Morgunblaðið - 10.03.1990, Qupperneq 11
_________________________MQKGl^NpM.ÐIf> íiAyqAftDAGUR,l,q.,MARZ:_
Reglugerð um sérkennslu
eftirHelga Viborg
TJndanfarið ár hefur reglugerð
um sérkennslu verið í endurskoð-
un. Vinnubrögð við þá endurskoð-
un hafa verið sérstæð og mennta-
málaráðuneytinu til lítils álitsauka.
Það sem einkum vekur furðu
margra kunnugra er að við skipan
nefndar til að endurskoða reglu-
gerðina hafa ýmsir fagaðilar al-
gjörlega verið sniðgengnir. Sál-
fræðingum og læknum sem vinna
lögum samkvæmt að greiningu og
meðferð barna með sérþarfir var
t.d. markvisst haldið fyrir utan
þessa nefndarvinnu.
Fyrstu drög að reglugerðinni
voru send til fjölmargra umsagnar-
aðila. Héldu margir að yfirlýst
stefna menntamálaráðherra um
lýðræðislega þátttöku ólíkra fag-
aðila við stefnumótun væri hér í
framkvæmd. Við nánari athugun
reynist svo ekki vera. Við saman-
burð á fyrstu drögum að sér-
kennslureglugerð og lokaáliti
nefndarinnar er nánast um sama
plagg að ræða. Nefndin hefur ekki
séð ástæðu til að taka tillit til
breytingatillagna frá ýmsum aðil-
um. Þá hefur nefndin reynt að
sniðganga faglega umræðu um
málið, þannig vita t.d. fæstir skóla-
stjórar um hvað málið snýst, hvað
þá að umræður skólastjóra, kenn-
ara, sérkennara og skólasálfræð-
inga hafi verið um reglugerðina.
Hér yrði of langt mál að gera
grein fyrir öllu sem miður fer í
fyrirliggjandi nefndaráliti um sér-
kennslureglugerð og einungis bent
á nokkur almenn atriði.
í fyrsta lagi er réttur barna til
séraðstoðar óljós. Samkvæmt
nefndarálitinu geta hvorki fagaðil-
ar né foreldrar sótt einhveija lág-
marksþjónustu til handa börnum
með sérþarfir.
í öðru lagi er settur kvóti á sér-
þarfir barna. Það þýðir að úthlutun
sérkennslumagns til fræðsluum-
dæma er fastákveðin, 0,23 vik-
utímar á hvern nemanda, óháð
faglegri úttekt á eðli og umfangi
sérkennsluþarfa og óháð mjög mis-
munandi aðstöðu í fræðsluumdæ-
munum. Engar leiðbeinandi reglur
eru hafðar til hliðsjónar um það
hvernig standa skuli að úthlutun
tímamagns til barna með sérþarfir
innan grunnskólans eftir umfangi
vandkvæða þeirra. Miðstýrt kvóta-
kerfi af þessu tagi þjónar einungis
fjárveitingavaldinu en skilur eftir
vanda skóla og foreldra sem bera
hag barna með sérkennsluþarfir
fyrir bijósti. Kvótakerfi við úthlut-
un sérkennslumagns lýsir faglegri
uppgjöf og skilningsleysi á eðli
sérkennslumála. Einnig er það í
andstöðu við þá óumflýjanlegu og
sjálfsögðu þróun að nemendur,
sem hingað til hefur verið ætlað
að vera í sérskóla, fái kennslu við
hæfi í sínum heimaskóla. — Það
er ástæða til að benda á að hér
er ekki verið að tala um þorska
heldur börn og möguleikar þeirra
til að vera sjálfum sér og öðrum
til gagns og ánægju í framtíðinni.
I þriðja lagi vantar allar skil-
greir.ingar á fötlunum barna sem
liggja til grundvallar sérþörfum
þein-a. Með slíku fyrirkomulagi er
ógjömingur að gæta samræmis í
úthlutun þjónustu til þessara
barna. Með öðrum orðum er veru-
leg hætta á því að slíkt kerfi leiði
„Héldu margir að yfir-
lýst stefiia menntamála-
ráðherra um lýðræðis-
lega þátttöku ólíkra
fagaðila við stefiiumót-
un væri hér í fram-
kvæmd. Við nánari at-
hugun reynist svo ekki
vera.“
til mismununar sem erfitt er að
verja með hliðsjón af markmiðs-
setningu grunnskólalaga.
