Morgunblaðið - 14.03.1990, Side 22

Morgunblaðið - 14.03.1990, Side 22
22 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. MARZ 1990 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. MARZ 1990 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aðstoðarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjgri Árvakur, Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskrift- argjald 1000 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 90 kr. eintakið. Opið hús háskólans Fjölmenni heimsótti Þjóðar- bókhlöðu og önnur hús á háskólasvæðinu sl. sunnudag, þegar Háskóli íslands efndi til kynningar á margþættri starf- semi sinni. Það er vel. í fyrsta lagi er það mikilvægt fyrir há- skólann, „flaggskipið“ í fræðslu- kerfi þjóðarinnar, að treysta tengsl sín við almenning, stöðu sína í vitund þjóðarinnar. í ann- an stað er nauðsynlegt að lands- menn geri sér glögga grein fyr- ir ört vaxandi mikilvægi mennt- unar, þekkingar, vísinda og rannsókna í þjóðarbúskapnum. Fræðslukerfið, með háskól- ann í broddi fylkingar, er höf- uðvígi þjóðmenningar okkar, þess sem gerir þjóð að þjóð og fullveldi okkar er grundvallað á: tungunnar, sögunnar, bók- menntanna og kristinna við- horfa. En menntun, þekking og alhliða framfarir eru jafnframt og ekki síður forsenda batnandi lífskjara, velferðar og efnahags- legs sjálfstæðis þjóðar og þegna. Allt fram á 20. öldina var land okkar einhæft bændasam- félag með sjósókn sem eins kon- ar aukabúgrein. Það átti fyrr á tíð fullt í fangi með að brauð- fæða þjóðina — og slæmt ár- ferði og náttúruhamfarir leiddu á stundum til mannfellis. Með vaxandi menntun, þekkingu og tækniframförum, sem þjóðin til- einkaði sér á líðandi öld, marg- földuðust verðmætin í þjóðarbú- skapnum og þjóðartekjurnar. ísland varð velferðarríki. Mennt- unin og þekkingin hafa reynzt mikilvirkustu vopnin í kjarabar- áttu þjóðarinnar. Og þýðing þessara vopna fer ört vaxandi. Þær þjóðir einar, sem halda vöku sinni á vettvangi alhliða og sérhæfðrar þekkingar og framfara á næstu áratugum, varðveita velferð sína. Það var spor til réttrar áttar þegar Rannsóknaþjónustu há- skólans var komið á fót á árinu 1986. Tilgangur hennar er að greiða fyrir samstarfí háskólans og atvinnuveganna. Hún annast kynningu á þeirri aðstöðu og þekkingu, sem til staðar er inn- an háskólans, og er tengiliður milli þeirra, sem óska eftir vísindalegri ráðgjöf og rann- sóknum, og starfsmanna stofn- ana háskólans, er geta veitt slíka þjónustu. Sigmundur Guð- bjarnason, rektor háskólans, kemst svo að orði í „Háskóla- fréttum“: „Tengsl háskólans við at- vinnulíf landsmanna eru marg- þætt og hafa aukizt með aukn- um þörfum og kröfum atvinnu- lífsins um menntun, rannsóknir og þjónustu ýmiss konar. Há- skólinn hefur einkum veitt ungu fólki menntun til að taka þátt í atvinnulífi þjóðarinnar, hvort heldur á sviði tækni eða við- skipta, heilbrigðis- eða mennta- mála, eða þá fjölmargra annarra þjóustu- eða fræðistarfa. Á síðari árum hefur aukin áherzla verið lögð á endurmenntun fyrir fólk, sem þegar er starfandi í atvinnulífinu en mikilvægi end- urmenntunar vex stöðugt í heimi hraðfara breytinga í atvinnu- háttum. Öflun og hagnýting nýrrar þekkingar í þágu atvinnulífsins með rannsókna- og þróunar- starfsemi hefur aukizt hröðum skrefum eftir því sem aðstaða til rannsókna hefur aukizt í há- skólanum. Rannsóknaþjónusta háskólans var stofnuð til að kynna þá þjónustu sem unnt væri að veita til að auðvelda samstarf við fyrirtæki og stofn- anir utan Háskóla Islands ...