Morgunblaðið - 10.03.1990, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. MARZ 1990
25
jlleööur
á morgun
ÆSKULÝÐSSAMBAND kirkjunnar
í Reykjavíkurprófastsdæmi: Söng-
leikurinn „Líf og friður" sýndur í
Seljakirkju sunnudagskvöld kl.
20.30.
ÁRBÆJARPRESTAKALL: Barna-
samkoma kl. 11 árdegis. Guðsþjón-
usta kl. 14. Fyrirbaenastund í Árbæj-
arkirkju miðvikudag kl. 16.30. Föstu-
guðsþjónusta fimmtudag kl. 20. Sr.
Guðmundur Þorsteinsson.
ÁSKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl.
11. Guðsþjónusta kl. 14. Kaffi eftir
messu. Föstumessa miðvikudag 14.
mars kl. 20.30. Árni Bergur Sigur-
björnsson.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Messa kl. 14. Altar-
isganga. Organisti Daníel Jónasson.
Þriðjudag kl. 18.30, bænaguðsþjón-
usta, altarisganga. Sr. Gísli Jónas-
son.
BÚSTAÐAKIRKJA: Barnaguðsþjón-
usta kl. 11, Guðrún Ebba Ólafs-
dóttir. Messa kl. 14. Sr. Sigurður
Pálsson messar. Organisti Guðni
Þ. Guðmundsson. Sr. Pálmi Matth-
íasson.
DIGRANESPRESTAKALL: Barna-
samkoma í safnaðarheimilinu við
Bjarnhólastíg kl. 11. Guðsþjónusta
I Kópavogskirkju kl. 11. Sr. Þorberg-
ur Kristjánsson.
DÓMKIRKJAN: í dag, laugardag,
barnasamkoma kl. 10.30. Munið
kirkjubílinn. Sr. Jakob Ágúst Hjálm-
arsson. Messa sunnudag kl. 11.
Guðmundur J. Guðmundsson for-
maður Dagsbrúnar prédikar. Signý
Sæmundsdóttir syngur einsöng. Sr.
Hjalti Guömundsson þjónar fyrir alt-
ari. Dómkórinn syngur. Organleikari
Marteinn Hunger Friðriksson. Hin
árlega kaffisala Kirkjunefndar
kvenna Dómkirkjunnar (KKD) verður
á Hótel Loftleiöum eftir messuna.
Strætisvagn fer frá kirkjunni og til
baka. Sr. Hjalti Guðmundsson. Mið-
vikudag 14. mars. Bænaguðsþjón-
usta kl. 17.30. Sr. Hjalti Guðmunds-
son.
LANDAKOTSSPÍTALI: Guðsþjón-
usta kl. 13. Organisti Birgir Ás Guð-
mundsson. Sr. Jakob Ágúst Hjálm-
arsson.
ELLIHEIMILIÐ Grund: Guðsþjón-
usta kl. 10. Sr. Ólafur Jóhannsson.
Organisti Kjartan Ólafsson. Föstu-
messa miðvikudaginn 14. mars kl.
18. Örnólfur Ólafsson guðfræði-
nemi.
FELLA- og Hólakirkja: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Umsjón Ragnheiður
Sverrisdóttir. Guðsþjónusta kl. 14.
Prestur sr. Hreinn Hjartarson. Org-
anisti Guðný M. Magnúsdóttir. Mið-
vikudag, guðsþjónusta kl. 20.30,
prestur sr. Guðmundur Karl Ágústs-
son. Þorvaldur Halldórsson annast
tónlistarflutning. Sóknarprestar.
GRAFARVOGSPRESTAKALL:
Messuheimilið Félagsmiðstöðinni
Fjörgyn við Foldaskóla. Barnamessa
kl. 11. Sunnudagspóstur, söngvar.
Aðstoðarfólk: Guðrún, Valgerður og
Hjörtur. Skólabíll fer frá Hamra-
hverfi kl. 10.45. Guðsþjónusta kl.
14. Sóknarprestur, kirkjukór og org-
anisti Siglufjarðarkirkju heimsækja
söfnuðinn. Sr. Bragi Ingibergsson
sóknarprestur á Siglufirði prédikar.
