Morgunblaðið - 06.02.1990, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. FEBRÚAR 1990
19
landsmarkað á vertíðinni 1988.
„Verðið er það lágt í Bretlandi að
það borgar sig ekki að frysta flök
á þann markað," sagði Gísli. ■
Stafnes KE frysti tæp 700 tonn
af síld á síðustu vertíð, aðallega á
Japansmarkað en skipið frysti
300-350 tonn á Japansmarkað á
vertíðinni 1988, að sögn Hilmars
Magnússonar útgerðarmanns.
Hann sagði að skipið hefði fryst
smávegis í beitu á síðustu vertíð.
„Japanir greiddu okkur 100-105
yen (42-44 krónur) fyrir 250
gramma síld og stærri. Hins vegar
greiddu þeir okkur 120 yen (um
50 krónur) fyrir 300 gramma sfld
og stærri í lok vertíðarinnar og við
erum mjög ósáttir við að Stafnesið
skuli ekki hafa fengið að frysta síld
eftir 20. janúar, því mjög góð sfld
gekk inn á Austfirðina eftir áramót-
in,“ sagði Hilmar Magnússon.
Hamar SH frysti 28 tonn í beitu
og eitt tonn á Japansmarkað á
síðustu vertíð. Hins vegar frysti
skipið 30-40 tonn á Japansmarkað
á vertíðinni 1988, að sögn Kristins
Friðþjófssonar útgerðarmanns.
„Það vantaði tilfinnanlega stóra síld
til frystingar á Japansmarkað á
síðustu vertíð,“ sagði Kristinn.
Um 11.800 tonn af síld
fiyst á síðustu vertíð
Um 2.100 tonnum minna en á vertíðinni 1988
Kvenfélaga-
samband Is-
FRYST voru um 11.800 tonn af
síld á nýliðinni vertíð, þar af um
2.200 tonn í Siglfirðingi SI, Jóni
Finnssyni RE, Stafiiesi KE og
Hamri SH. Á vertíðinni 1988 voru
fryst 13.900 tonn af síld, þar af
um 500 tonn í Jóni Finnssyni,
Stafiiesi og Hamri. Frystihús,
sem aðild eiga að Sölumiðstöð
hraðfrystihúsanna, frystu 6.600
tonn af síld á síðustu vertíð en
Sambandsfrystihús 3.000 tonn. Á
vertíðinni 1988 fi-ystu SH-hús
9.300 tonn af síld og Sambands-
frystihús 4.050 tonn. Fryst voru
um 3.600 tonn af síld á Japans-
markað á síðustu vertíð en um
5.000 tonn á vertíðinni 1988.
SH-hús frystu 5.600 tonn af síld
á Evrópumarkað og um 1.000 tonn
á Japansmarkað á nýliðinni vertíð.
Þau frystu hins vegar 5.900 tonn
á Evrópumarkað og 3.400 tonn á
Japansmarkað á vertíðinni 1988.
Sambandsfrystihús og Siglfirð-
ingur SI frystu 3.668 tonn af síld
á nýliðinni vertíð, þar af 2.528 tonn
á Evrópumarkað og 1.140 tonn á
Japansmarkað. Á vertíðinni 1988
frystu Sambandsfrystihús 4.050
tonn af síld, þar af 1.200 tonn á
Japansmarkað, að sögn Teits Gylfa-
sonar hjá sjávarafurðadeild Sam-
bandsins. Teitur sagði að Siglfirð-
ingur hefði fryst 670 tonn á síðustu
vertíð, þar af 206 tonn eftir áramót.
Hann sagði að Japanir hefðu
greitt að meðaltali 108 yen (um 45
krónur) fyrir kflóið af sfld, sem fryst
var á síðustu vertíð. Á vertíðinni
1988 hefðu þeir hins vegar greitt
850 Bandaríkjadali (um 51.300
krónur á núvirði) fyrir tonnið af
frystri síid. „í yenum talið er verðið
svipað og í fyrra en yenið hefur
fallið allmikið gangvart Banda-
ríkjadal," sagði Teitur.
Fryst voru rúm 800 tonn af síld
um borð í Jóni Finnssyni RE á
síðustu vertíð, þar af 26-27 tonn
af beitu en afgangurinn var frystur
á Japansmarkað, að sögn Gísla Jó-
hannessonar útgerðarmanns. Gísli
sagði að Japanir hefðu greitt
90-100 yen (38-42 krónur) fyrir
250-300 gramma síld og 110 yen
(46 krónur) fyrir 350 gramma sfld
og stærri. Jón Finnsson RE frysti
158 tonn af sfldarflökum á Bret-
lands 60 ára
1. febrúar 1990 eru 60 ár liðin
frá stofnun Kvenfélagasambands
íslands. í tilefiii þessara tíma-
móta mun KÍ halda Vorvöku í
Reykjavík dagana 29.-31. marz
næstkomandi, ennfremur verður
þá haldinn hátíðafundur. Aðai-
ræðumaður fundarins verður dr.
Ellen McLean frá Nova Scotia í
Kanada, fv. formaður Associated
Countrywomen of the World,
sem er alheimssamband kvenfé-
laga í 70 löndum í öllum heimsálf-
Það er ekkert til sparað við framleiðslu kubbanna.
Hafðu ávallt öskju við hendina.
Kjarna kókos, munaðar marsípan og keisaralegt coníak.
Freyjukubbar, dáindis öskjur - dýrindis innihald.
um.
Lizzíarkórinn, sem er söngkór
kvenna úr Suður-Þingeyjarsýslu,
mun koma til Reykjavíkur og syngja
á hátíðafundinum. Stjórnandi kórs-
ins er Margrét Bóasdóttir. Kórinn
mun einnig halda tónleika í Lang-
holtskirkju sunnudaginn 1. apríl.
Vorvakan hefst með opnun lista-
verkasýningar á Hallveigarstöðum.
Listasafn Alþýðusambands íslands
hefur góðfúslega orðið við beiðni
KÍ um að setja saman sýningu á
listaverkum eftir íslenskar konur. Á
þessu afmælisári eru 22 héraðssam-
bönd í KI, í þeim eru um 250 kven-
félög með um 23.000 meðlimi.
Formaður KÍ er Stefanía M. Pét-
ursdóttir.
Áskriftarsimirm cr 83033