbandalaginu hafa
aðildarríkin náð samkomulagi um
ákveðna forgangsröðun í afvopnun-
armálum. Forgangsröðun þessari
er lýst með ítarlegum hætti í skjal-
inu „Samræmd stefna um takmörk-
un vígbúnaðar og afvopnun", sem
Steingrímur Hermannsson forsæt-
isráðherra, og Jón Baldvin Hanni-
balsson utanríkisráðherra, sam-
þykktu á leiðtogafundi Atlantshafs-
bandalagsins 29.-30. maí 1989.
Þetta skjal endurspeglar þá sameig-
inlegu stefnu bandalagsríkjanna,
að frekari skref, þ. á m. afvopnun
á höfunum, séu ekki á dagskrá fyrr
en árangur hefur náðst í tiiraunum
Atlantshafsbandalagsins til að
draga úr og útrýma þeim tegundum
vígbúnaðar sem þeim stafar mesta
hættan af. í stuttu máli er þetta
sú stefna, sem Sjálfstæðisflokkur-
inn fylgir, eins og undirritaður gerði
grein fyrir í Morgunblaðinu 12.
desember sl.
Jón Baldvin segir í upphafí grein-
ar sinnar að í afvopnunarmálum
eigi leiðarljósið að vera eftirfar-
andi: „Ef hægt er að semja á þann
veg, að ávinningurinn verði meiri
en kostnaðurinn er skynsamlegt að
ganga til samninga.“ Eins og skjal-
ið um samræmdu stefnuna ber með
sér hafa ríki Atlantshafsbandalags-
ins komist að þeirri sameiginlegu
niðurstöðu að afvopnun á höfunum
hefði í för með sér meiri „kostnað"
en „ávinning“ á þessu stigi málsins.
Jón Baldvin snýr staðreyndum
við
Grein Jóns Baldvins Hannibals-
sonar frá 30. janúar er síðbúið svar
við greinum undirritaðs í Morgun-
blaðinu 21. mars sl. og 12. desem-
ber sl. í stað þess að svara efnis-
lega þeim aðfinnslum við pólitískt
gönuskeið Jóns Baldvins (sem hann
hefur sjálfur kosið að nefna „frum-
kvæði“) er gripið til þess gamal-
kunnuga ráðs að gera andstæðingn-
um upp skoðanir sem síðan er ráð-
ist á af mikilli ákefð. Þannig segir
Jón Baldvin á einum stað í grein
sinni: „Greinin (þ.e. grein undirrit-
aðs — innsk. höf.) verður ekki skil-
in öðruvísi en svo, að formaður ut-
anríkismálanefndar Sjálfstæðis-
flokksins sé beinlínis andvígur því
að dregið verði úr vígbúnaði á höf-
unum með samningaviðræðum ..."
Hér er staðreyndum snúið við.
Slíkar málfundaæfíngar kunna að
eiga við „á rauðu ljósi“ með Ólafi
Ragnari Grímssyni en þær hæfa
ekki utanríkisráðherra ef hann vill
láta taka sig alvarlega. Kjarni
Hreinn Loftsson
„Ummæli van den Bro-
eks ásamt nýlegum
yfirlýsingnm Ditleves
Simonsens, varnar-
málaráðherra Noregs,
taka af öll tvímæli um
það, að innan Atlants-
hafsbandalagsins er al-
menn og djúpstæð and-
staða við ótímabærar
og illa ígrundaðar hug-
myndir Jóns Baldvins
Hannibalssonar varð-
andi afvopnun á höfim-
um.“
gagntýni minnar lýtur að óhöndug-
legri málsmeðferð utanríkisráð-
herra sem brýtur í bága við sam-
þykkta forgangsröðun verkefna í
viðræðum um afvopnunarmál.
Gagnrýnin er í stuttu máli sú, að
með „frumkvæði" sínu sé Jón Bald-
vin að rjúfa einingu Atlantshafsríkj-
anna um málsmeðferð og brjóta
meginregluna um pólitískt samráð
aðildarríkjanna.
Jón Baldvin virðist ekki með
nokkru móti geta skilið það undir-
stöðuatriði, að það er samstaða
ríkja Atlantshafsbandalagsins frá
upphafi sem er lykillinn að þeim
árangri í afvopnunarmálum sem
náðst hefur á undanförnum árum.
Þannig var það samstaða Atlants-
hafsríkjanna sem tryggði árangur
Stokkhóimsráðstefnunnar (CDE)
um traustvekjandi aðgerðir og það
var samstaðán sem tryggði útrým-
ingu meðaldrægu kjarnaflauganna
með INF-samningnum og það er
Viltu njóta starfsins betur?
Ljúka sölunni á auðveldari hátt?
Svara mótbárum afmeira öryggi?
Dale Carnegie sölunámskeiðið
FJÁRFESTING í MENNTUN SKILAR ÞÉR ARÐIÆVILANGT
INNRITUN OG UPPLÝSINGAR í
SIMA 82411
1 ^
tuooCAíio
STJÓRI\IUI\IARSKÚLII\II\I
'j % Konrað Adolphsson Einkaumboð fyrir Dale Carnegie namskeiðm'
KERTAÞRÆÐIR ípassandi settum.
Leiðari úr stáiblöndu. Sterkur og þolir
aó leggjast í kröppum beygjum. Við-
nim aðeins 1/10 af viðnámi kolþráða.
Margfökl neistagœði.
Kápa sem deyfir truflandi rafbylgjur.
Meirn en þú geturímyndað þér!
SIEMENS-^æd/
TRAUSTUR OG AFKASTAMIKILL
ÞURRKARI FRÁ SIEMENS
íslenskar fjölskyldur í þúsundatali telja SIEMENS
þvottavélar og þurrkara ómissandi þægindi. Þú getur
alltaf reitt þig á SIEMENS.
