Morgunblaðið - 10.03.1990, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 10.03.1990, Blaðsíða 36
-36 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. MARZ 1990 Skákkeppni stofiiana; Búnaðarbankinn sigraði í áttunda skiptið í röð Skák MargeirPétursson SKÁKKEPPNI stofnana og fyr- irtælga fór í ár í fyrsta skiptið fram í nýju og glæsilegu félags- heimili Taflfélags Reykjavíkur. Þátttaka var þó í dræmara lagi, aðeins 38 sveitir mættu til leiks. Svo virðist sem margir áhuga- menn séu ekki búnir að upp- götva hversu mjög aðstæðurnar hafa batnað. I A-riðli sigraði skáksveit Búnaðarbanka íslands í áttunda skiptið í röð, með tals- verðum yfirburðum, en hörð keppni var um annað sætið. Búnaðarbankinn hefur talsvert tengst skáklistinni á undanforn- úm árum og ekki aðeins með því að einoka stofhanakeppnina, heldur mun bankinn verða helsti styrktaraðili opna alþjóðamóts- ins sem hefst hér í Reykjavík að loknum stórveldaslagnum. Mun mótið því verða kennt við bankann. Þetta er þó ekki í fyrsta skipti sem haldið er Bún- aðarbankaskákmót, mörgum er vafalaust enn í fersku minni mót bankans 1984, sem markaði tímamót í skáksögu landsins. Úrslit í A f lokki: 1. Búnaðarbanki íslands, A- sveit 23 v. af 28 mögulegum. 2. Lögmenn Ránargötu 17 v. 3. Fjölbrautaskólinn við Ármúla 16 'A v. 4-5. Landsbankinn og Iðnskólinn 16 v. 6-7. Verkfræðistofa Sigurðar Thoroddsen og íslandsbanki 15 v. í hraðskákkeppninni stillti Bún- aðarbankinn ekki upp liði, en þar sigraði Iðnskólinn, Háskólinn varð í öðru sæti og Lögmenn Ránargötu urðu í því þriðja. Kærumái voru engin að þessu sinni og fór keppn- in vel fram. Úrslit í B-flokki: 1-2. Strætisvagnar Reykjavíkur og Unglingaflokkur TR 17 'A v. 3-4. Prentsmiðjan Oddi og Búnað- arbanki íslands, B-sveit 17 v. 5. Olíuverslun íslands hf. 16 v. 6-8. Verkfræðistofa Guðmundar og Kjartans, Verzlunarskóli íslands og Arnarsson og Hjörvar 15'A v. Unglingar út TR tefldu sem gestir, því það stóð á stöku. Það kom nokkuð á óvart að þeir skyldu ekki vinna keppnina einir, en það kom til af því að þeir fengu óvænt- an skell gegn Olís, 1-3, í síðustu umferð. Þá fékk Búnaðarbankinn frábært tækifæri til að vinna B- flokkinn líka, en tapaði VU-Z'h fyrir Odda. Skákkeppni framhalds- skóla 1990 Keppnin var haldin helgina 23. til 25. febrúar sl. og sigraði A- sveit Menntaskólans við Hamrahlíð með yfirburðum. Sveitina skipuðu þeir Sigurður Daði Sigfússon, Þröstur Árnason, Snorri G. Bergs- son og Amaldur Loftsson, allt vel þekktir skákmenn. Sveit Ármúla- skóla varð í öðru sæti, en með þeim tefldi eini alþjóðameistarinn á mótinu, Þröstur Þórhallsson. Þótt hann næði 6 ’A v. af 7 mögu- legum, dugði það ekki, en með Þresti í sveitinni vora þeir Olafur B. Þórsson, Kristján Eðvarðsson og Veturliði Þ. Stefánsson. Þröstur Ámason MH er félögum sínum betri en enginn í sveita- keppnum. í keppni framhaldsskól- anna vann hann allar skákir sínar á öðra borði og í Skákkeppni stofn- - ana lék hann sama leikinn á öðru borði í A-sveit Búnaðarbanka ís- lands. Andstæðingar hans í þessum keppnum vora þó margir hver kunnir meistarar. Úrslit á framhaldsskólamótinu urðu þessi: 1. MH, A-sveit 25 v. af 28 mögulegum. 