Morgunblaðið - 06.02.1990, Page 34
Háskólanum berast góðar gjafir
BÓKASAFNI Háskólans á Akureyri hafa borist ýmsar góðar gjafir
að undanfórnu, bæði bóka- og peningagjafir.
Dr. Ivka M. Munda gaf bókasafn-
inu ritverk sín um botngróður við
strendur íslands. Ole Lindquist gaf
rit um hagfræði og skyldar greinar
og Jón Jónsson hefur gefið rit um
jarðfræði. Gauti Arnþórsson hefur
gefið nokkra titla tímarita í læknis-
fræði og munu þau berast safninu
áfram. Kristján P. Guðmundsson
og Þórður Jónsson hafa gefíð forða
af tímaritinu Ægi og á bókasafnið
því Ægi frá upphafí, en það er
mikilvægt vegna kennslu í sjávarút-
vegsdeild. Ættingjar Júlíusar Kr.
Ólafssonar hafa gefið safninu tíma-
ritaforða um guðspeki og andleg
efni.
Við stofnun sjávarútvegsdeildar
í janúar færði Sigfús Jónsson bæj-
arstjóri fyrir hönd Bæjarsjóðs
Akureyrar Haraldi Bessasyni rektor
250 þúsund krónur er skyldu renna
í bókakaupasjóð skólans. Við sama
tækifæri afhenti Gunnar Ragnars
framkvæmdastjóri gjafabréf að
upphæð 200 þúsund krónur til
bókakaupasjóðsins frá Útgerðarfé-
lagi Akureyringa. Að ósk gefenda
verður þessum peningum varið til
kaupa á ritum vegna sjávarútvegs-
deildar.
í fréttatilkynningu frá háskólan-
um eru þessum aðilum færðar
þakkir fyrir hlýhug þeirra í hans
garð og metur hann mikils hlut
þeirra í uppbyggingu bókasafns
skólans.
Sterkur og afkastamikill fyrir íslenskar aðstæður.
Til afgreiðslo strax.
Vélsmiðjan Víkht. 610 Grenivík, sími 96-33216.
Aldrei verið jafii
mikið atviimuleysi
ATVINNULEYSI hefur aldrei áður verið jafti mikið á Akureyri
og nú, en 331 var skráður atvinnulaus um síðustu mánaðamót og
á fyrstu tveimur dögum febrúarmánaðar var mikið að gera á
Vinnumiðlunarskrifstofúnni þegar 32 komu til nýskráningar. Alls
eru því 363 skráðir atvinnulausir í bænum um þessar mundir.
Atvinnuleysisdagar á síðasta ári urðu 32.422 á móti 14.977 á
árinu 1988, sem er 116% fjölgun.
Sigrún Bjömsdóttir forstöðu-
maður Vinnumiðlunarskrifstofu
Akureyrar sagði að aldrei hefðu
jafnmargir verið skráðir atvinnu-
lausir í bænum, en næst þessu
kæmi janúarmánuður árið 1984,
þegar 295 voru skráðir atvinnu-
lausir og hafði þá ekki sést svo
há tala áður.
í lok síðasta mánaðar var 331
á atvinnuleysisskrá, 125 konur og
206 karlar. Fjölmennasti hópur
atvinnulausra eru verkamenn, 93
karlar úr verkalýðsfélögunum
Einingu og Iðju eru atvinnulausir
og 87 konur úr sömu félögum.
_Fyrstu tvo daga febrúarmánaðar
urðu nýskráningar atvinnulausra
32, þar af var tæplega helmingur,
eða 15 félagar í Félagi verslunar-
og skrifstofufólks. Sigrún segir
að mest beri á atvinnuleysi á
meðal verkamanna og í þjónustu-
greinum.
„Það hefur aldrei verið jafn-
mikið atvinnuleysi hér, við höfum
ekki séð neitt í líkingu við þetta,“
sagði Sigrún, en á sama tíma á
síðasta ári voru 200 skráðir at-
vinnulausir.
Vinnuslys:
Kona slasaðist
mikið á hendi
VINNUSLYS varð í frysti-
húsi Útgerðarfélags Akur-
eyringa í gærmorgun er
kona Ienti með aðra hönd-
ina í roðflettingarflökunar-
vél.
Tilkynnt var um slysið laust
fyrir klukkan 10 í gærmorg-
un. Kona sem var að vinna
við flökunarvélina lenti með
hægri hönd í vélinni og að
sögn lögreglunnar á Akureyri
slasaðist hún mikið á fíngrum
og lék vafi á hvort hún héldi
þeim öllum.
Að sögn lögreglu hafði
konan margra ára reynslu af
vinnu við slíkar vélar. Ekki
er ljóst með hvaða hætti slys-
ið varð. Kona var strax flutt
á Fjórðungssjúkrahúsið á
Akureyri þar sem hún gekkst
undir aðgerð.
Ólafsfjörður:
Olafiir Bekkur
með 140 tonn
ÓLAFUR Bekkur ÓF landaði um
140 tonnum í Ólafsfirði í gær.
Uppistaða aflans var þorskur og
þeim hluta sem ekki verður
unninn í Hraðfrystihúsi Ólafs-
fjarðar verður ráðstafað annað.
Frekar rólegt hefur verið í fisk-
vinnslunni hjá HÓ í janúar, en hjól-
in eru nú farin að snúast hraðar
og vinna um 100 manns þar þegar
allt er komið á fulla ferð.
Loðnubræðsla HÓ hefur tekið á
móti um 2.000 tonnum frá aramót-
um, en Guðmundur Ólafur ÓF hefur
landað þar í fjögur skipti og ævin-
lega verið með fullfermi.
