Morgunblaðið - 10.03.1990, Síða 21

Morgunblaðið - 10.03.1990, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. MARZ 1990 21 Lélegum lífskjörum mótmælt Sovéskar konur og börn mótmæla lélegum lífskjörum og forrétt- indum félaga í sovéska kommúnistaflokknum. Efnt var til mótmæl- anna í tilefiii alþjóðadags kvenna, sem var í fyrradag. Slóvenía ekki lengnr kennd við sósíalisma Belgrad. Reuter. LÝÐVELDIÐ Slóvenía í Júgóslavíu hefúr fellt niður lýsingarorðið „sósíalískur" úr nafni sínu. Þar er nú verið að undirbúa fyrstu Ijálsu kosningarnar í þau 45 ár sem kommúnistar hafa farið með völdin. Samkvæmt frásögn dagblaðsins Borba í Belgrad samþykkti þing Slóveníu stjórnarskrárbreytingu síðastliðinn miðvikudag þar sem kveðið er á um niðurfellingu orðsins „sósíalískur“ úr nafni lýðveldisins og allra stofnana þess. Slóvenía breytti stjórnarskrá sinni í septembermánuði síðastliðn- um. Þá var kveðið á um rétt lýðveld- isins til að segja sig úr lögum við Jugóslavíu. Lyðveldið hefur einnig beitt sér fyrir auknu sjálfstæði ein- stakra héraða landsins. Af þeim sökum hafa risið úfar með Slóven- um og íbúum annarra lýðvelda, einkum Serbum, sem vilja að lýð- veldin sex og sjálfstjórnarsvæðin tvö lúti sterkri miðstjórn. Fjölflokka þingkosningar verða haldnar í Slóveníu og nágrannalýð- veldinu Króatíu í aprílmánuði næst- komandi. Vaxandi einangnm stjómvalda á Kúbu: Kastró fer hörð- um orðum um valda- menn í A-Evrópu Hernaðarsam- vinnu við Nic- araguamenn hætt Havana. Reuter. FÍDEL Kastró Kúbuleiðtogi lýsti því yfir í fyrrakvöld að Kúbverjar myndu hætta allri hernaðarsamvinnu við Nic- araguamenn. Hann fór einnig hörðum orðum um nýju vald- hafana í Austur-Evrópuríkjun- um fyrir að styðja ályktun Sam- einuðu þjóðanna um mannrétt- indabrot á Kúbu. Kastró sagði í ræðu sem hann flutti á miðvikudagskvöld að ósigur sandinista fyrir Violetu Chamorro og kosningabandalagi 14 stjórnar- andstöðuflokka merkti að Kúbveij- ar myndu hætta hernaðarsamvinnu við Nicaragua-menn og draga úr samstarfinu á öðrum sviðum. „Oraunverulegt og fáránlegt ástand hefur skapast í landinu og þar er nú mikil hætta á nýrri borg- arastyrjöld," bætti hann við. Kúb- veijar hafa verið nánustu banda- menn sandinistastjórnarinnar frá byltingunni árið 1979. í gær sagði Daniel Ortega, for- seti Kólumbíu, að hann mundi láta af völdum og afhenda Violetu Cha- morro lykla að forsetaskrifstofunni 25. apríl þó kontra-skæruliðar hefðu ekki afvopnast fyrir þann tíma. Áður hafði Ortega gefið til kynna að afvopnun kontra-Iiða væri skilyrði fyrir því að sandinist- ar virtu kosningaúrslitin og færu frá. Kastró fór einnig hörðum orðum um breytingarn- ar í hinum ýmsu kommúnistaríkj- um heims á und- anförnum miss- erum. Pólveijar, Ungveijar, Tékkar og Búlg- arar greiddu ný- lega atkvæði með ályktun, sem Bandaríkjamenn lögðu fram hjá mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna, þar sem mannréttinda- brot á Kúbu voru gagnrýnd. Álykt- unin var samþykkt með nítján at- kvæðum gegn tólf, en tólf ríki sátu hjá. Kastró sagði að atkvæða- greiðslan sýndi að Austur-Evrópu- ríkin hefðu „gengið til liðs við Bandaríkin". Kúbustjórn myndi ekki fara eftir einu einasta orði í ályktuninni. Kúbuleiðtoginn gagnrýndi um- bótasinna, sem tekið hafa við völd- um í Austur-Evrópu, en sagði að ekki væri öll nótt úti enn þar sem Sovétmenn hefðu ekki ennþá varp- að kommúnismanum fyrir róða. „Sovétríkin hafa ekki sundrast og við vonum að svo fari ekki. Borg- arastyijöld hefur ekki brotist út í Sovétríkjunum og vonandi fer ekki svo. Sú hætta er hins vegar