Morgunblaðið - 10.03.1990, Síða 31

Morgunblaðið - 10.03.1990, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. MARZ 1990 31 Minning: Olof Stroh framkvæmdasljóri Hinn 3. desember sl. lést í Stokk- hólmi Olof Stroh fyrrverandi fram- kvæmdastjóri Sænska rauða krossins og eitt af mikilmennum Rauða kross- ins í veröldinni. Hann var einlægur aðdáandi íslands og íslendinga og átti hér vopnabræður sem sakna vin- ar. Áhrifavald hans var mikið og náði víða, byggt á reisn ósíngjarns manns með áhuga á velferð með- bræðra. Sjálfur sóttist hann ekki eftir vegtyllum. Skjöldur hans var hreinn. Vitund hans var vakandi fyr- ir sögulegum tengslum. Hann lét ekki atburði dagsins villa sér sýn. Saga Rauða kross íslands spannar 2A hluta úr öld. Miklu skemmra er síðan samtökin hófu starf á traustri undirstöðu þar sem þörfum tímans var hlýtt. RKÍ tók slitróttan þátt í alþjóðlegu starfi og ræktaði lítt sam- band við önnur landsfélög. Um 1960 hófst ný sókn Rauða kross félaga í Skandinavíu. Þá tóku ungir og vaskir framfaramenn við framkvæmdastjórastörfum í hverju landinu á fætur öðru. Var það Olof Stroh öðrum fremur umhugsunarefni að norrænt samstarf Rauða krossins gat ekki kallast því nafni nema verk- færir íslendingar væru í áhöfninni. Forystuliði RKI var boðið að kynnast starfi Rauða krossins í Skandinavíu árið 1963. Þegar í ágúst næsta ár var haldinn hér norrænn fundur Rauða krossfélaga allra Norður- landa. Þá gekk það upp fyrir RKÍ hvílíkt afl Rauði krossinn var í ver- öldinni, alþjóðlega og í hveiju landi. Frá þeirri stundu hófst endurnýjun lífdaga og félagið tók að feta sig eftir löngum og þröngum framfar- astíg. Strax næsta ár ákvað RKÍ að taka fullan þátt í alþjóðafundi sem haldinn var í Vínarborg. Þangað var sendur ungur en þó reyndur stjórnar- maður Davíð Sch. Thorsteinsson. Fundurinn samþykkti nýjar grund- vallarreglur og markaði tímamót í sögu mannúðarmála í veröldinni. Á hinn bóginn varð afdrifaríkt óhapp við formannskjör í Alþjóðasambandi RK er hinn fremsti féll og hinn sísti komst til forystu. Allt vegna þess að Norðurlöndin báru ekki gæfu til að standa saman. Eitt þeirra tók eig- in metorð fram yfir almenna hags- muni. Eftir þá merkilegu atburði og átök gekk það upp fyrir RKÍ hvaða kostum Olof Stroh var búinn. Sam- starf hófst og átti eftir að standa lengi. Vinátta Olof Stroh og íslend- inga var innsigluð. Olof Stroh fæddist árið 1918. Þeg- ar hann var 12 ára gamall sótti á hann vanheilsa. Rannsókn leiddi í ljós að drengurinn væri berklaveikur. Vinir fjölskyldunnar sem bjuggu í Genf í Sviss buðust til að taka dreng- inn til sín ef fjallaloftið mætti verða honum til heilsubótar. Þegar þangað kom reyndist ekki vera um berkla að ræða. Var nú ekki annað að gera en að setja hann í skóla þar til hann næði heilsu. Þegar hann sneri heim hafði hann náð tökum á frönsku og settist í menntaskóla. Hann komst upp á kant við skólann og lauk stúd- entsprófi utanskóla 16 ára gamall. Veikindin leiddu til þess að hann lagði mikla stund á líkamsrækt og varð hraustmenni mikið. Hann ákvað að ganga í herskóla. Aldursmark var 18 ár og stundaði hann frönskunám við Uppsalaháskóla þar til hann hafði náð aldri. í þann mund er Olaf lauk herskólanámi kom boð frá Frökkum til Svía um að senda nemanda í her- háskólann þar í landi. Var Olof nefndur til. Hermálaráðherra taldi hér vera um óþarfa útgjöld að ræða. Olof sótti málið fast og bauðst til fararinnar kauplaust. Fékk hann sitt fram. Lauk hann þar prófi með hæstu einkunn sem nokkru sinni hafði fall- ið