Morgunblaðið - 14.03.1990, Side 5

Morgunblaðið - 14.03.1990, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. MARZ 1990 5 Lítil hækkun á öðrum sjávar- afurðum ytra en saltfiski Verð á freðfiski þokast heldur upp á við vestan hafs Unnið við átöppun á ICY- vodka í Borgarnesi. Icjr selt í vélum Pan Am SAMNINGAR hafa tekist um að Icy vodka verði á boðstól- um í flugvélum Pan American á öllum flugleiðum félagsins innan Bandaríkjanna frá og með aprílmánuði nk. Að sögn Orra Vigfússonar hjá Sprota hf., framleiðanda Icy vodka, er gert ráð fyrir að sala Jl smáflöskum af vodkanu geti numið á bilinu frá 2.500 til 4.000 kössum á fyrsta ári, en Icy vodkað verður eingöngu á boð- stólum á fyrsta farrými í vélum Pan American. Komið hefur verið upp sér- stakri átöppunarlínu fyrir smáflöskurnar í mjólkurbúinu í Borgarnesi, sem sér um fram- leiðslu og átöppun á Icy vodka fyrir Sprota hf. Orri Vigfússon segir hins vegar að framleiðslan á vodka á smáflöskum sé ekki mjög arðbær, en samningurinn við Pan American réttlæti þó þessa viðbót fyllilega vegna þeirrar kynningar sem Icy vodk- að fær á Bandaríkjamarkaði með þessum hætti. VERÐHÆKKUN á saltfíski um rúm 10% vegur langþyngst í þeirri 8% meðaltalshækkun, sem Þjóðhagsstofíiun telur hafa orðið á útflutningsverði sjávarafúrða. Verð á frystum afúrðum í Asíu hefúr nánast staðið í stað og svip- aða sögu er að segja af sölu á meginlandi Evrópu. Lítils háttar hækkun hefúr orðið á flökum í Bretlandi og markaðurinn vestan hafs er að styrkjast. Nýlega hefur til dæmis samizt um lítilsháttar hækkun á verði flaka til Long John Silver’s og kemur hún til framkvæmda i aprílmánuði. I öll- um tilfellum er miðað við verð í gjaldmiðli þess lands, sem selt er til. Gylfi Þór Magnússon, einn fram- kvæmdastjóra SH, segir að verð fyrir frystar afurðir í Asíu sé í járn- um. Verð fyrir heiifrystan karfa sé til dæmis enn lægra í Japan en það var fyrir tveimur árum, en séu allar afurðir teknar inn í myndina og miðað við síðustu þijá mánuði, sé verð á karfaafurðum óbreytt. Verð fyrir grálúðu hafi hækkað lítillega. Verð fyrir loðnuhrogn á yfirstand- andi vertíð hækkaði, en heilfrysta loðnan stóð í stað. Verð á smærri rækjunni hefur lækkað um 12 til 15%, en er óbreytt á þeirri stærstu. Gylfi segir verð á karfa, ufsa og grálúðu á meginlandi Evrópu sé nú svipað og undanfarin misseri, haustverðið gildi í raun enn. Orlítil hækkun hafi orðið á flökum í Bret- landi, en það skýrist fyrst og fremst af tímabundnum breytingum á framboði og eftirspurn. Loks má geta þess að fryst síld hefur selzt á svipuðu verði og í fyrra. Magnús Gústafsson, forstjóri Coldwater í Bandaríkjunum, segir þetta þokast heldur upp á við, þrátt fyrir að fiskneyzla hafi ekki aukizt. Því ráði framboðið og gæðin mestu um söluna og verðið. Verð fyrir íslenzka fiskinn hafi verið nokkru hærra en verð á fiski frá öðrum og því verði menn að fara varlega til að fá ekki markaðinn upp á móti sér. -Samkeppnin á matvælamark- aðnum sé gífurlega hörð og þar séu kjúklingaframleiðendur ótvíræðir sigurvegarar. Magnús segir að þorskflakaverð sé nú á bilinu 2,30 dollarar fyrir pundið upp í 2,60 á afurðum héðan og verð á sérstökum pakkningum fyrir Long John Silver’s verði orðið samsvarandi rúmum 2 dollurum í apríl. Verð á ýsu, ufsa og karfa hafi staðið í stað, en ýsuverðið sé með hæsta móti eða 2,90 dollarar pundið. Blokkin hefur ennfremur verið að hækka lítillega og byggist það á minnkandi framboði. Magnús segir að hins vegar hafi gengið erf- iðlega að selja rétti gerða úr blokk- inni og nokkur hreyfing á því sviði hafi orðið yfir í framleiðslu úr blokk af Alaskaufsa. Verðbreytingar á blokkinni skipti okkur reyndar ekki eins miklu máli, því hún sé fremur lítill hluti af sölunni vestur. Áherzl- an sé fyrst og fremst lögð á fram- leiðslu og sölu flaka og flaka- stykkja. „Það, sem mestu getur breytt, er þróun gengismála. Haldi dollar- inn áfram að hækka, kemur það framleiðendum heima til góða. Hvert framhaldið verður er auðvitað óvíst. Þá er fastan fremur seint á þessu ári og áhrif hennar ekki fylli- lega komin fram. Salan í janúar og febrúar var þokkaleg í flökunum, en lakari í tilbúnu réttunum. Marz er heldur betri, en vísbendingar um sumarið fást ekki fyrr en að loknu innkaupatímabilinu fyrir páskana eða um og eftir næstu mánaða- mót,“ segir Magnús Gústafsson. Verð á fiskimjöli og lýsi er nú töluvert lægra en um áramót. Jón Olafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenzkra fiskmjölsframleiðenda, segir að verð hafi fallið um 20% upp úr áramótum og hafi því miður lítið hækkað síðan. Hann telur ólík- legt að verð hækki meira á næst- unni. ALVEG EINSTÖK GÆÐI FARÐU VEL MEÐ AEG þvottavélar og þurrkarar Margir hafa lent í því að eyðileggja góða fhk í þvotti eða þurrkara. Vissulega er stundum um að kenna flíkinni sjálfri eða vitlausri stillingu, en því miður eru sökudólgarnir oft þvottatæki sem standa ekki undir nafni. Þegar þú kaupir AEG ertu að íjárfesta í gæðatækjum sem endast og losa þig við áhyggjur af þvottadögunum í leiðinni. Það er engin tilviljun að gott verð og mikil gæði fara saman í AEG þvottatækjunum. AEG og ORMSSON - hagsýni í heimilishaldi'i BRÆÐURNIR ORMSSON HF Lágmúla 9. Sími 38820

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.