Morgunblaðið - 07.02.1990, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 07.02.1990, Blaðsíða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. FEBRÚAR 1990 Voff — voff... Má ég vera lengur úti í kvöld, með krökkunum? HÖGNI HREKKVÍSI Hefiirðu komið til Kínu? Agiskanir eiga ekki að ráða ferðinni Til Velvakanda. Nú um nokkurt skeið hefur stað- ið yfir mikið átak á sviði málrækt- ar. í allri þeirri umræðu hefur verið helsti hljótt um það afrek sem snill- ingar í útvarpi hafa unnið í kyrrþey varðandi þjóðlega íslenskun er- lendra heita, einkum á sviði borga og landa. Hér til hefur sá þáttur verið vanræktur — jafnvel af sjálf- um Fjölnismönnum — og er ljótt til þess að vita. Áðurnefnd nyt- menni hafa nú ráðist gegn þeirri óhæfu sem viðgengist hefur um aldir eins og t.d. að tala um Barcel- ona í stað Barcelónu. Nú ræða þess- ir framsæknu menn um Barcelónu, Sevillu (eða Sevillju) í stað Sevilla, Genúu í stað Genúa. Þeir hafa jafn- vel náð svo langt á þessu sviði að þeir ræða um Pölmu á Majorku í stað Palma á Maijorka svo sem tornæmir íslenskir túristar (og reyndar slæpingjar alira landa) hafa látið sér sæma hér til. Og er mál að linni. Vona nú allir sannir íslend- ingar, að þessir vígdjörfu baráttu- menn gangi enn lengra fram í Drottni og tali um Písu (með sinn skakka turn) í stað Písa, Rigu í stað Riga, Panömu í stað Panama, um Garcíu Lorcu í stað García Lorca og síðast en ekki síst að þeir fjalli um Kínu en ekki Kína. Annað væri gróf móðgun gegn Torgi hins himn- eska friðar. Enginn skyldi framar fremja þá ósvinnu að segja: Hef- urðu komið til Kína, heldur mæla skýrt og skorinort svo sem hveijum þjóðhollum íslendingi sæmir: Hef- urðu komið til Kínu? Nú þyrfti sem fyrst að endur- skoða heilaga ritningu og hagræða þar ýmsu, svo sem drottningunni af Saba. Fagurra og réttara mál væri að tala um drottninguna af Söbu. Annað væri reyndar gróf móðgun við formóður allra Eþíópíu- keisara fyrr og síðar (þ á m. hinn síðasta þeirra, Haile Selassi). Yrðill Til Velvakanda. Nú virðist hægt að líkja ógnar- stjórn Ceausescus við framsóknar- stóðið, því stefna framsóknar virð- ist byggjast á að leggja heilu byggð- arlögin í rúst með kvótastefnu sem enginn skilur. Nú þegar ör þróun á sér stað gegn miðstýringu og spill- ingu í Austur-Evrópu megum við einhvern veginn verða eftirbátar í þeirri þróun. Til að þetta breytist þarf Framsóknarflokkurinn að leys- at upp eins og kommúnisminn í Austur-Evrópu, þó Framsóknar- flokkurinn sé enn til að nafninu til eins og kommúnismin í austri. Mig skal ekki undra þó framsóknarmenn hafi vinsælasta ráðherrann, því hann virðist mikill grænfriðuðngur. í hans augum virðist þorskurinn vera spendýr í útrýmingarhættu endar finnst mér barnalegt að taka mark á ágiskunum fiskifræðinga. Það sýndi sig best þegar forstjóri hafrannsóknarstofnunar fór norður fyrir jól og taldi loðnustofninn næst- um hruninn. En hvað skeði. Það kom einn sterkasti árgangur sem komið hefur í áraraðir. Þetta nær engri átt. Að mínu mati væri nær að banna veiðar í tvo til þijá mánuði meðan hrygning stendur yfir, því mörg skip eru frá veiðum í fjóra til sex mánuði vegna kvótans. Það væri nær að stæka möskva til að koma í veg fyrir smáfiskadráp. Ég tel kvótakerfið ekki styrkja bolfiskastofninn því fískur kemur og fer eins og vindátt- ir og lægðir, enda eru miklir sjávar- straumar við landið. Þetta finnst mér líkt og veðurfræðingar ættu að stuðla að landbúnaðarkvóta í landi þar sem stundaður hefur ver- ið landbúnaður í 11 