Morgunblaðið - 06.02.1990, Qupperneq 24
24
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. FEBRÚAR 1990
Rúmenía:
Brucan segir sig
úr Þjóðarráðinu
Búkarest. Reuter.
SILVIU Brucan, helsti hugmyndafræðingur Þjóðarráðsins í Rúm-
eníu, sem tók við völdunum eftir byltinguna í desember, sagði óvænt
af sér á laugardag og er talið að afsögn hans auðveldi lýðræðisþróun
í landinu.
Silviu Brucan, sem var áður
stjómarerindreki í Washington og
hjá Sameinuðu þjóðunum, sagði er
hann tilkynnti afsögn sína að
stjórnmál Rúmeníu einkenndust af
„persónulegum metnaði og hags-
munapoti framagosa". Hann fór
beint úr stofufangelsi í ellefu manna
framkvæmdanefnd ráðsins og þótt
hann hefði notið virðingar sem and-
Egypskir lögreglumenn gæta langferðabílsins, sem ráðist var á fyrir norðan Kairó á sunnudag.
Hryðjuverkamenn drepa 10 Israela í Egyptalandi:
Ottast alvarleg áhrif á Mð-
arhorfúr í Miðausturlöndum
Jerúsalem, Kairó. Reuter.
EGYPSKA lögreglan leitaði í
gær ákaft mannanna, sem réð-
ust á sunnudag á langferðabíl
með skothríð og hand-
sprengjukasti og myrtu 10 ísra-
elska ferðamenn og tvo egypska
öryggisverði. Átti' árásin sér
stað ekki Qarri Kairó í Egyptal-
andi og hafa tvenn samtök lýst
hryðjuverkinu á hendur sér. Er
óttast, að þessi atburður geti
spillt verulega fyrir hugsanleg-
um samningaviðræðum um frið
í Miðausturlöndum.
Grímuklæddir menn stöðvuðu
langferðabílinn 65 km fyrir norð-
austan Kairó og réðust síðan á
Bretland:
Spáð er minni út-
breiðslu alnæmis
St. Andrews, frá Guðmundi H. Frímannssyni, fréttaritara Morgnnblaðsins.
OPINBERAR tölur, sem geftiar voru út í Bretlandi sl. föstudag,
benda til, að mun færri muni sýkjast af alnæmi á næstu árum,
en áður var talið.
í skýrslu frá stofnun, sem nefn-
ist Public Health Laboratory
Service, er spá um útbreiðslu sjúk;
dómsins fram til ársins 1993. í
henni er gert ráð fyrir 1.300 nýj-
um tilfellum í Englandi og Wales
á þessu ári og að 750 Játist af
völdum sjúkdómsins. Á árinu
1993 er spáð að ný alnæmistil-
felli verði á bilinu 1.175 til 4.825
og af þeim verði 875-1.500 sam-
eða tvíkynhneigðir karlmenn.
Nýjustu tölur frá brezka heil-
brigðisráðuneytinu sýna, að 2.830
einstaklingar hafí greinzt með
einkenni sjúkdómsins og af þeim
hafi 1.612 látizt. í áðumefndri spá
er gert ráð fyrir að 6.380 muni
greinast með sjúkdóminn fyrir
árslok 1993 og 4.980 muni látast.
Þetta eru mun lægri tölur en
áður hefur verið spáð. í skýrslu
frá 1988 var gert ráð fyrir, að
fyrir árslok 1992 myndu 30 þús-
und einstaklingar greinast með
sjúkdóminn og 17 þúsund hafa
látizt.
Skýringin á þessu er sögð vera
sú, að mikil breyting hafí orðið á
hegðun samkynhneigðra karla á
miðjum síðasta áratug. Einnig er
bent á bætta meðferð alnæmis-
sjúkra og betri lyf. Sagt er, að
útbreiðslan meðal gagnkyn-
hneigðra og eiturlyfjasjúklinga
muni aukast.
hann með skothríð og sprengju-
kasti. Biðu 12 manns manns bana
eins og fyrr segir, 10 ísraelar og
tveir Egyptar, og 16 særðust, sum-
ir alvarlega. í gær fannst bíllinn,
sem tilræðismennirnir notuðu, og
skömmu síðar handtók lögreglan
þijá menn, sem hún taldi vera með
fölsuð saudi-arabísk vegabréf en
við nánari athugun reyndist svo
ekki vera og var þeim þá sleppt.
