Morgunblaðið - 07.02.1990, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 07.02.1990, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. FEBRÚAR 1990 7 Kjúklingabændur: Agreiningur um framleiðslukvóta STJÓRN Félags kjúklingabænda hefúr, að sögn Loga Jónssonar stjórnarmanns í félaginu, samþykkt að beita sér fyrir því að fram- leiðslukvóti í kjúklingarækt verði afnuminn. Bjarni Asgeir Jónsson formaður félagsins kveðst ekki kannast við að slík samþykkt hafi verið gerð. „Eg er formaður félagsins og ég boða til stjórnarfúnda. Ég hef ekki boðað til fúndar sem þetta hefúr verið samþykkt ás“ segir Bjarni. Að sögn Loga telja kjúklingabændur að neysla á kjúkl- ingum hafi minnkað um helming síðan kvótinn var settur á, og það sé að stórum hluta kvótanum að kenna. Kvótinn er nú 2.600 tonn á ári, en Logi segir söluna í fyrra hafa verið um 1.000 tonn. Fossbúar hafa á að skipa myndarlegum foringjahópi. / • Morgunblaðið/Sigurður Jónsson 211 nýir skátar á Selfossi Selfossi. MIKIL aukning er nú í skáta- starfi á Selfossi. Skátafélagið Fossbúar fékk nýlega 211 nýja félaga til liðs við sig þegar for- ingjar þess gengust fyrir hvatn- ingu til barna um að ganga í félagið. Hvert sem litið var mátti sjá andlit, geislandi af áhuga. Bjarni Ásgeir kvaðst aðspurður ekki vera reiðubúinn til að tjá sig um að fella niður kvótann. „Eg hef ekkert fjallað um þetta en ég hef heyrt það á skotspónum að þeir hafi rætt þarna nokkrir saman, en það er ekki í nafni félagsins eða stjórnarinnar," sagði hann. Samþykki meirihluta kjúklinga- bænda þarf til að framleiðslukvót- inn verði afnuminn, og sagði Logi Jónsson afr tillaga þar að lútandi Útigöngu- ær fundust Borg í Miklaholtshreppi. TVÆR veturgamlar ær ófyrntar fúndust á Kerlingarskarði. Þrátt fyrir langvarandi norðan- storm, en frostvægt, líta þessar kindur ágætlega út og nú er komið fram í þriðju viku Þorra, þær hafa einhvers staðar haft gott að bíta. Kindurnar voru frá Hofsstöðum í Miklaholtshreppi. \ Páll Fjölgað á aðalskrif- stofii EFTA yrði borin undir almennan félags- fund á næstunni. Kjúklingabændur fá endurgreitt fóðurbætisgjald miðað við ákveðinn framleiðslurétt, og er heildarkvót- inn í búgreininni nú urn 2.600 tonn að sögn Loga, en virkur endur- greiðsluréttur miðaður við tæplega 1.600 tonn á ári. Sala á kjúklingum á síðasta ári hefði hins vegar aðeins verið rúmlega 1.000 tonn. Logi sagði að framleiðslukvóti í kjúklingarækt hefði lagst illa í kaupmenn þegar honum var komið á, og þeir hætt að vekja athygli á kjúklingum í verslunum sínum. Þá sagði hann að bændur hefðu á viss- an hátt látið reka á reiðanum síðan kvótanum var komið á og lítið gert til að augiýsa framleiðslu sína. Hann sagðist telja að viðhorf gagn- vart kjúklingabændum myndi breytast yrði kvótinn afnuminn, en margir teldu að verið væri að vernda þá með einhverju ákveðnu verði. Auk þess yrði þá hver fram- leiðandi að bjarga sér, en í dag væri kvótanum mjög ranglega skipt á milli framleiðenda, þar sem aðeins tveir aðilar réðu yfir stærsta hluta hans. Þeir hefðu það mikinn fram- leiðslurétt að þeir gætu hugsanlega ekki selt allt það magn, en minni framleiðendurnir, sem hefðu iítinn framleiðslurétt, gætu mögulega selt miklu meira en þeir hefðu nú leyfi til að framleiða. Það var mikil örtröð kvöldið sem innritunin fór fram. Félagið hefur á að skipa 46 foringjum og hluti þeirra