Kirkjukór
Siglufjarðar annast allan söng undir
stjórn Tonys Raleys. Kaffi á vegum
Siglfirðingafélagsins eftir messu. Sr.
Vigfús Þór Árnason.
GRENSÁSKIRKJA: Barnasamkoma
kl. 11, eldri börn uppi í kirkjunni,
yngri börnin niðri. Guðsþjónusta kl.
14. Fyrirbænir eftir guðsþjónustuna.
Organisti Árni Arinbjarnarson.
Þriðjudag kl. 14-16.30: Kirkjukaffi.
Miðvikudag 14. mars kl. 11, helgi-
stund fyrir aldraða. Laugardag kl.
10: Biblíulestur og bænastund.
Prestarnir.
HALLGRÍMSKIRKJA: í dag, laugar-
dag: Samvera fermingarbarna kl.
10. Sunnudag 11. mars. Messa og
barnasamkoma kl. 11. Sr. Ragnar
Fjalar Lárusson. Sigurbjörn Þorkels-
son framkvæmdastjóri Gideonfé-
lagsins prédikar. Matur eftir messu.
Þeir sem vilja bílfar hringi í Hall-
grímskirkju í síma 10745 eða
621475. Kl. 14. Kirkja heyrnarlausra,
guðsþjónusta, sr. Miyako Þórðar-
son. Kvöldmessa með altarisgöngu
kl. 17. Sr. Karl Sigurbjörnsson.
Kvöldbænir með lestri passíusálma
Guðspjall dagsins:
Matt. 15.:
Kanverska konan.
mánudag, þriðjudag, fimmtudag og
föstudag kl. 18. Þriðjudag: Fyrirbæ-
naguðsþjónusta kl. 10.30. Beðiðfyr-
ir sjúkum. Miðvikudag: Föstumessa
kl. 20.30. Sr. Þorvaldur Karl Helga-
son prédikar. Kór Njarðvíkurkirkju
syngur.
LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10. Sr.
Karl Sigurbjörnsson.
BORGARSPÍTALINN: Guðsþjón-
usta kl. 10. Sr. Sigfinnur Þorleifsson.
HÁTEIGSKIRKJA: Morgunmessa kl.
10. Sr. Tómas Sveinsson. Barna-
guðsþjónusta kl. 11. Kirkjubíllinn fer
um Hlíðarnar fyrir og eftir barna-
guðsþjónustuna. Hámessa kl. 14.
Kór Menntaskólans við Hamrahlíð
undiqstjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur
og kór Háteigskirkju syngja við
messuna. Sr. Arngrímur Jónsson.
Kvöldbænir og fyrirbænir eru í kirkj-
unni á miðvikudögum kl. 18. Föstu-
guösþjónusta miðvikudag kl. 20.30.
Sr. Arngrímur Jónsson. Prestarnir.
HJALLAPRESTAKALL: Messusalur
Hjallasóknar í Digranesskóla.
Barnamessa í skólanum kl. 11 i
umsjá Hildar og Magnúsar. Almenn
guðsþjónusta kl. 11. (Ath. breyttan
tíma.) Kór Hjallasóknar syngur. Org-
anisti David Knowles. Barnakór
Hjallasóknar syngur stólvers og
sálm undir stjórn Friðriks S. Kristins-
sonar. Fermingarbörn aðstoða. Sr.
Kristján Einar Þorvarðarson.
KÁRSNESPRESTAKALL: Barna-
samkoma í safnaðarheimilinu Borg-
um sunnudag kl. 11. Umsjón hafa
María og Vilborg. Guðsþjónusta í
Kópavogskirkju kl. 14. Foreldrar
fermingarbarna eru hvattir til að
koma með börnunum til guðsþjón-
ustunnar og þiggja veitingar í safn-
aðarheimilinu að lokinni guðsþjón-
ustu. Sr. Árni Pálsson.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guð-
brands biskups. Óskastund barn-
anna kl. 11. Söngur, sögur, myndir.
