Morgunblaðið - 10.03.1990, Page 13

Morgunblaðið - 10.03.1990, Page 13
MOKGUNBLADíÐ f.AUGARDAGi;R 10. MAltZ 1990 lít tökutækin eru ekki enn komin á markað hér á landi.“ Beinar útsendingar og ritmálssjónvarp Markús Öm sagði að nýstofnuð undirdeild EBU, Euro Radio, ynni að því að senda efni beint til út- varpsstöðva um gervihnetti. „Hing- að til hefur tónlistarefni verið sent á hljóðböndum milli stöðvanna sam- kvæmt pöntunum, en framtíðin býður upp á beinar útsendingar frá stærstu tónlistarviðburðum álfunn- ar, auk hinna venjulegu skipta á dagskrárefni. Ég vona að innan mjög skamms tíma munum við fá móttökubúnað til að taka þátt í þessu samstarfi.“ Markús Öm sagði, að ekki mætti gleyma því, að samstarf Norður- landaþjóða á sviði sjónvarps og út- varps væri náið. „Það samstarf hefur mikla þýðingu, því við komum okkur saman um stefnumörkun og höfum yfir fimm atkvæðum að ráða innan EBU, því hver stöð hefur eitt fullgilt atkvæði, óháð stærð þeirra,“ sagði hann. „Þá hefur mjög víðtækt norrænt samstarf þróast innan Nordvision, sem er samband sjón- varpsstöðva á Norðurlöndum. Norr- ænt efni í Sjónvarpinu hefur aukist meira undanfarin tvö ár en í mörg ár þar á undan, eða um 40%. Þá hafa norrænu stöðvamar stofnað sjóð til að styrkja framleiðslu fyrir sjónvarp. Hann hefur meðal annars veitt 20 milljónum sænskra króna til myndaflokksins Hvíti víkingur- inn, sem Hrafn Gunnlaugsson stjórnar. Þá vinna Norðurlanda- þjóðirnar saman að ýmsum dag- skrárgerðarverkefnum. Afrakstur þess er meðal annars upptaka á óperu Atla Heimis Sveinssonar, Vikivaka, sem verður fmmsýnd á Norðurlöndunum um páskana. Óperutextinn er eftir Thor Vil- hjálmsson, byggður á sögu Gunnars Gunnarssonar. Verkið var kvik- myndað hér, leikaramir eru íslensk- ir, danska útvarpshljómsveitin flyt- ur tónlistina, leikstjórinn er fínnsk- ur og söngvarar em víða af Norður- löndunum.“ Sjónvarpið er nú að undirbúa rit- máls-sjónvarp, í samvinnu við Norð- urlandastöðvarnar, en það er þegar útbreitt á hinum Norðurlöndunum. Þá geta sjónvarpsnotendur kallað upp á skjáinn texta, þar sem er að finna fréttir og ýmsar hagnýtar upplýsingar. „Við ætlum fyrst í stað að senda ritmálsfréttir á íslensku sem birtar verða á hinum Norður- löndunum og þannig geta íslend- ingar á Norðurlöndum, námsmenn og ferðalangar, fengið fréttir að heiman. Síðar verður þessu kerfi komið á hér á landi. Það verður ekki síst til hagsbóta fyrir heyrnar- skerta,“ sagði Markús Öm Antons- son, útvarpstjóri. Viðtal: Ragnhildur Sverrisdóttir Áskriftarshninn er 83033 Húsnæðiseklan í Haftiarfirði eftirSigurð T. Sigurðsson Dag frá degi versnar ástand hús- næðismála í Hafnarfirði og stöðugt fjölgar þeim lágtekjufjöiskyldum sem langtímum sman verða að sætta sig við ófullnægjandi hús- næðisaðstæður. Vandamálin hrann- ast upp og dæmi eru um sundraðar fjölskyldur. I lok febrúar sl. voru 235 fjöl- skyldur með óafgreiddar húsnæðis- umsóknir á biðlistá hjá stjórn verka- mannabústaða í Hafnarfirði og fari fram sem horfir verða yfir 300 fjöl- skyldur á þeim biðlista á sumri komanda. Til viðbótar þessum mikla fjölda óafgreiddra umsókna um íbúðir í verkamannabústöðum er vitað um tugi fjölskyldna og einstaklinga, sem eru að leita sér að leiguíbúðum en hafa ekki fjárhagslegt bolmagn til að greiða þá orkuleigu sem við- gengst á höfuðborgarsvæðinu. Þrátt fyrir að Verkamannafélag- ið Hlíf hafi á undanförnum árum sent frá sér ítrekaðar áskoranir um úrbætur hafa yfirmenn húsnæðis- mála í landinu ekki látið frá sér heyra eitt einasta orð, að þeir ætli að leiðrétta það hróplega ranglæti, sem lágtekjufólki í Hafnarfirði er gert að búa við. Á síðastliðnu ári fór stjórn verka- mannabústaða fram á að fá að byggja 120 verkamannabústaða- íbúðir á árinu 1990. Bæjarstjórn Hafnarfjarðar mælti með fram- kvæmdinni og gerði ráð fyrir henni í fjárhagsáætlun bæjarins. Aftur á móti er allt aðra sögu að segja um viðbrögð hjá Húsnæðisstofnun ríkisins. Þótt yfirmönnum hús- næðismála sé full kunnugt um hús- næðisvandræði í Hafnarfirði var umbeðið fjármagn skorið niður um rúmlega 73%. Fjármagn var aðeins veitt fyrir byggingu 40 íbúða á næstu 15 mánuðum eða sem svarar 32 íbúðum á árinu 1990. Þetta er ótrúlegt því að á sama tíma og