Morgunblaðið - 07.02.1990, Page 15
L
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. FEBRUAR 1990
15
Sovétmönnum, mundi NATO vafa-
lítið tregðast við meðal annars með
tilvísun til erindisbréfs CFE-við-
ræðnanna og með því að benda á
að vænta megi frekari einhliða
fækkunar í sjóherjum NATO-ríkja
eftir því sem CFE-samningur feli í
sér meiri fækkun í herliði Sovét-
manna í Austur-Evrópu. Þetta gæti
hins vegar reynst erfitt, bæði inná
við og út á við, og NATO kynni
að verða að gefa að minnsta kosti
einhverskonar fyrirheit um að sjó-
herir enduðu á einhvern hátt á
samningaborðinu, e.t.v. í tvíhliða
viðræðum Bandaríkjanna og Sovét-
ríkjanna í framhaldi af samningum
risaveldanna um fækkun lang-
drægra kjarnorkuvopna í svonefnd-
um START-viðræðum. Áróðurs-
staða Sovétmanna gæti verið sterk
vegna þeirra tilslakana sem þeir
hafa þegar gert í CFE-viðræðunum,
og eru miklu meiri en tilslakanir
NATO, vegna þess að CFE I-
samningur mundi tryggja jafnvægi
í heijum bandalaganna í Evrópu,
vegna þess að innan NATO og
meðal sérfræðinga á Vesturlöndum
ríkja þrátt fyrir allt efasemdir um
þá stefnu að neita að ræða sjóheri,
og vegna þeirra pólitísku breytinga
sem hafa orðið og eiga sér stað í
Austur-Evrópu og reyndar Sov-
étríkjunum sjálfum.
En málin gætu þróast á annan
veg. Hefðbundnar kenningar hafa
gert ráð fyrir að afvopnun búi í
haginn fyrir póiitískar breytingar
og bætt pólitísk samskipti, sem svo
aftur stuðli að frekari afvopnun.
Þetta hefur snúist við. Pólitískar
breytingar í samskiptum austurs
og vesturs, en einkum umbyltingin
í Austur-Evrópu, eru komnar langt
fram úr afvopnunarviðræðum. Það
sést meðal annars af þeirri einhliða
fækkun í heijum sem á sér stað
eða er í deiglunni bæði í austri og
vestri vegna breyttra kringum-
stæðna og óháð yfirstandandi
samningum.
Ef Sovétmenn svara tilboði Bush
meðal annars með skilyrði um sjó-
heri, þurfa þeir stuðning banda-
manna sinna í Varsjárbandalaginu.
Með öðrum orðum þyrftu Austur-
Evrópuríkin að fallast á að NATO
yrði neitað um frekari fækkun í
sovéska hernum í Austur-Evrópu,
nema jafnframt yrði rætt um sjó-
heri. En Varsjárbandalagið er ekki
svipur hjá sjón og slíkur stuðningur
frá Austur-Evrópuríkjunum er alls
ekki vís. Þegar eru uppi formlegar
kröfur í Ungveijalandi og Tékkó-
slóvakíu um að Sovétmenn verði á
brott með herlið sitt frá þessum
ríkjum, að því er virðist óháð af-
vopnunarviðræðum, og Pólveijar og
Austur-Þjóðveijar hafa gefið í skyn
að þeir vilji einhliða fækkun í sov-
éskum hersveitum í löndum sínum.
Örfáum dögum áður en Bush
kynnti tillögu sína í síðustu viku
höfðu Sovétmenn brugðist við kröf-
um í Austur-Evrópu um einhliða
brottflutning sovéskra hersveita
með því að leggja til að allt herlið
þeirra og Bandaríkjamanna yrði á
brott úr Evrópu fyrir ársiok 1995,
en einnig aðrar erlendar hersveitir
í Vestur-Þýskalandi en banda-
rískar, þ.e. breskar, kanadískar,
franskar og belgískar. Samkvæmt
sovésku tillögunni átti þetta hins
vegar ekki að gerast fyrr en í CFE
II. NATO hefur hingað til hafnað
hugmyndum um brottflutning allra
erlendra hersveita frá Vestur-
Þýskalandi. Tilboð Bush í síðustu
viku var að sögn lagt fram vegna
þróunarinnar í Austur-Evrópu, en
virðist aðallega vera beint gegn til-
lögu Sovétmanna um brottflutning
fyrir 1995 til að draga úr mögu-
leika þeirra á að kenna NATO um
að ekki sé unnt að verða við kröfum
í Austur-Evrópu um einhliða brott-
flutning eða fækkun sovéskra her-
sveita þar.
Það getur því reynst erfitt fyrir
Sovétmenn að fá hin 'Varsjárbanda-
lagsríkin til að hafna tilboði Bush
af þeirri ástæðu að NATO vilji ekki
ræða sjóheri. Austur-Evrópuríkin
hafa að minnsta kosti ekki hingað
til tengt kröfur sínar um brottflutn-
ing sovéskra hersveita við sjóheri
NATO-ríkjanna. Fallist Sovétmenn
á tilboð Bush án skilyrða um sjó-
heri, gætu þeir boðið að fækka enn
frekar síðar í herliði sínu í Austur-
Evrópu gegn fækkun í sjóheijum.
