Morgunblaðið - 10.03.1990, Page 33
33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. MARZ 1990
Þórgnýr Guðinunds-
son Sandi - Minning
Fæddur 6. apríl 1902
Dáinn 5. febrúar 1990
Heljar lúður í hlustum gellur,
hraðað er för til dáins ranna.
Hver af öðrum fer og fellur
fyrri aldar búandmanna.
(K.I.)
Þetta erindi föður míns hefur oft
komið í huga mér seinustu mánuð-
ina. Frá því í september hafa fimm
Aðaldælir horfið þá ieið sem við
eigum öll að ganga.
Þetta fólk var allt á góðum aldri
þegar ég var að alast upp í Aðal-
dal, frændur, nágrannar og sveit-
ungar. Högni á Syðra-Fjalli, Ámi
Kristinn í Skriðulandi, Snorri í
Geitafelli, Kristjana í Múla og nú
síðast Þórgnýr á Sandi, kennari og
skólastjóri í Aðaldal um langan ald-
ur. Aðaldælir þurftu ekki að kvarta
yfir tíðum kennaraskiptum eða
sækja þá um langan veg. Þeir fengu
þá af heimaslóðum og hélst vel á
þeim. Jóhannes í Haga hóf kennslu
1908 og kenndi til 1948, Steingrím-
ur í Nesi frá 1949 til 1963 og Þór-
gnýr á Sandi frá 1943 til 1972.
Þeim fækkar óðum sem hafa feng-
ist við farkennslu, mánuð eða
þriggja vikna tíma á sama bæ.
Kennt var í stofu á þeim heimilum
sem rúmust áttu húsakynnin. Það
voru ekki allar kennslustofur stórar
sem ég man eftir, en hjartarúm
húsbændanna voru góð, þó húsrými
væri ekki mikið. Auk kennara voru
nemendur iðulega í fæði og hús-
næði, auk heimafólksins, sem yfir-
leitt var fleira en nú gerist og því
oft þröngt á þingi, en allt blessaðist
þetta og námsárangur var býsna
góður. Á milli bæja var svo farið
gangandi eða á skíðum og það er
ekki svo langt síðan þetta var. Þó
eru breytingarnar á öllum sviðum
orðnar meiri en nokkur manns-
hugur hefði getað ímyndað sér urti
1945, þegar ég var að hefja mína
skólagöngu, þá 10 ára. Ég og systk-
ini mín vorum svo lánsöm að njóta
tilsagnar þeirra þriggja kennara
sem ég hef nefnt og þar bar aldrei
skugga á. Þórgnýr kenndi mér sein-
asta veturinn sem ég var í barna-
skóla og nú leitar hugur minn norð-
ur í Aðaldal, þegar komið er að
kveðjustund hans.
Hann var fæddur á Sandi 6. apríl
1902, sonur Guðrúnar Oddsdóttur
og Guðmundar Friðjónssonar sem
þar bjuggu. Þar ólst upp stór hópur
atgerfisfólks og var Þórgnýr næst-
elstur ellefu systkina. Hann var við
nám á Eiðum í tvo vetur og hóf
síðan kennslustörf, fyrst í Eiða-
hreppi en tók síðan kennarapróf
1943 og eftir það var hann kennari
og skólastjóri i Aðaldal til 1972 og
hann naut þess að sjá stórhýsi
Hafralækjarskóla rísa. Það voru
sterk bönd frændsemi og vináttu
milli Ytra-Fjalls og Sands. Foreldr-
ar mínir mátu Þórgný mikils og
töldu hann til sinna bestu vina. Þar
komu einnig til sameiginleg áhuga-
mál eins og skógrækt og bindindis-
mál. Nú er móðir mín ein eftir
Freydís Sigurðardóttir
Alftagerði—Minning
Þetta ætlar að verða harður vet-
ur öldnum Mývetningum. Á nokkr-
um vikum hafa fjórir sveitungar
kvatt þennan heim, nú síðast
Freydís Sigurðardóttir í Álftagerði
þann 3. marz sl.
Freydís fæddist á Arnarvatni
þann 11. apríl 1903, dóttir Sigurðar
Jónssonar skálds og bónda þar og
fyrri konu hans, Málmfríðar Sigurð-
ardóttur. Hún var elst sex alsystk-
ina og það má nærri geta hvílíkt
álag það hefur verið 13 ára ungl-
ingi þegar móðirin dó 1916 og stóra
systir varð að ganga þeim yngri í
móður stað fýrst um sinn. Sam-
bandið við stjúpmóðurina, Hólmfríði
Pétursdóttur frá Gautlöndum, var
alla tíð mjög innilegt og náið. Hvort
sú ró og æðruleysi, sem einkenndi
Freydísi síðar meir, hefur verið
meðfædd eða áunnist á þessum erf-
iðu unglingsárum er ekki gott að
segja, en hitt er víst, að hún átti
alltaf næga hlýju, umhyggju og
ástúð fyrir alla sem hún umgekkst.