Guðsþjónusta kl. 14. Kirkjukór Ól-
afsvíkur syngur stórvers undir stjórn
Elíasar Davíðssonar organista. Sr.
Þórhallur Heimisson.
LAUGARNESKIRKJA: í dag, laugar-
dag: Guðsþjónusta í Hátúni 10B, 9.
hæð, kl. 11. Sunnudag 11. mars:
Messa kl. 11. Altarisganga. Sr.
Kjartan Jónsson kristniboði prédik-
ar. Valdís Magnúsdóttir kristniboði
talar við börnin í barnastarfinu á
sama tíma. Kristniboðskynning í
safnaðarheimilinu eftir messu.
Kyrrðarstund í hádeginu á fimmtu-
dag. Orgelleikur, fyrirbænir, altaris-
ganga. Sóknarprestur.
NESKIRKJA: Barnasamkoma kl. 11.
Umsjón Sigríður Óladóttir. Messa
kl. 14. Sr. Frank M. Halldórsson.
Orgel- og kórstjórn Reynir Jónas-
son. Munið kirkjubílinn. Föstumessa
miðvikudag kl. 20. Sr. Guðmundur
Óskar Ólafsson.
SELJAKIRKJA: Barnaguðsþjónusta
kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Organ-
isti Kjartan Sigurjónsson. Söngleik-
urinn „Lif og friður" kl. 20.30.
SELTJARNARNESKIRKJA: Fjöl-
skylduguðsþjónusta kl. 11. Prestur
sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir.
Organisti Gyða Halldórsdóttir.
Barnastarf á sama tíma, umsjón
Sigríður og Hannes.
ÓHÁÐI söfnuðurinn: Nýmessa í
kirkju óháða safnaðarins. Sr. Einar
Eyjólfsson Fríkirkjuprestur í Hafhar-
firði flytur erindi um fríkirkjuformið.
„Hópur án skilyrða", kemur og syng-
ur létt kristileg lög. Hópinn skipa
Þorvaldur Halldórsson, Margrét
Scheving og Páll Magnússon. Ritn.-
ingarlestrar og bæn í umsjón safn-
aðarfólks. Almennur safnaðarsöng-
ur. Þórsteinn Ragnarsson safnaðar-
prestur.
FRÍKIRKJAN íReykjavík: Helgistund
kl. 17.00. Miðvikudag, föstuguðs-
þjónu^ta kl. 20.30. Orgelleikari Pa-
vel Smid. Cecil Haraldsson.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Filadelfía:
Safnaðarsamkoma kl. 11. Sunnu-
dagaskóli kl. 11. Almenn samkoma
kl. 20. Ræðumaður Hafliði Kristins-
son.
KRISTSKIRKJA, Landakoti: Lág-
messa kl. 8.30. Stundum lesin á
ensku. Hámessa kl. 10.30. Lág-
messa kl. 14. Rúmhelga daga er
lágmessa kl. 18 nema á íaugardög-
um þá kl. 14. Á iaugardögum er
ensk messa kl. 20.
MARÍUKIRKJA, Breiðholti: Há-
messa kl. 11. Rúmhelga daga lág-
messa kl. 18.
KFUM & KFUK: Kristniboðssam-
koma kl. 20.30 á Amtmannsstíg 2B.
Upphafsorð Lilja S. Kristjánsdóttir.
Ræðumaður Skúli Svavarsson. Ef-
nið: Heimastarf Kristniboðssam-
bandsins.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Sunnu-
dagaskóli kl. 14. Hjálpræðissam-
koma kl. 20. Flokksstjórahjónin frá
Akureyri, Janice og Norman H.
Dennis, stjórna og tala.
MOSFELLSPRESTAKALL: Barna-
samkoma í safnaöarheimilinu kl. 11.
Messa í Lágafellskirkju kl. 14. Sr.
Birgir Ásgeirsson.
BESSASTAÐASÓKN: Barnasam-
koma í Álftanesskóla kl. 13 í dag,
laugardag. Sóknarprestur.
GARÐASÓKN: Barnasamkoma í
Kirkjuhvoli kl. 13 í dag, laugardag.
Sóknarprestur.