erlendum nemanda í hlut. Einkennilegt er að rifja upp hörmulega atburði veraldarsögunn- ar. Þeir virðast langt undan, en eru það samt ekki. Sumir höfðu ekki bein áhrif á mannkynssöguna en eru hluti af henni. Árið 1968 gerðist það að svikin matarolía var sett á mat- vælamarkað í Marokkó og fjöldi manns týndi lífi og missti heilsu. Þá þarfnaðist Alþjóðaheilbrigðisstofn- unin (WHO) frönskumælandi stjórn- anda og kvaddi Olof Stroh til. Enn er litið á hjálparstarfið sem dæmi um góða samvinnu milli alþjóðastofn- unar og sjálfboðinnar (RK). Þegar starfinu lauk var Olof Stroh boðið að verða framkvæmdastjóri sænska Rauða krossins er Henrik Beer, ann- ar íslandsvinur, tók við stjórn Al- þjóðasambandsins. Yfirmenn hans í hernum Iöttu hann mjög. Olof var þakklátur hvatningunni sem í því fólst. Tók hann við starfinu árið 1960 og hóf að færa út kvíarnar. Þá tók hann í áranna rás að sér stjórn alþjóðlegrar hjálpar. Af þeim varð hann þekktur fyrir vandasamar aðgerðir í Biafrastríðinu, Ind- ókína/Vietnam og að byggja upp viðbúnað í ýmsum heimshlutum, ekki síst Indlandi. Einkenni á Olof Stroh sem starfs- manns var ósérhlífni, nákvæmni og vinnusemi. Ljós siðalögmál og heim- spekikerfí var leiðarljósið. Hann leit- aðist við að fella hluti saman í heild til að koma mætti skipulagi á hjálpar- starf, öflun stuðnings við það og til að starfslið gæti leyst flókinn vanda hvenær sem hann kæmi upp. Þegar hann mótaði afstöðu sína í ýmsum málum kom fram yfirmáta víðtæk þekking hans á sögu, heim- speki og bókmenntum. Hann dró fram dæmi úr íslendingasögum máli sínu til stuðnings. Minnisstætt var þegar hann í heiðríkju fjallanna stakk sér til sunds í lygnum skessukatji Hvítár í Borgarfirði. Þá var innfædd- um öllum lokið. Olof Stroh ber hátt í minningunni þegar hann upphóf rödd sína á alþjóðafundum. Það gerði hann aðeins er mikið lá við. Meðferð talaðs og ritaðs máls var honum metnaðarmál og ræður hans unun á að hlýða. Við hittumst oft í áranna rás. Væri ég á beinni leið á hans fund bjó ég mig út með skyrbirgðir. Hann hafði tröllatrú á hollustu gamla góða skyrsins og taldi það hafa styrkt þjóðina í aldanna rás og var sam- mála prófessor Skúla Guðjónssyni í því efni. Gjarna dreif hann mig út í Brunnsvik þar sem hann átti ka- jakka. Það þótti honum miður að ég tók ekki að stunda róður á Skeija- firði þrátt fyrir hvatningu góðs þjálf- ara. Þegar Olof Stroh hætti vegna ald- urs sem framkvæmdastjóri Rauða kross Svíþjóðar tók hann við trúnað- arstarfi í Genf. Eftir tvö ár skarst í odda með honum og þáverandi form- anni Alþjóðasambands RK. Taldi Olof hann hafa brotið lífsnauðsynleg- ar hlutleysisreglur um pólitísk mál- efni. Sagði hann starfi sínu lausu árið 1982 með eftirminnilegri yfirlýs- ingu hins vammlausa manns. Við hjón heimsóttum Olof Stroh og Veru konu hans síðast fyrir þrem- ur árum. Þá var tekið að halla undan fæti hjá þeim og heilsa þeirra beggja að gefa sig. Við nutum gestrisni þeirra hjóna og dáðumst að málverk- um Veru sem var góður listamaður. Þeim varð ekki barna auðið. Við fundum til með þeim í stórborginni miðri er aldurinn færðist yfir og heilsan að bila. Starfið hafði verið honum allt og fjölskyldan dreifð um landið. En heiðríkja hugans og óbil- andi trú hans á sigur hins góða gerði það að verkum að við gengum glöð af þeim samfundi eins og öllum fyrri. Eggert Ásgeirsson Minning: Helga J. Jónsdóttir Vestmannaeyjum Jón Hallfreðsson frá Bakka - Kveðjuorð Fædd 18. september 1917 Dáin 5. mars 1990 Helga Jóna Jónsdóttir fæddist 18. september árið 1917 