í fjórða lagi er horfið frá vinnu-
brögðum sem þróast hafa á milli
fagaðila innan grunnskóla í
Reykjavík og flestir sem til þekkja
eru ánægðir með. í því sambandi
má nefna að samstarfsvettvangur
á borð við svokölluð nemenda-
verndarráð er afnuminn í núver-
andi mynd. Samkvæmt nefndará-
litinu eiga t.d. sálfræðingar og
hjúkrunarfræðingar ekki lengur
að sitja í nemendaverndarráði.
Almennar afleiðingar nefndar-
álitsins um sérkennslu eru þær að
miðstýring þessa málaflokks verð-
ur nánast alger. Fræðslustjóri og
sérkennslufulltrúi hans eiga að
vera, að því er virðist, einir um
ákvörðunartöku um það hver á að
fá sérkennslu og hversu mikla.
Ruglandi við framkvæmd sér-
kennslumála verður verulegur þar
sem reglugerðin stangast í mörg-
um atriðum á við lögboðnar skyld-
ur einstakra fagaðila sem hafa
með þessi mál að gera í dag. Fag-
aðilar eins og skólasérfræðingar
eru settir út í kuldann og faglegt
mat þeirra (greining á þörf nem-
andans fyrir sérkennslu) á ekki að
skipta máli nema ofangreindir aðil-
ar séu sáttir við það.
Sérkennslureglugerðin á ekki að
vera valdaplagg heldur á hún að
fjalla um réttindi barna sem þurfa
séraðstoð. Hún á að fjalla um
hvernig á að meta þessa þörf fag-
lega, hvernig samvinnu ólíkra fag-
aðila á að vera háttað og hvernig
þeir í samvinnu ákvarða hvernig
þjónustan skilar sér best til barn-
anna.
Miðstýringarhugmyndir nefnd-
arinnar ganga þvert á yfirlýstar
skoðanir núverandi ráðherra, Sva-
vars Gestssonar. Hugmyndir hans
fela í sér að skólarnir eigi að vera
sem sjálfstæðastir. Ákvörðunar-
taka og ábyrgð eiga að vera þar
en ekki hjá einhveijum embættis-
manni langt í burtu.
Skólasálfræðingar hafa lagt til
að í reglugerð um sérkennslu verði
ljóst í hveiju þjónusta við nemend-
ur á að vera fólgin og hvernig eigi
að meta og framkvæma þjón-
ustuna þannig að kennarar, for-
ráðamenn barnanna og aðrir viti
að hveiju þeir geta gengið. Reglu-
gerðin á að tryggja frið á milli
faghópa og um leið góða samvinnu
þeirra. Hagsmunir barna með sér-
þarfir eiga að sitja í fyrirrúmi.
Hagsmunagæsla af öðru tagi á
ekki að eiga sér stað.
Höfundur er forstöðumaður
sálfræðideildar skóia.
Kirkja Óháða safnaðarins.
Nýmessa
hjá Óháða
söfiiuðinum
Á SUNNUDAGINN kemur, 11.
mars verður Nýmessa í Kirkju
Óháða safnaðarins og hefst hún
kl. 17.00. I heimsókn koma góðir
gestir og Sr. Einar Eyjólfsson,
fríkirkjuprestur í Hafharfirði
flytur erindi um fríkirkjuformið
og segir frá safiiaðarstarfinu í
Hafnarfirði.
„Hópur án skilyrða" syngur létt
kristileg lög. Hópinn skipa: Þorvald-
ur Halldórsson, Margrét Scheving
og Páll Magnússon.
Kirkjukórinn mun dreifa sér um
kirkjuna og reynt verður að virkja
alla kirkjugesti í almennum safnað-
arsöng. Safnaðarfólk sér um ritn-
ingarlestur og bænir.
Kaffiveitingar eftir messu.
'Þórsteinn Ragnarsson,
safhaðarprestur.
Þ.ÞORCRlMSSON&CO
E3QSBQ00.
gólfflísar- kverklistar
ÁRMÚLA29, SÍMi 38640
ekmfstofuhOsgögn
allt að
Opið í dag
kl.10-16
HEDVHLISHlJSGiÖGN
afsláttur