Morgunblaðið - 10.03.1990, Blaðsíða 20
20
MORGUiNBLAÐIÐ; LAUGARDAGUR 10. MARZ.1990
Reuter
Norður-kóreskir stúdentar bera risastóra mynd af Kim Il-sung við
hátíðahöld i Pyongyang, höfiiðborg Norður-Kóreu.
Kim n-sung’ hyggst
láta af völdum
Borgaravettvangur boðar efiiahagsaðgerðir;
Samtökunnm spáð sigri
í kosningunum í júní
Prag. Reuter.
BORGARAVETTVANGUR, samtök tékkneskra umbótasinna, hvatti
landsmenn í gær til að búa sig undir að þurfa að herða sultarólina
ef reisa ætti atvinnulíf og efiiahag landsins við. Skoðanakannanir benda
til þess að frambjóðendur samtakanna muni ná bestum árangri í þing-
kosningum, sem fram fara í Tékkóslóvakíu 8.-9. júní nk.
Hingað til hafa leiðtogar Borgara-
vettvangs ekki viljað láta líta á sam-
tökin sem stjórnmálaflokk. Þau
áforma engu að síður bjóða fram
við kosningarnar 8.-9. júní. Nýjar
kannanir á fylgi stjórnmálafylkinga
benda til þess að samtökin njóti rúm-
lega 30% fylgis og séu langstærsta
stjórnmálaafl Tékkóslóvakíu.
Borgaravettvangur gaf í fyrradag
út drög að stefnuskrá þar sem segir
að megin markmið samtakanna sé
að koma Tékkóslávkíu í hóp helstu
iðn- og velmegunarríkja Evrópu. Því
markmiði yrði náð með því að koma
á fullu lýðræði og markaðshagkerfí.
Sú áætlun stæði og félli auk þess
með því að þjóðin sýndi vilja til þess
að taka á sig fórnir sem því yrði
samfara að reisa landið við úr
rústum 40 ára niðumíðslu vegna
óstjórnar kommúnista. Samtökin
boða að illa rekin fyrirtæki og óarð-
bær muni ekki njóta ríkisstyrkja,
gengisskráning tékknesku krónunn-
ar gagnvart erlendum gjaldmiðlum
verður hafin, nýtt skattakerfi tekið
upp, menntakerfið endurbætt og að
fyrirtæki sem valdi umhverfismeng-
un verði sektuð háum sektum.
Bandaríkin:
Falskt símtal um gíslamálin
Washington. Reuter.
GEORGE Bush Bandaríkjafor-
seti ræddi í síðasta mánuði i
síma við mann sem lést vera
Hashemi Rafsanjani, forseti ír-
ans, og snerust viðræðurnar um
málefni bandarískra gísla í Mið-
austurlöndum. Komið hefúr í
ljós að viðmælandinn var ekki
sá sem hann sagðist vera.
talsbeiðandinn væri sá sem hann
sagðist vera, auk þess sem Bush
hefði rætt við „Rafsanjani“ til að
standa við fyrirheit um að hann
væri ávallt reiðubúinn að tala við
íranska forsetann um málefni
Bretland:
gíslanna.
Seinna kom í ljós að símtalið
var gabb, að sögn Harts. Hann
greindi ekki frá hvenær það hefði
uppgötvast og gat heldur ekki um
viðbrögð Bandaríkjaforseta.
Tókíó. Reuter.
KIM Il-sung, hinn „dáði leiðtogi" Norður-Kóreu, eins og hann er
gjarnan nefhdur opinberlega í landi sínu, hyggst láta af völdum 15.
apríl næstkomandi, en þann dag nær hann 78 ára aldri.
Þingmaður rekinn heim
í frétt sem japanska fréttastofan
Kyodo sendi frá Peking í Kína í gær
sagði að Kim mundi afsala sér völd-
um í hendur sonar síns, Kim Jong-
il. Fylgdi þó fréttinni að ekki mundu
áhrif og ítök hins aldna foringja
dvína mikið. Hann yrði eins konar
Deng Xiaoping Norður-Kóreu og
myndi stjórna á bak við tjöldin.
