Morgunblaðið - 10.03.1990, Side 2

Morgunblaðið - 10.03.1990, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. MARZ 1990 Forvextir afvíxlum lækka VEXTIR viðskiptabanka breytast um helgina. Forvextir víxla hjá Islandsbanka, Samvinnubanka og sparisjóðum verða svipaðir og hjá Landsbanka og Búnaðarbanka, eða frá 18,25%-18,5% og lækkar meðaltaJ forvaxta af víxlum úr 19% í 18,4%. Einar Oddur Krist- jánssön formaður VSI segir þetta vera í samræmi við það sem von- ast var til. Forvextir íslandsbanka af víxlum lækka úr 19,75% í 18,25%, hjá Sam- vinnubanka lækka þessir vextir úr 19% í 18,25%, og hjá Sparisjóðunum úr 19,5% í 18,5%. Vextir yfirdráttar- lána breytast einnig, og lækka þeir íslandsbanka úr 22,25% í 20,5%. í gildandi kjarasamningum var gengið útfrá því að vaxtabreytingar viðskiptabanka kæmu til fram- kvæmda í upphafi hvers mánaðar. Um seinustu mánaðamót þótti aðil- um vinnumarkaðarins lækkun víxil- vaxta ekki í réttu hlutfalli við þróun skuldabréfavaxta. Þær breytingar sem nú verða munu hins vegar færa þetta hlutfall aftur í það horf sem kveðið var á um í samkomulagi bank- anna og samningsaðila. Morgunblaðið/Árni Sæberg Sinfóníunni fagnað á 40 ára afmælistónleikum Hátíðatónleikar í tilefni af 40 ára afmæli Sinfóníuhljómsveitar íslands voru haldnir í Háskólabíói í gærkvöldi og fögnuðu afmælisgestir ákaft í ]ok tónleikanna. Tvö verk voru á efnisskránni, Sellókonsert eftir Jón Nordal og Sinfónía nr. 2 eftir Gustav Mahler. Einleikari var Erling Blönd- al Bengtsson en einsöngvarar Signý Sæmundsdóttir og Rannveig Fríða Bragadóttir. Auk þess söng kór íslensku óperunnar. Hljómsveitarstjóri var Petri Sakari en kórstjóri Peter Locke. Aflamiðlun: Lausn í sjónmáli LAUSN virðist vera í sjónmáli hvað varðar deilur um Aflamiðlun, staðsetningu hennar og starfsmannahald. Stjórn Aflamiðlunar mun koma saman nú á mánudag, þar sem samþykkt verður, samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins, að starfsemi Aflamiðlunar verði til reynslu til húsa hjá Landssambandi íslenskra útvegsmanna um Þriggja mánaða skeið og að stjórn Aflamiðlunar fái sjálfstæðan Qár- hag. Guðmundur J. Guðmundsson, formaður Verkamannasambands íslands, sagði í samtali við Morgun- ■ blaðið í gær að menn væru að ræð- ast við og teldu sig vera að nálgast samkomulagsgrundvöli. „Nú er ekki tími til stórra yfirlýsinga," sagði Guðmundur. Samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins hefur VMSI gengist inn á þá málamiðlun að til reynslu verði starfsemi Aflamiðlunar til húsa hjá LIU og verði hún með sérstakan fjárhag, aðskilinn frá rekstri LÍÚ. Unnið verði að því, þegar einhver reynsla er komin á rekstur Afla- miðlunar og sýnt er hver umsvif hennar verða, að meta hver þörfin verði fyrir aðstöðu Aflamiðlunar. Hátíð í Hóladómkírkju Sauðárkróki. Morfoinblaðið/Ámi Sæberg Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra leikur fyrsta leikinn fyrir Simen Agdestein gegn Júsúpov í Stórveldaslagnum í gærdag. Stórveldaslagiir á skákborði STÖRVELDASLAGURINN í skák hófst í gær. Sovétmenn báru sigur- orð af Norðurlöndunum með 5 'L gegn 4 'h og Bandaríkjamenn sigr- uðu Breta með sama vinningshlutfalli. Helstu úrslit í viðureign Norður- landanna og Sovétríkjanna urðu þau að Agdestein og Júsúpov gerðu jafn- tefli á fyrsta borði, svo og Helgi Ólafsson og Eingom á öðru, og Margeir Pétursson og Vaganjan á þriðja borði. Á fjórða borði vann Sokolov Hellers, Jóhann Hjartarson sigraði Gúrevítsj á tíma í 39. leik á fimmta borði. Jón L. Ámason féll einnig á tíma í 39. leik gegn Dol- matov á 6. borði. í viðureign Bandaríkjamanna og Breta sigraði Bandaríkjamaðurinn Gulko Bretann Short á fyrsta borði, á öðru borði gerðu Seirawan og Spe- elman jafntefli, og á því þriðja sigr- aði Bretinn Nunn Fedorowiez. Þá gerðu Bandaríkjamaðurinn deFerm- ian og Hodgson jafntefli á því fjórða, og Bandaríkjamaðurinn Christiansen sigraði Adams á fimmta borði. í dag mætir sveit Norðurlandanna Bandaríkjamönnum, og Bretar Sov- étmönnum. Keppni hefst klukkan 17 og verður öllum skákum lokið klukk- an 23. Sauðárkróki. í TILEFNI þess að kirkjan hefiir nú heimt úr viðgerð hina fornu og fögru altarisbrík, og að sett hefur verið upp nýtt pípuorgel af Fröbenius-gerð, verður hátíð- armessa í Hóladómkirkju á morgun, sunnudag, klukkan 14. Þar predikar séra Hjálmar Jóns- son á Sauðárkróki, en altarisþjón- ustu annast séra Gísli Gunnarsson í Glaumbæ og séra Sigurður Guð- mundsson vígslubiskup á