raðherra húsnæðismála og yfirmenn Húsnæðisstofnunar ríkis- ins skera niður fjármagn til félags- legra íbúðarbygginga í Hafnarfirði og viðhalda með því húsnæðis- eklunni, eru ráðherrar ríkisstjórnar- innar að bítast um peninga í hundr- uðum og jafnvel þúsundum milljóna króna í gæluverkefni, sem eðli málsins samkvæmt hljóta að vera langt á eftir húsnæðismálum hvað forgang snertir. í aldarfjórðung áður en núver- andi bæjarstjórnarmeirihluti tók við völdum í Hafnarfirði var félagsleg- um íbúðarbyggingum lítill áhugi sýndur. T.d. voru innan við 6 íbúð- ir byggðar á ári frá 1964-84. Það gefur augaleið að í jafn fjölmennu bæjarfélagi og Hafnarfirði var þörf fyrir byggingu félagslegra íbúða margfalt meiri. Það má því með nokkrum rökum segja að hluta þess húsnæðisvanda, sem nú er við að glíma, megi rekja til þessa tímabils. Þá var það íhalds- samur bæjarstjórnarmeirihluti, sem dró úr framkvæmdum við byggingu Sigurður T. Sigurðsson „Fólkið sem bíður eftir félagslegu íbúðunum í Hafnarfirði er margl hvert á götunni eða býr við alls óviðunandi hús- næðisaðstæður.“ verkamannabústaða en nú í dag er það afturhaldssöm ríkisstjórn sem tefur lausn málsins. Núverandi meirihluti, sem tók við stjórn bæjarins eftir kosningarnar 1986, hefur reynt að leysa hús- næðismálin en því miður hefur það lítinn árangur borið vegna andstöðu og skilningsleysis ríkisstjórna. Fé- lagsmálaráðherra og reyndar aðrir ráðherrar í núverandi ríkisstjórn hafa lítið gert fram að þessu til lausnar húsnæðisvandanum í Hafn- arfirði. Sömu sögu er að segja um alla þingmenn kjördæmisins. Þó ber þess að geta að félags- málaráðherra hefur staðið fyrir gerð nýs frumvarps til laga um Húsnæðisstofnun ríkisins, sem hún að öllum líkindum leggur fram á Alþingi fyrir þingslit nú í vor og fær síðan samþykkt sem lög á haustþingi. í frumvarpinu er gert ráð fyrir ýmsum breytingum til bóta frá núgildandi lögum, þótt nokkur atriði frumvarpsins orki tvímælis. Frumvarpið í heild sinni er stórt spor í rétta átt en það leysir ekki neinn húsnæðisvanda í Hafnarfirði ef ekki fylgir fjármagn til fram- kvæmda. Jóhanna Sigurðardóttir félags- málaráðherra!!! Fólkið sem bíður eftir félagslegu íbúðunum í Hafnarfirði er margt hvert á götunni eða býr við alls óviðunandi húsnæðisaðstæður. Þetta fólk er flest með lág laun, sem verðbólga og kaupránslög hafa rýrt svo mikið að þau teljast vart lífvænleg. Þessar fjölskyldur eiga heimt- ingu á húsnæði við sitt hæfi og það er argasta afturhaldsstefna ef þú og aðrir ráðherrar þessarar ríkis- stjórnar ætlið að daufheyrast við þeirri kröfu eða draga á langinn að leysa vandann. Eftirfarandi tillaga var samþykkt í stjórn Hlífar: „Fundur haldinn í stjóm Verka- mannafélagsins Hlífar, fimmtudag- inn 22. febrúar 1990, skorar á ríkis- stjórnina að hlutast til um að nú þegar verði veitt nægu fjármagni í byggingu félagslegra íbúða í Hafn- arfirði, til lausnar þeim mikla skorti á íbúðarhúsnæði sem þar ríkir. Stjórnin telur að byggja þurfi a.m.k. 300 íbúðir á næstu þremur árum, til þess eins að mæta brýn- ustu þörfum.“ Höfíwdur er formaður Verkamannafélagsins Hlífar í Hafharfirði. LAUGARÁSBÍÓ frumsýnir stórmyndina EKIÐ MEÐ DAISY („DRIVING MISS DAISY") Mynd sem tilnefnd er til 9 Oskarsverðlauna. Myndin sem hlaut 3 Golden Globe verðlaun. Besta mynd, besta leikkona, besti leikari. Við erum stolt af því að geta boðið kvik- myndahúsgestum uppá þessa stórkostlegu gamanmynd um gömlu konuna sem vill verja sjálfstæði sitt og sættir sig ekki við þægindi samtímans. Þau fara á kostum í aðalhlutverkum: Jessica Tandy (Cocoon, The Birds) Morgan Freeman (Brubaker) Dan Aykroyd (Ghostbursters, Dragnet) Leikstjóri: Bruce Beresford (Tender Mercies, Aria) Framleiðandi: R. Zanuck (The Sting, Jaws, Cocoon o.fl.) Sýnd íA-salkl. 5-7-9-og 11. LAUGA Sími 32075 JESSICA MORGAN DAN TANDY FREEMAN AYKROYD KA UPMENN - INNKA UPASTJORAR Vörusýningin byrjar á morgun, sunnudaginn 11. mars, í húsnœöi okkar, Sundaborg 24. Opið sunnudag kl. 10-18, mánudag kl. 9-18 og þriðjudag kl. 9-12. Tískusýningar verða sunnudag og mánudag kl. 10.30 f.h. Yerið velkomin ÁGÚST ÁRMANN hf UMBOÐS-OG HEILDVERSLUN SUNDABORG 24" REYKJAVÍK Sími 686677. □: !□

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.