Morgunblaðið - 06.02.1990, Qupperneq 54
54
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. FEBRÚAR 1990
Greinargerð ASI um kjarasamningana;
Kaupmáttur tryggður
við lágt verðbólgustig
Frá undirritun samninganna. Fulltrúar alþýðusambandsins og fulltrúi Stéttarsambands bænda.
Hér fer á eftir greinargerð Al-
þýðusambands íslands um nýgerða
kjarasamninga þar sem leitast er
við að svara helstu spurningum sem
fram hafa komið um samningana.
Rétt þykir í upphafi að fara ör-
fáum orðum um þá kosti sem sam-
tök launafólks stóðu frammi fyrir
nú er kjarasamningar losnuðu um
áramót. Valið stóð á milli tveggja
leiða. Annarsvegar leið hárra kaup-
hækkana, gengisfellinga og áfram-
haldand i verðbólgu. Fullyrða má
að þeirri leið hefði fylgt óstöðug-
leiki og minnkandi atvinnuöryggi
þegar líða tekur á árið. Hins vegar
sú leið að tryggja sömu kaupmátt-
amiðurstöðu með iágum kaup-
hækkunum, vaxtalækkunum og
föstu gengi. Á fundum með stjóm-
um ASÍ-félaga víða um land í jan-
úarmánuði fengust skýr skilaboð
frá launafólki. Það hafnaði leið
hárra kauphækkana, géngisfellinga
og óðaverðbólgu og vildi fara leið
lægri kauphækkana, stöðugs geng-
is, hraðminnkandi verðbólgu og
lækkandi vaxta. Á þeim grundvelli
náðist svo samstaða með atvinnu-
rekendum, bændum, viðskiptabönk-
um og stjórnvöldum um nýjan
kjarasamning.
Hvers vegna verður að draga
úr verðbólgunni?
í verðbólgu hækkar verð á vömm
og þjónustu jafnt og þétt. Við fáum
minna fyrir kaupið okkar ef það
hækkar ekki í takt við verðhækkan-
imar. Með öðmm orðum: Kaup-
máttur launa rýmar.
Vextir verða háir og verðtryggð-
ar skuldir hækka stöðugt. Þrátt
fyrir skilvísar greiðslur lækkar upp-
hæð höfuðstóls verðtiyggðra lána
ekki heldur hækkar.
Láglaunafólk verður verst úti í
verðbólgunni. Það getur ekki birgt
sig upp af nauðsynjum áður en
verðhækkanir dynja yfír eða keypt
sér dýrar innfluttar vömr áður en
gengið er fellt. Efnafólk hagnast á
verðbólgunni á meðan lágtekjufólk
ber skarðan hlut frá borði.
í verðbólgu tapast verðskyn og
þar með verður lítið úr nauðsynlegu
verðlagseftirliti neytenda.
Fyrirtækin standa frammi fyrir
sömu vandamálum og launafólkið.
Áætlanir um innkaup fara úr skorð-
um og stjórnun fer að snúast um
kapphlaupið við verðbólguna. Inn-
iend verðbólga og gengisfellingar
valda stöðugu umróti. Fyrirtæki
sem standa höllum fæti gefast upp.
Það verður því að draga veruleg'a
úr verðbólgunni til þess að tryggja
kaupmátt launa, treysta atvinnu og
til þess að búa okkur undir það að
geta aukið tekjur okkar í fram-
tíðinni.
Að hverju er steftit með
samningnum?
★ Meginmarkmiðin eru:
1. Draga úr verðbólgu.
2. Stöðva kaupmáttarfallið.
3. Tryggja kaupmáttinn.
4. Bæta stöðu þeirra tekju-
lægstu.
5. Koma á stöðugleika í atvinnu-
lífínu.
6. Treysta atvinnu.
Hvemig verður þessum
markmiðum náð?
★ Það verður gert með því að:
1. Halda gengi krónunnar stöð-
ugu.
2. Hækka laun.
3. Hafa rauð strik og launa-
nefnd.
4. Halda búvöruverði óbreyttu
út árið.
5. Lækka vexti.
6. Draga úr verðhækkunum á
opinberri þjónustu.
Hvernig á að draga úr
verðbólgunni?
Ef nafnvextir, sem að undan-
förnu hafa verið um 30%, lækka
minnkar kostnaður fyrirtækjanna
jafnvel þótt raunvextir lækki ekki.
