Morgunblaðið - 06.02.1990, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. FEBRÚAR '1990
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691282 KL. 10-12
FRÁ MÁNUDEGi
TIL FÖSTUDAGS
Nokkur orð um Söngvakeppni
Til Velvakanda.
Nú hefur verið blásið í lúðra,
söngvakeppni sjónvarpsstöðva er
framundan.
Það var gefin út tilkynning að
nú mætti öll íslenska þjóðin taka
þátt í keppninni. En hvernig væri
að riíja upp keppnina í fyrra sem
var svo glórulaus, eitt það vit-
lausasta sem gerst hefur á þessu
landi.
Það voru skipaðar fímm sálir
til að semja lög og texta fyrir
keppnina. Þessi afkvæmi voru svo
kynnt fyrir þjóðinni. Sum lögin
voru sæmileg og sumir textar
góðir og sumir slæmir eins og
gengur.
Það leið að lokahrinunni. Það
voru skipaðar dómnefndir um allt
Góð grein
Til Velvakanda.
Ég vil þakka séra Jóni Habets
fyrir grein hans, „Er Jesús Guð?“
í þætti Velvakanda í gær. Og við
erum áreiðanlega mörg sem vild-
um gjarnan hafa sagt eitthvað
svipað, en skortir til þess tíma og
hæfileika. Sú grein sem hann
andmælti var kænskuleg árás á
kjarna kristinnar trúar eins og hún
er játuð og viðurkennd í öllum
helstu kirkjusamfélögum frá upp-
hafí: kaþólskum og grísk-
orþódoxum, Lúterskum og
Kalvínskum, hjábaptisum, meþód-
istum og biskupakirkjumönnum,
engu síður en hjá hinum fornu
kirkjum Kopta og Armena. Sr. Jón
Habets er greinilega gagnmennt-
aður í guðfræði og biblíufræðum.
En játing hans á sannleikanum
um guðdóm Krists er ekki vara-
játning, heldur er hann veija þann
helgidóm, sem stendur hjarta hans
næst.
Kæru lesendur, sem ekki lásuð
grein Sr. Jóns Habets. Takið nú
fram föstudagsblað Morgunblaðis-
ins frá 2. febrúar - það er þess
virði að lesa í gegnum þessa grein
og sjá hans sterku og óvefengjan-
legu rök fyrir því sem Biblían
boðar: að Kristur er Guð, þótt
hann hafi tekið á sig mannsmynd.
Það verður enginn svikinn af
þessari grein. _
Jón Valur Jensson
gjörvallt ísland. Loks rann upp
kvöldið er dóminum skyldi full-
nægt og verðlaunalagið valið.
Þetta gekk vel'til að byija með.
Það leit út fyrir um tíma að lagið
Sóley myndi sigra en þá átti dóm-
nefnd Reykjavíkur eftir að segja
sitt. Og hún sagði sitt. Annað
hvort var að þessi ágæta nefnd
hafði aldrei hlustað á lag eða
texta, eða hitt að sigurvegarinn
varð að vera úr Reykjavík.
Svona fór um sjóferð þá. Það
var ekki hlustað á okkar framlag
og útkoman varð eitt stórt núll í
veraldarinnar tombólukassa. En
þá gerðist það að núllið varð að
geislabaug. Allir blaðamenn og
ljósmyndarar þessarar háttvirtu
samkomu hópuðust utan um höf-
und lags og texta og mynduðu
hann í bak og fyrir en litu ekki
við sigurvegurunum. Þetta var
stór stund fyrir ísland. Svo allt í
einu birtist bjargvætturin Arthur
Björgvin Bollason og við hlið sér
hafði hann einn þann snjallasta
útvarpsmann þýskan er bauðst til
að taka nokkur lög Valgeirs til
flutnings í þýska útvarpið. Það
var huggun harmi gegn.
En hvað gerist nú á því herrans
ári 1990? Fáum við annað núll
eða verður okkur boðið sæti? Við
eigum alltaf víst það sextánda.
En eitt ber að athuga ef að
sama fyrirkomulag verður haft í
kosningum og var í fyrra þá ber
að byija á Reykjavík.
Frímann Einarsson
Fylgjast ekki með
Til Velvakanda.
Eins og kunnugt er hefur frem-
ur lítilvægt mál (umferðarlaga-
brot) Jóns Kristinssonar dregið
nokkurn slóða. Stærsti þáttur
málsins var sá sem í ljós kom við
dóm Hæstaréttar 9. jan. sl., þ.e.
að sýslumannsembætti gætu ekki
bæði stjórnað rannsókn og síðan
dæmt í sama máli. Hæstiréttur
beið ekki eftir því að nýleg lög
um aðskilnað framkvæmdavalds
og dómsvalds tækju gildi 1. júlí
1992.
Nú skyldu menn ætla að nýleg
lög hefðu ekki átt að koma þing-
mönnum, en þó einkum ráðherr-
um, á óvart. Svo virtist þó vera,
sbr. ijaðrafok það sem fylgdi í
kjölfarið, svo og vingulsleg og
reikul viðbrögð dómsmálaráð-
herra, sem Bolungarvíkurdeilurn-
ar sýna í hnotskurn.
Mál þetta allt sýnir glöggt að
sumir ráðherrar virðast ekki fylgj-
ast með lagasetningu sem að
embættum þeirra lúta. En á hinn
bóginn virðast þeir vilja nota
hvert tækifæri til að auglýsa
sjálfa sig með nokkurri drýldni.
Jónína Einarsdóttir
53
[pgyGsia/oigx)^
<P 1990 Universai Press Syndicate
„Murtdu eftircxb afhendCL passann,
öJ5ar ert þú ferá út-''
*
Ast er...
•. .einnig hjá hundum.
TM Reg. U.S. Pat Off.—all righta reservad
© 1990 Los Angeles Times Syndicate
Ég hef notað tímann til POLLUX
þrekæfinga ... Hæ, pabbi...
HÖGNI HREKKVÍSI