Morgunblaðið - 06.02.1990, Qupperneq 35
oeei aAuaaai .0 auoAaui,fiifl<i aiaAuaviuoaoM
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR" 6. FEBRÚAR 1990
Þijár skýrslur um samskipti Islands við umheiminn:
Páll Pétursson verði næsti
forseti Norðurlandaráðs
Fundar Alþjóða þingmannasambandið hér á landi árið 1993?
ÓLAFUR G. Einarsson (S-Rn), formaður íslandsdeildar Norðurland-
aráðs, greindi frá því á Alþingi í gær að Páll Pétursson (F-Nv) hafi
verið tilnefndur af íslands hálfu sem næsti forseti Norðurlandaráðs,
en Norðurlandaráð fundar hér í Reykjavík 26. febrúar til 2. marz
næstkomandi.
Sameinað þing ræddi í gær þrjár skýrslur er varða samskipti ís-
lands við umheiminn: 1) Skýrslu íslandsdeildar Norðurlandaráðs,
2) Skýrslu íslandsdeildar Alþjóða þingmannasambandsins og 3)
Skýrslu fulltrúa Alþingis í þingmannaneftid Fríverzlunarsamtaka
Evrópu [EFTA].
Norrænt samstarf á
krossgötum
Ólafur G. Einarsson, formaður
íslandsdeildar Norðurlandaráðs,
mælti í gær fyrir skýrslu deildarinn-
ar um norrænt samstarf 1989.
Skýrslan fjallar um störf íslands-
deildar Norðurlandaráðs, forsætis-
nefndar ráðsins, fastanefnda þess,
sem og aukaþing þess í Maríuhöfn
í nóvember sl. og tillögur fulltrúa
íslands í norrænu samstarfí. Ólafur
sagði m.a. að Norðurlandaráð væri
í vissum skilningi á krossgötum,
m.a. vegna hraðrar framvindu mála
í Evrópw, bæði í V-Evrópu þar sem
stefnt væri að nánu efnahagsstarfi
ríkja og þíðunnar í A-Evrópu.
Störf Islandsdeildarinnar hafa
undanfarið mótast af undirbúningi
38. þings Norðurlandaráðs, sem
haldið verður í Reykjavík 17. febrú-
ar til 3. mars nk. Þingið verður
haldið í Háskólabíói og í fyrirlestra-
sölum í nýbyggingu bíósins sem og
í fundasölum Hótel Sögu. Afhend-
ing bókmenntaverðlauna Norður-
landaráðs fer fram í Borgarleik-
húsinu. Áætlað er að 900-1.000
fulltrúar, embættismenn og frétta-
menn sæki þingið.
Miklar umræður urðu um skýrsl-
una og hörmuðu nokkrir þingmenn
að ekki lá jafnframt fyrir skýrsla
samstarfsráðherra Norðurlanda en
hún mun verða lögð fram í næstu
viku. Júlíus Sólnes, samstarfsráð-
herra, upplýsti að Þorsteinn Ólafs-
son haft verið ráðinn forstjóri nor-
ræna útflutningssjóðsins.
Eiturlyf og atvinnuleysi
Geir Haarde (S-Rv), formaður
íslandsdeildar Alþjóða þingmanna-.
sambandsins, fylgdi skýrslu deild- -
arinnar úr hlaði. Alþjóða þing-
mannasambandið hefur starfað í
rúm hundrað ár og nú eru í sam-
bandinu þjóðdeildir skipaðar þing-
mönnum frá 112 ríkjum. ísland
hefur tekið þátt í þessu samstarfi
frá 1951.
í máli Geirs kom fram að næsta
þing sambandsins verður haldið á
Kýpur í maímánuði nk. Það ræðir
einkum tvö meginmál. Annars veg-
ar eiturlyfjavandann, sem nú herjar
á heiminn, og hinsvegar atvinnu/at-
vinnuleysi og áhrif nýrrar tækni á
atvinnustig og hagvöxt. Þá mun
þingið einnig fjalla um þróunina í
A-Evrópu.
Haustþing sambandsins 1991
verður í Brasilíu og 1992 á Spáni.