Tvenn samtök hafa lýst ódæðinu
á hendur sér. Er annars vegar um
að ræða ókunna hreyfíngu, sem
kallar sig „Vamarsamtök kúgaðra
í egypskum fangelsum", og hins
vegar „Heilagt stríð“, sem eru rót-
tæk, palestínsk hryðjuverkasamtök.
í íran hafa morðin verið lofuð sem
hetjudáð en einn helsti leiðtogi Pal-
estínumanna á hernumdu svæðun-
um, Faisal al-Husseini, hefur for-
dæmt þau.
í ísrael hafa viðbrögðin við morð-
unum verið mikil og Yitzhak Sham-
ir forsætisráðherra og Likudflokk-
urinn ætla ekki að taka þátt í
fundi, sem James Baker, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, hefur boð-
að til með utanríkisráðherrum ísra-
els og Egyptalands. Átti þar að
ræða hugsanlegar friðarviðræður
milli Palestínumanna og ísraela.
Þá kenna harðlínumenn eins og
Ariel Sharon, viðskipta- og iðnaðar-
ráðherra, Egyptum sjálfum um
morðin og krefjast þess, að hætt
verði við fyrirhugaðar kosningar á
hemumdu svæðunum.
Esmat Abdel-Maguid, utanríkis-
ráðherra Egyptalands, sagði í gær,
að allt yrði gert til að fínna hina
seku og kvað hann stjómvöld stað-
ráðin í að láta hryðjuverkamennina
ekki eyðileggja vonina um frið í
Miðausturlöndum. Erlendir stjóm-
arerindrekar í Kairó segja, að at-
burðurinn geti haft mikil og alvar-
leg áhrif á ferðamannastrauminn
til Egyptalands, sem er verulegur
og ein helsta gjaldeyrisuppsprettan.
Júgóslavía:
Kommúnistarí
Slóveníu fara
eigin leiðir
Pristína. Reuter.
Kommúnistar í Slóveníu sögðu
sig á sunnudag úr lögum við
skoðanabræður annars staðar í
Júgóslavíu. Jafiivel er talið að
flokksdeild kommúnista í Kró-
atíu geri slíkt hið sama innan
tíðar.
Þjóðareining í Júgóslavíu hefur
ekki verið í meiri hættu frá lokum
seinni heimsstyijaldar. Miklar
óeirðir hafa verið undanfarið í
Kosovo, sjálfstjórnarhéraði í suðu-
hluta Júgóslavíu. í norðri hafa
kommúnistar í Slóveníu og Króatíu
viljað hleypa af stokkunum umbót-
um í anda annarra Austur-Evró-
puríkja. Þessar hugmyndir hafa
mætt andstöðu hjá suðlægari lýð-
veldum landsins. Á sunnudag var
Slóvenum nóg boðið og sögðust
kommúnistar þar vilja taka jafnað-
armenn í Vestur-Evrópu sér til fyr-
irmyndar. Var nafni flokksdeildar-
innar breytt til að leggja áherslu á
þetta.
Forsetakosningar í Costa Rica:
Rafael Angel Calderon lýsir yfír sigri
San Jose, Reuter.
RAFAEL Angel Calderon Fournier, frambjóðandi stjórnarandstöð-
unnar, lýsti í gær yfír sigri í forsetakosningunum í Cosa Rica. Þá
höfðu innan við 10% atkvæða verið talin og verður ekki skýrt frá
endanlegum úrslitum kosninganna fyrr en í næstu viku.
Calderon er fertugur lögfræðing-
ur og var í forsetaframboði í þriðja
sinn. Hann er sonur fyrrum forseta
landsins og var utanríkisráðherra
landsins seint á áttunda áratugnum.
Frambjóðandi stjómarflokksins,
Carlos Manuel Castillo, játaði ósig-
ur stuttu eftir að Calderon hafði
lýst yfir sigri. Báðir höfðu heitið
að framfylgja friðaráætlun Oscars
Arias, forseta, og halda áfram efna-
hagsumbótum, sem Alþjóðagjald-
eyrissjóðurinn hefur beitt sér fyrir
í Costa Rica. Þar var hagvöxtur
meiri á sl. ári og þar ríkir meiri
velmegun en í nokkru öðru Mið-
Ameríkuríki. Jafnframt á lýðræði
sér lengri hefð þar en í öðrum
ríkjum Mið-Ameríku en landsmenn
eru 2,8 milljónir.
