Morgunblaðið - 07.02.1990, Blaðsíða 41
MORGUj^BLAÐip MIÐVIKUDAGUR ,7. I’;EBR,ÚAR 1990
41
Ohagstætt rekstrarform
Til Velvakanda.
H.Kr. skrifar í þáttum Velvak-
anda þann 25.1. 1990. Ég held ég
verði að svara honum í eins stuttu
máli og ástæður leyfa. Ég get ekki
betur séð en hann sé að átelja mig
fyrir vanhugsuð skrif 13. jan.
síðastliðinn.
Þessi H.Kr. gerir lítil skil sínum
hugmyndum að öðru en því sem
alls ekki kom fram í réttum skiln-
ingi frá honum. Ekki virðist hann
hafa lesið greinar eftir mig sem
komið hafa fram um árabil og gert
þessum málum skil sem hér er um
að ræða og ætti hann ekki að vera
í vafa um, hvað ég vil í samskiptum
ríkisvalds og þegnanna. Virðist
hann litla grein gera sér fyrir ríkis-
afskiptum, eða miklu heldur ekki
vilja sjá þá valdníðslu sem við erum
beitt, tekur því til viðmiðunar hjón
á ellilaunum til að sýna nú hversu
lítið það er sem lækkun virðisauka-
skatts veldur til hagsbóta fyrir þau
en það er víðtækara svið sem lækk-
un virðisaukaskatts nær yfir en
öldruð hjón.
Greinilega kemur þó fram hjá
H.Kr. sá hugsunarháttur að enginn
má njóta þess sem hann vinnur til
með erfíði og hagsýni. Það skal
allt tekið af honum af ríkisvaldinu
og hann gerður þræll annarra, tekj-
ur hans teknar með lagatilbúningi
og færðar í vasa alls óskyldra aðila.
Af því að H.Kr. tekur til sérstak-
lega öldruð hjón, þá skal ég benda
honum á það, að ein af tiltektum
vinnandi stétta var að stofna al-
mannatryggingar og lífeyrissjóði.
Þetta eru stofnanir sem eiga að
þjóna öldruðu fólki, en þar má eng-
inn jöfnuður vera sem er að minni
meining svik við skjólstæðinga
stofnananna svo það er haldlítið að
tala um réttlæti og jöfnuð þar. Þetta
er mjög undarlegt og utan við rétt-
lát markmið og leiðir vinnandi
stétta innan þjóðfélagsins, sem eiga
að vera virk. Menn sem hafa verið
í háum launaflokkum og hæstu
stöðum í þjóðfélaginu hljóta að hafa
aðstöðu til að vera eignamenn og
þurfa því ekki að fá hærri lífeyris-
bætur en aðrir þegnar og í flestum
tilvikum komið sér upp sjóðum í
bönkum. Þessir menn eiga ekki að
hafa rétt til margfaldra bóta úr
sjóðum ríkisins þegar til elliáranna
Þessir hringdu . .
Hanski
Blár og grænn hanski tapaðist
á Mararbakkabraut. Vinsamleg-
ast hringið í síma 72289.
Gullhringur
Gullhringur fannst á bílaplani
Iðnskólans fyrir skömmu. Upplýs-
ingar gefur Hólmfríður í síma
16388.
Myndavél
Myndavél af tegundinni Voigt-
lander tapaðist seint í september.
Hún var með með Braun flassi og
í hvítum plastpoka þegar hún
týndist. Finnandi er vinsamlegast
beðinn að hringja í síma 11882.
Perlufesti
Skartgripabudda sem í var
perlufesti og fl. tapaðist á Selt-
jarnarnesi 30. janúar. Finnandi
er vinsamlegast beðinn að hringja
í síma 611781.
Jöfnuður og réttlæti
Til Velvakanda.
„Rangindi og valdníðsla" er nafn
á pistli í dálkum þínum 13. þ.m.