Þetta taka atvinnurekendur undir
því í samningnum segir um forsend-
ur: „Svigrúm vegna nafnvaxta-
lækkunar verði þegar nýtt í at-
vinnurekstrinum til að mæta upp-
hafshækkun launa. Að ýtrasta að-
halds verði gætt í verðlagsmálum.
„Hér er vísað til vaxtalækkunarinn-
ar, sem þegar hefur átt sér stað
úr um 30% í um 22%. Væntanlega
eru vandfundin þau fyrirtæki sem
ekki hagnast meira á vaxtalækkun-
inni en nemur kostnaðinum við
launahækkunina. Þetta er líklega í
fyrsta skipti sem atvinnurekendur
gangast undir það að axla kaup-
hækkanir án þess að hækka verð.
Gengisfellingar leiða til þess að
verð á innfluttum vörum og að-
föngum hækkar. Lán í erlendri
mynt hækka líka. Þess vegna er
mikilvægt að halda gengi stöðugu
ef við ætlum að hemja verðbólguna.
Búvörur eru meðal brýnustu
nauðsynja heimilanna. Þetta á eink-
um við um mjólk og mjólkurafurð-
ir. Þess vegna gerði Alþýðusam-
bandið þá kröfu að búvöruverð yrði
óbreytt. Til þess að ná því marki
var annars vegar samið við bændur
og hinsvegar ríkisstjómina. Bænd-
ur fallast á að verð til þeirra sem
framleiða hefðbundnar búvörur
verði óbreytt til 1. desember ef for-
sendur kjarasamninganna halda.
Ríkisstjómin ábyrgist að verð til
verslana hækki ekki. Neytendur
verða því að hafa vakandi auga
með því að kaupmenn hækki ekki
verð á þessum vömm.
Samkomulag var gert við ríkið
um að opinber fyrirtæki hækki
gjaidskrár sínar minna en áætlað
hafði verið. Það var hins vegar
ekki fallið frá öllum hækkunum.
Þannig er áætlað að afnotagjald
fyrir ríkisútvarpið muni hækka um
6% frá upphafí til loka árs í staðinn
fyrir 14% og gjaldskrá Pósts og
síma um 9% í stað 15%. Ennfremur
var gefíð fyrírheit um að draga úr
áformuðum álögum sem nemur
0,3% í framfærsluvísitölu.
Sömuleiðis er gert ráð fyrir því
að sveitarfélög endurskoði gjald-
skrár sínar.
Með þessum aðgerðum og sterku
almennu aðhaldi eru bundnar vonir
við að verðbólga lækki úr um 25%
í 6-7%.
Tekst að stöðva
kaupmáttarhrapið?
Kauphækkanir í þessum samn-
ingi eru minni en oftast áður. Þær
eru:
l.febrúar 1990 1,5%
1. júní 1990 1,5%
1. desember 1990 2,0%
1. mars 1991 2,5%
1. júní 1991 2,0%
Þessar kauphækkanir munu ekki
nægja til þess að mæta að fullu
þeim verðhækkunum sem spáð er
fyrri hluta samningstímans. Kaup-
máttur mun því á 2., 3. og 4. árs-
fjórðungi þessa árs verða um 1,5%
lægri en hann var í janúar sl. Síðan
mun hann hækka og verða á samn-
ingstímanum 1991 um 0,5% hærri
en í janúar sl., þ.e. svipað og í des-
ember 1989.
Þetta mat á kaupmætti er byggt
á því að verðlagsspáin standist.
Verðlagsspáin gerir ráð fyrir því
að frá desember 1989 til desember
1990 hækki verðlag um 6,2% og
um 5,7% frá desember 1990 til
desember 1991 ef hvorki kemur til
endurskoðunar samnings í nóvem-
ber 1990 né nýrra samninga í sept-
ember 1991.
Ef verðlagsforsendur standast
ekki mun reyna á úrskurði launa-
nefndar. Kaupmáttur ætti því ekki
að fara úr skorðum frá því sem hér
er gert ráð fyrir.
Heildamiðurstaðan er því að
kaupmáttur mun lækka nokkuð
framan af samningstfmanum og
rétta sig síðan af. Kaupmáttar-
hrapið hefur því verið stöðvað.