Valdaafsal í hendur sonarins, sem
er 48 ára, yrði því fyrst og fremst
á yfirborðinu.
Steve Hart, talsmaður forseta-
embættisins, sagði að hringt hefði
verið í starfsmann þjóðaröryggis-
ráðsins í Hvíta húsinu. Sá sem
hringdi sagðist vera íranskur emb-
ættismaður og kvað Rafsanjani
forseta vilja tala við Bush um
gíslana í Miðausturlöndum.
Hart sagði að reynt hefði verið
að ganga úr skugga um hvort við-
London. Reuter.
-BRESKIR þingmenn ákváðu nú
í vikunni að reka burt í 20 daga
einn þingmann íhaldsflokksins
vegna þess, að hann hafði látið
ógert að upplýsa þingheim um
öll sín viðskiptatengsl.
John Browne, þingmaður fyrir
Winchester-kjördæmi í Suður-
Englandi, viðurkenndi, að hann
hefði brotið þingreglur með því að
segja ekki frá öllum viðskiptaítök-
um sínum en bar því við, að hann
hefði misskilið reglurnar. Þingheimi
fundust þessar skýringar harla létt-
vægar og flokksbróðir Brownes og
forseti neðri deildar, Geoffrey
Howe, lagði til, að hann yrði rekinn
burt í 20 daga og sviptur launum
í sama tíma.
Kommúnistastjórn Afganistans klofín:
Tanai hvetur menn til frekari
baráttu gegn Kabúlstj órninni
„Umfram allt verðum við að vera
hafnir yfir allan grun,“ sagði Howe
þegar hann lagði fram tillöguna,
sem var samþykkt einróma.
Mujahedin-skæruliðar herða sóknina gegn setuliði í mörg-
um borgum sem kommúnistar ráða
Islamabad. Reuter.
NAJIBULLAH, leiðtogi stjórnar
kommúnista í Afganistan, hefúr
gert róttækar hreinsanir í stjórn-
arflokknum eftir byltingartilraun
Shanawas Tanais, fyrrum varnar-
málaráðherra. Fimm menn, þ. á
m. Tanai og sendiherra landsins
í Moskvu, voru reknir úr stjórn-
málaráðinu og boðuð mannaskipti
í æðstu stjóm varnarmála. Tanai
hefiir sent frá sér yflrlýsingu á
snældu sem fréttastofa mujahed-
in-skæmliða, Midia, skýrði frá og
hvatti hann menn sina til að gef-
ast ekki upp.
„Stríð okkar heldur áfram,“ sagði
í yfirlýsingu Tanais. „Við höfum ris-
ið upp gegn Najibuliah til að gæta
hagsmuna þjóðarinnar og tryggja
sættir. Najibullah mun senn bíða
ósigur.“ Tanai sagðist vera í Afgan-
istan. Hann gæti ekki tjáð sig beint
í útvarp en myndi gera það síðar.
Óljóst er hvar hann heldur sig en
heimildarmenn í röðum erlendra
stjómarerindreka sögðust fullvissir
um að hann hefði ráðfært sig við
skæruliðaforingja sem hafa aðsetur
í Peshawar í Pakistan. Hins vegar
gæti vel verið að hann hefði farið
aftur til Afganistans. Mjög virðist á
reiki hvert markmið Tanais er en
ljóst að hann nýtur stuðnings veru-
legs hluta heraflans, fyrst og fremst
flughersins.
Pakistanskur talsmaður skýrði frá
því að skæruliðar hefðu notfært sér
ringulreiðina vegna uppreisnarinnar
og þrengt að stjórnarhernum í borg-
inni Khost. „Það er hart barist í
grennd við Khost og allt bendir til
að setulið stjórnvalda og skæruliðar
hafi átt viðræður um mögulega upp-
gjöf borgarinnar," sagði talsmaður-
inn. Hann bætti við að birgðasveit
Kabúl-stjórnarinnar, sem verið hefði
á leið til Khost frá því í janúar, hefði
gefíst upp fyrir skæruliðum. Aðrar
skæruliðasveitir væru að leggja und-
ir sig héraðshöfuðborgina Qalat í
suðausturhluta landsins: Barist væri
við Bagram-flugbækistöðina, norður
af Kabúl, þar sem hermenn úr liði
Tanais héldu enn velli.