En til þess þyrftu þeir einnig stuðn-
ing hinna Varsjárbandalagsríkj-
anna og hann er ekki vís. Þvert á
móti er vel hugsanlegt að þau
þrýstu á um einhliða fækkun í því
herliði Sovétmanna sem eftir yrði,
áður en kæmi að frekari samninga-
viðræðum við NATO-ríkin.
Hin hraða þróun afvopnunarmála
í Evrópu og breytingarnar í Aust-
ur-Evrópu kunna þannig að valda
því að sjóherir komist fyrr og ofar
á dagskrá afvopnunarviðræðna en
búist hefur verið við, en kunna einn-
ig að leiða til meiri óvissu um fram-
gang málsins en nú er. Til að byija
með verður fróðlegt að sjá hvernig
Sovétmenn svara hinu nýja tilboði
Bush, en búast má við fyrstu við-
brögðum eigi síðar en á fundum
James Bakers, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, með starfsbróður
sínum, Edúard Shevardnadze, og
öðrum sovéskum ráðamönnum í
Moskvu nú fyrir helgina.
Höfundur er framkvæmdastjóri
Oryggismálanefhdar.
Samtökin Hjálpum börnum:
Framhaldsaðal-
fimdur annað kvöld
SAMTÖKIN Hjálpum börnum
héldu stoliifund sinn á degi Sam-
einuðu þjóðanna 24. október
síðastliðinn. Tilgangur samtak-
anna er að stuðla að bættum hag
barna og fjölskyldna þeirra og
hafa áhrif á viðhorf til barna í
samfélaginu.
Á stofnfundinum voru kynnt
ýmis þau vandamál, sem blasa við
félagsmönnum, svo.sem ófullnægj-
andi sjúkrahús, slysatíðni meiri en
í öðrum löndum, sundurslitinn
skóladagur, sem veldur því að fjöldi
ungra barna gengur forsjárlaus á
degi hveijum, ofbeldi meðal barna,
H RANNSÓKNAÞJÓNUSTAN
gengst fyrir ráðstefnu um steiking-
arfeiti í dag, miðvikudaginn 7. febr-
úar að Borgartúni 6 kl. 13—17.
Þar verður fjallað um steikingar-
feiti frá ýmsum sjónarhornum svo
sem eiginleika, hollustu og notkun.
alvarlegur skortur á aðstoð til skiln-
aðarfjölskyldna og margt fleira.
Framhaldsstofnfundur samtak-
anna verður haldinn fimmtudaginn
8. febrúar kl. 20.30 í Borgartúni 6.
Fundurinn er opinn öllum sem
bera velferð barna fyrir brjósti.
(Fréttatilkynning)
KYOLIC
Eini aiveg lyktarlausi hvitiaukurinn.
2ja ára kælitæknivinnsla (20 mán.
+ 4 mán.) sem á engan sinn líka í
veröldinni.
ORÐSENDING TIL VIÐSKIPTAVINA:
INNKAUPASTJÓRAR, VERSLUNARSTJÓRAR
Bananasalan hf. og Sölufélag garöyrkjumanna hafa nú sameinað
krafta sína.
Með sameiningu fyrirtækjanna, sem búa bæði yfir mikilli reynslu og
þekkingu á sínu sviði, gefst kostur á að veita viðskiptavinum beggja
fyrirtækjanna betri, hagkvæmari og fjölbreyttari þjönustu.
Söluskrifstofur verða til húsa að Elliðavogi 105 í Reykjavík og
verða símanúmer óbreytt.
SÖLUFELAG
"GARÐYRKJUMANNA
s. 678900
h/f
s. 674090
Hefur meiri áhrif en hrár hvítlaukur.
Er gæðaprófaður 250 sinnum á
framleiðslutímanum.
Á að baki 35 ára stöðugar rann-
sóknir japanskra vísindamanna.
Lífrænt ræktaður í ómenguðum
jarðvegi án tilbúins áburðar eða
skordýraeiturs.
Öll önnur hvítlauksframleiðsla notar
hitameðferð.
Hiti eyðileggur hvata og virk efna-
sambönd í hvítlauk og ónýtir
heilsubætandi áhrif hans.
- KYOLIC DAGLEGA -
Það gerir gæfumuninn
KYOLIC fæst í heilsuvöru- og lyfja-
verslunum og víðar.
Heildsölubirgðir
LOGALAND
heildverslun, Símar 1-28-04.
vmmfm
Léttir
meöfærilegir
vióhaldslitlir.
Avallt fyrlrtigajandl.
Góð varahlutaþjónusta.
i Þ. ÞQRGRÍMSSON & CQ Á.mu..,m. sb&.
nnnniun tíiFnlmíiii - nmi w»ni ■ imi
immiti iihiiíui uumli - inm imiiuih
Þu þekkir ekki Braga
fyrr en þú hefur prófað
Santos-blönduna!
w r i ~ m
Kaffibrennsla Akureyrar hf.