Morgunblaðið - 06.02.1990, Síða 44
44
MORGÖWBMÐID ÞRTÐJUDAGHK • 6. ŒBB0ÚXRIÍlSf»)-'
t
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma,
STEINUNN GUÐMUNDSDÓTTIR,
Granaskjóli 6,
Reykjavík,
lést í Landspítalanum að morgni laugardagsins 3. febrúar.
Dætur, tengdasynir og barnabörn.
t
BJÖRN JÓNSSON
frá Hvoli,
Öldutúni 6,
Hafnarfirði,
verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju miðvikudaginn 7. febrú-
ar kl. 15.00.
Margrét Jónsdóttir.
t
Konan mín, móðir okkar, systir, tengdamóðir og amma,
JÓNI'NA EINÞÓRSDÓTTIR,
Stekkjarkinn 15,
Hafnarfirði,
lést föstudaginn 2. febrúar.
Arnór Sigurðsson,
Sigurður Arnórsson,
Guðni Þór Arnórsson,
Þorgerður Arnórsdóttir,
Helgi Einþórsson,
tengdabörn og barnabörn.
t
Móðir okkar,
GUÐRÚN STEFÁNSDÓTTIR,
áður búsett á Eskifirði
til heimilis Miðvangi 41, Hafnarfirði,
verður jarðsungin í dag, þriðjudaginn 6. febrúar, kl. 15.00 frá
Hafnarfjarðarkirkju.
Fyrir hönd barna, tengdabarna, barnabarna og barnabarnabarna.
Erla Eyjólfsdóttir,
Stefanía Eyjólfsdóttir,
Andrés Eyjólfsson.
Sambýlismaður minn,
JÓN STEFÁN BENEDIKTSSON,
Háaleiti 11,
Keflavfk,
andaðist á heimili sínu 28. janúar. Út-
förin hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hins látna.
Þökkum auðsýnda samúð.
Fyrir mína hönd og annarra aðstandenda,
Bjarnlaug Helga Daníelsdóttir.
t
Sendiherra Danmerkur á (slandi,
HR. HANS ANDREAS DJURHUUS,
2.2.1920-31.1.1990.
Útförin fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík miðvikudaginn 7.
febrúar kl. 13.30. Þeir, sem vtlja votta honum virðingu sína, geta
ritað nafn sitt í bók, sem mun liggja frammi í danska sendiráð-
inu, gengið inn um dyr sendiherrabústaðarins, Hvérfisgötu 29,
mánudag og þriðjudag 5. og 6. febrúar kl. 12.00-14.00.
Danska sendiráðið í Reykjavík.
t
Þökkum auðsýnda hluttekningu vegna fráfalls móður okkar og
tengdamóður,
SIGURBJARGAR PÁLSDÓTTUR.
Ólafur Kjartansson, Villa María Einarsdóttir,
Þorvaldur Kjartansson, Hulda Long.
t
Þökkum samúð, blóm og minningargjafir vegna andláts
INGA PÉTURS SIGURJÓNSSONAR.
Guð blessi ykkur öll.
Fyrir hönd foreldra, systkina og annarra vandamanna,
Unnur Guðjónsdóttir,
Sigfús Sveinsson.
Betty Guðmunds-
dóttir - Minning’
Fædd 30. júlí 1914
Dáin 29. janúar 1990
Ég vil minnast hér í fáeinum
orðum ömmusystur minnar sem nú
er látin eftir áratuga baráttu við
erfiðan sjúkdóm. Betty var fædd
og uppalin í Reykjavík, elst af sex
börnum hjónanna Guðmundar
Grímssonar físksala og Guð-
mundínu Oddsdóttur. Átján ára að
aldri réð hún sig sem vinnukonu
hjá frú Ágústu og Kjartani Thors,
og starfaði hún hjá þeim bróður-
part ævi sinnar.
Þar sem Betty var ógift og bam-
laus tók hún miklu ástfóstri við
böm þeirra hjóna ásamt bömum
og barnabömum systkina sinna.
Mínar fyrstu minningar um hana
em tengdar bókum, þar sem lestur
góðra bóka var eitt hennar helsta
áhugamál. Og í gegnum árin kenndi
hún mér að meta bækur, því hún
var óþreytandi við að luma að mér
bókum úr safni sínu, sem var stolt
hennar.
Vegna þess hve náið samband
var ætíð milli móður minnar og
Betty ólst ég upp við að líta á hana
nánast sem þriðju ömmu mína.
Reyndist hún mér einnig ávallt sem
slík, var ætíð reiðubúin að veita
mér hjálp og stuðning, og var metn-
aðargjöm fyrir mína hönd við nám
sem og annað.
Bæði ég og móðir mín, Birna
Ingadóttir, viljum þakka henni fyrir
áralanga vináttu og hlýhug hennar
í okkar garð og fjölskyldunnar.
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð þinn náðarkraftur
mín veri vöm í nótt.
Æ, virzt mig að þér taka,
mér yfír láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(S. Egilsson)
Hvíli Betty í friði.
Bragi G. Bragason
Betty Guðmundsdóttir lést að
morgni mánudags 29. janúar á
Landspítalanum. Betty hafði lengi
átt við veikindi að stríða en náði
sér alltaf upp á milli með ótrúlegum
viljastyrk þar til síðla árs 1989 að
hún þurfti smám saman að láta
meira eftir í baráttu sinni við sjúk-
dóminn.
