Morgunblaðið - 10.03.1990, Page 4

Morgunblaðið - 10.03.1990, Page 4
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. MARZ 1990 Engar formlegar samninga- viðræður Stöðvar 2 og Sýnar ENGAR formlegar sameiningar- viðræður hafa átt sér stað milli forsvarsmanna Stöðvar 2 og Sýn- ar, sem hyggur á rekstur þriðju sjónvarpsstöðvarinnar hér á landi á næstu mánuðum, að sögn Jó- hanns J. Ólafssonar, stjórnarform- anns Stöðvar 2. Hann útilokar þó ekki að einstakir hluthafar innan beggja fyrirtækjanna hafi ræðst við óformlega um hugsanlega Framfærsluvísitalan: Síðastliðna tólf mánuði hefur vísit- ala framfærslukostnaðar hækkað um 21,6%. Undanfama þrjá mánuði hef- ur vísitalan hækkað um 3%, sem jafn- gildir 12,4% verðbólgu á heilu ári. sameiningu þessara tveggja frjálsu stöðva. „Ég geri ráð fyrir að sögusagnir um sameininguna séu til komnar af því að menn sjá hið augljósa eða upplagða — og skilja ekki tilganginn í því að hér séu þijár stöðvar að keppa um markaðinn með svipað efni,“ segir Jóhann. „Stöð 2 hefur lagt áherslu á gott, erlent afþreying- Vísitalan í marz er 142,7 stig, en var 100 stig er nýr vísitölugrunnur var tekinn upp í maí 1988. Miðað við eldra grunn er vísitalan nú 349,9 stig miðað við 100 í febrúar 1984. arefni og ríkissjónvarpið hefur mætt þeirri samkeppni með því að efla þennan þátt í dagskrá sinni. Ef þriðja • stöðin bætist nú við með áherslu á erlent afþreyingarefni mun Stöð 2 mæta þeirri samkeppni, svo að ekki er ólíklegt að ríkissjónvarpið muni líka telja sig nauðbeygt til að auka hlut afþreyingarinnar til að halda stöðu sinni á markaðinum og fjar- lægjast þar með enn frekar hið menningarlega hlutverk sitt. Ég leyfi mér að efast um að mönnum þyki þetta eftirsóknarverð þróun.“ Jóhann vildi ekki staðfesta að í ljós væri komið að umtalsvert tap hefði orðið á starfsemi Islenska sjón- varpsfélagsins — Stöðvar 2 og ís- lenska myndversins — á síðasta ári, en rekstur þessara fyrirtækja hefur nú verið sameinaður. Hann segir endanlega reikninga fyrirtækisins ekki liggja fyrir, og fyrr en þá geti hann ekkert um málið sagt. Þegar endurfjármögnun fyrirtæk- isins fór fram um síðustu áramót og nýir aðilar gengu inn í félagið með nýtt iilutafé var fullyrt að hagnaður yrði á starfseminni. Hækkun um 0,8% í febrúar VÍSITALA framfærslukostnaðar hefur hækkað um 0,8% frá síðasta mánuði samkvæmt útreikningum kauplagsnefindar í marzbyrjun. Sam- kvæmt tilkynningu Hagstofúnnar verður þessi hækkun ekki rakin til sérstakra tilefna, og matvöruliður vísitölunnar hefur ekki hækkað á þessum tíma. VEÐUR VEÐURHORFUR I DAG, 10. MARZ YFIRLIT í GÆR; Vestan- og norðvestan kaldi á landinu. Él eða snjókoma var við norðurströndina, en annars þurrt og víða bjart veður. Mildast var á Vatnsgarðshólum, 3ja stiga frost, en kaldast á Hveravöllum og á Grímsstöðum, 12 stiga frost. SPÁ: Austanátt um mest allt land. Hvasst, snjókoma og skafrenn- ingur syðst á landinu, en taisvert hægari og úrkomulítið í öðrum landshlutum. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á SUNNUDAG; Austan- og norðaustan um land allt. Snjókoma eða él á víð og dreif norðan- og austanlands, en úrkorriu- laust á suðvesturlandi. Frost á bilinu 5 til 12 stig. HORFUR Á MÁNUDAG: Vestlægar áttir. Sumstaðar él við norður- og vesturströndina, en annars þurrt og víða bjart veður. Frost 2 til 8 stig. TAKN: Heiðskírt y, Norðan, 4 vindstig: " Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. r r r r r r / Rigning r r r * r * r * r * Slydda r * r * * * * * * * Snjókoma ■J0° Hitastig: 10 gráður á Celsius Skúrir * V El = Þoka = Þokumóða ’ Súld OO Mistur —|- Skafrenningur Þrumuveður w VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hlti weftur Akureyri -f-5 úrkoma í grennd Reykjavík +4 úrkoma í grennd Bergen 3 slydduél Helsinki +1 snjókoma Kaupmannah. 