Meðfylgjandi er kaupmáttarspá
fyrir meðaltaxta ASÍ á samnings-
tímabilinu og línurit sem sýnir áætl-
aða kaupmáttarþróun greidds tíma-
kaups.
Hvemig em launin
verðtryggð?
I samningnum er lögð megin-
áhersla á að halda aftur af verð-
hækkunum til þess að kaupmáttur
haldist sem best. Það er hins vegar
ljóst að ýmislegt getur farið úr-
skeiðis og því eru í samningnum
verðtryggingarákvæði sem reynir á
ef verðbólgan fer fram úr áætlun,
þ.e. fer fram úr rauðu strikunum í
samningnum.
Launanefnd fjallar um tilefni til
verðbóta á laun og úrskurðar um
launahækkanir. Launanefndin fylg-
ist með framvindu efnahags-, verð-
lags- og launamála. Hún á ekki
aðeins að bíða þess að í ljós komi
að verðlag fari fram úr rauðu strik-
unum. Hún á að hafa frumkvæði
að því að gripið verði til aðgerða
ef eitthvað fer úrskeiðis.
í launanefnd sitja tveir fulltrúar
frá hvorum samningsaðila. Hækki
framfærsluvísitala í maí eða sept-
ember á þessu ári eða í maí á næsta
ári umfram áætlanir kemur til úr-
skurðar launanefndar. Ef ekki næst
samkomulag ræður afstaða ASÍ
niðurstöðunni en VSÍ/VMS geta
sagt samningnum upp.
I nóvember fer fram meginendur-
skoðun samningsforsendna. Launa-
nefndin metur stöðu efnahagsmála
og leitast við að ná samkomulagi
um launahækkanir og hafa áhrif á
verðlag á opinberri þjónustu, búvör-
um og aðrar forsendur samnings-
ins. I nóvember hefur hvorugur
aðili ákvörðunarvald um niðurstöð-
una. Náist ekki samkomulag getur
hvor aðila um sig ákveðið að segja
samningnum upp.
Hvað um tekjulægsta fólkið?
Minni verðbólga styrkir fyrst og
fremst stöðu láglaunafólksins sem
verður undir í kapphlaupinu við
verðbólguna.
Aukinn stöðugleiki og traustara
atvinnuástand skiptir á sama hátt
miklu máli fyrir þann hóp.
Verðtryggingarákvæði eru meg-
inmál fyrir fólk á taxtakaupi sem
ekki fær hlutdeild í launaskriði.
Meginmarkmið samningsins
•stefna því ótvírætt að því að bæta
stöðu láglaunafólks.
Þá eru í samningnum ákvæði um
sérstakar launabætur til þeirra sem
hafa tekjur undir 60 þúsund krón-
um á mánuði. Þessar bætur greið-
ast þrisvar á samningstímanum
miðað við meðaltalsmánaðartekjur
febrúar-apríl, september-nóvember
1990 og febrúar-apríl 1991. í hvert
sinn getur greiðsla orðið að há-
marki 10 þúsund kr. við 40 þúsund
króna tekjur en lækkar síðan hlut-
fallslega að 60 þúsund kr. tekjum.
Útreikning launabóta er að finna í
fylgiskjali með samningnum.
Hækkun á orlofs- og desember-
uppbótum er einnig hlutfallslega
mikilvægari fyrir lágtekjufólk.
Hvernig breytast vextimir?
Lækkun vaxta var ein megin-
krafa launþegasamtakanna í þess-
um samningum. Á undanförnum
misserum hafa bankar gjarnan ver-
ið fljótir til þess að hækka nafn-
vexti í hækkandi verðbólgu en sein-
ir til þess að lækka vextina við
lækkun verðbólgu.
I tengslum við samningana var
gert samkomulag við viðskipta-
bankana um að þeir tækju tillit til
væntanlegrar hjöðnunar verðbólgu
í vaxtaákvörðunum sínum strax um
þessi mánaðamót þannig að vextir
eiga nú að lækka hratt. Vextir hafa
þannig lækkað úr nálægt 30% í um
22%.
Ekki náðist samkomulag um átak
til raunvaxtalækkunar, þó í yfirlýs-
ingu ríkisstjórnarinnar séu áform
um að stuðla að raunvaxtalækkun.