KAPELLA St. Jósefssystra,
Garðabæ: Hámessa kl. 10.
HAFNARFJARÐARKIRKJA: Sunnu-
dagaskóli kl. 11. Munið skólabílinn.
Messa kl. 14. Altarisganga. Sr.
Gunnþór Ingason.
VÍÐISTAÐAKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Guðsþjónusta kl.
14. Kór Víðistaðasóknar syngur.
Organisti Kristín Jóhannesdóttir. Sr.
Sigurður Helgi Guðmundsson.
FRÍKIRKJAN, Hafnarfirði: Barna-
samkoma kl. 11. Safnaðarfólki boðið
til samveru í kirkju Óháða safnaðar-
ins í Reykjavík kl. 17. Þar kemur
m.a. fram Þorvaldur Halldórsson
söngvari. Sr. Einar
Eyjólfsson.
KAPELLAN St. Jósefsspítala: Há-
messa kl. 10.30. Rúmhelga daga
lágmessa kl. 18.
KARMELKLAUSTUR: Hámessa kl.
8.30. Rúmhelga daga messa kl. 8.
KÁLFATJARNARKIRKJA: Æsku-
lýðs- og fjölskylduguðsþjónusta kl.
14. Æskufólk syngur og aðstoðar
við guðsþjónustuna. Barnasam-
koma í Stóru-Vogaskóla kl. 11 í dag,
laugardag. Sóknarprestur.
INNRI-NJARÐVÍKURKIRKJA:
Barnastarf í safnaðarheimilinu kl.
11. Sóknarprestur.
YTRI-NJARÐVÍKURKIRKJA: Messa
og barnastarf kl. 11. Sóknarprestur.
KEFLAVÍKURKIRKJA: Sunnudaga-
skóli kl. 11. Munið skólabílinn. Guðs-
þjónusta kl. 14. Sóknarprestur.
KAÞÓLSKA kapellan, Hafnargötu
71: Messur sunnudaga kl. 16.
GRINDAVÍKURKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Fjölbreytt dagskrá.
Annar bekkur K sérstaklega boðinn
velkominn. Bænasamkomur alla
þriðjudaga kl. 20.30. Sr. Örn Bárður
Jónsson.
KIRKJUHVOLSKIRKJA: Messa kl.
14. I messunni verður sérstakur
þáttur fyrir börn. Fermingarbörn
annast ritningarlestur og taka þátt
í fermingarstarfi að messu lokinni.
Sr. Örn Bárður Jónsson.
STOKKSEYRARKIRKJA: Barna-
guðsþjónusta kl. 11. Sóknarprestur.
GAULVERJABÆJARKIRKJA: Messa
kl. 14. Sóknarprestur.
HVERAGERÐISKIRKJA: Barna-
guðsþjónusta kl. 11 í umsjá Kristínar
Sigfúsdóttur. Sóknarprestur.
HEILSUHÆLIÐ í Hveragerði:
Messa kl. 11. Sr. Tómas Guðmunds-
son.
ÞORLÁKSKIRKJA: Æskulýðsmessa
kl. 14. Sr. Tómas Guðmundsson.
AKRANESKIRKJA: Kirkjuskóli
yngstu barnanna í dag, laugardag,
kl. 13 í safnaðarheimilinu. Barna-
guðsþjónusta sunnudag kl. 11 í
kirkjunni og messa kl. 14. Altaris-
gasnga. Sr. Guðmundur Guðmunds-
son fyrrv. æskulýðsfulltrúi prédikar.
Organisti Einar Orn Einarsson. Fyr-
irbænaguðsþjónusta mánudag kl.
18.30. Beðið fyrir sjúkum. Sr. Björn
Jónsson.
Mengun í trúarheiminnm
eftir Steinþór
Þórðarson
„Þegar Guði er svo annt um að við minn-
umst hans sem skapara, hví leyfa menn sér
þá að fella niður þennan hluta hoðorðanna?“
Morgunblaðið 9. desember birti
ágæta grein eftir séra Örn Bárð Jóns-
son, sem vakti athygli á „þeirri
mengun trúarinnar sem nú á sér stað
í_ hinum svokallaða kristna heimi“.
