Morgunblaðið - 07.02.1990, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 07.02.1990, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR-7. FEBRUAR 1990 21 Reuter Ólga íKasmír Mikil ólga hefur verið í Kasmír á Indlandi undanfarna daga en róttækir múslimar hafa ákaft hvatt til þess að íbúar Kasmír stofni sjálfstætt ríki. Mikill meirihluta íbúanna játar múhameðstrú. Þá hafa þær raddir einnig heyrst að Kasmír eigi að sameinast Pakistarr. Hefur þetta skapað spennu í samskiptum Indveija og Pakistana en ríkin hafa tvívegis barist um yfirráðaréttinn yfir Kasmír. Myndin var tekin í borginni Srinangar á mánudag og sýnir hún lögreglumenn leita skjóls undan grjótkasti þjóðernissinna. A Iran-kontramálið: Reagan neitar að afhenda dagbækur Washington. Reuter. LOGMENN Ronalds Reagans, fyrrum forseta Bandaríkjanna, mót- mæltu á mánudag kröfum um að forsetinn afhenti dómara hluta af dagbókum sínum vegna málareksturs gegn John Poindexter, fyrrum öryggisráðgjafa Reagans. Verjendur Poindexters vilja kanna hvort Reagan hafi vitað um og Iagt blessun sína yfir leynilega sölu vopna til klerkastjórnarinnar í íran en hagnaðurinn var sendur kontra- skæruliðum í Nicaragua. Dómari hefur úrskurðað að Reagan verði að svara 33 spurningum vetjenda Po- indexters varðandi málið og verði yfírheyrslan tekin upp á myndband en forsetinn þarf ekki að mæta í vitnastúku. Poindexter er ákærður fyrir sam- særi, fyrir að hafa reynt að hindra rannsókn Bandaríkjaþings á íran- kontramálinu auk þess sem hann hafí borið fram blekkingar til að skaða málareksturinn. Réttarhöld hefjast 20. febrúar. Reagan hefur margsinnis lýst því yfir að hann hafi ekkert vitað um vopnasölumálið. Veijendur Poindext- ers telja að forsetinn hafi þvert á móti átt hluta að málinu og vildu þeir upprunalega fá að leggja alls 183 spumingar fyrir Reagan. Dómari í málinu gaf Iögmönnum forsetans nokkurra daga frest til að ákveða hvort þeir myndu vísa kröf- unni um yfirheyrslur á bug með því að vitna til sérréttinda forseta, sitj- andi jafnt sem fyrrverandi. Ef Reag- an hefði verið stefnt sem vitni og neitað að mæta er talið að upp hefði komið lögfræðilegt álitamál um túlk- un á stjórnarskránni. Bretland: Þingið haldi uppi eftir- liti með leyniþjónustumii St. Andrews. Frá Guðmundi H. Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. ÝMSIR brezkir þingmenn og sérfræðingar í öryggismálum liafa krafizt þess, að sérstök þingnefhd verði sett yfir leyniþjónustuna , MI5 og MI6. Sljórnvöld viðurkenndu í síðustu viku, að blaðafull- trúi hersins á Norður-írlandi hefði ranglega verið rekinn úr starfi árið 1975. Colin Wallace, fyrrum blaðafull- trúi, hefur ævinlega haldið því fram, að hann hafi verið rekinn úr starfi fyrir að neita að taka þátt í lygaáróðursherferð leyniþjón- ustunnar gegn IRA og stuðnings- mönnum hans, þekktum stjóm- málamönnum á Norður-írlandi og í London. Margaret Thatcher forsætisráð- herra viðurkenndi í síðustu viku, að hún hefði gefið þinginu rangar upplýsingar, þegar hún hafði svar- að spurningum um mál Wallace fyrir tveimur árum. Nýlega hefðu uppgötvazt skjöl, sem renndu stoð- um undir staðhæfíngar Wallace. Stjórnin hefði því ákveðið að skipa nefnd, sem á að rannsaka uppsögn Wallace úr starfi. Ýmsir þingmenn hafa krafizt þess að rannsóknin nái líka til ásakana um lygaherferð á Norð- ur-írlandi. Ásakanir hafa lengi verið uppi þess efnis, að brezka leyniþjónustan hafi staðið fyrir lygaherferð gegn stjórn Harolds Wilsons, forsætisráðherra Verka- mannaflokksins, sem þá var við völd. Stjómvöld hafa viðurkennt að lygaáróðri hafi verið beitt á Norð- ur-írlandi, en ekkert benti hins vegar til þess, að hann hafi beinzt gegn ráðherrum í stjórn Wilsons. Margir þingmenn og sérfræð- ingar í öryggismálum eru þeirrar skoðunar, að nauðsynlegt sé að setja brezku leyniþjónustuna undir stjóm þingsins, en hún hefur alltaf heyrt beint undir forsætisráðu- neytið. Fyrrum yfírmaður Wallace inn- an hersins lýsti því yfír um helg- ina, að ástæðurnar fyrir uppsögn hans hefðu verið yfirskin. Búizt er við að málið verði tekið upp á ný í þinginu í vikunni. Hryðjuverkið í Egyptalandi: Mikil leit að tveim- ur Palestínumönnum Kaíró. Reuter. EGYPSKA lögreglan telur sig vera komna á slóð mannanna, sem myrtu níu ísraelska ferðamenn og tvo egypska öryggisverði skammt frá Kairó sl. sunnudag. Ef rétt reynist eru hryðjuverkamennirnir pa- lestínskir öfgamenn, sem vilja koma í veg fyrir samninga um frið í Miðausturlöndum. Haft er eftir heimildum innan lög- reglunnar, að fundist hafi vegabréf jórdansks Palestínumanns rétt hjá Peugeot-bílnum, sem notaður var í árásinni á langferðabifreiðina. Hefur mynd af honum verið dreift meðal lögreglumanna um allt Egyptaland og auk þess er leitað annars Pa- lestínumanns eða félaga vegabréfa- hafans. Komu þeir til landsins 21. janúar sl. I gær sagði egypska fréttastofan MENA, að annar mann- anna hefði verið handtekinn en emb- ættismenn í innanríkisráðuneytinu vildu ekki kannast við það. í árásinni á langferðabílinn biðu níu ísraelar bana, ekki tíu eins og fyrr var talið, og tveir Egyptar og 19 manns slösuðust. Hafa ráðamenn jafnt í Israel sem Egyptalandi heitið að láta atburðinn ekki standa í vegi fyrir hugsanlegum friðarviðræðum en ísraelskir harðlínumenn hafa þó notað tækifærið til að krefjast þéss, að ekkert verði gefið eftir gagnvart Palestínumönnum á hernumdu svæðunum. Palestínsku hryðju- verkasamtökin „Heilagt stríð“ hafa lýst morðunum á hendur sér en full- trúi PLO, Frelsisfylkingar Palestínu- manna, í Kaíró hefur fordæmt þau. , Bílstjóri langferðabílsins er Pal- estínumaður og er iögreglan að kanna hvort hann geti verið riðinn við morðin. Þykir það til dæmis nokkuð grunsamlegt, að hann var klukkutíma á eftir áætlun þegar ráðist var á bílinn. Flytjum verslunina á morgun á Laugaveg 45 r V r sími 11380. HEIMSMEIS TÁKA HAPPDK/E TII HÁHBKIISTTLEIKSSiMBAIIOS ÍSLÁHBS 0KEBI0 HK. MÁHBBÁB ÁFRAM ÍSIAND! 20 BÍLÁK MESTU MÖBBLEIKÁK í EIHB HÁPPOKÆTTI Á0 VIHHÁ BÍL

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.