2. Fjölbrautaskólinn við Ár- múla, A-sveit 18'A v. 3. MH, B-sveit 17 ‘A v. 4. Menntaskólinn á Akureyri 16 v. 5. Flensborgarskólinn, A-sveit 15 y2 v. 6. Menntaskólinn í Reykjavík 15 v. 7-9. Verslunarskóli íslands, A- sveit, Fjölbrautaskóli Suð- urlands, A-sveit og MH, C-sveit 13 ‘A v. 10-12. Fjölbrautaskóli Vestur- lands, B-sveit og Fjöl- brautaskóli Suðurlands, A- sveit og MH, C-sveit 13 'A v. 13-14. Fjölbrautarskóli Vestur- lands, B-sveit og Fjölbraut- arskóli Suðurlands, B-sveit 13 v. 15. Fjölbrautaskólinn við Ár- múla, B-sveit 12'A v. 16. VerslunarskólÞ íslands, B- sveit 11 v. 17. Flensborgarskólinn, B-sveit 10 'A v. Sókndjarfiir skákstjóri Við skulum líta á eina bráð- skemmtilega skák úr A-flokki stofnanakeppninnar. Ríkharður Sveinsson hefur þrátt fyrir ungan aldur getið sér orð fyrir styrka en látlausa skákstjórn en sýnir hér á sér nýja hlið gegn Gunnari Gunn- arssyni, fyrram íslandsmeistara. Ríkharður réðist á andstæðing sinn með miklu offorsi og fómaði manni til að bijóta upp svörtu kóngsstöð- una. Gunnar fann ekki beztu vörn- ina, enda umhugsunartíminn að- eins ein klukkustund, og hvítur náði að innsigla sigurinn með glæsilegri skiptamunsfórn: Hvítt: Ríkharður Sveinsson, Borgarfógetaembættinu Svart: Gunnar Gunnarsson, íslandsbanka Sikileyjarvöm 1. e4 - c5, 2. Rc3 - Rc6, 3. d3 . - g6, 4. g3 - Bg7, 5. Bg2 - d6, 6. f4 - Rd4 Þessi leikur er óþarflega snemma á ferðinni. Nákvæmara er að bíða eftir því að hvítur leiki kóngsriddara sínum út. Næsti leik- ur svarts er einnig nokkuð grodda- legur og bendir til vanmats á and- stæðingnum. 7. Rce2! — h5, 8. Rxd4 — cxd4, 9. Rf3 - Rh6, 10. De2 - 0-0, 11. 0-0 - Bd7, 12. f5 - Db6, 13. Rh4 - Kh7, 14. Bg5 - Rg8, 15. Bh3 — Dc7, 16. g4 — hxg4, 17. Dxg4 — Be8 Hvítur hefur sóknarfæri og góða stöðu. Það era því ekki hundrað í hættunni þótt slegið sé lítillega af og leikið 18. Rg2 til að lýma h4 fyrir drottninguna, auk þess sem riddarinn myndi standa vel á f4. Auk þess ætti hvítur að tvöfalda hrókana á f-línunni við tækifæri. En hvítur ræðst beint til atlögu: 18. Rxg6!? - fxg6, 19. Dh4+ - Rh6, 20. Bxe7 - Hg8? Hér kom ekki síður til greina að leika 20. — Hh8, því þá hefði svartur getað svarað 21. f6 með 21. — Bf8, án þess að þurfa að óttast 22. f7. 21. œ - g5, 22. Bf5+ - Bg6, 23. Dh5 - Bxf5, 24. Hxf5 - Bf8, 25. Hafl - Dxc2, 26. Hxg5 - Hxg5? Svarti hefur greinilega alveg yfírsést 28. leikur hvíts. Mun skárra var strax 26. — Dg5!?, en bezta vömin virðist vera 26. — Bxe7, 27. fxe7 — He8!? eða jafn- vel 27. — Dxd3!? og svartur á góða möguleika á að halda sínu. 27. Dxg5 - Dc5 28. Hf5! - Rxf5, 29. exf5 - De5, 30. Dh5+ - Kg8, 31. f7+ - Kg7, 32. Dg6+ - Kh8, 33. Dg8 mát. Dálkavíxl Þau mistök urðu við vinnslu fréttar af opnum fundi Sambands ungra sjálf- stæðismanna í blaðinu í gær að dálkar víxluðust. Ef grannt er skoðað hefst umsögn af fundinum neðar- lega í þriðja dálki á þess- um orðum: í framsögu Davíðs...o.s.frv. þá er lesið aftur í miðjan aftasta dálk. Þá þarf að fara í upphaf greinarinnar og enda svo á neðri hluta aftasta dálks. Lesendur, ræðumenn; fundahaldarar og gestir era beðnir velvirðingar á mistök- ■ SKAKÞINGI Kópavogs er nýlokið. Sigvrvegari vardHaraldur Baldursson með sjö vinninga af sjö mögulegum. Hann hlýtur því sæmdarheitið skákmeistari Kópavogs 1990. Annar var Kjartan Guðmundsson með fímm og hálfan vinning og þriðji Einar Kr. Einarsson með fimm vinninga. Hraðskákmót Kópavogs verður haldið sunnudaginn 11. mars. Keppnin hefst kl. 14 og teflt verður í Hjalla- skóla við Álfhólsveg. Rokkunnendur •e**®*'* Rokkgleði verðurhaldin íTemplarahöllinni, Eiríksgötu, íkvöldkl. 22.00-03.00. | ’fyt VlKINGlSVEjTIN • W :f Veona oóðra undirtekta svnir JfcjsJpfe ^ Æ&' Víkingasveitin aítuf^ Gömlu rokkararnir Bill Hailey, Little Richard, Fats Domino, Elvis Presleyo.fi. og einnig ýmis gullkorn. Kynntur veröur liinn miög svo góði dökki Víkingur trá Sanitas Miðaverð 500 kr. Metsölublaó á hverjum degi! Hann Örvar mætir þrátt fyrir erfióa viku EN ÞÚ? 20 ára aldur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.