Ég vil byrja á að þakka séra Emi
fyrir að vekja athygli á þeirri af-
bökun sem kristin trú hefur orðið
fyrir að undanförnu. Þetta voru orð
í tíma töluð. Gott væri að heyra frá
fleiri kennimönnum kristninnar sem
byggja boðskap sinn á orði Guðs.
I eftirfarandi orðum mínum vil ég
ganga skrefi lengra og vekja at-
hygli á enn meiri mengun kristninnar
en getið er um í áðurnefndri grein.
Hér skulu nefnd tvö dæmi.
Biblían
Páll postuli er af mörgum talinn
hafa verið einn mesti guðfræðingur
allra tíma. Hann hafði þetta að segja
um áreiðanleika Biblíunnar: „Sérhver
ritning er innblásin af Guði og nyt-
söm til fræðslu, til umvöndunar, til
leiðréttingar, til menntunar í rétt-
læti,...“ (1. Tím. 3.16.) Og Pétur
postuli segir þetta um þann boðskap
sem spámenn Biblíunnar fluttu: „ ...
aldrei var nokkur spádómur borinn
fram að vilja manns, heldur töluðu
menn orð frá Guði, knúðir af heilög-
um anda.“ (2. Pét. 1.21).
Með þennan vitnisburð Biblíunnar
í huga, hvernig get.a þá kennimenn
ýmissa trúfélaga haldið því fram að
fyrstu 11 kaflar Biblíunnar, sem
fjalla um sköpun heimsins og synda-
flóðið, séu ekki innblásinn boðskapur
frá Guði? Þegar haft er í huga að
Kristur og postularnir vitnuðu oft í
sköpunarsöguna og til daga Nóa,
getum við þá einfaldlega afskrifað
þessa kafla sem ævintýri, þjóðsögur,
eða hugarburð? Kristið fólk sem
treystir Jesú Kristi fyrir sáluhjálp
sinni, hlýtur líka að geta treyst þeim
heimildum, þeim ritningum, sem
hann taldi góðar og gildar. Hefur
þróunarkenningin e.t.v. náð slíkri
fótfestu sem raun ber vitni í krist-
inni trú vegna efasemda kennimanna
um sannleiksgildi sköpunarsögunn-
ar? Sköpunarsagan og þróunarkenn-
ingin eru algjörar andstæður. Þær
geta ekki báðar verið réttar. Annað
hvort treysta kristnir sinni trúarbók,
eða þá að þeir gera það ekki.
í lok heilagrar ritningar segir svo:
„Og taki nokkur burt nokkuð af orð-
um spádómsbókar þessarar, þá mun
Guð burt taka hlut hans í tré lífsins
og í borginni helgu, sem um er ritað
í þessari bók.“ (Opinb. 22.19.) Ritn-
ingin kveður mjög skýrt á um það
að ekki skuli gera lítið úr neinum
hluta Guðs orðs.
Boðorðin tíu
Ennfremur má benda á þá mengun
sem boðorð Guðs hafa orðið fyrir í
meðförum manna, og þá ekki síst
vegna þeirrar fræðslu sem leiðtogar
og kennimenn kirkjudeilda veita
safnaðarfólki sínu. Hér á ég við þá
Steinþór Þórðarson
staðreynd að í mörgum kenninga-
kverum vantar annað boðorðið, og
fjórða boðorðið hefur að mestu leyti
verið fellt niður. Samkvæmt Biblí-
unni hljóðar boðorð nr. 2 þannig: „Þú
skalt engar líkneskjur gjöra þér né
nokkrar myndir eftir því, sem er á
himnum uppi, eður því, sem er á
jörðu niðri, eður því, sem er í vötnun-
um undir jörðinni. Þú skalt ekki til-
biðja þær og ekki dýrka þær, því að
ég Drottinn Guð þinn, er vandlátur
Guð, sem vitja misgjörða feðranna á
bömunum, já í þriðja og fjórða lið,
þeirra sem mig hata, en auðsýni
miskunn þúsundum, þeirra sem elska
mig og varðveita boðorð mín.“ (2.
Móseb. 20. 4-6.)