“ Það er fagnaðarefni að há- skólinn heldur vöku sinni í sam- félaginu með þeim hætti sem fram kemur í tilvitnuðum orðum Sigmundar Guðbjarnasonar, rektors. Það er og fagnaðarefni að skólinn leggur áherzlu á tengsl -sín við almenning með kynningu af því tagi sem fram fór sl. sunnudag. Aðsóknin að opnum húsum háskólans ber þess vitni að fólk almennt kann vel að meta starf af þessu tagi. Eitt skyggði hins vegar á ánægju þessa velheppnaða kynningardags háskólans: hve langt Þjóðarbókhlaðan á í land sem fullbyggt og fullfrágengið hús. Það er talandi vottur þver- girðingsháttar íslenzkra stjórn- valda, að þau hafa halastýft sérstakan skatt, sem fara átti til Þjóðarbókhlöðunnar. Fjár- munir, sem ganga áttu til þessa húss, sem geyma á dýrmætustu menningarverðmæti þjóðarinn- ar, vóru hirtir í ríkishítina, með þeim afleiðingum, að dregizt hefur úr hömlu að fullgera það. Engar vífil- engjur Flotgallar hafa sannað gildi sitt; ítrekað bjargað manns- lífum. Þeir eru sjómönnum nauðsynleg öryggistæki. Þá á að flokka með öðrum öryggis- tækjum til undanþágu frá virðis- aukaskatti — í reglugerð eða með lagabreytingu, ef með þarf. Stjórnvöld eiga að fara, og fara strax, að tilmælum nemenda Stýrimannaskólans í þessu efni. Það er ekki við hæfí að þau skjóti skildi vífilengja fyrir sig í máli sem þessu. 23 . VIUAYFIRLÝSING UM NÝTT ÁLVER Á ÍSLANDI Öllum samningiim verði lok ið fyrir 20. september nk. Heimildarlög og samþykki stjórna fyrirtækjanna liggi fyrir á þessu ári í gær undrrituðu Jón Sigurðsson, iðnaðarráðherra, fyrir hönd ríkis- stjórnar íslands, og Paul E. Drack, aðalforstjóri Alumax, Per-Olof Ar- onsson forstjóri Gránges, og Max Koker, framkvæmdastjóri Hoog- ovens Aluminium, sameiginlega yfirlýsingu um ásetning að ljúka samningum um byggingu nýs ál- vers hér á landi. Með undirritun yfirlýsingarinnar er þátttaka Alum- ax í Atlantal-verkefninu formlega staðfest. Meginatriði yfirlýsingarinnar eru eftirfarandi: 1. Iðnaðarráðherra -staðfestir stefnu íslenskra stjórnvalda að auka nýtingu innlendra orkulinda með frekari álframleiðslu á íslandi. 2. Alumax, Gránges og Hoog- ovens staðfesta áhuga sinn á því að efla álframleiðslu sína með því að byggja álver á Islandi. . 3. Staðfest er að gera þurfi eftir- farandi samninga á grundvelli heimildarlaga um nýtt álver: Aðalsamning milli íslensku ríkis- stjórnarinnar og Atlantal-aðil- anna, þar sem m.a. verður fjallað um skattamál og úrlausn ágrein- ingsefna. Orkusölusamning við Landsvirkj- un. Lóðar- og hafnarsamning við hlutaðeigandi sveitarfélag. Samkomulag varðandi umhverf- isinál. Samkomulag milli Atlantal-aðil- anna um eignarhald, rekstur og fjármögnun álversins. 4. Iðnaðarráðherra og Atlantal- aðilarnir staðfesta ásetning sinn að ljúka samningum um nýtt álver með um 200.000 tonna álfram- leiðslugetu á ári er hefíi rekstur árið 1994. í álbræðslunni verði not- uð nýjasta tækni við framleiðslu og steypu á áli og mengunarvarnir sem uppfylli íslenskar kröfur. 5. Atlantal-aðilarnir lýsa sig reiðubúna til að eignast hlutabréf í hinu nýja álveri sem hér segir: Alumax 30—40%. Gránges 25—35%. Hoogovens Aluminium 25—35%. 