tók á móti nýliðunum þegar þeir mættu til skráningar. Löng biðröð myndaðist fyrir utan Tryggvaskála þar sem skráningin fór fram. Hvert sem litið var mátti sjá andlit sem geisluðu af áhuga og eftirvæntingu. Innritun- in gekk vel og skipulega fyrir sig og 211 urðu félagar í skátafélag- inu þetta kvöld og stór hópur að auki var settur á biðlista. Þeir sem voru viðstaddir og mundu þrjúbíó- sýningarnar í gamla Selfossbíói höfðu á orði að örtröðin vekti upp ljúfar minningar. Fossbúaforingjarnir hafa staðið sig vel á skátamótum, fengið verð- laun og verið félagi sínu til sóma. Skátamir hafa aðstöðu í litlu húsi þar sem áður var aðstaða tækni- deildar bæjarins en Ijóst er að það húsnæði er gjörsamlega sprungið með þeirri fjölgun sem varð á inn- ritunarkvöldinu. —Sig. Jóns. Lög um málefhi aldraðra Kostnaðarþátttaka hefet ef tekjur eru yfir 13.200 kr. VISTMENN á dvalarheimilum munu, í kjölfar laga um málefni aldr- aðra sem gengu í gildi um síðustu áramót, framvegis taka þátt í dval- arkostnaði í hjúkrunarrými ef tekjur þeirra eru umfram 13.200 kr. á mánuði og greiða kostnaðinn jafiivel að fúllu ef tekjur eru háar. Áður greiddu sjúkratryggingar dvalarkostnað vistmanna þó ákvæði hafi verið í lögunum um kostnaðarhlutdeild vistmanna. Aðalskrifstofa EFTA í Genf er nú að fjölga starfsfólki og hafa vegna þess verið auglýstar um 30 stöður lausar til umsóknar. Rúmlega 600 umsóknir bárust, þar af tiltölulega margar frá ís- landi að sögn Arne Kjelstrand, starfsmannasfjóra á skrifstof- unni. Kjelstrand segir, að þegar hafi verið gengið frá ráðningu Magnús- ar Thoroddsens við lagadeild skrif- stofunnar. Ráðning eins annars, Jóns Valfells, fréttamanns, í upplýs- ingadeild sé nánast frágengin, en ekki hafi verið gengið frá ráðning- arsamningum við fleiri. Óvenju- margir íslendingar hafi verið meðal umsækjenda og gætu nokkrir þeirra fengið vinnu, en það skýrðist á næstu dögum. Siglufjörður: Stálvík með 1401estir Siglufirði. TOGARINN Stálvík landaði nú í vikubyrjun 140 tonnum af góðum fiski. Þokkaleg veiði hefúr verið hjá togur- um, en lítið gefur á sjó fyrir smærri báta og afli því slak- ur. Loðnuskipið Hákon ÞH land- aði fullfermi hér á þriðjudag og var þá einnig von á fleiri loðnuskipum. Stapavíkinni hef- ur nú verið lagt við svokallaða innri bryggju, en heyrzt hefur að einhveijir útlendingar hafi spurzt fyrir um hana með möguleg kaup í huga. - Matthías Þeir einstaklingar sem fara beint úr heimahúsi í hjúkrunarrými taka þátt í dvalarkostnaði ef þeir hafa tekjur sem eru umfram 13.200 á mánuði. Vistmenn sem hafa ekki verið í sjúkrahúsi síðastliðin tvö ár fá greiddar bætur lífeyristrygginga fyrstu fjóra mánuðina. Bætur lífeyr- isþega í þjónustuhúsnæði sem hefur minni tekjur en 13.200 kr. á mánuði nægja til að greiða dvalarkostnað hans ásamt elliheimilisuppbót. Kostnaður vegna vistar á dvalar- heimili er samkvæmt útreikningum daggjaldanefndar sjúkrahúsa 60.985. Vistmenn á dvalarheimilum með eigin tekjur umfram 15.700 kr, munu nú eins og áður taka þátt í greiðslu dvalarkostnaður með þeim tekjum. Vistmaður sem hefur engar aðrar tekjur en bætur almanna- trygginga á að veita viðkomandi stofnun umboð til að taka við greiðsl- um Tryggingastofnunar ríkisins vegna dvalarinnar. Frítekjumark hækkað Frítekjumark er þær tekjur sem lifeyrisþegi má hafa áður en tekju- trygging hans skerðist og nemur