í umræðunni kom fram sð spurzt
hafi verið fyrir um, hvort íslending-
ar gætu tekið að sér þing alþjóða-
þingmannasambandsins í náinni
framtíð, en slíkt þinghald krefst
mikils undirbúnings og töluverðs
kostnaðar. Ekki hafa verið gefin
skuldbindandi svör í þessu efni en
málið mun í athugun.
Fríverzlun með físk
innan EFTA
Matthías Á. Mathiesen (S-Rn)
mælti fyrir skýrslu sinni og Jóns
Sæmundar Sigurjónssonar (A-Nv),
en þeir eru fulltrúar íslands í þing-
mannanefnd EFTA. Þingmanna-
nefndin á að vera EFTA-ráðinu til
Ölaftir G. Einarsson, formaður
íslandsdeildar Norðurlandaráðs.
ráðgjafar um starfsemi samtak-
anna og miðla upplýsingum um
málefni milli EFTÁ og þingmanna
EFTA-ríkjanna, sem og á milli þing-
manna sjálfra. Hvert þjóðþing má
tilnefna allt að 5 þingmenn í nefnd-
ina.
Núverandi formaður nefndarinn-
ar er Ingvar S. Melin frá Finnlandi
en á næsta fundi hennar, sem hald-
Páll Pétursson, væntanlegur for-
seti Norðurlandaráðs.
inn verður í Austurríki í maí nk.,
tekur við Austurríkismaðurinn Pet-
ar Jankowitsh, fyrrv. utanríkisráð-
herra.
íslendingar fengu knúið fram þá
grundvallarákvörðun innan EFTA
að samtökin tækju upp sem grund-
vallarreglu fríverzlun með fisk á
svæðinu, þótt gefínn hafí verið að-
lögunartími til ársloka 1991.
Stuttar þingíréttir
10 skip í smíðum erlendis
í svari við fyrirspum frá Eiði
Guðnasyni (A-Vl) upplýsir sjávar-
útvegsráðherra að nú séu 10 skip
í smíðum fyrir íslendinga erlendis,
samtals um 4.200 brúttótonn.
Veiðarfæri: einn skuttogari, fjögur
togskip, fjögur skip fyrir línu-net-
togveiðar og eitt nóta- og togskip.
Útgerðarstaðir: Homafjörður þijú
skip, Vestmannaeyjar tvö, Grinda-
vík, Hrísey, Eskifjörður, Akureyri
og Þorlákshöfn eitt á hvern stað.
Vangoldnir skattar af
verzlunarhúsnæði
Fjármálaráðherra hefur svarað
fyrirspurn frá Inga Bimi Alberts-
syni (FH-Vl) um vangoldna skatta,
ásamt dráttarvöxtum og verðbót-
um, í álagningu sérstaks skatts á
verzlunar- og skrifstofuhúsnæði
1989.
Heildarskuldir einstaklinga: höf-
uðstóll 45_m.kr. og 4,4 m.kr. drátt-
arvextir. Heildarskuldir félaga
112,7 m.kr. höfuðstóll og 15,6
m.kr. dráttarvextir. Stærstur
skuldahali er í Reykjavík: Einstakl-
ingar 29,5 m.kr. höfuðstóll og 2,9
m.kr. dráttarvextir. Félög 87,9
m.kr. höfuðstóll og 12,4 m.kr vext-
ir. Reykjanes: Einstaklingar 11,2
m.kr. höfuðstóll og 1 m.kr. vextir.
Félög 10,6 m.kr. höfuðstóll og 1,3
m.kr. Skuldir í stijálbýliskjördæm-
um em minni en hvarvetna all-
nokkrar.
Heildarinnheimta sérstaks
skatts á verzlunar- og skrifstofu-
húsnæði árið 1990 er talin verða
um 425 m.kr.
Lægst hlutfall lærðra
kennara á Vestfjörðum
Menntamálaráðherra hefur svar-
að fyrirspum frá Danfríði Skarp-
héðinsdóttur (SK-Vl) um hvert
hlutfall sé milli gmnnskólakennara
(full kennsluréttindi) og leiðbein-
enda eftir kennsluumdæmum.