Sovéskar flugvélar lentu á Kabúl-
flugvelli á fimmtudag með vopna-
birgðir, að sögn BBC. Najibuilah
sagði á fréttamannafundi að 25
óbreyttir borgarar hefðu fallið og
yfir 150 særst er flugvélar uppreisn-
armanna gerðu árásir á höfuðborg-
ina.
ERLENT
Andrei Gromyko, íyrrum forseti Sovétríkjanna:
Gerði upp sakirnar við
Stalín fyrir dauða sinn
New York. Reuter.
ANDREI heit-
inn Gromyko,
utanríkisráð-
herra og forseti
Sovétríkjanna,
reyndi undir
það síðasta að
ráða gátuna um
grimmd komm-__________________
Únismans — Andrei Gromyko
hvernig Jósep Stalín hefði farið
að því að drepa milljónir sak-
lausra manna og koma á mis-
kunnarlausu einræði í landinu.
Kemur þetta fram í 30 blaðsíðna
viðauka við endurminningar
hans, sem verið er að gefa út i
Bandaríkjunum.
Gromyko fékk aldrei orð fyrir
annað en að fylgja Stalín og stefnu
Sovétstjórnarinnar í blindni en í
endurminningunum segir hann um
stalínstímann, að „ekki einu sinni
böðlarnir, sem drápu þrælana í
Róm til forna, komu þannig fram“.
Hann getur hins vegar ekki skýrt
hvers vegna svo margir fylgdu
Stalín en nefnir, að ótti, ritskoðun
og undirlægjuháttur hafí átt þátt
í því. Þá segir hann, að „ógeðfelld-
ustu drættirnir í kenningu Nietzsc-
hes um ofurmennið virðast mann-
eskjulegir í samanburði við stalín-
ismann".
Endurminningar Gromykos
komu út í Sovétríkjunum 1988 en
við viðbótina lauk hann skömmu
fyrir andlát sitt í júlí í fyrra. í
sovésku útgáfunni segir hann, að
Stalín hafi haldið kommúnista-
flokknum saman eftir lát Leníns
og stýrt þjóðinni í gegnum skelfi-
legt stríð en einnig, að þjóðin sé
réttilega reið vegna kúgunarinnar.
Þegar Doubleday-forlagið samdi
um útgáfu bókarinnar í Banda-
ríkjunum var Gromyko beðinn að
fara nánar ofan í saumana á ýms-
um atriðum og það varð til, að
hann skrifaði bókaraukann.
Haywood Isham, sem sá um
útgáfuna fyrir Doubleday, segir,
að enginn hafi búist við, að Gro-
myko tæki svona afdráttarlaust
af skarið gagnvart stalínismanum.
„Gromyko, þessi marx-lenínisti og
einarði fulltrúi sovétstjórnarinnar,
reynir hér að átta sig á Stalín og
skelfilegum grimmdarverkum
hans. Hann spyr hvemig þetta
hafi getað gerst. Hann reynir að
svara sjáfum sér án þess þó að
geta það,“ sagði Isham.
í bókaraukanum segir Gromyko,
að smám hafi orðið ljóst, að Stalín
héldi uppi „kúgunarkerfí, sem
hafði tvennu hlutverki að gegna:
að festa upp milljónir saklausra
manna sem „óvini alþýðunnar" og
síðan að reyna að afmá öll spor
um glæpinn". Gromyko bætir þvi
svo við, að „það er mín skoðun,
að allir háttsettir menn hafí vitað
um glæpaverkin og blóðbaðið og
áttað sig á, að alsaklaust fólk var
drepið að skipun „foringjans““.