Morgunblaðið - 10.03.1990, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. MARZ 1990
19
Islenska hjálparnefíidin:
25 nýir skjólstæð-
ingar á Indlandi
íslenska hjálparnefndin hefur
nýlega aukið hjálparstarfs sitt
á Indlandi undir forustu Þóru
Einarsdóttur. Nýlega ákvað hún
fyrir hðnd nefiidarinnar, er hún
var stödd á Indlandi, að auka
starfsemina þar með því að taka
25 börn til viðbótar því sem fyr-
ir var, kosta þau í skóla og sjá
Borgin býður
22,5 milljónir
króna í Risið
BORGARYFIRVÖLD hafa gert
22,5 milljón króna kauptilboð í
eign Sigfúsarsjóðs við Hverfis-
götu 105, Risið, þar sem skrif-
stofa Alþýðubandalagsins er til
húsa. Tilboðsfrestur er runninn
út án þess að því hafi verið svar-
að en Hjörleifúr Kvaran fram-
kvæmdastjóri lögfræði- og
sljórnsýsludeildar borgarinnar,
útilokar ekki að samningar tak-
ist síðar um kaupin.
Að sögn Hjörleifs leitaði Félag
eldri borgara eftir aðstoð borgar-
yfirvalda vegna kaupa á húsnæði
fyrir félagið. Eftir að fulltrúar
beggja aðila höfðu skoðað hús-
næðið var ákveði að borgin byði
22,5 milljónir í eignina en það er
lægri upphæð en sú sem sett hef-
ur verið upp.
„Ég lít svo á að ekki sé búið
að loka þessum samningum,“
sagði Hjörleifur. „Þetta er ágætt
húsnæði, um 700 fermetrar að
stærð og liggur miðsvæðis í borg-
inni.“
Sagði Hjörleifur að Félag eldri
borgara ræki mjög öflugt félags-
starf og hefur borgin verið að
kanna með hvaða hætti hún gæti
aðstoðað félagið við að koma sér
upp húsnæði.
þeim fyrir viðurværi. Taldi hún
sig geta gert það vegna höfðing-
legs framlags Kiwanisklúb-
banna á íslandi. Indverska
hjálparnefiidin á íslandi hefur
þá 50 einstaklinga á framfæri i
Matrasborg, ásamt stuðningi
við Ijölskyldur þeirra. Hún hef-
ur sl. tvö ár rekið verkmennta-
skóla með almennri menntun
fyrir ungar holdsveikar stúlkur,
eftir að þær fara af sjúkrahúsi.
Háttsettur indverskur embætt-
ismaður, G.R. Srinivasan að nafni,
var hér staddur nýlega á vegum
Indversku hjálpamefndarinnar, til
þess að kynna sér endurhæfingar-
starfsemi hér á landi, en hann
hefur m.a. yfirumsjón með 77
stöðvum alþjóðlegra hjálparsam-
taka „The German Leprosy Relief
Association Rehabilitation Fund“,
sem hófu starfsemi sína á Indlandi
1974. Hann er einnig fulltrúi í
heilbrigðis og félagsmálaráðuneyti
landsins í málefnum holdsveika á
Suður-Indlandi, þar sem ástandið
er einna verst í heiminum, að
mati Alþjóðahjálparstofnunar
holdsveikra. Kvaðst hann hafa átt
því láni að fagna á undanfömum
áram að kynnast formanni ís-
lensku hjálparnefndarinnar Þóru
Einarsdóttur. Hún hefði með ósér-
hlífni og dirfsku unnið frábært
starf í þeirra þágu. Vildi hann
koma á framfæri þökkum til henn-
ar og Indversku hjálparnefndar-
innar á íslandi fyrir þeirra störf
og framlög til málefna holdsveikra
á Suður-Indlandi og vona að fram-
hald yrði á því góða starfi.
Skýrði G.R. Shrinivasan frá því
að í síðustu ferð sinni til Indlands
hefði Þóra Einarsdóttir gert sam-
tökunum þann heiður að opna
formlega nýtt verkmenntaheimili
fyrir drengi á Lýðveldisdaginn, 26.
januar. Úthlutaði hún þá verðlaun-
um og gaf sjálf gjafír af þeirri
alúð sem henni er lagið, eins og
hann orðaði það.