Niðurlagsorðin eru þessi: „Lækka
þarf virðisaukaskatt og félagsbætur
til samræmis. Þá mun verðlag
lækka og koma þeim vel sem flesta
hafa á framfæri."
Svipað er að segja um barnafjöl-
skyldurnar. Þegar félagsbætur eru
lækkaðar í samræmi við lækkaða
skattheimtu eða '.-erðlag er það til
hagsbóta fyrir þá sem hafa nóg og
meira en nóg á kostnað þeirra sem
minnst bera úr býtum.
Þjóðfélagið verður ekki gert
með iðmor.nin.. l'-.tuiibækk-.
er litið en ég sé ekki eftir því að
fólk komist í efni af eigin framtaki
og verðleikum. Og þeir megi ekki
njóta betri viðskiptakjara eins og
aðrir með lækkuðum skattaálögum
og þar af leiðandi lægra vöruverði,
en það má ekki að dómi H.Kr. og
kemur fram í greinum hans. Fólk
á skilyrðislausa kröfu á hendur
ríkisvaldinu að halda reisn og njóta
verka sinna. H.Kr. talar um að jafna
laun, það er að mínum dómi gert
með þeim hætti að jafnast við þjófn-
að. Hvers vegna geta þá ekki Iífeyr-
issjóðirnir sem þykjast starfa í þágu
launafólks, almennings, deilt út
jöfnum lífeyrisgreiðslum? Nei, það
má ekki vegna undarlegrar rætni
verkalýðsstéttanna, eins og þegar
H.Kr. vill ekki lækka virðisauka-
skatt vegna þess að þá njóta allir
góðs af, ætli kæmi sér ekki vel fyr-
ir unga fólkið að lækka byggingar-
kostnað um 10%.
Ekki er um neinn efa að ræða,
að lækkun virðisaukaskatts bætti
verulega útflutningsaðstöðu okkar.
Ég hef skrifað svo mikið um
óhagstætt rekstrarform lífeyris-
sjóðanna að varla er við bætandi
en verð þó að nefna það enn á ný.
Hafa skal eitt tryggingakerfi, al-
mannatryggingar og út frá því jafn-
ar ellilaunabætur til allra sem aldri
hafa náð til þess. Þúsundir manna
vinna við lífeyrissjóðina, algjörlega
að óþörfu með nútíma tækni. Burt
með þessar afætur á sjóðum aldr-
aðra. Þúsundir tölvutækja og ann-
arra tækja rýra tekjur gamla fólks-
ins, tugir stórbygginga í rekstri á
kostnað aldraðra hýsa þessar stofn-
anir, burt með báknið og skrif-
finnsku vinstriaflanna. í kostnaði
alls konar liggja milljarðar króna
sem deila mætti út meðal ellilauna-
Ólína Þorvarðardóttir
Góðir þættir
Marta Þorsteinsdóttir hringdi:
„Ég vil þakka Ólínu Þorvarðar-
dóttur fyrir góða þætti. Þátturinn
með Jónu Kvaran, Rósu Ingólfs-
dóttur o. fl. fannst afar fróðlegur
og skemmtilegur. Þátturinn með
Birgi ísleifi Gunnarssyni bar þó
af. Birgir ísleifur kom mjög vel
fyrir, hann hefði orðið mikill tón-
listarmaður ef hann hefði viljað
leggja það fyrir sig.“
Kettlingar
Kettlingar fást gefins. Upplýs-
ingar í síma 39289 eftir kl. 20.
þega svo enga tekjutryggingu þyrfti
að greiða öldruðu fólki, selja stofn-
anir lífeyrissjóðanna og endur-
greiða þar með hluta af því sem
stolið hefur verið af þessu fólki.
Ég segi stolið vegna þess að þetta
þurfti ekki og þarf ekki að vera
svona. Ekki þarf stærra húsnæði
yfir almannatryggingastofnun en
sem svarar einni byggingu Trygg-
ingastofnunar ríkisins. Trygginga-
bætur er hægt að senda í banka
út um allt land. Ekki þyrfti nema
brotabrot af þeim mannafla sem
nú starfar við tryggingamál í
nútíma tækni, sömuleiðis tækjabún-
að. Mikið á það nú vel við að
skammstafa virðisaukaskattinn
VASK, allt fer í vaskinn sem gert
er og á að vera til bóta.