að Sperli í V- Landeyjum. Þar bjuggu foreldrar hennar þá, þau Sigríður Sigurðar- dóttír, f. 17. ágúst 1887, d. 21. sept- ember 1972 og Jón Jónsson, smiður, f. 13. júní 1885, d. 25. september 1951. Bæði voru þau hjón Rangæing- ar. Þau fluttu til Vestmannaeyja þegar Helga var á þriðja ári. Þá höfðu þau eignast Sigurð, síðar vél- stjóra og sjómann um árabil í Eyjum. Fljótlega eftir komuna til Eyja hófust þau Sigríður og Jón handa og byggðu sér steinhús við Faxastíg 23 og bjuggu þar alla sína hjúskap- artíð. Hús sitt kölluðu þau Engey, hagkvæmt hús á einni hæð með verk- stæði við austurhlið. Fjölskyldan stækkaði ört og fædd- ust nú Stefán, síðar rafvirki, d. 27. ágúst 1969 í Landspítalanum í Reykjavík. Heimsótti ég þennan leik- bróður minn þangað. Hann var þá kvæntur Þorsteinu Sigurðardóttur og átti með henni 5 börn. Næstur kom Gísli, sem drukknaði í mann- skaðaveðrinu 1. mars 1942. Hann var þá háseti á vb. Ófeigi VE 217. Hann kvaddi lífið rétt um tvítugt. Góður og mikið hugljúfur drengur. Næst kom Siguijón, skipstjóri og útgerðarmaður í Vestmannaeyjum um árabil. Síðar komu þær systur Svala og Guðrún, sem nú er látin. Eins og gefur að skilja þá fór Helga fljótt að leggja móður sinni lið. Bræður hennar fæddust einn af öðrum og kom sér nú vel fyrir þá að Helga var þeirra elst og stóra systir. Eg kom afar oft í Engey og mætti aldrei nema góðvild hjá þeim hjónum Sigríði og Jóni. Samþykktu þau mig sem leikbróður drengjanna sinna. Sömu einkenni fylgdu Helgu, sem voru hjá Sigríði móður hennar. Þrifnaður og hreinlæti voru eins og best verður á kosið. Ung að árum kynntist Helga verð- andi eiginmanni sínum, Einari Hann- essyni frá Hvoli við Urðaveg 17, Vestmannaeyjum. Þar bjuggu for- eldrar hans, Magnúsína Friðriks- dóttir frá Gröf, alsystir Benónýs afla- kóngs. Faðir Einars var Hannes Hansson, mjög kunnur sjósóknari og mikill aflamaður á sinni tíð. Þau Helga og Einar byrjuðu búskap sinn þar á Hvoli. Árið 1942 keyptu þau hlut í Brekku við Faxastíg 4 og bjuggu þar alla sína tíð. Helga var nú komin á Faxastíg aftur. Sömu einkenni fylgdu henni og verið höfðu í Engey. Hún var mjög húsleg og þrifin og bjó manni sínum og börnum gott og fagurt heimili. Ég kom þar oft, var nágranni þeirra í 9 ár. Helga og Einar eignuðust fjögur börn, sem fengu gott veganesti til lífsins í góðu viðmóti og umönnun. Elstur var Órn, bifreiðastjóri, f. 1936; Gísli Valur, útgerðarmaður og skipstjóri og eig- andi að Björgu VE 5, nýlegu stál- skipi, f. 1943. Síðar fæddist Sigríður Mjöll, húsmóðir, f. 1947 og yngstur þeirra systkina er Sævar, f. 1950. Barnaböm Helgu og Einars eru 12 og langafa- og langömmubörnin eru 12. Hlutverk Helgu var mikið. Einar var oft langtímum á sjó. Éftir því Tíminn stendur ekki kyrr. Allt lífið er eintóm kaflaskipti. Mér fannst þegar mér var tilkynnt lát Odds Friðrikssonar eins og ákveðn- um kafla væri nú lokið. Hann Oddur, og hans heimili, var mjög mikilvægur þáttur í lífi mínu í mörg ár. Hann var faðir æskuvin- konu minnar. Hann var húsbóndi á því heimili sem ég hélt jafnvel jafn mikið til á og hjá mínum eigin for- eldrum, á ákveðnu árabili, árabili mótunar og mikilla breytinga hjá hveijum einstaklingi, frá barni til fullorðins. Mér hefur oft dottið í hug að líkja mætti heimili þeirra Odds og Heiðu sem börnin uxu úr grasi stundaði Helga vinnu fyrir utan heimili sitt árum saman. Hafa systkinin frá Brekku öll borið einkenni foreldra sinna í dugnaði og manndómi. Því er mér ljúft að minnast Helgu, hvern- ig hún árum saman trúði mér fyrir því