það nú 12.800 krónum. Nú hefur verið ákveðið í tengslum við kjarasamn- ingana að hækka frítekjumark aldr-. aðra í 19.000 krónur 1. júlí næst- komandi þannig að 'tekjutrygging þeirra sem fá 19.000 kr. á mánuði í lífeyri skerðist ekki. Þá hefur verið ákveðið að hækka frítekjumarkið enn frekar í byrjun næsta árs um 2.500 kr„ i 21.500 kr. Kostnaðarhlutdeild eykst Samkvæmt fyrri lögum um mál- efni aldraðra tóku sjúkratryggingar við greiðslu dvalarkostnaðar ein- staklings sem fór úr þjónustuhús- næði til hjúkrunardvalar og kostnað- arþátttöku einstaklingsins lauk. Með nýju lögunum er einstaklingi gert að taka þátt í greiðslu dvalarkostn- aðar með eigin tekjum sem sem eru umfram 13.200 krónur. Eigin tekjur maka skiptast jafnt á milli hjóna og þær tekjur sem þá eru umfram 13.200 kr. fara til greiðslu dvalarkostnaðar. Ef annað hjónanna dvelur í hjúkrunarrými en hitt utan stofnunar skal skipta tekj- um þess er dvelur á hjúkrunarrými í tvennt og ef sá helmingur er hærri en 13.200 kr. á mánuði skal lang- legusjúklingur taka þátt í dvalar- kostnaði. Bætur langlegusjúklinga frá almannatryggingum falla niður ef dvölin í hjúkrunarrými er lengri en flórir mánuðir og þegar saman- lögð dvöl í þjónustu- og hjúkruna- rrými nær fjórum mánuðum. 319,9 milljónir í elliheimilisuppbót Einstaklingar 67 ára og eldri sem aðeins njóta tekjutryggingar og elli- lífeyris hafa samtals 30.821 kr. í tekjur á mánuði. Til að mæta dvalar- kostnaði í þjónustuhúsnæði sem er 60.985 krónur á mánuði, leggur Tryggingastofnun ríkisins til 30.164 krónur í elliheimilisuppbót. Þessir einstaklingar eiga rétt á því að sækja um mánaðarlegt ráðstöfunarfé eða vasapeninga til Tryggingastofnunar ríkisins og nemur sú upphæð nú 6.692 kr. Elliheimilisuppbót skerðist ef eigin tekjur vistmanna eru yfir 153.600 kr. á ári. ) í reglugerð um stofnanaþjónustu fyrir aldraða segir að bráðlega verði hætt að telja elliheimilisuppbót þeim til tekna sem engar tekjur hafa. Líklegast verður það framkvæmt með þeim hætti að elliheimilisupp- bótin verði látin renna til viðkom- andi þjónustustofnana og komi þannig hvergi fram á skattframtali vistmanna. Greiðslur Trygginga- stofnunar vegna dvalarheimilisupp- bótar elli- og örorkulífeyrisþega námu á síðasta ári 319,9 milljónum króna. í relugerðinni segir einnig að til tals hafi komið að eigin tekjur aldr- aðs einstaklings sem renna til greiðslu dvalarkostnaðar verði und- anþegnar tekjuskatti. Með þessum ráðstöfunum myndi hlutdeild vist- manna í dvalarkostnaði aukast án þess að þyngja greiðslubyrði þeirra. Dagvistargestir greiði 500 kr. fyrir hvern dag Með nýju lögunum um málefni aldraðra er ljóst að allir aldraðir dagvistargestir munu taka þátt í greiðslu dagvistarkostnaðar. Gert er ráð fyrir að dagvistin innheimti 500 krónur af dagvistargesti vegna hvers dvalardags en þó aldrei hærri upp- hæð á mánuði en sem nemur grunnl- ífeyri almannatrygginga, sem nú er 10.853 krónur. Aður báru sjúkra- tryggingar allan kostnað vegna dag- vistar. I reglugerð um dagvist aldr- aðra segir að þessi framkvæmd sé meðal annars höfð til að leiðrétta misræmi sem valdið hefur óánægju þeirra er búa í íbúðum sem tengjast dagvist. Þeir hafa hingað til þurft að gi-eiða fullt gjald fyrir þjónustu og mat en þeir sem sækja þjón- ustuna utan að hafa ekkert þurft að greiða.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.