Hólum. Kirkjukórar- prófastdæmisins syngja undir' stjóm Hauks Guð- laugssonar söngmálastjóra. Sér- stakur heiðursgestur við athöfnina verður frú Vigdís Finnbogadóttir forseti íslands. Að lokinni messu Glasafijóvganir á Landspítala hefjast á árinu: Búizt við aukinni eftirspum þeg- ar starfsemin flyzt til landsins RÁÐGERT er að hefja glasafrjóvgun á kvennadeild Landspítalans síðar á árinu. Til að byrja með verða gerðar um 100 aðgerðir á ári, en þeim verður hægt að fjölga í 200-250 án.mikils kostnaðarauka. Að sögn Jóns Hilmars Alfreðssonar, yfirlæknis á kvennadeildinni, er talið að hver aðgerð verði um helmingi ódýrari hér á landi en ef hjón þyrftu áfram að fara utan til glasafijóvgunar. Þá er búizt við að eftirspurn eftir glasafrjóvgun aukist er þessi starfsemi flyzt hingað heim. „Síðustu tvö ár hafa hjón farið til útlanda að fá glasaftjóvgun með styrk Tryggingastofnunar. 1988 voru hátt í 100 umsóknir sam- þykktar hjá Tryggingastofnun og nærri 130 á síðasta ári,“ sagði Jón Hilmar. „Þetta er það, sem við höfum til að taka mið af. Við teljum að þessar tölur kunni að hækka nú þegar þessar aðgerðir verða framkvæmdar hér. Núna háttar svo til að Tryggingastofnun greiðir meðferðina, en fólk þarf sjálft að greiða ferðakostnað og uppihald og sum hjón hafa ekki efni á slíku. Þá kann svo að fara að fólk, sem ekki treystir sér til útlanda í að- gerð, til dæmis vegna tungumála- erfiðleika, vilji nýta sér þessa nýju þjónustu. Við erum því að tala um að hér geti þetta orðið um 200 meðferðir á ári, gæti farið upp í 250.“ Gl asaftj óvgu n araðgerði r, sem íslenzkar konur hafa gengizt undir í Englandi, kosta um 200.000 krón- ur hver, og er þá ekki tekið tillit til vinnutaps hjónanna, sem kann að nema allt að sex vikum hjá hvoru. Kostnaður við aðgerðirnar hér heima er áætlaður 169.000 krónur, og vinnutap hjóna er vænt- anlega miklu minna. Jón Hilmar sagði að búizt væri við að um helm- ingur heildarkostnaðar við hveija aðgerð erlendis sparaðist við að flytja starfsemina inn í landið. I fjárlögum fyrir þetta ár fékkst heimild til að ráða fimm starfsmenn til glasafijóvgana á kvennadeild Landspítalans. Hins vegar fékkst engin heimild til kaupa á þeim búnaði, sem til þarf, en hann kost- ar tæpar níu milljónir króna. Reikn- að er með að spara 4,1 milljón af launakostnaði, þar sem starfsemin fer ekki í gang fyrr en á miðju ári. Því vantar 4,8 milljónir upp á stofnkostnaðinn, og vonazt er til að sú upphæð safnist frá félaga- samtökum og einstaklingum á næstu tveimur árum eða svo. Tíma- bundið verða Ríkisspítalar að fjár- magna tækjakaupin, yigi starfsem- in að geta hafizt á árinu. Gert er ráð fyrir að sjúklingar greiði göngudeildargjald fyrir hveija komu á göngudeild og að það gæti orðið um 15.000 krónur á meðferð. Þær tekjur myndu þá ganga á móti öðrum rekstrargjöldum. Sá mannafli og tækjabúnaður, sem fjárfest verður í á árinu, mun auð- veldlega anna 200-250 aðgerðum, þótt gert sé ráð fyrir 100 aðgerðum árlega í fyrstu. flytja ávörp vígslubiskupinn, séra Sigurður Guðmundsson, Óli Þ. Guðbjartsson kirkjumálaráðherra og Guðmundur Guðmundsson framkvæmdastjóri Hólanefndar. ——BB 4.000 tonn af steinolíu send til baka FARMUR af steinolíu sem Olís hf. hafði keypt á Rotterdam-markaði reyndist ekki uppfylla gæðakröfur þær sem félagið setur. Að sögn Óla Kr. Sigurðssonar, forstjóra Olís, var þarna um 4.000 tonn að ræða og andvirði steinoliufarms- ins um 60 milþ'ónir króna. Hann sagði Olís ekki munu lenda í birgðavandræðum vegna þcssa. Skipið yrði sent úr landi og fengi Olís annan farm í staðinn. Strangar gæðakröfur eru gerðar til steinolíu sem annarra olíutegunda og eru ávallt teknar prufur þegar farmar koma til landsins. Reka olíu- félögin rannsóknarstofu í samein- ingu sem sér um þær rannsóknir. Ekki er leyfilegt að losa skipin fyrr en hún hefur gefíð álit sitt. Að þessu sinni reyndist steinolían ekki stand- ast settar kröfur en aðrar olíutegund- ir reyndust í lagi. Óli Kr. Sigurðsson sagði ekki vera vitað hvað hefði komið fyrir farminn. Líkleg skýring væri að steinolían hefði blandast öðrum olíutegundum sem voru einnig í farmi skipsins. Skipið lenti í óveðri á leiðinni til ís- lands og tók ferðin af þeim sökum níu daga í stað fjögurra undir venju- legum kringumstæðum. Aðspurður um hvort Olís yrði fyrír fjárhagslegu tjóni af þessum sökum sagði Óli að svona hlutir væru alltaf áfall en fé- Iagið væri tryggt fyrir atvikum sem þessum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.