Morgunblaðið - 14.03.1990, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 14.03.1990, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. MARZ 1990 Dalvík og Sauðárkrókur; Loðdýrabændur vilja úttekt á fóðurstöðvum STJÓRNIR Loðdýraræktarfé- lags Eyjafjarðar og Fóðurstöðv- ar Dalvíkur hafa farið fram á það við Byggðastofnun að gerð verði úttekt á rekstrargrundvelli fóð- arstöðvanna á Dalvík og Sauðár- króki með það í huga að fá fram hvora stöðina væri hagkvæmara að reka fyrir bæði svæðin. Guð- mundur Malmquist, forstjóri Byggðastofnunar, sagði í gær að erindið hefði verið lagt fram í stjórn stofnunarinnar en ekki verið tekin afstaða til þess. í bréfi loðdýrabændanna segir að við úttektina verði tekið tillit til dýrafjölda á svæðunum, hráefnis- öflunar, fjármagnskostnaðar og annarra þátta sem áhrif hafi á reksturinn. Verði úttektinni hraðað eins og kostur er þannig að minnsta kosti rekstur annarrar stöðvarinnar verði íryggður. „Ljóst er að mál þetta þolir enga bið og væntum við skjótra viðbragða við beiðni þess- arri,“ segir í samþykkt eyfirsku loð- dýrabændanna. Reynir Barðdal, sem situr í stjórn fóðurstöðvarinnar Melrakka á Sauðárkróki, sagðist ekki sjá að það gæti gengið upp að hafa eina fóður- stöð fyrir bæði loðdýraræktarsvæð- in. Langt væri á milli og flutnings- kostnaður því of mikill: Sundlaugin í Glerárhverfí opnuð fyrir almenning Morgunblaðið/Rúnar Þór NÝJA sundlaugin við Glerár- skóla verður opnuð fyrir almenn- Jarðgöng í Qlafegarðarmúla: Síðasta sprenging* á morgnn ÓL AFSFIRÐIN G AR gera sér glaðan dag á morgun þegar þeir sjá í gegnum jarðgöngin I gegnum Ölafsfjarðarinúla. Steingrímur J. Sigfússon samgönguráðherra er vænt- anlegur til bæjarins og mun hann ýta á takka hleðslutæk- isins og sprengja síðasta haf- tið burtu. Gert er ráð fyrir að loka- sprenging í göngunum verði kl. 15 á morgun, fimmtudag. Bæjarstjórn Olafsfjarðar mun bjóða upp á kaffiveitingar í Tjarnarborg frá 16-19, en um veitingar sjá konur í Slysa- varnadeild kvenna. Auk Steingríms J. Sigfús- sonar samgönguráðherra, er gert ráð fyrir að nokkrir af þingmönnum kjördæmisins verði viðstaddir. Verktakarnir, Krafttaks- menn, munu einnig gera sér dagamun á þessum tímamót- um. Fyrirhugað er að göngin verði sýnd almenningi á næst- unni. ing á morgun, fímmtudag. Síðustu vikur hafa börn og ungl- ingar í Glerárskóla notið sund- kennslu í lauginni, en hún verður nú opnuð almenningi í fyrsta sinn. Laugin verður opnuð almenningi kl. 17. á fimmtudag, en fram á vor verður opið á morgnana frá mánu- degi til föstudags frá kl. 7-8. Síðdegis verður opnunartíminn nokkuð breytilegur vegna sundæf- inga Sundfélagsins Óðins sem afnot hefur af lauginni. Á mánudögum og miðvikudögum verður opið frá kl. 19-21 á kvöldið, á þriðjudögum og fimmtudögum frá kl. 17-21 og á föstudögum frá kl. 18-21. Um helgar er opið frá kl. 9-14. Nemar í sjá varútvegsdeild háskólans í byggingavinnu Nemar í sjávarútvegsdeild Háskólans á Akureyri tóku til hendinni í gær, þegar hafist var handa við að breyta húsnæði því sem KEA lánaði skólanum við Glerárgötu. Alls eru 12 nemar í deildinni og var helmingur þeirra í byggingavinnu fyrir hádegi á meðan hinir voru við nám og síðan var skipt inn á eftir hádegið. Húsnæðið