Samkvæmt lögum landsins getur
starfandi forseti hvorki boðið sig
fram að nýju né haft afskipti af
kosningabaráttu. Þess vegna hverf-
ur handhafi friðarverðlauna Nóbels,
Oscar Arias, nú úr embætti forseta
eftir að hafa gegnt því undanfarin
fjögur ár.
stæðingur Nicolae Ceusescus, fyrr-
um einræðisherra, hafði hann sætt
vaxandi gagnrýni sem einn af for-
ystumönnum Þjóðarráðsins.
Brucan var einnig formaður ut-
anríkismálanefndar Þjóðarráðsins
og efndi oft til blaðamannafunda
með erlendum fjölmiðlamönnum.
Þar gaf hann stundum í skyn að
menntamenn myndu fara með völd-
in í landinu í framtíðinni og þóttu
ummæli hans oft bera vott um
hroka gagnvart alþýðunni. Þegar
Doina Cornea, einn af fáum andófs-
mönnum landsins á valdatíma
Ceausescus, sagði sig úr Þjóðarráð-
inu lét Brucan svo ummælt að hún
væri „einfeldningur í stjórnmálum“.
Hún hafði látið í ljós áhyggjur yfír
því að Þjóðarráðið stefndi að ein-
ræði. Brucan varði þá ákvörðun
Þjóðarráðsins að bjóða fram í kosn-
ingunum 20. maí þrátt fyrir að leið-
togar ráðsins hefðu áður lofað að
leysa það upp.
Fyrrum félagar Brucans í Þjóðar-
ráðinu hafa ekki tjáð sig um afsögn-
ina en heimildarmenn í Rúmeníu
segja að virðing hans á meðal al-
mennings hafi farið síþverrandi.
Talsmenn annarra flokka sögðu að
afsögn Brucans hefði komið á óvart
en ekkert benti til þess að þeir
sæju eftir honum.
Leiðtogar margra stjórnarand-
stöðuflokka landsins, sem eru um
þijátíu, hafa kvartað yfír því að
Þjóðarráðið hafi háð óréttláta kosn-
ingabaráttu, neitað að útvega nýju
flokkunum fjármuni, húsnæði og
aðgang að fjölmiðlum. Mihai
Draganescu aðstoðarforsætisráð-
herra vísaði þessu á bug í gær og
sagði að leiðtogar Þjóðarráðsins
væru staðráðnir í að koma á fjöl-
flokkakerfi með öflugri stjórnar-
andstöðu.
Reuter
Rafael Angel Calderon Fournier meðal stuðningsmanna fyrir utan
kjörstað í San Jose, höfúðborg Costa Rica, á sunnudag.
Armenar-Azerar:
Riga-samning-
urinn brotinn
Moskvu. Reuter.
SVO virðist sem samningur
milli fulltrúa Armena og Azera
um vopnahlé og skipti á
gíslum, er gerður var um helg-
ina í Riga, höfúðborg Lett-
lands, fyrir tilstuðlan Þjóðar-
hreyfinga i Eystrasaltslöndun-
um, hafí þegar verið brotinn.
Túlsmaður Þjóðarhreyfíngar
Armena sagði í gær að armen-
skir íbúar nokkurra þorpa í
Sovétlýðveldinu Azerbajdzhan
hefðu verið neyddir til að yfir-
gefa heimili sín og haft að yfir-
varpi að þetta væri gert til að
tryggja öryggi þeirra sjálfra.
Fulltrúar þjóðanna tveggja
hafa fundað í nokkra daga í Riga
og á laugardag var gefín út yfír-
lýsing um vopnahléð og gísla-
skiptin. Sagt var að allar tilraun-
ir til að magna átökin væru and-
stæðar hagsmunum þjóðanna.
Að sögn danska blaðsins Berl-
ingske Tidende vildi hvorug
sendinefndin víkja í deilunum um
hið umdeilda hérað Nagomo-
Karabak sem byggt er Armenum
en heyrir undir Azerbajdzhan.
Haft er eftir fréttabréfi Moskvu-
útvarpsins, Interfax, að báðir
aðilar hafí lagt áherslu á að deil-
umar snúist fremur um land-
svæði en trúarbrögð. Armenar
eru kristnir en Azerar múslimar.
Innrás sovéska hersins í Az-
erbajdzhan fyrir skömmu hefur
orðið til að beina athygli Azera
frá deilunni við Armena og gegn
Moskvuvaldinu. Talið er að um
320 manns hafí týnt lífí í átökum
þjóðanna undanfarin tvö ár.