að kenna börnum sínum kristin- dóm í sunnudagaskóla, Betel. Blessa ég minningu hennar og sendi öllum ástvinum samúðarkveðjur. Einar J. Gíslason við vin í eyðimörk. Vin þar sem öllu var tekið með rósemd þess skynsemisfólks sem þar réð ríkjum. Ég held þegar ég hugsa um það að aldrei hafi verið hallað á nokk- urn mann í mín eyru í því húsi. Það hefur örugglega oft verið handagangur í öskjunni þegar tvær unglingsstúlkur komu hlaupandi í kaffi úr skólanum, uppfullar af at- burðum dagsins, og kannski stund- um svolítið tilætlunarsamar. Aldrei man ég samt eftir styggðaryrði. Og allar þær ferðir sem hann Ödd- ur fór með okkur „upp á dal“, það var ekki eins algengt þó ekki sé lengra síðan að krakkar voru keyrð- í dag verður til moldar borinn í Kollafjarðarnesi vinur minn, Jón Hallfreðsson frá Bakka, sem lést í Landspítalanum 1. þ.m. Þegar ég frétti lát hans kom það ekki alveg á óvart, því hann var búinn að vera veikur í nokkurn tíma, en þó bjóst ég ekki við þeirri frétt svo fljótt. Ég hef þekkt Jón frá því ég man fyrst eftir mér, en veit þó lítið um ætt hans, mér er nóg að vita að fólk af hans gerð er komið út af hinum harða kjarna íslenska ætt- stofnsins sem hungur, hallæri og plágur liðinna alda gátu aldrei drep- ið, og við eigum það að þakka að vera þjóð í dag, en urðum ekki al- dauða eins og útlit var fyrir á myrk- ustu skeiðum sögunnar. Jón var mikið hraustmenni og afkastamaður til verka, eins og bræður hans, Eyjólfur og Emil, og ætíð reiðubúinn að rétta hjálpar- hönd, ef með þurfti. Það kom sér oft ekki illa hjá okkur á Valshamri að eiga jafn ágætt fólk að nágrönnum og Bakkafólkið alla tíð. Þegar leiðir okkar Jóns skilja nú um sinn, er mér efst í huga þakk- ir til að geta farið á skíði, en ég held að ferðirnar með okkur hafi verið nær óteljandi. Þó kannski hafi ekki verið þakkað nægilega vel þá fyrir þessa fyrirhöfn eru þetta minningar sem gott er að rifja upp, minningar um mann með bros í augum og yl í vinnuhöndum. Eg get ekki látið hjá líða að minn- ast á haustið 1972 þegar ég dvaldi alveg í 2-3 mánuði á heimili Odds og Heiðu, þar sem mínir foreldrar voru erlendis. Þetta var á fremur erfiðum tíma, þar sem við vorum að hefja nám í menntaskóla, allt var nýtt og við héldum að við vær- um orðnar fullorðnar. Ekki hefði verið hægt að dveljast á betri stað, mér fannst alltaf ég eiga heima hjá þeim hjónum. Þegar árin líða slitna oft tengsl við æskuvini. Vinafundir víkja fyrir dægurþrasi. Alltaf er það þó svo að maður vildi hafa áttað sig fyrr á því að tíminn stendur ekki kyrr læti fyrir vináttu hans og hjálp- semi, mér veitta, þess vegná eru þessar fáu og fátæklegu línur sett- ar á blað. Konu hans og börnum votta ég mína innilegustu samúð. Guðmundur Karlsson — hefði viljað líta við, heilsa upp á, og þakka þannig fyrir ómetanleg- an tíma. Ég hitti Odd og Heiðu á götu nú í desember þegar ég var á æsku- slóðum, ég var að hugsa þegar ég sá þau koma á móti mér að þar færu falleg hjón. Það var sama brosið í augunum hans Odds og sami ylurinn í höndinni sem strauk yfir kinn mína þegar hann óskaði mér gleðilegra jóla. Með þessum fátæklegu orðum langar mig til að senda ykkur öllum elsku Heiða mín, Guðný, Kristín og Lára, samúðarkveðjur við fráfall eiginmanns og föður, með þökk fyrir liðnar stundir. Litla ský - leifturbrá lægðu flug. Berðu smá-blómi frá blíðan hug Fjallasvani’ er flýgur yfir fjöllin há. (Steingerður Guðmundsd.) Elín Arthursdóttir Oddur Friðriksson frá ísafírði - Minning

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.