6. Undirritun endanlegra samn- inga er háð samþykki Alþingis á frumvarpi til heimildarlaga um verkefnið og samþykki stjórna fyr- irtækjanna eða móðurfélaga þeirra eftir því sem við á. 7. Iðnaðarráðherra og Atlantal- aðilarnir munu leitast við að ljúka samningum með eftirfarandi hætti: Stefnt er að því að taka ákvörðun um staðsetningu álversins fyrir lok maí 1990. Stefnt er að því að ljúka öllum samningum fyrir 20. september 1990. Iðnaðarráðherra mun leggja fyrir Alþing frumvarp til heimildar- laga í október nk., með það að markmiði að afla samþykkis Al- þingis fyrir árslok 1990. Fyrirtækin munu afla samþykkis viðeigandi stjórna fyrir árslok 1990 eða í síðasta lagi á fyrsta reglulega stjórnarfundi á árinu 1991. Til grundvallar þeim samninga- viðræðum sem í hönd fara liggja m.a^ þær hagkvæmniathuganir og könnunarviðræður sem þegar hafa farið fram. Gert verður sérstakt samkomu- lag um mengunarvarnir en iðnaðar- ráðherra hefur nýlega skipað sér- stakan starfshóp til að vera sér til ráðuneytis um þau efni í samvinnu við hið nýja umhverfisráðuneyti. Undirritun yfirlýsingarinnar nú er mikilvægur áfangi í því að gera nýtt álver á íslandi að veruleika og skjóta þar með nýjum stoðum und- ir íslenskt atvinnulíf og þjóðarbú- skap. Morgunblaðið/Bjarni Forsvarsmenn Atlanta hópsins heimsóttu Hafnarfjörð í gærmorgun ásamt fúlltrúum iðnaðarráðu- neytisins og skoðuðu aðstæður í Straumsvík. Þessi mynd var tekin, þegar Guðmundur Arni Stefáns- son, bæjarstjóri, tók á móti þeim á skrifstofú sinni. Byggiiig Fljótsdals- virkjunar tekur 4 ár LANDSVIRKJUN áætlar að stækkun Búrfellsvirkjunar geti verið komin í gagnið snemma árs 1994 og Fljótsdalsvirkjun í lok sama árs, verði undirbúningi íyrir virkjanirnar haldið áfram. Þegar hafa verið boðnar út vélar og rafbúnaður vegna virkjananna en áætlað er að byggingarhlutinn verði boðinn út í vetur. Stækkun Búrfellsvirkjunar er fyrst á dagskrá. Þar á að byggja nýtt stöðvarhús nokkru austar en núverandi hús, sem nýti mannvirki sem fyrir eru, svo sem uppistöðul- ón og inntak. Jafnframt er áætlað að ljúka framkvæmdum við Kvíslarveitur. Gert er ráð fyrir að á byggingartíma þurfi rúmlega 500 ársverk, sem þýðir að um 300 manns hafa atvinnu af bygging- unni þegar flest er. Kostnaður er áætlaður um 6.200 milljónir króna. Áætlanir um Fljótsdalsvirkjun gera ráð fyrir að framkvæmdir standi yfir í fjögur ár. Myndað verði 47 ferkílómetra uppistöðulón við rætur Eyjabakkajökuls, norð- austur af Vatnajökli. Þaðan verði vatninu veitt í stöðvarhús á Teigs- bjargi, milli Valþjófsstaðar og Hóls í Norðurdal, gegnum jarð- göng sem yrðu um 26 kílómetra löng. Miðað er við, að þvermál ganganna verði um 5,4 metrar og þau verði heilboruð með tveimur risastórum borvélum. Um 7 kíló- metra löng frárennslisgöng yrðu sprengd. Aflgeta virkjunarinnar er 240 megawött og orkuvinnslu- geta 1.420 gígawattstundir sem þýðir að virkjunin yrði ívið afl- meiri en Búrfellsvirkjun. Að sögn Agnars Olsen yfirverk- fræðings hjá Landsvirkjun var jarðvegur á svæðinu kannaður í sumar, og meðal annars boruð hola á jarðgangaleiðinni. Agnar sagði að holan virtist staðfesta að svæðið hentaði vel til gangabo- runar, en í sumar yrði svæðið rannsakað nánar, ef ákveðið verð- ur að halda undirbúningnum áfram. Talið er að kostnaður við Fljóts- dalsvirkjun yrði um 18.700 millj- ónir króna, og virkjunarfram- kvæmdirnar skapi að jafnaði um 1.300-1.400 ársverk. Það