Morgunblaðið - 10.03.1990, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 10.03.1990, Qupperneq 12
12 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. MARZ 1990 Evrópubandalag útvarpsstöðva 40 ára: Dagleg fréttaskipti, fyrir- greiðsla og söngvakeppni • • Rætt við Markús Orn Antonsson, útvarpsstjóra, um starfsemi bandalagsins „HJÁ Evrópubandalagi útvarpsstöðva stendur margt á gömlum merg, en þróunin í tæknimálum er ör og margt nýtt á döfinni. Við höfúm aukið þátttöku í samstarfinu undanfarin ár og munum halda áfram að tengjast bandalaginu sterkari böndurn," sagði Markús Orn Antonsson, útvarpsstjóri. Evrópubandalag útvarpsstöðva, EBU, er 40 ára um þessar mundir og af því tilefni var útvarpsstjóri tekinn tali og beðinn um að segja frá starfi bandalagsins. Markús Öm sagði að 23 útvarps- stöðvar hefðu stofnað bandalagið fyrir 40 árum, en nú væru stöðvarn- ar 39. „EBU tekur til ákveðins svæðis, samkvæmt sáttmálum um samstarf í fjarskiptum," sagði hann. „Innan bandalagsins eru Vestur-Evrópuríkin, ásamt ríkjum við Miðjarðarhaf. Það er því oft vitnað til þess, _að bandalagið nái yfir svæðið frá íslandi til Jórdaníu. I fyrstu var þetta samstarf útvarps- stöðva og var helst um að ræða skipti á tónlistarefni og hefur það haldist svo. Þá njóta stöðvarnar gagnkvæmrar fyrirgreiðslu ýmiss konar, til dæmis varðandi tæknilega aðstöðu fréttamanna. Það hefur oft komið sér vel vegna fréttaöflunar og íþróttalýsinga frá útlöndum. Þá er Ríkisútvarpið að sjálfsögðu skuldbundið til að veita erlendum frétta- og tæknimönnum sams kon- ar fyrirgreiðslu hér á landi.“ Mikilvæg fréttaskipti Eurovision, samband evrópskra sjónvarpsstöðva, er undirdeild EBU. „Eurovision var stofnað form- lega árið 1954,“ sagði Markús Örn. „Þegar Eurovision er nefnt dettur ýmsum fyrst í hug söngvakeppni sjónvarpsstöðvanna, en samstarfið er þýðingarmest á sviði frétta og íþrótta. Ríkisútvarpið hefur átt að- ild að Eurovision frá því að sjón- varpsútsendingar hófust hér á landi og i október 1987 byijuðum við að taka þátt í daglegum fréttaskiptum. Fjórum sinnum á dag eru stöðvarn- ar í Eurovision í gervihnattasam- bandi. Það fer þannig fram, að opið talsamband er milli allra stöðv- anna og fulitrúi hvdrrar stöðvar segir frá því markverðasta, sem er í fréttum í hveiju landi og býður fram myndefni. Þá tilgreinir hver og einn hvaða efni hann hefur áhuga á frá hinum stöðvunum og ef fimm eða fleiri vilja sama efnið þá er það sent út til stöðvanna. Tii viðbótar þessum aðaltímum fyrir fréttaskiptin geta gervihnattarás- irnar verið opnar fyrir fréttamiðlun meira og minna allan daginn þegar stórviðburðir gerast. Það er ekki oft sem atburðir hér á landi vekja eftirtekt erlendis, en nýlegt dæmi er þó heimsókn Havels, forseta Tékkóslóvakíu. í þessu samstarfi njótum við góðs af fréttum stórra sjónvarpsstöðva, svo sem BBC, frönsku og þýsku stöðvanna og höfum til dæmis haft aðgang að nýjustu fréttum vegna atburðanna í Austur-Evrópu að undanförnu. Alls senda evrópsku stöðvarnar út meira en 10 þúsund fréttamyndir á ári í fréttaskiptum, svo það er af miklu að taka.“ Markús Örn sagði að íþróttaefni væri annar mikilvægasti þáttur þessa samstarfs. „Ákveðna daga í viku eru sendar út langar syrpur frá ýmsum íþróttaviðburðum og íþróttadeild sjónvarpsins hefur öll þau afnot sem hún vill af þessu efni. Þá má ekki gleyma samstarfi stöðvanna vegna stærri viðburða, svo sem heimsmeistarakeppninnar í handknattleik í Tékkóslóvakíu, sem nú stendur yfir. Árið 1988 voru rúmlega 1200 íþróttaviðburðir sýndir á vegum EBU, sem er samn- ingsaðili stöðvanna gagnvart rétt- höfum og hefur nú gert samning um einkarétt á sýningum frá næstu Olympíuleikum og Evrópukeppni og heimsmeistarakeppninni í fótbolta næsta áratuginn." Útvarpsstjóri sagði að EBU stæði enn betur að vígi nú en áður til að ná hagstæðum samningum vegna íþróttaútsendinga, þar sem margar aðildarstöðvar bandalagsins hefðu átt þátt í stofnun Eurosport gervi- hnattarásarinnar, sem sendir út íþróttaefni einvörðungu. Ríkisút- varpið var með í stofnun Euro- sport. „Efni sem ekki nýtist EBU- stöðvunum fer til sýninga á Euro- Markús Örn Antonsson, útvarpsstjóri. Morgunblaöið/Þorkell sport rásinni. Þá hafa landsleikir hér á landi verið sýndir þar.