Gmnnskólakennarar í Reykjavík
skipa 96,99% starfa en leiðbeinend-
ur 3,01. í öðmm kennsluumdæm-
um er hlutfallið þetta: Reykjanes
89,39% og 10,61%, Vesturland
75,11% og 24,89%, Vestfirðir
49,56% og 50,44%, Norðurland
vestra 60,62% og 30,38%, Norður-
land eystra 79,08% og 21,92%,
Austurland 62,28% og 36,72%,
Suðurland 81,70% og 18,30%.
Landið allt kennarar 83,30%, leið-
beinendur 16,70%.
Húsnæði íyrir
aðstandendur sjúklinga
Anna Ólafsdóttir Bjömsson
(SK-Rv) og fleiri þingmenn
Kvennalista flytja tillögu til þings-
ályktunar, sem felur heilbrigðisráð-
herra, verði hún samþykkt, að
„leita nú þegar leiða ti! að leysa
húsnæðisvanda aðstandenda sjúkl-
inga sem þurfa að dvelja langdvöl-
um fjarri heimilum sínum“.
I greinargerð kemur fram að
þetta eigi sérstaklega við um íbúa
landsbyggðarinnar, sem þurfa að
sækja sérhæfða læknisþjónustu til
Reykjavíkur.
Leiðsögn fyrir útlendinga
Danfríður Skarphéðinsdóttir
(SK-Vl) og fleiri þingmenn
Kvennalista flytja tillögu til þings-
ályktunar, sem „felur ríkisstjóm-
inni að sjá um að útlendingar, sem
taka sér búsetu á íslandi, hljóti
skipulega fræðslu og leiðsögn sem
miði að því að auðvelda þeim að
takast á við daglegt líf í íslenzku
umhverfí“. Fræðslan nái til kennslu
í íslenzku, fræðslu um réttindi og
skyldur í samfélaginu sem og um
stofnanir þess og sögu landsins,
staðhætti, menningu og þjóðlíf.
Frjáls flugrekstUr
Ásgeir Hannes Eiríksson (B-Rv)
flytur tillögu til þingsályktunar um
fijálsan flugrekstur og flug. Tillag-
an gerir ráð fyrir því að samgöngu-
ráðherra „undirbúi fmmvarp til
laga um að gefa flugrekstur fijáls-
an á íslandi ásamt leyfi til áætlun-
arflugs, leiguflugs og vöruflutn-
inga innan þeirra marka sem al:
þjóðalög og samningar leyfa“. í
greinargerð segir að „aukið frelsi
sé eina leiðin til að þegnar landsins
njóti allir sama réttar á þessu
sviði..."
Morgunblaðið/Sverrir
Frá undirritun samningsins síðastliðinn föstudag.
Sex sveitarfélög stofiia
Almenningsvagna bs.
STOFNSAMNINGUR byggðasamlags sex sveitarfélaga á höfiið-
borgarsvæðinu um almenningssamgöngur var undirrituðu á fóstu-
daginn. Byggðasamlagið heitir Almenningsvagnar bs. og er til-
gangur þess að annast almenningssamgöngur fyrir þessi sveitarfé-
lög.
Stefnt er að því að Ijúka öllum
nauðsynlegum undirbúningi fyrir
1. júlí 1992 svo að fullur rekstur
geti hafist eigi síðar en 1. janúar
1993. Á föstudaginn vom níu
manns tilnefndir í stjórn Almenn-
ingsvagna bs. Það em Richard
Björgvinsson og Guðmundur Odds-
son fyrir Kópavog, Ingimundur Sig-
urpálsson og Helga Kristfn Möller
fyrir Garðabæ, Magnús Jón Áma-
son og Jóhann Bergþórsson fyrir
Hafnarfjörð, Sigurður Valur Ás-
bjamarson fyrir Bessastaðahrepp,
Páll Guðjónsson fyrir Mosfellsbæ
og Pétur Þórðarson fyrir Kjalames-
hrepp.