aldir. Stofn- stærðir væri æskilegast að mæla með að mæla allar veiðar út frá togtíma á öllum togaraflotanum samtímis og tölvufæra svo. Ein- hveijar ágiskanir eiga ekki að stjórna veiðunum hér við land því slíkt er algerlega út í hött. Hingað hafa komið stórar Græn- landsgöngur, sem sum skip hafa ekki mátt veiða úr vegna kvótans, og svo hefur fiskurinn farið aftur eftir að hafa fengið æti á ísland- smiðum og síðna verið veiddur eftir heimkomuna á Grænlandsmið. Mér þætti gaman ef einhver vildi láta í sér heyra um þessi málefni. 111159-5649 Víkveiji skrifar Isíðustu viku upplýsti Víkverji lesendur sína um það, hvilík óreiða ríkir á mörkum austurs og vesturs í Berlín, þar sem landa- mæraverðir vita liklega ekki sjálf- ir hvaða reglum þeir eiga að fylgja. Annars staðar við landa- mæri Austur-Þýskalands virðist meiri regla á hlutunum, að minnsta kosti ef marka má ástandið þar í síðustu viku. Breyt- ingarnar eru hins vegar svo örar, að allt annað kann að gilda þar nú en síðastliðinn fimmtudag. Þá ók Víkverji ásamt ferðafé- lögum sínum inn í Austur-Þýska- land á hraðbrautinni sem tengir Núrnberg í Vestur-Þýskalandi við Berlín. Ætlunin var að £ara þar inn í Austur-Þýskaland og aka til nokkurra borga í landinu og fara síðan út úr því að kvöldi sama dags á hraðbrautinni sem tengir Berlín og Hannover í Vestur- Þýskalandi. xxx egar komið var að útlend- ingaeftirlitinu sagði konan sem skoðaði passana og spurði um ferðir íslendinganna, að þeir gætu ekki farið annað en til Vestur- Berlínar án þess að hafa vega- bréfsáritun og samkvæmt reglum mættu þeir ekki fara út af hrað- brautinni. Frá Berlín gætu þeir síðan fengið heimild til að fara eftir hraðbrautinni til Hannover. Þar með virtist ferðaáætlunin hrunin og ekki um annað að ræða en aka til Hannover vestan landa- mæranna, en í nágrenni þeirrar borgar var næsti áfangastaður Víkverja og félaga hans. Benti konan ferðalöngum að snúa við og fá aðstoð landamæravarða í öðru húsi við að komast aftur yfir til Vestur-Þýskalands. XXX Víkverji sagði vörðunurp frá .vonbrigðum sínum og ferða- félaga sinna yfir því að geta ekki ferðast um Austur-Þýskaland. Þeir sögðu að úr því mætti bæta og bentu á skrifstofu austur- þýsku ríkisferðaskrifstofunnar í þessu sama landamærahúsi. Það væri unnt að kaupa aðgang að landinu hjá henni; ef við ætluðum aðeins að vera einn dag skyldum við biðja um gistingu í „camping", það væri ódýrast! Gömul, góðleg kona sat við rit- vél innan við afgreiðsluglugga. Hún skrifaði ávísun á gistingu á einhverju tjaldsvæði, en Víkverja var raunar aldrei sagt hvar það er í landinu, og tók síðan 28 vestur- þýsk mörk af hverjum fyrir sig fyrir gistinguna, sem hún vissi að aldrei yrði notuð. Þar með var fengin forsenda fyrir vegabréfsá- ritun sem fulltrúi útlendingaeftir- litsins gaf út á staðnum og tók 15 vestur-þýsk mörk fyrir af hveijum ferðamanni. Um leið og hann gerði það lét hann í ljós hneykslun á því, að við skyldum þurfa að borga jafn mikið fyrir gistinguna og raun bar vitni þar sem við værum aðeins að kaupa aðgang að landinu. Þessi dagsferð um Austur- Þýskaland kostaði þannig um 1500 kr. á mann. Þegar farið var út úr því hafði landamæravörður- inn engan áhuga á ferðalöngunum og hvergi á leiðinni voru þeir spurðir uin ferðaheimild. Hefði kannski verið í lagi að segjast vera að fara til Berlínar og fara síðan um að vild? Hvort sú áhætta er tekin ræðst af því, hve mikið lögregluríki menn telja enn vera í Austur-Þýskalandi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.