í lokin verð ég að nefna það rang-
læti sem á nú helst að bitna á las-
burða fólki, en það er ef það verður
lögfest að þeir sem læknis þurfa
með verði nú að borga miklu stærri
hlut í læknaþjónustu og spara þá
ríkinu um 65 milljónir kr. Þetta er
ein atlaga enn að gamla fólkinu sem
helst þarf læknis við.
Þorleifur Kr. Guðlaugsson
A reiðskapn-
um kennist...
Til Velvakanda.
í gömlum sögnum er frá því
greint, að Ásgrímur Hellnaprestur,
er nefndur var hinn illi, hafí oft,
er bjargþrota fólk bar að garði hans,
raðað góðgæti í kringum sig og
sagt: Þetta borðar nú presturinn á
Hellnum, en þið, aumingjarnir, get-
ið snapað gams.
Þessi gamla sögn kemur í hug-
ann nú á tímum vaxandi fátæktar,
gjaldþrota og landflótta, því nú
leyfa landsfeður sem minna á
nýríka unglinga, sér ýmsan munað,
þótt þeir boði „almúganum“ aðrar
kenningar. Þar ganga þó sennilega
ráðherrar Borgaraflokksins fremst-
ir í flokki, sbr. bílakost þeirra og
reisukostnað ýmsan.
í alkunnu ljóði segir enda: „Á
reiðskapnum kennist, hvar fyrir-
menn fara.“
Guðmundur
Skrifið eða hringið til
Velvakanda
Velvakandi hvetur lesendur til
að skrifa þættinum um hvaðeina,
sem hugur þeirra stendur til — eða
hringja milli kl. 10 og 12, mánu-
daga til föstudaga, ef þeir koma
því ekki við að skrifa. Meðal efnis,
sem vel er þegið, eru ábendingar
og orðaskiptingar, fyrirspurnir og
frásagnir, auk pistla og stuttra
greina. Bréf þurfa ekki að vera
vélrituð, en nöfn, nafnnúmer og
heimilisföng verða að fylgja öllu
efni til þáttarins, þó að höfundur
óski nafnleyndar.
Sérstaklega þykir ástæða til að
beina því til lesenda blaðsins utan
höfuðborgarsvæðisins, að þeir láti
sinn hlut ekki eftir liggja hér í
dálkunum.
ÞORRAMATURINN
LIÚFFENGI
ívallt
úrvalsréttlr
at matseölinum
MÁLFLUTNIN GSSKRIFST0FA
Ragnar Aðalsteinsson, hrl.,
Sigurður Helgi Guðjónsson, hrl.,
Viðar Már Matthíasson, hrl.,
Tryggvi Gunnarsson, hdl.,
tilkynnir, að
0THAR ÖRN PETERSEN, HRL.,
hefur flutt lögmannsstarfsemi sína frá Ármúla 17 og gerst meðeig-
andi í málflutningsskrifstofunni frá 31. janúar 1990 að telja.
Er heiti skrifstofunnar frá þeim degi
MÁLFLUTNINGSSKRIFSTOFA
Ragnar Aðalsteinsson, hrl.,
Othar Örn Petersen hrl.,
Sigurður Helgi Guðjónsson, hrl.,
Viðar Már Matthíasson, hrl.,
Tryggvi Gunnarsson, hdl.,
Borgartúni 24, Sími 27611
pósthólf 399, Telefax 27186
121 Reykjavík Telex (051) - 94014175 BORG G
Metsölublad á hverjum degi!
Aðalstræti 2
frá
HAMMERJLEY
OF ENGLAND
Herrafrakkarúr
CASHMEREULL,
einhnepptir og
GEísíP
H