Athugasemd frá Árna Gunnarssyni
Morgunblaðinu hefur borist
eftirfarandi athugasemd:
Á þingsíðu Morgunblaðsins í gær
er frétt um þingskapaumræðu, sem
stóð í um eina klukkustund í neðri
deild Alþingis í gær, föstudag. Þar
gagnrýndu stjórnarandstæðingar
að fundur hefði verið boðaðar í
deildinni á föstudegi og þar með
vikið frá starfsáætlun Alþingis. Til
umræðu var hið umdeilda fmmvarp
ríkisstjórnarinnar um Stjórnarráð
íslands, þ.e. stofnun umhverfís-
málaráðuneytis.
Af þessu tilefni sagði ég eftirfar-
andi: „Ríkisstjórnin hefur lagt mikla
áherslu á stofnun umhverfismála-
ráðuneytis. Fyrir jól, þegar reyna
átti að afgreiða framvarp það, sem
nú er til umræðu, varð að sam-
komulagi að fresta umræðum og
afgreiðslu þar til eftir jólaleyfi. Þá
var um það rætt að taka málið á
dagskrá þegar eftir að þing kæmi
saman.
Frumvarpið var afgreitt frá alls-
heijarnefnd háttvirtrar deildar mið-
vikudaginn 24. janúar. Þá þegar
reyndi forseti að ná samkomulagi
um það að málið fengi að koma á
dagskrá. Það tókst ekki og var þá
rætt um að málið kæmi á dagskrá
sl. mánudag. Þá stóð svo á, að fram-
sögumenn meiri- og minnihluta alls-
heijarnefndar þurftu að fara er-
lendis, og einnig hæstvirtur ráð-
herra Hagstofu.
Þá tókst samkomulag um, að
málið kæmi á dagskrá fimmtudag-
inn 1. febrúar, þ.e. í gær. Þá stóð
svo á að slíta þurfti þingfundi
klukkan 17.00 vegna óska Sjálf-
stæðismanna um að fá tíma fyrir
þingflokksfundi. Umræðumar
stóðu þá í þrjár klukkustundir.
I þessari viku hafa verið mjög
stuttir fundir í háttvirtri deild, og
að mati forseta er það fullkomlega
eðlilegt að halda fund í dag, föstu-
dag.
Forseti er staðfastlega þeirrar
skoðunar, að í þessu máli hafi verið
farið fram með fullkomlega þing-
legum hætti, og að ekki sé hægt
að bera honum á brýn offors, óþing-
legt framferði, eða aðra þá fram-
komu, sem óþinglegt getur talist.“
í frétt Morgunblaðsins var ein-
göngu sagt, að forseti neðri deildar
hefði greint frá því, að ríkisstjórnin
legði mikla áherslu á stofnun um-
hverfismálaráðuneytis.
Til viðbótar þessari forsögu má
greina frá því, að forseti hafði ósk-
að eftir samkomulagi um kvöldfund
sl. fimmtudag, en á það var ekki
fallist.
Þegar föstudagsfundurinn hófst
höfðu verið óvenjulega stuttir fund-
ir í neðri deild frá því að þing kom
saman 22. janúar, eða aðeins í 8
klukkustundir og 50 mínútur. For-
seti taldi þingdeildarmenn ekki of-
þjakaða af fundasetu.
Varðandi þá gagnrýni, að vikið
hafí verið frá starfsáætlun Alþing-
is, sem forsetar semja í þingbyijun,
þá er hún fyrst og fremst stefnu-
mótandi um fundahald. Frá hennP
hefur hvað eftir annað verið vikið
og þá nær undantekningalaust í
samráði við formenn þingflokka.
Ég tel að frétt Morgunblaðsins
um þessa umræðu hafi verið misvís-
andi og óska eftir því að athuga-
semdum mínum verði komið á fram-
færi.
Ég vil taka það skýrt fram, að
ég hef í starfi mínu í vetur átt
mjög gott og ánægjulegt samstarf
við fulltrúa allra þingflokka í neðri
deild og vona að svo verði áfram.
Á föstudag tókst samkomulag á
milli mín og formanna þingflokka
stjórnarandstöðunnar um fram-
gang umrædds frumvarps. Sam-
kvæmt því lýkur 2. umræðu þriðju-
daginn 6. febrúar og 3. umræðu
miðvikudaginn 7. febrúar.
Reykjavík, 4. febrúar.
Arni Gúnnarsson,
forseti neðri '
deildar Alþingis.