Freydís giftist Geir Kristjánssyni
frá Gautlöndum og þau hófu búskap
í Álftagerði 1931, í heimskreppunni
miðri. Þau hafa örugglega ekki far-
ið varhluta af þeim erfiðleikum
frekar en aðrir, verandi auk þess
að hefja búskap. En þau áttu nokk-
uð, sem reynst hefur mörgum
drýgra í þrengingum en auður og
völd: Alveg einstaka samheldni, ást
og virðingu hvort fyrir öðru. Heim-
ili þeirra var einhvem veginn fullt
af þessari ást og samlyndi sem
entist meðan bæði lifðu. Geir lést
árið 1977.
Börn þeirra Freydísar og Geirs
eru: Ásmundur f. 1.3. 1932, sem
er starfsmaður Skútustaðahrepps
og hefur búið með móður sinni í
Álftagerði, Málmfríður f. 14.2.
1934, húsmóðir og afgreiðslumaður
í Reykjavík og Arngrímur f. 29.5.
1937, kennari á Skútustöðum.
Barnabörnin eru orðin 8 og 4 barna-
barnaböm. Freydís fýlgdist með
öllum sínum niðjum, hvar sem þau
vom og bar hag þeirra jafnt fýrir
bijósti og þeim þótti innilega vænt
um hana. Og ófáir voru þeir ungl-
ingar og börn, skyld eða óskyld, sem
nutu hennar umhyggju á sumrin.
Freydís var alveg sérstaklega
vandvirk og snyrtileg. Það var ekki
alltaf auðvelt að halda öllu hreinu
og snyrtilegu í þeim hripleku bæj-
um, sem flestir bjuggu í til sveita
á íslandi fram undir miðja þessa
öld. Einhvern veginn tókst það þó
með ágætum hjá Freydísi í Álfta-
gerði og nýja húsið þeirra var auð-
vitað alltaf eins og nýskúrað út úr
dyrum. Það var eins með alla mat-
argerð. Allur matur bragðaðist svo
vel hjá Freydísi og smákökurnar
Oskar Illugason í
Reykjahlíð látinn
Mývatnssveit.
NÝLÁTINN er Óskar Illugason,
bóndi í Reykjahlíð. Ilann fæddist
8. ágúst 1913. Forcldrar hans voru
Illugi Einarsson og Kristjana
Hallgrímsdóttir.
Illugi andaðist árið 1935. Tóku
þá Kristjana og synir hennar, Oskar
og Valgeir, við búsforráðum á hluta
jarðarinnar, Reykjahlíð I. Frá 1960
hafa þeir bræður búið félagsbúi
ásamt eiginkonum sínum. Eiginkona
Óskars, Sigrún Hallfreðsdóttir frá
Akureyri, lifir mann sinn.
Árið 1959 byggðu þeir bræður 140
m2 íbúðarhús, ennfremur öll útihús.
Samstarf þeirra var ætíð eins og
best verður á kosið. Oft dvöldu ungl-
ingar á heimilinu á sumrin og minnt-
ust ætíð þess tíma með mikilli
'ánægju. Óskar átti síðustu ár við
vanheilsu að stríða og dvaldi þá af
og til á sjúkrahúsum. Hann andaðist
24. febrúar. Útför hans var gerð frá
Reykjahlíðarkirkju laugardaginn 3.
mars að viðstöddu fjölmenni.
- Kristján
þeirra þriggja og saknar vinar í
stað. Þórgnýr Guðmundsson var
gull af manni og góður og farsæll
kennari sem lét sér mjög annt um
nerrtendur sína og þeirra hag. Trú-
mennska og samviskusemi gagn-
vart öllu því sem hann átti hlut að
var hans leiðarljós og aldrei hefði
það hvarflað að honum að setja
hagsmuni sína ofar hag nemenda
eða láta bitna á þeim kröfu um
stundarhagnað svo sem nú gerist
ár eftir ár, með þeim afleiðingum
sem allir þekkja. Á sumrin vann
hann að búinu á Sandi ásamt systk-
inum sínum. Þau voru samhent og
samhuga og heimilið á Sandi bar
glögg merki alls hins besta úr þing-
eyskri bændamenningu. Ég kom í
Sand fyrir nokkrum árum og hitti
Þórgný. Hann var glaður í bragði
og léttur í tali. Margt var honum
hugleikið, bæði skóla- og bindindis-
mál en bindindismaður var hann
alla ævi. Hann ritaði greinar um
hennar voru þess utan svo fallegar.
Freydís hafði notið einhverrar hús-
mæðrafræðslu þegar hún dvaldi í
Reykjavík um skamman tíma rúm-
lega tvítug. En vandvirknin og
verklagnin var henni í blóð borin.