WT
33001
■ Hægt að leiða loft út frá
■ öllum hliðum.
Þurrkar mjög hljóðlega.
■ Tímaval upp i 140
mínútur.
■ Hlífðarhnappur fyrir
viðkvæman þvott.
■ Tekur mest 5 kg af
þvotti.
■ Verðkr. 47.600,-
Munið umboðsmenn okkar víðs vegar um landið.
SMITH&NORLAND
NÓATÚNI 4 • SÍMI 28300
samstaðan sem kemur til með að
skila árangri í viðræðunum um nið-
urskurð hefðbundins herafla í Evr-
ópu (CFE). Síðar þegar tímabært
verður að ræða önnur mál svo sem
afvopnun á höfunum verður það
samstaða Atlantshafsríkjanna sem
kemur til með að skipta sköpum
og því grefur það undan öryggis-
hagsmunum íslands og rýrir álit
íslendinga út á við að leggja fram
óábyrgar tillögur á þessu stigi í
óþökk bandamanna okkar í Atlants-
hafsbandalaginu.
í hvaða bandalagi er Jón
Baldvin?
Torkennileg vinnubrögð utanrík-
isráðherra í öryggis- og varnarmál-
um vekja spurningar um kveikju
þeirra hugmynda sem ráðherrann
hefur að leiðarljósi. Svarið er e.t.v.
að finna í áramótagreinum Jóns
Baldvins í Alþýðublaðinu og Morg-
unblaðinu 30. og 31. desember sl.
Samkvæmt þeim virðist hann hafa
eignast átrúnaðargoð í Mikhaíl S.
Gorbatsjov, leiðtoga Sovétríkjanna.
Um Gorbatsjov farast honum svo
orð í Morgunblaðinu 31. desember
sl.: „ . . . Mikhaíl Gorbatsjov gegnir
mikilvægasta og sögulegasta hlut-
verki stjórnmálaleiðtoga samtím-
ans. Hans hlutverk er að kistu-
leggja lenínismann í eitt skipti fyrir
öli og endurreisa Rússland á grund-
velli vestrænna hugmynda um rétt-
arríki, virðingu fyrir mannréttind-
um, lýðræði í stjórnmálum og frið-
samlega lausn alþjóðlegra deilu-
mála. Gervallt mannkyn á mikið
undir því komið að honum mistak-
ist ekki þetta sögulega hlutverk."
Hér heldur hrifnæm sál á penna,
en hvemig skyldi nú Gorbatsjov
sjálfur líta á málið?
í grein í Prövdu 29. nóvember
sl. (Sjá „Daily Review“ útg. af
Novostsi, Vol XXXV, No. 34, „The
Socialist Idea and Revolutionary
Perestroika") segir Gorbatsjov m.a.
um hlutverk sitt: „Vér höfnum að-
ferðum stalínismans og styðjum nú
við aðferðir línínismans . . .“ Síðar
í sömu greininni segir Gorbatsjov
að verkefnið framundan í Sovétríkj-
unum sé að hefja kenningar marx-
ismans til vegs og virðingar á ný
og nota „marxískar aðferðir við
greiningu veruleikans". í sem
stystu máli er boðskapur Sovétleið-
togans sá, að nauðsynlegt sé að
hrista rykið af gömlu skruddunum
og framkvæma hlutina eins og
Marx og Lenín sögðu fyrir um.
Gorbatsjov telur m.ö.o. að sósíal-
isminn haldi gildi sínu en aðeins
hafi skort á framkvæmdina.
Lotning Jóns Baldvins fyrir lenín-
istanum Mikhaíl S. Gorbatsjov skýr-
ir e.t.v.hversu vel hann lét sér lynda
þegar Ólafur Ragnar Grímsson fjár-
málaráðherra, hrósaði honum á
frægum Birtingarfundi á Hótel
Sögu fyrir að ganga gegn stefnu
Atlantshafsbandalagsins í málinu.
Þjóðviljinn er líka hæstánægður
með utanríkisráðherrann sinn, því
eins og segir í leiðara blaðsins 13.
desember sl.: „Það hefði einhvern
tíma þótt tíðindum sæta að íslensk-
ir ráðherrar stæðu nær leiðtoga
Sovétríkjanna en Bandaríkjanna í
umræðum á Nató-fundi...“
í þessum orðum og athöfnum
bandamanna Jóns Baldvins kemur
skýrt fram, að formaður Alþýðu-
flokksins hefur dregið fram gamalt
félagsskírteini sitt yst á vinstri
væng stjórnmálanna þar sem mönn-
um er ávallt hrósað fyrir að mæla
með andvaraleysi í öryggis- og
varnarmálum þjóðarinnar. Jón
Baldvin virðist vera kominn heim
aftur í faðm gömlu féiaganna sinna
í Alþýðubandalaginu.
Gjafmildi Sovétleiðtogans
Glýjan sem Jón Baldvin er með
í augunum þegar minnst er á Gorb-
atsjov kann einnig að skýra furðu-
legasta samsetninginn í grein hans
í Morgunblaðinu 30. janúar sl. Efn-
islega segir Jón Baidvin í greininni
að Sovétríkin hafi yfirleitt forðast
samningaviðræður um málefni þar
sem hernaðarleg staða þeirra er
veikari. Nú bregði hins vegar svo
við, að þau vilji semja um afvopnun
á höfunum „þrátt fyrir lakari samn-
ingsstöðu". Orð Jóns Baldvins um
þetta efni verða ekki skýrð öðruvísi
en svo að Atlantshafsbandalagið