Ný lyftsL vígð í Hlíðarfjalli
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Ný diskalyfta var formlega tekin í notkun i Hlíðar-
fjalli á laugardag. Lyftan, sem er í Hólabraut
norðan Skíðastaða, er 350 metra löng og á henni
er 50 metra hæðarmunur. Hún getur flutt 800
manns á klukkustund, en einkum er hún ætluð
bömum og byijendum og var sett upp í stað
annarrar sem tekin var niður vegna slysahættu.
Við vígslu lyftunnar flutti Reynir Karlsson íþrótta-
fulltrúi ríkisins ávarp og einnig Sigfús Jónsson
bæjarstjóri. í tilefni dagsins var ókeypis í allar
lyftur Hlíðarfjalls og sagði ívar Sigmundsson
forstöðumaður Skíðastaða að 1.500-1.700 manns
hefðu verið á skíðum á laugardaginn í góðu
veðri. Einnig var aðsókn góð á sunnudag, en
veðrið var þó ekki sérstakt. í gær, mánudag, var
fjölmenni í fjallinu og sagði ívar að aðsóknin
væri svipuð og á meðal sunnudegi. Mikill og góð-
ur skíðasnjór er nú í Hlíðarfjalli.
*
Akureyrarbær og IBA:
Rammasamningur um byggingu,
rekstur og aftiot íþróttamannvirkja
BÆJARRÁÐ Akureyrar hefur samþykkt rammasamning á milli Akur-
eyrarbæjar annars vegar og Iþróttabandalags Akureyrar hins vegar,
en samningurinn kemur til afgreiðslu á fundi bæjarstjórnar í dag.
Samningurinn er til fjögurra ára í senn og framlengist sjálfkrafa sé
honum ekki sagt upp með sex mánaða fyrirvara. Rammasamningur
um samstarf bæjarins og ÍBA er gerður í kjölfar breytinga á lögum
um verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga. í samningnum er fjallað um
byggingu, rekstur og afnot af íþróttamannvirkjum á Akureyri.
í samningnum segir að Akureyrar-
bær viðurkenni þjónustuhlutverk sitt
við íþróttafélögin í æskulýðs- og
íþróttamálum og íþróttafélögin hlut-
verk sitt og skyldur gagnvart bæj-
arbúum. Með samningnum vilji
Akureyrarbær tryggja að fé það sem
bæjarsjóður leggur fram til bygging-
ar íþróttamannvirkja nýtist sem best
Framleiðum snjóblásarann BARÐA
þeim bæjarbúum sem stunda íþrótt-
ir. íþróttafélögin muni kappkosta að
gera sem flestum bæjarbúum kleift
að stunda íþróttir, m.a. með því að
veita þeim greiðan aðgang að mann:
virkjum og starfsemi félaganna. í
því felist að félögin hafi með sér
samstarf um að haga starfi sínu
þannig að báðum kynjum, öllum
aldurshópum og fötluðum sé veitt
aðstaða til íþróttaiðkana.
Akureyrarbær hefur forgangsrétt
á notkun íþróttamannvirkja á skól-
atíma fyrir nemendur, en séu mann-
virkin í eigu íþróttafélaganna skal
gera samningþar um. Bygging íþrótt-
amannvirkja á Akureyri mun eftir
gildistöku samningsins verða einkum
með þrennum hætti, bygging verði
alfarið á vegum bæjarins, Ak-
ureyrarbær og íþróttafélag geri með
sér eignaskipta- og samstarfssamn-
ing um byggingu mannvirkis eða
íþróttafélag byggi íþróttamannvirki
og bærinn leggi fram allt að 75%
af stofnkostnaði. Þá kemur einnig
fram að undir samninginn geti einn-
ig fallið meiriháttar endurbætur á
íþróttamannvirkjum félaganna.
Iþróttafélagi ber að greiða 25% af
stofnkostnaði mannvirkis og skulu
þau gera bæjaryfirvöldum grein
fyrir með hvaða hætti þau munu
leggja fram sinn hlut, en þeim er
heimilt að gera það með öðru en
reiðufé. Þannig geta þau lagt fram
efni eða vinnu, en slíkt framlag skal
meta fyrirfram.
íþróttafélög skulu fyrir 1. nóvem-
ber ár hvert senda bæjaryfirvöldum
tillögur um stofnkostnað vegna
framkvæmda næsta árs og ákveður
bæjarstjóm framlög vegna stofn-
kostnaðar íþróttamannvirkja við
gerð fjárhagsáætlunar, en til þess
teljast m.a. hönnun, byggingareftir-
lit, opinber gjöld, efni, vinna, véla-
vinna, akstur, verkstjórn og frágang-
ur lóða. Fjármagnskostnaður á bygg-
ingartíma telst ekki með í stofn-
kostnaði, né heldur laus búnaður
sem ekki er nauðsynlegur vegna
íþróttakennslu. Styrkir og framlög
sem íþróttafélög kunna að hljóta frá
öðmm aðilum vegna byggingar
íþróttamannvirkja skulu renna
óskertir til þeirra.
ÍBA fær til úthlutunar þá tíma í
íþróttamannvirkjum í eigu bæjarins,
sem ekki em nýttir af skólunum,
eða leigðir til einstaklinga.
Á fjárhagsáætlun hveiju sinni
mun bærinn veita rekstrarstyrki til
íþróttafélaga og eru þessir styrkir
þrenns konar, greiðsla leigu á íþrótta-
húsnæði fyrir félögin, styrkir til
rekstrar íþróttasvæða, s.s. knatt-
spyrnuvalla, skautasvella og golf-
valla og í þriðja lagi almennir styrk-
ir, ferðastyrkir, styrkir vegna sér-
stakra afreka, heimsókna eða þátt-
töku í aiþjóðlegri keppni.