Nágrannakona hennar, sem hóf
búskap í Álftagerði nokkru á eftir
Freydísi og Geir, var vön að segja,
ef einhver óvænt eða ókunn hús-
verk bar að höndum: „Ég held ég
verði að spyija Dísu.“
Nú er stund til að kveðja og
þakka fyrir hlýju, vinsemd og greið-
vikni. Gamall nágranni biður fyrir
kveðju og þakkir fyrir 60 ára sam-
fýlgd í nábýli og vináttu, sem aldr-
ei bar skugga á. Aðstandendum er
vottuð samúð, en þeir eiga aðeins
góðar minningar eftir.
Björn Dagbjartsson
áhugamál sín í blöð og tímarit,
enda prýðilega ritfær eins og hann
átti ættir til og skrifaði gott og
vandað mál. Hann sýndi mér bók
sem seinustu nemendur hans gáfu
honum í afmælisgjöf þegar hann
hætti kennslu vegna aldurs. Mér er
í minni gleði hans og stolt yfir
þeirri gjöf, ég held meiri, en þó
hann hefði verið sæmdur opinberu
heiðursmerki og ég skynjaði ham-
ingju þess er fær sönnur fyrir því
að vel hafi tekist með ábyrgðarfullt
starf. Neskirkja í Aðaldal átti dygg-
an stuðningsmann og velunnara þar
sem Þórgnýr vdr. Hann sat í sókn-
arnefnd og starfaði sem safnaðar-
fulltrúi. Kirkjuna prýðir nú fagur
ljósakross sem hann og systkini
hans gáfu til minningar um látna
ástvini. í Nesi verður hann lagður
til hinstu hvílu við hlið foreldra og
ættmenna. Hann kvæntist ekki og
átti ekki afkomendur en hinn stóri
hópur systkinabarna hans voru sem
hans eigin börn. Þeirra gleði var
hans gleði og þeirra sorgir hans
sorgir. Aðaldælir eiga Þórgný á
Sandi stóra þakkarskuld að gjalda
sem seint verður greidd. Þá skuld
að hafa verið kennari og lærifaðir
ljölda barna og unglinga. Ég er ein
úr þeim hópi og þessi orð mín lítil
afborgun. Frændum og vinum á
Sandi sendi ég hlýjar samúðar-
kveðjur, en kennara minn og
frænda vil ég kveðja með erindi úr
kvæði sem faðir minn orti eftir Jak-
obínu í Hólsgerði en hún og Guð-
mundur á Sandi voru systkinabörn:
Gott er að hverfa frá gegnu starfi,
gamal! að vetrum, ungur í lund.
Vera hinn trausti, vera hinn þarfi,
vakinn og sofinn með græðandi mund.
Skila svo flekklausum orðstír að arfi,
auðmjúkur leita á guðs síns fund.
(K.I.)
Ásta Ketilsdóttir frá Fjalli.
♦3Sun<Uborg 13 - 104 R#>k>«vik - Simi 6885M
Yale
Vírtogari
Níðsterkur, léttur og fiölhætur
Yale - gæði - ending
Heildsöludreifing
35 JÓHANN ÚLAFSSON & C0. HF.
Kork'O'Plast
Sœnsk gœðovara í 25 ór.
KORK O PLAST er með slitMerka vmylhúö og nolíð á gólf sem mikiO
mæðii á. svo sem á nugstóövum og á sjúkrahúsum
KORK O PtAST ct auðvrli að þr/fa og þægilegt ei að ganga á pvi
Sédcga hefitugi fyni vmnustaði. Danka og opmbeiai sknhtofui
KORK O PLAST byggn ckki upp spmnu og er mikið ncxað í
Iðtvuheitíeig^jm
fcg t>. ÞORGRÍMSSON & CO
Annula 29 Reyk|avik simi 38640
Snæfellingar
Upplýsingafundur um
Evrópska
efnahagssvæðið EES
Jón Baldvin Hannibalsson
Utanríkisráðuneytið heldur upplýsingafund um
viðræður Fríverslunarsamtaka Evrópu (EFTA) og
Evrópubandalagsins (EB) um myndun Evrópska
efnahagssvæðisins (EES) á Hótel Stykkishólmi í dag,
laugardaginn 10. mars, kl. 16.00.
Jón Baldvin Iiannibalsson, utanríkisráðherra, hefur
framsögu og svarar fyrirspurnum.
Listmunauppboð nr. 153
MÁLVERK
Listmunauppboð Guðrúnar Guðmundsdóttur (málverk) fer fram
á Hótel Sögu, Súlnasal, sunnudaginn 11. mars nk. kl. 20.30.
Myndirnar verða til sýnis í Klausturhólum, Laugavegi 8,
laugardaginn 10. mars kl. 14-18, og á Hótel Sögu
sunnudaginn 11. mars kl. 14-18.
Listmunauppboð Guórúnar Guómundsdóttur,
Laugavegi 8, sími 19250.