þýðir að um 6-700 manns gætu haft at- vinnu af framkvæmdunum þegar mest er umleikis. Um 20 manns myndu starfa við virkjunina þegar hún væri fullgerð. Morgunblaðið/Þorkell. Viljayfirlýsingin undirrituð í gær. Lengst til vinstri er Jóhannes Nordal formaður álviðræðunefndarinnar, Bond Evans aðstoðarforstjóri Alumax, Paul Drack., aðalforstjóri Alumax, Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra, Per-OIof Aronsson, forstjóri Griiges, Max Koker framkvæmda- stjóri Iloogovens, og Halldór Kristjánsson, iðnaðarrráðuneytinu. Jón Sigurðsson, iðnaðarráðherra: „Vilj ayfirlýsing um að ljúka samningum“ JÓN Sigurðsson iðnaðarráðherra segir að enn sé ekkert hægt að segja um staðsetningu nýs álvers, en staður verði valinn fyrir mailok nú í vor. Steftit er að því að ljúka samningsgerð Alumax, Hoogovens, Gránges og íslenska ríkisins um byggingu nýs álvers á íslandi fyrir 20. september í liaust. „Nú er þetta að verða dauð- ans alvara,“ sagði iðnaðarráðherra. „Þetta eru skynsamir menn og þeir vilja sjá með eigin augum þá staði sem til greina koma. Það skil ég vel,“ sagði iðnaðarráðherra. „Staðsetningarákvörðunin er sam- korhulagsmál og ekkert verður ákveðið einhliða í þeim efnum. Samkomulag okkar gengur út frá því að við munum velja stað fyrir nýja álbræðslu fyrir lok maímánað- ar og stefna að því að ljúka samn- ingsgerðinni í hejld fyrir 20. sept- ember í haust. Þannig er stefnt að því að heimildarlagafrumvarp um byggingu nýs álvers megi koma fyrir Alþingi í byijun næsta þings og að stjórnir fyrirtækjanna þriggja samþykki samningana fyr- ir sitt leyti áður árið er á enda.“ Iðnaðarráðherra sagði að svæð- in þijú, Eyjafjörður, Reyðarfjörður Álver í Eyjafírði; Kostnaður við hafiiar- gerð um 500 milljónir Iðnþróunarfélag Eyjafjarðar, sem unnið hefúr að rannsókn og undir- búningi að hugsanlegri smíði 2.000 tonna álvers við Eyjafjörð undan- farna mánuði í samvinnu við sveitarfélögin, gerir ráð fyrir 2.400 árs- verk þurfi til að reisa álverið og að framkvæmdatíminn verði um 3 ‘A ár. Sigurður P. Sigmundssonar, forstöðumaður Iðnþróunarfélagsins, sagði að kostnaður vegna hafnarmannvirkja verði um 500 milljónir króna og kæmi í hlut sveitarfélaganna við Eyjafjörð að greiða þann kostnað. Sigurður sagði að kostnaður sá er Islendingar þyrftu að bera yrði mun meiri þegar orkuflutningslínur, vegagerð og aðrar nauðsynlegar framkvæmdir væru taldar með. Garðar Ingyarsson, hjá Markaðs- skrifstofu Landsvirkjunar, treysti sér ekki til að fullyrða neitt um kostnað íslenskra aðila að svo stöddu en sagði það geta orðið býsna háa fíárhæð. Heildarkostnaður við byggingu nýs álvers er talinn nema 50 milljörðum. Gert er ráð fyrir að það taki 40 mánuði að reisa álver í Eyjafirði og til þess þurfi 2.400 ársverk, þar af 1.100 ársverk á hápunkti fram- kvæmdanna sem stæði yfir í eitt ár, að sögn Sigurðar. Á þessu tímabili yrðu 200 útlendir starfsmenn ráðnir. 