Betty Guðmundsdóttir fæddist í
Reykjavík 30. júlí 1914 og var því
75 ára þegar hún lést. Hún var
dóttir hjónanna Guðmundar
Grímssonar og Guðmundínu Odds-
dóttur. Hún réð sig sem vinnukona
til föðurforeldra minna, þeirra
Kjartans Thors, framkvæmdastjóra
og Ágústu Bjömsdóttur, árið 1932,
þá 18 ára að aldri. Slík tryggða-
bönd mynduðust milli hennar og
fjölskyldunnar að jafnframt því sem
hún annaðist flest heimilisstörf,
varð hún heimilisvinur og lét sér
+
Kongeriget Danmarks overordentlige og befuldmægtigede am-
bassader i Island
HR. HANS ANDREAS DJURHUUS
Kommandor af forste grad af Dannebrogordenen,
2.2.1920-31.1.1990.
Bisættelsen finder sted onsdag den 7. februar kl. 13.30 fra Dom-
kirken i Reykjavík. Kondolencebog er fremlagt pá Den kongelige
danske Ambassade, residensindgangen, Hverfisgata 29, mandag
den 5. februar og tirsdag den 6. februar kl. 12.00-14.00.
Kongelig dansk Ambassade, Reykjavík.
t
Minningarathöfn um föður okkar,
' BJARNA GÍSLASON
kennara,
Auðarstræti 13,
fer fram frá Fossvogskapellu þriðjudaginn 6. febrúar kl. 15.00.
Jarðsungið verður frá Siglufjarðarkirkju miðvikudaginn 7. febrúar
kl. 14.00.
Gísli A. Bjarnason,
Edvarð Bjarnason.
+
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug vegna andláts
BJARNA ÞÓRS KJARTANSSONAR.
Kjartan Þór Bjarnason, Þórey Sigurðardóttir,
Hafsteinn Svavar Kjartansson,
Birgir Bjarnason, Geir Bjarnason,
Baldur Sfvertsen Bjarnason,
Hrafnhildur Björnsdóttir, Ásta Bjarnadóttir
og systur.
+
Systir okkar og mágkona,
BETTY GUÐMUNDSDÓTTIR,
Seljavegi 19,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í dag, þriðjudaginn 6. febrúar
kl. 13.30.
Blóm vinsamlega afþökkuð, en þeim sem vildu minnast hennar,
er bent á Krabbameinsfélagið.
Gyða Guðmundsdóttir,
Ágúst Guðmundsson, Bjargey Stefánsdóttir,
Grímur Guðmundsson, Elín Sæmundsdóttir
og aðrir aðstandendur.
annt um börn, tengdabörn, barna-
böm, barnabamaböm og alla sem
tengdust fjölskyldunni.
Betty fylgdist ávallt vel með öllu
sem gerðist í kringum hana og
hafði iðulega ákveðnar skoðanir á
hlutunum. Hún var glaðlynd, átti
mjög auðvelt með að umgangast
fólk og laðaði að sér vini og kunn-
ingja.
Hádegismatarboð á laugardög-
um sem Betty stóð fyrir um tíma
fyrir okkur systkinin á skólaárun-
um, þar sem borin var fram frábær
ostasúpa og bestu fískibollur norð-
an Alpafjalla em ein og sér nægjan-
leg ástæða þess að ég mun ævin-
lega minnast Bettyar með miklu
þakklæti og virðingu. En margt
fleira kemur til og em kynni okkar
síðustu árin mér mikils virði.
Þegar Kjartan lést árið 1971
flutti Betty með Ágústu og Mar-
gréti dóttur þeirra hjóna í íbúð á
Lauganesveginum þar sem þær
bjuggu þijár saman þar til Ágústa
lést árið 1977. Eftir það fluttu
Margrét og Betty í íbúð sem Mar-
grét hafði eignast á Seljaveginum.
Stuttu eftir að þær höfðu komið sér
fyrir í nýrri íbúð veiktist Margrét
og annaðist Betty um hana á að-
dáunarverðan og ósérhlífin hátt á
heiinilinu eftir þvi sem kostur var
og fylgdist náið með þegar Margrét
þurfti að dvelja langdvölum utan
heimilis vegna veikindi. Hún heim-
sótti Margréti reglulega og sá til
þess að hana skorti ekkert og fengi
bestu mögulega umönnun.
Þegar Margrét lést fyrir rúmum
tveijjiur árum hafði Betty verið hjá
fjölskyldunni í 55 ár. Hún var þá
ein eftir á Seljaveginum, átti marga
vini og hafði einhvern tíma orð á
því að hún gæti alveg hugsað sér
að fara að kenna matreiðslu. Til
þessþafði hún því miður ekki nægi-
lega góða heilsu og þrátt fyrir mik-
inn lífskraft, sem var hennar ein-
kenni, kom fyrir í þau sárafáu skipti
sem hún bar sig illa að henni fannst
sem hún væri búin að ljúka sínu
lífsstarfi.
Lífsstarf Bettyar beindist fyrst
og fremst að þeim ástvinum hennar
sem nú eru látnir en hafði ekki síður
djúp áhrif á líf ýmissa annarra sem
eftir lifa og munu minnast hennar
með söknuði.
Stefán Thors
Blómastofa
Fnöjinm
Suðurlandsbraut 10
108 Reykjavík. Sími 31099
Opið öll kvöld
tíl kl. 22,-einnig um helgar.
Skreytingar við öll tilefni.
Gjafavörur.