Nýja jarðfiræðikortið af íslandi, sem er í átta litum.
Yfíriitskort afjarðíræði ís-
lands gefíð út eftir 90 ára hlé
Komið er út jarðfræðikort af öllu íslandi á einu blaði í mæli-
kvarða 1:500.000. Þetta er fyrsta yfirlitskortið af jarðfræði fs-
Iands síðan 1901, þegar gefið var út kort Þorvaldar Thorodds-
ens, sem ófáanlegt hefur verið í marga áratugi. Kortið er gefið
út af Náttúrufræðistofhun íslands og Landmælingum íslands og
tekið saman af Hauki Jóhannessyni og Kristjáni Sæmundssyni.
Jarðfræðikortið, sem er 107x74
sm að stærð, er prentað í 8 mis-
munandi litum. Það sýnir stærstu
drætti í jarðfræði landsins og er
jarðlögunum skipt í 13 einingar
eftir aldri og berggerð. Auk þess
eru sýnd helstu sprungukerfi,
gígaraðir, meiri háttar mislægi í
jarðlagastafla o.fl. Jarðfræðikort
af þessari gerð veitir nauðsynlegt
yfirlit um jarðfræði íslands. Slíkt
kort kemur að miklu gagni við
kennslu í skólum og getur sparað
langar útskýringar. Einnig vilja
margir sem ferðast um landið
kynnast jarðfræði þess, jafnt ís-
lendingar sem erlendir ferða-
menn.
Jarðfræðikortið er fáanlegt í
kortaverslun Landmælinga ís-
lands á Laugavegi 178 og í bóka-
verslunum. Náttúrafræðistofnun
íslands sá um gagnasöfnun og
frumteiknun kortsins, en Land-
mælingar íslands sáu um loka-
teiknun og undirbúning prentun-
ar.
Kortið er prentað hjá Landmæl-
ingum írlands (Ordinance Survey)
í Dyflinni.
Sýn hf.:
Sent út alla daga vikunn-
ar - alls í 80-90 stundir
Morgunblaðið/Emilía
Meðal þess sem boðið verður til sölu á 153. listmunauppboði Klaustur-
hóla er mynd Errós, Fljúgandi mannætur, 128,5x96 cm, málað með
olíu á striga.
153. listmunauppboð Klausturhóla:
Seld verk eftir Kjarval,
Ásgrím, Erró og fleiri
Ökeypis myndlyklar gegn tryggingargjaldi
153. listmunauppboð Klaustur-
hóla verður haldið að Hótel
Sögu annað kvöld, sunnudags-
kvöld, klukkan 20.30. Seld
verða um það bil 70 verk, þeirra
á meðal fjórar olíumyndir eftir
Jóhannes S. Kjarval; verk eftir
Erró, Jón Stefánsson, Ásgrim
Jónsson, Kristínu Jónsdóttur og
Gunnlaug Blöndal.
Meðal annarra listamanna má
nefna Karl Kvaran, Eyjólf Eyfells,
Snorra Arinbjarnar, Barböru
Ámason og Hring Jóhannesson.
Verkin verða sýnd í húsnæði
Klausturhóla í dag, laugardag, frá
klukkan 14-18 og á sama tíma á
morgun.
ÚTSENDINGAR verða alla daga
vikunnar hjá Sýn, þriðju íslensku
sjónvarpsstöðinni sem hefúr út-
sendingar í byrjun október næst-
komandi, að sögn Goða Sveins-
sonar sjónvarpsstjóra. Hann
sagði enn of snemmt að fjölyrða
nokkuð um dagskrá stöðvarinnar
því öll samningamál varðandi efh-
iskaup væru á viðkvæmu stigi.
Sjónvarpsstöðin ætlar ekki að
framleiða innlent efni fyrsta kast-
ið.
„Um helgar sendum við út frá
morgni til kvölds. Við ætlum að
bjóða upp á íjölbreytt efni fyrir börn
og væntanlega mun íþróttaefni
skipa stóran sess í dagskránni auk
kvikmynda, framhaldsþátta, er-
lendra fréttaskýringaþátta og
fræðsluefnis," sagði Goði.