Að ósk samningsaðila munu Sam-
band almennra lífeyrissjóða og
Landssamband lífeyrissjóða beita
sér fyrir lækkun raunvaxta á verð-
tryggðum lánum til sjóðfélaga. .
Nafnvaxtalækkanir fela í sér
töluverða lækkun útgjalda fyrir at-
vinnurekendur þannig að þeir eiga
að geta tekið á sig þær launahækk-
anir sem í samningnum felast án
þess að velta þeim út í verðlagið.
Ekki þarf að fjölyrða um kosti
vaxtalækkana fyrir launþega. Þótt
stærstur hluti skulda þeirra sé verð-
tryggður eru óverðtryggðar skuldir
algengar í sambandi við húsnæðis-
kaup auk þess sem styttri lán eru
á nafnvöxtum. Miðað við 29% nafn-
vexti, eins og þeir voru í lok jan-
úar, myndi vaxtagreiðsla af einnar
milljónar króna láni verða kr. 290
þ.kr. á ári. Við 22% vexti lækkar
vaxtagreiðslan niður í 220 þ.kr.
Fari vextirnir niður í 14% verður
vaxtagreiðslan kr. 140 þ.kr. Við
lækkun vaxta úr 29% niður í 14%
lækkar vaxtagreiðslan því um 150
þ.kr. á ári, eða um kr. 12.500 á
mánuði.
Þótt raunvextir lækki ekki hafa
samningarnir áhrif á verðtryggð lán
því í 20% verðbólgu hækkar verð-
tryggt lán að upphæð 1 m.kr. um
kr. 200 þ.kr. á ári. í 7% verðbólgu
er hækkunin kr. 70 þ.kr. Nákvæm
dæmi um áhrif vaxtalækkana má
sjá á meðfylgjandi töflu.
Hvað kosta kjarasamningarnir
ríkissjóð?
Búvöruverði skal haldið óbreyttu.
Kostnaður við niðurgreiðslur á ár-
inu 1990 var vanáætlaður á fjárlög-
um og er því óhjákvæmilegt að
útgjöldin verði umfram áætlun fjár-
laga. Eðlilegra er því í þessu sam-
bandi að tala um leiðréttingu á fjár-
lögum en kostnað vegna samning-
anna. i
Bændur samþykktu að falla frá
launahækkunum og taka á sig
kostnaðarhækkanir til þess að halda
búvörverði óbreyttu til 1. desember.
Hærra verð hefði dregið úr sölu
búvara, einkum kindakjöts. Þá
hefðu útflutningsbætur orðið meiri
en ella. Þó niðurgreiðslur til innan-
landsmarkaðar séu háar, eru út-
flutningsbætur á hvert kg mun
hærri.
Það er óeðlilegt að vanáætlanir
á fjárlögum séu færðar sem kostn-
aður vegna kjarasamninga og aðrir
þættir varðandi búvöruverðið ættu
frekar að verða ríkissjóði til sparn-
aðar. Líklegt er því að samkomulag
um óbreytt búvöruverð til 1. desem-
ber leiði frekar til sparnaðar en
kostnaðarauka fyrir ríkissjóð. Þess
má geta að hefðu samningar ekki
náðst á þessum nótum hefði mátt
búast við hækkun búvara um 7-10%
umfram almennar verðhækkanir.
Lækkun framfærsluvísitölu um
0,3% mun líklega kosta ríkissjóð
um 300 milljónir króna.
Hækkun frítekjumarks tekju-
tryggingar einstaklings gagnvart
greiðslum úr lífeyrissjóðum úr tæp-
lega 13 þ.kr. á mánuði í 19 þ.kr.
1. júlí nk. kostar skv. mati um 150
milljónir króna.
Þá má ætla að það kosti 50-70
millj. kr. umfram fjárlög að við-
halda rétti fólks til launa við gjald-
þrot fyrirtækja með þeim hætti sem
gert er ráð fyrir í samkomulaginu
við ríkisstjórnina.
Dregið hefur verið úr áformuðum
hækkunum á opinberri þjónustu. í
meginatriðum er um að ræða endur-
skoðun miðað við breyttar forsend-
ur og því ekki aukinn kostnað ríkis-
sjóðs.
Heildarkostnaður ríkissjóðs við
þær aðgerðir sem gripið hefur verið