Morgunblaðið - 14.03.1990, Side 34

Morgunblaðið - 14.03.1990, Side 34
34 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. MARZ 1990 Eiginmaður minn, t HANNES ÁRNASON frá Brekkum, Holtum, Þingskálum 12, Hellu, varð bráðkvaddur 12. mars. Halldóra Ólafsdóttir. t Ástkær eiginkona mín og móðir, ELÍN GUÐMUNDSDÓTTIR frá Ásvelli í Fljótshlíð, til heimilis á Grænumörk 1, Selfossi, lést í Landspítalanum aðfaranótt mánudagsins 12. mars sl. Jarðarförin auglýst síðar. Guðni Þorgeirsson, Þórhallur Guðnason. t Jarðarför elskulegrar eiginkonu minnar og móður okkar, MAGNEU SÍMONARDÓTTUR frá Svalvogum, fer fram frá Áskirkju fimmtudaginn 15. mars kl. 13.30. Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent Þyrlusjóð sjómanna. Ottó Þorvaldsson og börn. t Ástkaer eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, JÚLÍUS H. SVEINBJÖRNSSON, Miðleíti 7, Reykjavík, verðurjarðsunginnfrá Dómkirkjunni föstudaginn 16. marskl. 15.00. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á barnaspítala Hringsins. Þóra Kristjánsdóttir, Kristín Júlíusdóttir, Hilmar Andrésson, Júlíus Þór Júlíusson, Viktoría Dagbjartsdóttir og barnabörn. t Bróðir minn, ÞORSTEINN PÁLSSON bifreiðasmiður frá Steindórsstöðum, ' Reykholtsdal, lést á heimili sínu, Bólstaðarhlíð 5, Reykjavík þann 7. mars sl.Jarð- arför fer fram í Reykholtskirkju laugardaginn 16. mars kl. 14.00. Rútuferð verður frá Umferðarmiðstöðinni kl. 10.30. Fyrir hönd vandamanna. Einar Pálsson. t Móðir mín, tengdamóðir og amma, GUÐRÍÐUR MAGNÚSDÓTTIR, kennari, Hjarðarhaga 29, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni föstudaginn 16. mars kl. 13.30. Grétar Ottó Róbertsson, Elín Þ. Ólafsdóttir, Ásdís Louise Grétarsdóttir, Guðríður Anna Grétarsdóttir, Heiður Grétarsdóttir. t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, INGEBORG KRISTJÁNSSON, Úthlíð 7, Reykjavík, sem lést í Hafnarbúðum 7. mars verður jarðsungin frá Fossvogs- kapellu fimmtudaginn 15. mars kl. 13.30. Inger Hallsdóttir, Kristján Baldvinsson, Rúnar Þór Hallsson, Sigfríð Guðlaugsdóttir, Heba Hallsdóttir, Eyjólfur Eðvaldsson, barnabörn og barnabarnabörn. Sigurður J. Sig- urðsson - Minning Fæddur 15. febrúar 1912 Dáinn 7. marz 1990 Þegar fréttin um lát tengdaföður míns, Sigurðar Júlíusar Sigurðsson- ar eða „afa Sigga“ eins og við köll- uðum hann alltaf, barst til Frakk- lands, dimmdi í lofti. Þó afi Siggi hafi verið fullorðinn varð hann aldrei gamall í okkar augum. Þegar Smári, sonur hans, talaði við hann í síma á afmælis- daginn hans, 15. febrúar sl., sagð- ist afi Siggi ekki lengur geta mokað snjó frá sínum dyrum og væri þá til lítils lifað lengur. Þannig var afi Siggi, vildi hafa hreint fyrir sínum dyrum í orðsins fyllstu merkingu. Húsið þeirra ömmu Sissu og afa Sigga á Fífuhvammsveginum bar þess líka merki, öllu vel við haldið og tandurhreint út úr dyrum, hús og bílskúr. Sigurður fæddist á Breiðabóls- stað á Álftanesi þann 15. febrúar 1912. Foreldrar hans voru Ingibjörg Guðmundsdóttir og Sigurður Guð- mundsson, sem lést úr spönsku veikinni árið 1918. Eftir það var heimilið leyst