3 slydduél Narssarssuaq -r20 heiðskírt Nuuk +10 léttskýjað Osló 4 úrkoma (grennd Stokkhólmur 5 rigning Þórshöfn 2 léttskýjað Algarve 21 heiðskírt Amsterdam 8 skúr á síð.klst. Barcelona vantar Berlin 4 skúr Chicago 4 þokumóða Feneyjar 9 þokumóða Frankfurt 12 skýjað Glasgow 4 snjóél á sið.klst. Hamborg 6 skúr á síð.sklst. Las Palmas 21 léttskýjað London 11 skýjað Los Angeles 12 skýjað Lúxemborg 9 skýjað Madrid 16 léttskýjað Malaga 16 þokumóða Mallorca 18 léttskýjað Montreal +7 léttskýjað New York 2 léttskýjað Orlando 15 léttskýjað Paris 12 skýjað Róm vantar Vín 17 alskýjað Washington 5 skúr á síð.kist. Winnipeg 1 alskýjað Morgunblaðið/Bjöm Blöndal Skemmdir kannaðar á Höfrungi GK 27 í dráttarbrautinni LNjarðvík í gær, þar sem viðgerð fer nú fram. Búið er að taka skrúfú og stýri af bátnum sem skemmdust við strandið. Strand Höfrungs við Grindavík: Stýrimaðurinn sofiiaði í brúnni Slökkt var á vökustaur skipsins Keflavík. STÝRIMAÐURINN á Höfrungi GK 27 var einn í brúnni og féll í svefii skömmu áður en báturinn strandaði við Stórubót sem er vestan við innsiglinguna til Grindavíkur á fimmtudagsmorgun. Þetta kom fram við sjópróf hjá Bæjarfógetanum í Keflavik í gær. Fram kom að stýrimað- urinn hafði verið vakandi í hartnær sólarhring þegar skipið strandaði og að slökkt var á svokölluðum vökustaur. Nokkrar skemmdir urðu á botni bátsins sem nú er til viðgerðar í Njarðvíkurslipp, en vonast er til að bráðabirgðaviðgerð ljúki i næstu viku. Við sjóprófin kom fram að Höfr- ungur GK 27 hafði farið til netaveiða á stað á Selvogsbanka, sem er um 20 sjómílur s.s.a. af Grindavík kl 17:00 á miðvikudag og skipveijar farið að draga netin um kl 20:00 um kvöldið. Þeir hefðu dregið 10 trossur og voru að alla nóttina. Um kl 06:00 um morguninn hefði verið lagt af stað til Grindavíkur og tók þá stýri- maðurinn við stjórn bátsins af skip- stjóranum ásamt 2. vélstjóra sem gætti vélarinnar. Fram kom að svo- kallaður vökustaur, sem er í brúnni, er tæki sem þarf að endurstilla innan ákveðins tíma og með ákveðnu milli- bili, að öðrum kosti byijar tækið að flauta. Skipstjórinn skýrði frá því að þetta tæki, sem kom um borð í haust, væri ekki mikið notað, því endurstillingartíminn væri bæði stuttur og mismunandi. Þeir hefðu haft annað tæki sem stilla þurfti á 15-17 mínútna millibili sem væri ágætt og þeim líkað vel við, en það hefði bilað og verið sett í land. Stýrimaðurinn kvaðst hafa farið seint að sofa nóttina áður en lagt var af stað í róðurinn, sofið í um 6 tíma, og fram kom að hann hafði verið vakandi í næstum sólarhring þegar báturinn strandaði. Stýrimað- urinn skýrði frá því að hann hefði kveikt á vökustaumum, en slökkt á honum aftur þar sem hann hefði brugðið sér niður eftir kaffi. Hann hefði komið upp aftur að vörmu spori, fengið sér sopa af kaffinu og síðan myndi hann ekki eftir sér fyrr en báturinn hefði strandað. Skemmdir urðu á skrúfu Höfrungs GK 27, stýri, slingurbrettum, botni og botnstykkjum dýptarmæla og fiskileitartækja. Guðlaugur Óskárs- son framkvæmdastjóri Hópsnes hf., útgerðarfélags Höfrungs í Grindavík, sagðist ekki geta áætlað hversu tjó- nið væri mikið. Stefnt væri að ljúka bráðabirgðaviðgerð sem fyrst, vonast væri til að báturinn kæmist á veiðar strax í næstu viku og líkur væru á að tekist hefði að leigja annan bát handa áhöfninni til að draga netin á meðan Höfrungur væri í slipp. Að sögn Guðlaugs var Höfrungur með 18 tonn af ufsa þegar hann stran- daði. BB Sjávarútvegsráðherra: Til viðræðna í Japan HALLDÓR Ásgrímsson, sjávar- útvegsráðherra, mun dagana 12.-17. þessa mánaðar dvelja í Japan í boði þarlendra stjórn- valda. Þar mun hann meðal ann- ars eiga viðræður við ráðamenn um aukin viðskipti landanna á sviði sjávarútvegs. í Japan mun ráðherra einnig heimsækja íslenska sýningardeild á matvæiasýningunni Foodex 90 í Tokyo, og heimsækja japönsk fyrir- tæki. Á heimleiðinni dvelur ráð- herra við í Bandan'kjunum, og skoð- ar þar m.a. hina árlegu sjávarút- vegssýningu í Boston. Maður lést af slysförum Maðurinn, sem fórst þegar trilla frá Sandgerði sökk vestur af Garðsskaga á fimmtudag, hét Ástþór Ægir Gíslason. Ástþór var á 58. aldursári, fæddur 25. september árið 1932. Hann var búsettur í Sandgerði og lætur eftir sig sex uppkomin böm. Tildrög slyssins eru ekki kunn, að sögn rannsóknarlögreglunnar í Keflavík. Skýrslur höfðu ekki verið teknar í gær vegna málsins, en til stóð að gera það í gærkvöldi eða í dag. Ástþór Ægir Gíslason. r I i i i i i i t i < i

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.