fyrir hendi,“ bætti Kúbuleiðtoginn við. Kúbustjórn hefur einnig sætt gagnrýni í sovéskum fjölmiðlum að undanförnu. Vladímír Orlov, blaða- maður Moskvufrétta, skrifaði til að mynda eftir heimsókn til Havana nýlega að Kúbveijar byggju við ofríki lögreglu, mikla fátækt og óánægja almennings færi vaxandi. V-Þj óðverjum var kunnugt um ubýsku efiiaverksmiðjuna Npw Ynrlí Rpntpr Hnn ^ New York. Reuter, dpa. MIKILL ágreiningur er á milli bandarískra og vestur-þýskra stjórn- valda um hvernig bregðast skuli við meintri framleiðslu efhavopna í Líbýu en staðfest hefiir verið, að vestur-þýska sljórnin vissi um framleiðsluna strax í ársbyrjun. Bandaríska dagblaðið The New York Times hafði eftir bandarískum og vestur-þýskum embættismönn- um, að Hans-Dietrich Genscher, utanríkisráðherra Vestur-Þýska- lands, hefði lagt til 20. febrúar að alþjóðleg rannsóknamefnd yrði send til að kanna efnaverksmiðjuna í Rabta, sem er um 80 km sunnan við Tripoli, höfuðborg Líbýu. Marlin Fitzwater, talsmaður Bandaríkja- forseta, skýrði frá því í fyrradag að sannanir væru fyrirþví að Líbýu- menn hefðu hafið framleiðslu efna- vopna í verksmiðjunni og talsmaður vestur-þýska utanríkisráðuneytis- ins, Hanns Schumacher, staðfesti í gær, að vestur-þýska stjórnin hefði vitað strax í ársbyijun, að fram- leiðslan var hafin. Útvarpið í Tripoli hafði í gær eftir embættismanni í líbýska ut- anríkisráðuneytinu að ekkert væri hæft í þessum ásökunum. Líbýu- stjórn væri reiðubúin að taka þátt í aðgerðum alþjóðlegra stofnana gegn efnavopnabernaði. „Opid hús“ Háskóla íslands á morgun, 11. mars, frá kl. 13.00-18.00 „Opið hús“ í byggingum Háskólans 1. Jarðfræðihús (austan Suðurgötu) 2. Loftskeytastöðin 3. VR III 4. VR I 5. VR II 6. Tæknigarður mm^ mmfi Veitingastofan í Tæknigarði 7. Vetrarhöll 8. Raunvísindastofnun 9; Háskólabíó* >. = Kórsöngur og leiklist , J J J { Tæknigarði ^VR II ^^^^Fvrirlestrar: Kl. 14.00, stofa 157 Þorsteinn Vilhjálmsson: Stjarnvísindi á þjóðveldisöld. Af Þorsteini Surti og Stjörnu- Odda. Kl. 15.00, stofa 157 Sigurður S. Snorrason: Bleikjan í Þingvallavatni. Kl. 16.00, stofa 157 Þorkell Helgason: Stjóm fisk- veiða: Markmið og leiðir. N emendafyrirlestrar; undraheimar stærðfræðinnar KI. 14.30, stofa 158 Sverrir Örn Þorvaldsson: Hótel með óendanlega mörgum herbergjum. Kl. 15.30, stofa 158 Davíð Aðalsteinsson: Hvað eru prímtölurnar margar? Kl. 16.30, stofa 158 Geir Agnarsson: Mandelbrot, , mengið og tölvumyndir. i Upplýsingamiðstöð í anddyri Tæknigarðs. Dagskrá f Þjóðarbókhlöðu Kynning á öllum deildum Háskólans, 22 sérskólum, ýmsum stofnunum Háskól- ans og ýmsum þjónustustofnunum stúdenta. Háskólabókasafn kynnir starfsemi sína í tilefni af 50 ára af- mæli safnsins. Nemendur listaskólanna og Háskólakórinn sjá gestum fyrir hin- um ýmsu listviðburðum. Kaffi á könnunni í boði Félagsstofnunar stúdenta. Kl.: 13.15 Háskólakórinn. 14.00 Ávarp rektors Háskóla íslands. 14.05 Tónlistarskólinn í Reykjavík. 15.00 Leiklistarskóli íslands. 15.30 Söngskólinn í Reykjavík. 16.15 Tónlistarskólinn í Reykjavík. 17.00 Söngskólinn í Reykjavík. Myndlistarsýning nemenda Myndlist- ar-og handíðaskóla íslands. • Upplýsingamiðstöð í anddyri -E Þjóðarbókhlöðu Háskólabíó: *Kynning á nýjum fyrirlestrar- og sýning- arsölum. Salur 4 kl. 14.00: Kvikmynda- sýning í boði fyrir fullorðna (Hálend- ingurinn). Dagskrá fyrir börn: Salur 3 kl. 14.00: Kvikmyndasýning í boði fyrir böm (Flakkaramir). I anddyri kl. 13.15 og kl. 16.00: Söngur og brúðuleikhús á vegum nem- enda Fósturskóla Islands.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.