upp eins og kallað var og börnin send í fóstur. Sigurð- ur tengdafaðir minn var svo hepp- inn að lenda hjá skyldfólki sínu að Brekkum í Holtahreppi, hjónunum Sigurði Guðmundssyni og Mörtu Jónsdóttur, sem gengu honum í foreldra stað. Sem ungur maður stundaði Sig- urður ýmis almenn störf, fór á ver- tíðir I Vestmannaeyjum og Grindavík og vann um tíma á Korp- úlfsstaðabúinu. Þegar Sigurður var 27 ára gam- all veiktist hann af berklum. Má segja að þau veikindi hafí breytt lífi hans að öllu leyti því á Vífilsstöð- um dvaldi hann sem sjúklingur en starfaði síðan frá því 1939 til 1985 samfellt. Á Vífilsstöðum hitti Sigurður eft- irlifandi eiginkonu sína, Sigur- björgu Erlendsdóttur, ættaða frá Fáskrúðsfirði, sem þá var starfs- stúlka á Vífilsstöðum og er enn. Árið 1952 réðust þau hjónin í það stórvirki að byggja sér hús í Kópavogi og fengu lóð á Fífu- hvammsvegi 9. í þetta hús fluttu þau árið 1957 og hafa búið þar síðan og má því telja þau til frum- byggja í Kópavogi. Á þessum árum voru ekki stór- virkar vinnuvélar eða tæki notuð til húsbygginga, heldur unnið hörð- um höndum að öllum hlutum bygg- ingarinnar, hvort sem um var að ræða að grafa grunn eða steypa veggi. Þau Sigurður og Sigurbjörg eign- uðust fimm drengi en einn misstu þau skömmu eftir fæðingu 1964. Ég sem þetta skrifa kveð tengda- föður minn með þakklæti og virð- ingu. Hann var alltaf boðinn og búinn til að rétta hjálparhönd, mér og minni fjölskyldu hvenær sem var. Það eru ófá handtökin sem afi Siggi á í húsinu sem við Smári byggðum í Vallhólma. Afi Siggi var sannkallaður alþýðumaður, hæglát- ur, fáskiptinn og hljóðlátur. Hann hafði þó gaman af að syngja og dansa og það er gott til þess að vita að hann var svo hress fram undir það síðasta að aðeins rúmri viku fyrir andlátið dönsuðu þau hjónin fram á nótt á kleinukvöldi hjáöldruðum í Kópavogi. Ég bið þann sem öllu ræður að styrkja tengdamóður mína og fjöl- skyldu hennar sem hafa misst góð- an fjölskylduföður og góðan dreng. Hulda Finnbogadóttir Anna G. Hjartar- dóttir - Minning Fædd 9. september 1907 Dáin 19. febrúar 1990 Okkur hættir til að hugsa til líðandi daga og rifja upp það sem liðið er. Frekar situr það eftir sem okkur þótti skemmtilegt. Einmitt það er mér nú hugstætt. Ég staldra við árið 1951. Þá um vorið var ég að koma frá Laugum í Reykjadal og var ráðin í kaupa- vinnu á Geirmundarstöðum, sem eru í Skagafirði. Ekki vissi ég ná- kvæmlega hvar sá bær var, en móðir mín fullvissaði mig um að þar byggi sómafólk hið mesta á þrifa- og myndarheimili. Hún kvaðst þekkja Ónnu húsfreyju, en hún hafði verið barnfóstra hjá móð- ur minni á Miklabæ. Ég varð heldur ekki fyrir neinum vonbrigðum er ég kom á það heimili. Mér var tek- ið með alúð og fijálslegheitum enda varð ég innan skamms orðin eins og ein af fjölskyldunni. Á Geirmundarstöðum var ég kaupakona í tvö sumur og segir það sína sögu. Anna var kona kát og skemmtileg, söng hún stundum við hin daglegu verk sem gengu hratt og vel fyrir sig, enda var hún vel verki farin og dugleg. Kransar, krossar yj) og kistuskreýtíngar. Sendum um allt