er á tveimur hæðum, en að sögn Jóns Þórðarsonar forstöðumanns deildarinn- ar er stefnt að því að neðri hæðin verði tilbúin seinni part sumars, en sú efri á næsta ári. Ástæða þess að nemarnir vinni við múrbrot að annað tilfallandi í húsinu, sagði Jón, þá að fjárveitingar til húsnæðis- mála skólans væru 10 milljónir króna, en kostnaðar- áætlun vegna breytinga á húsnæðinu væru um 30 milljónir. „Nemarnir tóku að sér að vinna hér í sjálf- boðavinnu til að spara peninga og við erum þakklát fyrir það,“ sagði Jón. Á neðri hæð hússins verður kennslustofa í efnafræði, sameiginleg rannsóknar- stofa Háskólans á Akureyri og Rannsóknarstofnun- ar fiskiðnaðarins og fiskiherbergi til rannsókna sem nýtt verður sameiginlega af skólanum og Hafrann- sóknarstofnun. Á efri hæðinni verður kennslustofa, tölvuherbergi, skrifstofur og kaffistofa. Nemarnir tóku vel til hendinni og sögðu starfið ágætt, það væri tilbreyting frá bóklestrinum og ágætt að reyna dálítið á sig, auk þess sem nokkurt fé sparaðist vegna vinnuframlags þeirra. Á myndinni eru frá vinstri Jón Þórðarson forstöðumaður sjávarútvegs- deildar og nemarnir Ingveldur, Vignir, Ágúst, Gunn- laugur og Jón. Bygging ijölbýlishússins við Helgamagrastræti; Tvö sjálfstæð skiptaréttarmál ris in í kjölfar gjaldþrots Híbýlis hf. TVÖ sjálfstæð skiptaréttarmál hafa komið upp vegna gjaldþrots Híbýlis hf. Annars vegar málið Trésmiðjan Börkur hf. gegn Brynj- ólfi Kjartanssyni hrl. skiptastjóra og Ásgeiri Pétri Ásgeirssyni skipt- aráðanda fyrir hönd þrotabúsins og hins vegar bæjarstjórinn á Akur- eyri fyrir hönd bæjarsjóðs Akureyrar gegn sömu aðilum fyrir hönd þrotabúsins. Gagnasöfhun vegna beggja málanna er lokið og bíða þau nú úrskurðar. Ásgeir Pétur Ásgeirsson skipta- ráðandi sagði að á skiptafundi í gær hafi launakröfur trésmiða og verka- ' manna vegna uppsagnafrests verið afgreiddar og voru þær allar sam- þykktar. Eftir er að ganga frá Vélasleðakeppnin Mývatn ’90: Um 500 manns voru í Mývatnssveit í tengslum við keppnina sem tókst vel VÉLSLEÐAKEPPNIN Mývatn ’90 fór fram um helgina og voru keppendur mun fleiri nú en áð- ur, en alls skráðu sig til keppni rúmlega 180 vélsleðamenn. Keppnin var haldin í tíunda sinn og sagði Pálmi Vilhjálmsson for- maður undirbúningsnefndar að hún væri orðin all stór í sniðum, en talið er að um 500 manns hafi komið í Mývatnssveit í tenglsum við keppnina. „Við er- um ánægðir, þetta tókst í alla staði mjög vel,“ sagði Pálmi. Það er Björgunarsveitin Stefán og íþróttafélagið Eilííur í Mývatns- sveit sem að keppninni standa. Keppt var í þremur greinum, fjallaralli, spyrnu og þrautabraut. Urslit urðu þau að í fjallarallí sigr- aði sveit Arnar Valsteinssonar frá Akureyri, en auk hans voru í sveit- inni Gunnar Hákonarson og Marínó Sveinsson. Keppt var í fjórum flokk- um í brautarkeppni, Arnar Val- steinsson Akureyri varð fyrstur í 4. flokki, Jóhannes Reykjalín Akur- eyri annar og Hinrik Árni Bóasson þriðji. í 6. flokki sigraði Arnþór Pálsson Reykjavík, Jón Ingi Sveins- son. Akureyri varð annar og Guð- laugur Halldórsson Akureyri varð þriðji. í 7. flokki varð Árni Grant Akureyri fyrstur, Heimir Ásgeirs- són Grenivík, annar og Halldór Jó- hannesson Reykjavík þriðji. Ingvar Grétarsson sigraði í opnum