Morgunblaðið - 14.03.1990, Side 33

Morgunblaðið - 14.03.1990, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. MARZ 1990 33 Niðurskurður á nýsköpun eftir Jakob K. Kristjánsson Þegai' Ijöímiðlar kynntu okkur niðurskurðartillögur fjármálaráð- herra nú nýlega, þá var þar á meðal tilkynning um að rannsókna- sjóður hefði verið skertur um 10 milljónir. Sennilegt er að almenn- ingur viti ekki mikið um þennan sjóð, enda starfsemi hans yfirleitt ekki kynnt með sama fjölmiðlafári og t.d. kvikmyndasjóðs. Rannsóknasjóður hafði á fjárlög- um 95 milljónir, sem er verulega minna fé en á síðasta ári. Niður- skurðurinn er því verulegt áfall ofan á sífellt minna fé að raungildi, sem sjóðurinn hefur haft til umráða frá stofnun hans, árið 1985. Hlutverk rannsóknasjóðs Rannsóknasjóður er í umsjá Rannsóknaráðs ríkisins og hefur það hlutverk að styrkja hagnýtar rannsóknir og þróunarstarf, sem leiði til nýsköpunar í íslensku at- vinnulífi. Frá stofnun árið 1985 hefur sjóðurinn styrkt mörg verk- efni, sem þegar hafa skilað sér í nýrri framleiðsíu. Mörg verkefni til viðbótar munu fyrirsjáanlega skila sér á næstu árum. Auk þess hefur sjóðurinn staðið að þekking- aruppbyggingu á nýjum sviðum, svo sem í fiskeldi, í líftækni og í efnistækni. Frá upphafi hefur sjóðurinn lagt áherslu á að styrkja ákveðin og vel skilgreind verkefni. Áhersla hefur einnig verið á að hvetja til samstarfs milli rannsóknastofnana, háskólans og fyrirtækja. Þetta hefur m.a. leitt til þess að vinnu- brögð í rannsóknum á íslandi hafa breyst mjög til batnaðar síðan sjóð- urinn tók til starfa. Rannsóknaverkefni eru betur skilgreind og markmið eru mælan- leg. Samvinna rannsóknastofnana hefur stóraukist, og þær hafa skipt með sér verkum til lausnar á ákveðnum vandamálum. Samkomu- lag hefur oft tekist um aðstöðu- sköpun og færnisuppbyggingu þannig að tækjabúnaður nýtist mun betur en áður og komið er í veg fyrir að samskonar aðstaða sé sett upp á mörgum stöðum. Þessi nýju vinnubrögð eru í samræmi við þróunina hjá öðrum þjóðum þar sem föst fjármögnun rannsóknastofnana er á undan- haldi. Verkefnabundin fjármögnun í gegnum sjóði eins og rannsókna- sjóð er almennt talin leiða til meiri skilvirkni í rannsókna- og þróunar starfi. Tvöföídun útflutnings til aldamóta Verslunarráð Islands var að álykta að til að íslendingar gætu haldið í við aðrar þjóðir í lífskjörum þyrftum við að tvöfalda útflutning til aldamóta. En hvað á að flytja út? Flestar nágrannaþjóðir okkar telja að svar við þeirri spurningu fáist aðeins með margra ára rann- sóknum og 'skipulögðum vinnu- brögðum. Er niðurskurður á íjár- mögnun til hagnýtra rannsókna N/ 0 Lofta- plötur og lím Nýkomin sending Þ.ÞORGRfMSSON&CO Ármúla 29, Reykjavík, sími 38640 rétta leiðin? Núverandi ríkisstjórn á Islandi virðist telja að svo sé. Norræna líftækniáætlunin Áætlun ríkisstjórnarinnar um að draga úr nýsköpun kemur á sama tíma og hér er haldið þing Norður- landaráðs. Þegar síðast var haldið hér Norðurlandaráðsþing fyrir 5 árum lögðu íslensku fulltrúarnir fram tillögu um stofnun norrænnar líftæknistofnunar á íslandi. Þessi tillaga var ekki samþykkt en hún varð til þess að samin var sérstök norræn líftækniáætlun. Einnig „Er niðurskurður á fjármögnun til hag- nýtra rannsókna rétta leiðin? Núverandi ríkis- stjórn á íslandi virðist telja að svo sé.“ hafði hún þau áhrif að íslensk rannsóknaverkefni í líftækni og á fleiri sviðum fengu verulegt fjár- magn frá norræna iðnaðarsjóðnum og fleiri stofnunum á vegum Norð- urlandaráðs. Þessi fjármögnun nemur þó aldr- ei meiru en 50% af heildarkostnaði verkefnanna. Hitt þarf að koma frá íglenskum sjóðum og fyrirtækj- um. Það verður heldur napurt að þurfa að tilkynná samstarfsaðilum okkar á hinum Norðurlöndunum að við getum e.t.v. ekki tekið þátt í þessum verkefnum af fullum krafti Jakob K. Kristjánsson vegna þess að ísland stefni að samdrætti í nýsköpun. Á sama tíma og hinar Norðurlandaþjóðirnar eru að stórauka fjárframlög til þessara málaflokka. - Kópaskerið ísland Nýleg utnfjöllun um ástandið á Kópaskeri leiðir hugann að því að sennilega sé þess skammt að bíða (eins og reyndar landbúnaðarráð- herrann benti á) að ísland verði allt komið í þeirra spor. Þegar vandræði steðja að og ekki er hægt - að auka sjávarafla, þá er leitað að patentlausnum. Patentlausnum, sem gefi okkur nýsköpun strax. Því miður er þetta ekki svona einf- alt í þeirri síbreytilegu veröld sem við búum í. Nothæfar lausnir fást ekki án rannsókna, það hefur verið margsannað, meira að segja á Is- landi. Höfundur er forstöiiumaður líftæknideildar Iðntæknistofnunar íslands. KRONA FRAMIAG HANDA ÞEIM SEM LANGAR í ALVÖRU HLJÓMTÆKI Teclinics Framlag Japis: Tilboðs- verð: kr. 101.310 kr. 21.410 kr. 79.900 Kröftugir og nettir hátalarar í vönduðum viðarkassa. VERÐ MEÐ GEISLASPILARA OG HUÓMTÆKJASKÁP. VERÐ MIÐAST VIÐ STAÐGREIÐSLU. TAKMARKAÐ UPPLAG! JAPISS BRAUTARHOLT 2 • KRINGLAN * SÍMI 27133 • • AKUREYRI • SKIPAGATA 1 • • SÍMI 96-25611 • Plötuspilari, alsjálfvirkur. T4P hljóðdós. Fullkomin 23ja aðgerða fjarstýring. 18 bita geisiaspilari. 20 laga minni. Bjögun innan við 0,005%. Tíðnisvörun 2-20.000 Hz. Næmt útvarp með 24 stöðva minni. Kröftugur 60 watta magnari. Bjögun innan við 0.005%. Vandað - tvöfalt - tölvustýrt kassettutæki. Tíðnisvörun 30-16.000 Hz. ogglæsilegur viðarskápur með glerhurð og glerloki.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.