“ Samstarf sjónvarpsstöðva er ekki bundið við Evrópu, því stöðvar í öðrum heimshlutum eru í sams kon- ar samtökurrt og EBU, til dæmis stöðvar í Asíu og Austur-Evrópu. „Þessi sambönd hafa náin sam- skipti við EBU og eiga fulltrúa á aðalfundi bandalagsins. Austur- Evrópubandalagið tekur þátt í dag- legum fréttaskiptum. Þá hefur EBU aðstöðu í Bandaríkjunum og hagur okkar felst í afnotum af gervi- hnattarásum EBU, svo sem þegar fréttamaður okkar þarf að senda fréttir frá Bandaríkjunum." Sameiginleg fréttastofa Evrópustöðvanna Aðildarstöðvar EBU skipta kostnaði við bandalagið með sér eftir ákveðnum gjaldskrárstuðlum, þar sem mið er tekið af fjölda íbúa og sjónvarpstækja og þjóðartekjum. „Nú er verið að ræða um að koma á fót sameiginlegri evrópskri frétta- stöð, sambærilegri við CNN. CNN, sem er bandarísk stöð, hefur sent út Evrópuþætti með ýmsum frétt- um og hliðarefni, en EBU hefur áhuga á að koma á sameiginlegri fréttarás í gervihnetti, sem yrði í gangi allan daginn og fengi efni sitt frá aðildarstöðvunum. Ýmsir fréttatengdir þættir, til dæmis um menningu, listir og ferðamál, gætu nýst okkur mjög vel og þá hef ég landkynníngu í huga. Það eru ekki allir á eitt sáttir um gildi slíkrar fréttarásar, en margir telja að það hljóti að koma að þessu, miðað við þróun í tæknimálum og fjölmiðlun í Evrópu. Áður en til þessa kemur þarf þó að huga að ýmsu, aðallega Ijárhagslegu hliðinni. Ýmsar aðild- arstöðvar, og þar með talið RÚV, hafa tekið það fram, að þær vilji ekki skerða ráðstöfunarfé sitt með þátttöku í sameiginlegri fréttarás, heldur verði hún að vera fjárhags- lega sjálfstæð, til dæmis með tekj- um af auglýsingum. Þá hefur verið rætt um að Evrópubandalagið eða aðrar Evrópustofnanir taki þátt í kostnaðinum." Söngvakeppnin vekur athygli á íslandi Markús Örn sagði að ekki væri vafi á að augu fleiri Evrópubúa hefðu beinst að íslandi eftir að far- ið var að senda fulltrúa í söngva- keppni sjónvarpsstöðvanna. „Um 420 milljónir geta fylgst með keppninni og það er ekki vafi á því að okkar þátttaka hefur vakið at- j hygli á landi og þjóð. Þá er keppn- in héma heima hrein viðbót við úrval íslenskrar dægurlaga- og • textagerðar og samkvæmt könnun vilja 80 íslendingar af hveijum 100 að við tökum þátt í keppninni." Útvarpsstjóri bætti því við, _að hann hefði mikinn áhuga á að Is- lendingar tækju þátt í keppni ungra tónlistarmanna á vegum EBU. Eurovision-keppnin, þar sem ungir einleikarar mætast, er haldin annað hvert ár. Þau ár, sem hún er ekki, er haldin keppni ungra listdansara, „svo það er ekki bara poppið sem lögð er rækt við,“ sagði hann. Þá benti hann einnig á, að liður í sam- starfi sjónvarpsstöðvanna væri út- hlutun Genfar-Evrópuverðlaunanna fyrir handritsgerð. „Vilborg Einars- dóttir og Kristján Friðriksson hlutu viðurkenningu fyrir handrit að sjón- varpsleikritinu Steinbarni, sem Sjónvarpið sýndi á nýársdag. Sjö þeirra tíu verka, sem komust í loka- keppnina, hafa verið unnin fyrir j sjónvarp og þau verða væntanlega í boði í skiptum milli stöðva. Þá höfum við sótt um þýðingarstyrk frá EBU svo hægt sé að hljóðsetja Steinbarn á þýsku.“ Samstarf á tæknisviðinu Tækninefnd EBU hefur verið að undirbúa svokallað háskerpusjón- varp, sem gæti orðið að veruleika úti í heimi árið 1995. „Þegar sent verður út fyrir háskerpusjónvarp munu myndgæðin verða margföld frá því sem nú er og jafnast fylli- lega á við filmu,“. sagði Markús Örn. „Tækninefndin hefur einnig undirbúið nýtt boðkerfi fyrir útvarp, RDS eða Radio Data System. Það virkar þannig, að bílaviðtæki leitar ávallt uppi þá útvarpsrás sem not- endur kjósa að hlýða á. Sem dæmi má nefna, að þegar ekið er um ís- land þarf að leita að Rás 2 eftir því frá hvaða sendi merkin berast. 