flokki, Vilhelm Vilhelmsson, varð annar og Leifur Jónsson þriðji, en þeir eru allir frá Akureyri. í spyrnu sigraði Haukur Þór- hallsson Húsavík í A-flokki, Magn- ús Þorgeirsson Ólafsfirði varð ann- ar og Þórhallur Kristjánsson Dalvík þriðji. Fyrstur í AA-flokki í spyrnu varð Kristján Bragason Mosfellsbæ, Árni Grant Akureyri annar og Rúnar Gunnarsson Húsavík þriðji. Heiðar Jonsson Akúreyri varð fyrst- ur í B-flokki, Arnór Pálsson Reykjavík annar og Gunnar Hákon- arson Akureyri þriðji. Arnar Val- steinsson sigraði í C-flokki, Tryggvi Aðalbjörnsson varð annar og Viðar G. Sigþórsson varð þriðji, en þeir eru allir frá Akureyri. Ingvar Grét- arsson sigraði í opnum flokki og Vilhelm Vilhelmsson varð annar, en þeir eru báðir frá Akureyri og Benedikt Valtýsson varð þriðji. launakröfum múrara sem hjá fyrir- tækinu unnu vegna uppsagnar- frests. Tvö sjálfstæð skiptaréttarmál hafa risið vegna gjaldþrotsins og á fundinum var lögð fram greinar- gerð varnaraðila í máli Trésmiðj- unnar Barkar hf., þeirra Brynjólfs Kjartanssonar hrl. skiptastjóra og Ásgeirs Péturs Ásgeirssonar hér- aðsdómara og skiptaráðanda fyrir hönd þrotabúsins. Kröfu Barkar var lýst sem forgangskröfu, en því hafnaði bústjóri. Barkarmenn hafa lagt fram greinargerð þar sem þeir mótmæla afstöðu bústjóra. Börkur hf. smíðaði glugga í fjölbýlishúsið á Helgamagrastræti 53 og snýst deilan um það hvort þeir hafi verið afhentir fyrir eða eftir gjaldþrot Híbýlis og einnig hvort um hafi verið að ræða kaup- eða verksamn- inga vegna gluggasmíðinnar. Deilan í skiptaréttarmálinu bæj- arstjórinn á Ákureyri fyrir hönd bæjarsjóðs gegn skiptastjóra og skiptaráðanda fyrir hönd þrotabús- ins snýst um hvort búið skuli dæmt til að afhenda sóknaraðila til fuilrar og kvaðalausrar eignar 15 íbúðir í húsinu númer 53 við Helgamagra- stræti. Kröfu Akureyrarbæjar var lýst sem forgangskröfu, en því hafnaði bústjóri. Sóknaraðili mót- mælti afstöðu bústjóra til kröfunnar og hefur nú lagt fram gögn og rök- semdir sem byggja á því að um verksamning milli aðila hafi verið að ræða, þ.e. að verkkaupinn, sem er bærinn, hafi eignast mannvirkið um leið og það reis. Varnaraðilar halda því aftur á móti fram að um kaupsamning hafi verið að ræða á milli aðila, þó svo samningurinn hafi verið nefndur verksamningur, þar sem Híbýli hf. hafi verið úthlut- að lóðinni kvaðalaust og því séu öll mannvirki sem á henni hafi verið reist eign þrotabús Híbýlis hf. Féll 4 metra niður á gólf SMIÐUR sem var við vinnu í Krossanesi féll úr fjögurra metra hæð niður á gólf og var hann fluttur á Fjórðungs- sjúkrahúsið á Akureyri, en hann kvartaði um verk i baki og fótum eftir fallið. Tilkynnt var um slysið til lög- reglu kl. 15.10 í gærdag. Smið- urinn hafði verið að vinna ásamt öðum við að brjóta niður steypt loft yfir þurrksal verksmiðjunnar og var hann með loftpressuham- ar. Búið var að bijóta gat á loft- ið þegar slysið vildi til, en við það að stykkið féll niður á gólfið missti maðurinn hamarinn og féll síðan sjálfur niður á gólfið, sem er um fjögurra metra fall. Að sögn lögreglu var ekki vit- að um meiðsl mannsins, en hann hafði kvartað um verki í baki og á fótum eftir fallið. Maðurinn var fluttur á FSA.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.