Ég á erfitt með að sjá góða og
gilda ástæðu fyrir brottnámi þessa
boðorðs, ekki síst í ljósi þess, að Jes-
ús sagði: „Þar til himinn og jörð líða
undir lok, mun ekki einn smástafur
eða stafrókur falla úr lögmálinu, uns
allt er komið fram. Hver sem því
brýtur eitt af þessum minnstu boðum
og kennir öðram það, mun kallast
minnstur í himnaríki,...“ (Matt.
5.18-19.)
Og hvað skyldu kennimenn
margra kristinna trúfélaga hafa á
móti fjórða boðorðinu, til að réttlæta
niðurfellingu mesta hluta lengsta
boðorðsins? Orðrétt er boðorðið
þannig: „Minnstu þess að halda
hvíldardaginn heilagan. Sex daga
skalt þú erfiða og vinna allt þitt
verk, en sjöundi dagurinn er hvíldar-
dagur helgaður Drottni Guði þínum.
Þá skalt þú ekkert verk vinna og
ekki sonur þinn eða dóttir þín, þræll
þinn eða ambátt þín eða skepnur
þínar, eða nokkur útlendingur, sem
hjá þér er innan borgarhliða þinna,
því að á sex dögum gjörði Drottinn
himin og jörð, hafið og allt,sem í
þeim er, og hvíldist sjöunda daginn.
Fyrir því blessaði Drottinn hvíldar-
daginn og helgaði hann.“ (2. Móseb.
20.8-11.)
I kenningabókum hinna ýmsu trú-
félaga, og einnig í handbókum ferm-
ingarbarna, er þetta boðorð sagt
vera þriðja boðorðið, enda er annað
boðorðið þar ekki að finna, þar'sem
það hefur verið fjarlægt úr lista
hinna tíu boðorða. Hins vegar hefur
tíunda boðorðinu verið skipt 5 tvennt
til að viðhaldatölunni tíu. Samkvæmt
Orði Guðs, eru boðorðin tíu eini hluti
Biblíunnar sem Guð skrifaði sjálfur,
með eigin fingri. (2. Móseb. 32.18).
Allt annað fól hann spámönnunum,
postulunum, og öðrum innblásnum
þjónum sínum að skrifa. Sjálfur lagði
Kristur áherslu á mikilvægi boðorð-
anna með þessum orðum: „Ef þér
elskið mig, munuð þér halda boðorð
mín.“ (Jóh. 14.15.)
Hér vil ég leggja ríka áherslu á
þá staðreynd, að enginn verður hólp-
inn fyrir dugnað sinn í því að halda
boðorðin tíu. Hjálpræðið stendur öll-
um til boða sem trúa á Jesúm Krist
og fórnardauða hans. Hinsvegar op-
inberast kærleikur mannanna til
Guðs í hlýðni þeirra við meginreglur
himinsins, stjórnarskrá Guðsríkis,
sem Guð hefur opinberað í boðorðun-
um tíu.
í síðustu bók Biblíunnar er sagt
frá „eilífum fagnaðarboðskap, til að
boða þeim sem á jörðunni búa, og
sérhverri þjóð og kynkvísl, tungu og
lýð.“ Og engillinn leggur sérstaka
áherslu á mikilvægi þessa boðskapar
þegar hann segir hárri röddu: „Óttist
Guð og gefið honum dýrð, því að
komin er stund dóms hans. Tilbiðjið
þann, sem gjört hefur himininn og
jöi'ðina og hafið og uppsprettur vatn-
anna.“
Hér er svipað orðalag og áhersla
og er að finna í hvíldardagsboðorð-
inu, þar sem fólk er hvatt til að til-
biðja skaparann. Þegar Guði er svo
annt um að við minnumst hans sem
skapara, hví leyfa hienn sér þá að
fella niður þennan hluta boðorðanna?
Það er athyglisvert að bæði annað
og fjórða boðorðið kalla á hollustu
okkar í tilbeiðslu við hinn eina og
sanna Guð.
Höfundur er safiiadarprestur
aðventísta á Suðurnesjum og er
doktor íguðfræði.