land. GLÆSIBLÓMIÐ GLÆSIBÆ, Álfhcimum 74. sími Fjölskyldan á Geirmundarstöðum var öll músíkölsk. Eldri sonurinn Gunnlaugur var farin að æfa sig á harmonikku og sá yngri, Geirmund- ur, átti það til að reyna að laumast í hljóðfærið þegar hinn sá ekki til. Geirmundur var þá aðeins sjö til átta ára gamall. Það kom fljótt í ljós að hann hafði mikla hæfileika á tónlistarsviðinu. Þetta var Önnu móður þeirra til ómældrar ánægju og gleði. Anna Guðrún Hjartardóttir var fædd í Þrastastaðagerði á Höfða- strönd í Skagafirði 9. september 1907. Foreldrar hennar voru hjónin Jónína Margrét Gísladóttir og Hjörtur Ólafsson. Anna var næst elst af fimm systkinum, en þau eru nú öll látin nema yngsta systirin Ásta. Anna giftist árið 1931 Valtý Sig- urðssyni frá Litlu-Gröf í Skagafirði og fóru þau að búa að Geirmundar- stöðum sama ár. Bjuggu þau þar til ársins 1977, en þá fluttu þau til Sauðárkróks þar sem þau keyptu sér þægilega íbúð á Víðigrund 6. Valtýr andaðist 29. desember 1982. Anna bjó áfram í íbúð sinni þar til hún var lögð inn á sjúkrahús fyrir tæpu ári. Var það vegna heila- blæðingar sem síðar leiddi til þess að hún gat ekkert tjáð sig með orðum. Veit ég að þetta þótti henni mjög miður vegna þess hvað hún var alltaf skrafhreifin og félagslynd og með á nótunum í samræðum við annað fólk. Anna var glæsileg kona og sóp- aði töluvert að henni. Hún tók mik- inn þátt í félags- og menningarmál- um sveitar sinnar. Um áratuga- skeið var hún í kirkjukór Reyni- staðakirkju og liðtæk var Anna í kvenfélagi hreppsins, en þar var hún um langt árabil gjaldkeri og sat lengi í stjórn þess. Árið 1987 var hún gerð að heiðursfélaga kven- félagsins. Anna mun ekki hafa talið það eftir sér þó stundum þyrfti hún að fara gangandi á kirkjukórsæf- ingu eða til að vinna með kvenfélag- inu. Nágrönnum sínum rétti hún ósjaldan hjálparhQjid, ekki síst þeg- ar veikindi steðjuðu að. Naut ég eins og margir aðrir hjálpsemi hennar og vinargreiða. Margan sokkinn var hún búin að pijóna og gefa þeim sem henni fannst helst vera þurfandi. Ánna og Valtýr eignuðust tvo syni. Gunnlaugur Sigurður bifreiða- stjóri, búsettur í Kópavogi, kvæntur Jóhönnu Haraldsdóttur. Þau eiga þijá syni. Yngri sonur þeirra Önnu og Valtýs er Hjörtur Geirmundur, hljómlistarmaður og fjármálastjóri hjá Kaupfélagi Skagfirðinga, kvæntur Mínervu Björnsdóttur, eiga þau tvo syni og eru búsett á Sauðárkróki. Anna og Valtýr tóku til sín í fóst- ur fram að fermingu sex ára stúlku, Hrafnhildi S. Jónsdóttur, og voru henni sem væri hún þeirra eigin dóttir. Eftir að þau hjónin fluttu til Sauðárkróks, komum við hjónin oft til þeirra og til Önnu eftir að hún var orðin ein. Alltaf var jafn gaman að spjalla yfir kaffibolla, enda var mjög gestkvæmt á heimili þeirra hjóna bæði á Geirmundarstöðum og Víðigrund 6. Mun ég jafnan minnast þessarar ágætu vinkonu minnar með hlýhug og þakklæti. Við hjónin sendum Ástu eftirlif- andi systur hennar ásamt sonum hennar, Gunnlaugi og Geirmundi og fjölskyldum þeirra, innilegar samúðarkveðjur. Guðný Friðriksdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.