1 Þessi útbúnaður gerir það hins veg- ar að verkum, að tækið finnur : ávallt sjálfkrafa skýrustu útsend- ingu Rásar 2, hvar sem er á landinu. Tilraunir á þessu sviði hefjast hér á landi seint í ár eða snemma á j næsta ári. Þá býður þessi tækni upp á þann möguleika, að hlustun á útvarpsdagskrá eða hljóðsnældu verði rofin ef koma þarf áríðandi tilkynningu á framfæri. Til þess að nýta tæknina hér á landi þarf ekki miklar breytingar hjá RÚV, en við þurfum að vera samstíga neytend- um og kynna þetta viðtækjaverslun- j um og bílaumboðum, því að mót- Smáskraf um lykla Laufeyjarlykill — Primula acaulis (hybr). Blóm vikunnar Umsjón: Ágústa Björnsdóttir 156. þáttur í lyklaættkvíslinni, sem gengur undir fræðiheitinu Primula, er fjöldinn allur af fögrum og blóm- viljugum fjölærum garðplöntum. Sumar þeirra lifa og dafna hér á landi með mestu ágætum víða í görðum. Margir lyklar fara að lifna fljótlega eftir að hlýna tekur ögn í lofti á vorin og blómgast snemma, en áðurnefnt ættkvíslarheiti er dregið af orðinu primus, (sá fyrsti), og skírskotar einmitt til að margir lyklar blómstra mjög snemma vors. Hinn lágvaxni Júlíulykill (Prim. juliae) og blendingar hans sem hlot- ið hafa heitið Elínarlykill (P. pruhoniciana) sem sjá má m.a. hér og þar í kantbryddingum í blóma- beðum, eru mjög skjótir til að sýna blómskrúð sitt. Sama gildir um Mörtulykil (P. auricula) og blend- ingstegundina Frúarlykil (P. pub- escens), sem er öllu algengari en sú fyrrnefnda og mjög fjölbreytileg í litum blóma. Mun seinni til sprettu og frá- brugðnari er Fryggjarlykill (p. floriandae), sem getur teygt sig upp í 50—80 sm hæð þar sem hann unir sér vel. Hann fer fyrst að blómgast í júlí-ágúst en á enda blómstöngla hans koma ýmist ljós- gul eða koparlit ilmrík blóm. Aðrar lyklategundir sem eru þó mun þekktari erlendis en hér, eru t.d. Huldulykill (P. elatior) og bast- arðar hans, Laufeyjarlykill (P. vulgaris: samnefni P. acaulis) og Sifjarlykill (P. veris). Einna þekkt- ust og útbreiddust þessara tegunda í görðum er vafalaust Laufeyjar- lykill sem er einstaklega blómsæll og býður upp á mikla litadýrð. Hér vottar fyrir Laufeyjarlykli á stöku stað í görðum en hann skartar kannske ekki á sama máta blómum og gerist þar sem sumur eru hlýrri og lengri. Þessi skemmtilegi fjölær- ingur verður 10-15 sm á hæð í full- um blóma, er með nokkuð aflöng blöð með áberandi æðastrengjum. Blómin eru ýmist eintök eða nokkur saman á stuttum þreknum stöngl- um. Krónublöð eru flatkrögótt og breiða því vel úr sér eins og þau gera reyndar á mörgum öðrum lykl- um. Um langt skeið hefur verið fengist mikið við kynbætur á þess- um lykli sem og á Huldu- og Sifjar- lykli og það sem boðið er fram í dag eru því blendingshópar þar sem jafnvel margar tegundir hafa lagt til erfðaefni. Hér er bent sér- staklega á Laufeyjarlykil vegna þess að hann hefur einnig á seinni árum náð vinsældum sem skamm- vinnt inniblóm að vetri og vori til. Blómabændur hér hafa og gripið þennan vorboða sem þeir byija að laða fram til blómgunar þegar í janúar og halda því áfram allt þar til snjóa tekur að leysa. Ég vil benda þeim sem hefðu hug á því að lífga umhverfi sitt um stund með þessari blómfögru jurt, að reyna að velja henni frekar svala vistarveru og umfram allt bjarta, án þess þó að sól skíni þar beinlínis á nema ör- skamma stund, sé þess einhver kostur. Auk þess þarf að hafa góða gát á vökvun, reyna að halda nokk- uð jöfnum raka en alls ekki bleytu. Áburðarögn vikulega eða svo skað- ar ekki. Að lokinni blómgun Lauf- eyjarlykils, sem getur staðið yfir í 3-4 vikur við góðar aðstæður, er rakið að reyna að geyma plöntuna fram á vor, t.d. í bílskúrnum. Þá má gróðursetja hana út í garð.' Þannig má hafa ánægju af þessari „einnota" stofujurt í mörg ár til viðbótar ef vel tekst til. í geymslu má samt ekki gleyma að sletta ögn af vatni á plöntuna af og til. Óli Valur Hansson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.