1.300 ársverk dreifðust yfir lengra tímabil og er ráðgert að 900 innlend- ir starfsmenn vinni þau. Sigurður sagði að heimamenn gætu séð af 500 manns til starfa við álverið, en 400 yrðu að koma frá öðrum landshlut- um. Hann sagði að bærinn gæti tek- ið á móti 2.000 manns en ljóst væri að reisa þyrfti stórar vinnubúðir. Verði nýju álveri valinn staður í Eyjafirði þá rís það að öllum líkindum í Dysnesi, um 14 km norður af Akur- eyri. Iðnþróunarfélagið hefur unnið að rannsóknum á svæðinu um nokk- urt skeið með tilliti til hugsanlegra framkvæmda. Bújarðir eru þar einna lakastar á Eyjafjarðarsvæðinu og margar hveijar komnar í eyði. Einn- ig vegur það þungt á metunum varð- andi staðarval að ríkið á mestan hluta þess lands í Dysnesi sem færi undir álver og þýrfti því ekki að kaupa upp jarðir. Einnig hefur verið rætt um Gáseyri í þessu sambandi en hún er fáeina kílómetra suður af Dysnesi. Sigurður sagði að margt benti til þess að heppilegt væri að reisa álver í Eyjafirði. Það yrði landsbyggðinni til framdráttar og gæti stöðvað þá byggðaröskun sem átt hefur sér stað um langan tíma. Á Eyjafíarðarsvæð- inu væri vinnuafl stöðugra en á höf- uðborgarsvæðinu auk þess sem for- svarsmenn erlendu álfyrirtækjanna þriggja leggðu mikla áherslu á já- kvæð viðhorf heimamanna til stór- iðju. „Þeir vilja ekki reisa álver í Dysnes í Eyjafirði. óþökk fólksins. Fyrirtækin meta þetta atriði einnig til fjár,“ sagði Sigurður. Jón Ingimarsson, verkefnisstjóri hjá Iðnaðarráðuneytinu, sagði Ijóst að ráðast yrði í hafnarframkvæmdir þar sem álverinu yrði valinn staður og það ætti einnig við um Straumsvík. „Flutningar um höfnina í Straumsvík myndu til dæmis þre- faldast yrði 2.000 tonna álver reist þar. Menn eru sammála um að ráð- ast þarf í hafnarframkvæmdir þar sem álveri verður valinn staður en kostnaður vegna þeirra framkvæmda verður væntanlega mismikill á milli staða,“ sagði Jón. og Reykjanes (frá Þorlákshöfn að Straumsvík) væru öll til athugunar á þessu stigi. Forsvarsmenn fyrir- tækjanna þriggja vildu skoða alla staðina vel. Ráðherra kvaðst telja samkomu- lagið frá í gær mikilvægan áfanga í átt til þess að gera það að veru- leika að hér rísi nýtt álver. „Þetta er einfaldlega viljayfirlýsing um það að ljúka samningunum,“ sagði Jón, ,jafnframt því sem þetta stað- festir með mjög formlegum hætti aðild Alumax og forystu þess í þessu mikla verki.“ Jón kvaðst ekkert vilja segja um áætlanir þess efnis að stofnkostn- aður við álver við Eyjafíörð kynni að vera tveimur ti! þremur milljörð- um hærri en á Straumsvíkursvæð- inu. „Hvern slíkan mun sem fram kann að koma í stofnkostnaði þarf að vega og meta á móti hugsanleg- um framtíðarrekstrarkostnaði. Það er ekki fyrirfram gefið að staður með háan stofnkostnað sé með háan rekstrarkostnað. Nú er ég ekki með þessu að gefa neinum einstökum stað einkunn, en bendi- á að þetta verður að skoða í víðu samhengi," sagði ráðherra. Iðnaðarráðherra sagði að gera mætti ráð fyrir að á þeim tíma sem byggingarframkvæmdir vegna nýs álvers og raforkuframkvæmda stæðu yfir, yrði mannaflaþörf í ársverkum þannig að flest yrðu þau árið 1992, eða 1600 til 1700. Liðlega helmingur þess mannafla myndi starfa við byggingu álvers. Strax á næsta ári yrði mannafla- þörfin um 1.300 til 1.400 ársverk við þessa uppbyggingu og árið 1993 yrði mannaflaþörfin um 1.000 til 1.100 ársverk og 1994 færi hún niður í um 400, en þá væri gangsetning ráðgerð og starf- rækslan krefðist um 630 ársverka. Hin beina mannaflaþörf við rekstur álversins er um 630 ársverk, en áætlað er að margfalda megi þá tölu með 3 til 4, til þess að fá út hversu margir munu hafa atvinnu sína af nýju álveri með beinum eða óbeinum hætti, allt eftir því hversu mikið umfang annarrar álfram- leiðslu verður. S M9

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.