Goði sagði að þessa dagana væri
sjónvarpsstöðin að festa kaup á efni
erlendis frá en vildi ekki nefna frá
hvaða dreifingaraðilum það kæmi.
Goði sagði að útsendingar Sýnar
yrðu lyklaðar og kæmu hollenskir
myndlyklar sterklega til greina.
„Við ráðgerum að áskrifendur
stöðvarinnar fái ókeypis myndlykla
en greiði tryggingargjald fyrir tæk-
ið. Áskriftargjaldinu verður stillt í
hóf. Við stefnum að því að áskriftar-
gjald hjá okkur verði lægra en hjá
Stöð 2 og verður leiga á myndlyklum
inni í því gjaldi. Tryggingargjaldið
verður hins vegar aðeins brot af
kostnaði myndlykilsins og menn fá
það endurgreitt samstundis ef þeir
eru ekki ánægðir með þjónustuna,"
sagði Goði.
Útsendingar hefjast í byrjun
október og verður sent út í 80-90
stundir á viku. Ekki er í ráði að
flytja innlendar fréttir og verður
engin innlend framleiðsla á vegum
Þessar breytingar segir Arnar að
fram hafi farið með vitund fulltrúa
Siglingamálastofnunnar á ísafirði,
hann hefði gert við þær sínar athuga-
semdir og farið hefði verið eftir þeim,
nema hvað láðst hefði að senda stofn-
uninni teikningar af breytingunum.
„Það er mögulegt að Siglinga-
málastofnun viti af breytingum og
fylgist með þeim, án þess að þær
hljóti samþykki hennar,“ sagði Páll
Hjartarson hjá Siglingamálastofnun.
„Við sjóprófin kom fram, að fulltrúi
stofnunarinnar á ísafirði hafði ítrek-
að í frammi óskir um teikningar,
bæði gagnvart þeim aðiia sem breyt-
ingarnar framkvæmdi og skipstjóra
bátsins, en því var aldrei hlýtt. Teikn-
Sýnar fyrst um sinn. „Það er ein-
faldlega of dýrt dæmi að reka frétta-
stofu en undir eins og við sjáum að
traustur grundvöllur er fyrir starf-
seminni hefjumst við handa við inn-
lenda framleiðslu," sagði Goði.
Starfsmenn sjónvarpsstöðvarinn-
ar verða 30 talsins.
berast Siglingamálastofnun, þar sem
þær eru forsenda þess að lögmæti
breytinganna megi kanna.“ Hann
sagði að að loknum breytingum á
veiðarfærabúnaði bæri að kanna
hvaða áhrif þær hefðu á stöðugleika
viðkomandi báts, en slíkt hafi ekki
verið gert.
Eins og fram hefur komið virkaði
svonefndur björgunargálgi um borð
í bátnum ekki í slysinu. Samkvæmt
upplýsingum Siglingastofnunnar var
hann af svonefndri Olsen-gerð, fram-
leiddur af vélsmiðju 01. Olsen í
Njarðvíkum. Karl Olsen forstjóri
sagðist að svo stöddu ekki vilja tjá
sig um ástæður þess að gálginn
brást, og sagðist vilja bíða niður-
Sjóslysið í Jökulfjörðum á sunnudag:
Teikningar afbreytmg-
um ekki samþykktar
SIGLINGAMÁLASTOFNUN fékk ekki sendar teikningar á breytingum
sem gerðar voru á vélbátnum Guðmundi B. Þorlákssyni sem sökk á
Jökulfjörðum síðastliðinn sunnudag, að sögn Páls Hjartarssonar hjá
Siglingamálastofnun. I Morgunblaðinu á miðvikudag er haft eftir Arn-
ari G. Hinrikssyni að Siglingamálastofnun hafi verið kunnugt að í apríl
1989 hafi útbúnaður til rækju- og snurvoðarveiði verið Qarlægður frá
borði, og skelveiðiútbúnaður settur upp í staðinn.
ingar af breytingum verða .aþtaf að , staðna sjóprófa.