Morgunblaðið - 14.03.1990, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 14.03.1990, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. MARZ 1990 21 Bræðravíg blossa upp í Beirút-borg Beirút. Reuter. BARDAGAR blossuðu upp beggja vegna grænu línunnar svonefndu í Beirút, höfuðborg Ósló: Uppsagnir á Afitenposten Ósló. Frá Rune Timberlid, frétlarit- ara Morgunblaðsins. ÞAÐ blæs heldur betur hressilega á blaðagötunni í Osló — Akersgötu — um þess- ar mundir. Samtals sjö rit- stjórnarfulltrúar á Aítenpost- en, næststærsta blaði Noregs, hafa sagt upp störfúm. Fulltrúunum var gefinn kost- ur á að sækja um endurráðn- ingu. Þannig ætlar stjórnar- formaður blaðsins, Einar Fr. Nagell-Erichsen, að losna við þá stjórnendur sem hann kærir sig ekki um að hafa lengur á blað- inu. Eini yfirmaður ritstjómar- innar, sem er öruggur um að halda starfi sínu, er Andreas Norland sem nýlega var ráðinn ritstjóri. Ætlunin er að allir yfir- menn Aftenposten, sem, gefur út tvö dagblöð, sæki um stöður sínar á nýjan leik á árinu. Einnig er búist við hörðum niðurskurði á ritstjórn Dagblad- et, sem er síðdegisblað, þegar nýr ritstjóri, Bjorn Simensen, hefur störf á blaðinu í júní. Líbanons, í gær. Átökin voru óvenjuleg sakir þess að nú tók- ust sveitir trúbræðra á. Annars vegar börðust múslimar í vesturhluta borgarinnar og kristnir menn í austurhlutanum. I Vestur-Beirút stóðu bardagar milli shíta-sveita í mmar þrjár klukku- stundir og vitað var um a.m.k. fimm menn sem særðust. Tókust á sveitir Hizbollah, flokks Guðs, og sveitir amal-shíta. Þeir fyrr- nefndu sækja andlega leiðsögn til írans en amal-sveitirnar njóta stuðnings Sýrlendinga. í hverfum kristinna beið kona bana og fimm menn særðust er leyniskyttur sveita Michels Aouns hershöfðingja annars vegar og hermenn úr svonefndum Hersveit- um Líbanons skiptust á skotum. Leiðtogar maronítakirkjunnar gagnrýndu Aoun og Samir Ge- agea, leiðtoga Hersveita Líbanons, harðlega í gær vegna innbyrðis átaka sveitanna. Hvöttu þeir stjórn Elias Hrawi, forseta Líban- ons, til þess að taka yfirráð í aust- urhluta borgarinnar í sínar hendur og stuðla þannig að því að átökum lyki. Hrawi nýtur stuðnings Sýr- lendinga og hefur 15.000 manna múslimaher sér til fulltingis. Hann sagðist ekki myndu reyna að stöðva bræðravíg kristinna nema sameiginleg ósk þar að lútandi kæmi frá pólitískum og trúarleg- um leiðtogum þeirra. Syðri-Straumfjörður: KrejQa áætlunarflug- félög um þjónustugjöld Kaupmannahöfn. Frá Nils Jörgen Bruun, fréttaritara Morgunblaðsins. BANDARÍSKI flugherinn hefúr tekið upp þann hátt að krefjast greiðslu íyrir ýmsa þjónustu við flugfélögin sem fljúga til Syðri- Straumfjarðar á Grænlandi. Þetta kann að hafa í för með sér að flug- félag grænlensku landstjórnarinn- ar, Gronlandsfly, verði að hækka fargjöldin hjá sér, að því er Jan K. Rasmussen, forstjóri félagsins, sagði í viðtali við Grænlenska út- varpið. Bandaríkjamenn taka meðal ann- ars gjöld af allri þjónustu sem veitt er vegna lendinga og flugtaka á tímabilinu frá klukkan 19.00 til 21.30. Þar að auki borga flugfélögin fyrir snjóruðning. Flugvöllurinn í Syðra-Straumfirði hefur verið lokaður áætlunarflugi eftir klukkan 19 frá-því um áramót vegna ósamkomulags um nýja greiðslufyrirkomulagið. Frá og með næsta mánudegi verður völlurinn að nýju opinn á kvöldin, en þá aðeins fyrir Grenlandsfly og SAS. Endurfundir eftir 28 ár Suður-afríski blökkumannaleiðtoginn Nelson Mandela (t.v.) kom til Svíþjóðar á mánudag til að eiga fund með Oliver Tambo, forseta Afríska þjóðarráðsins, (ANC). Samstarf þeirra hófst árið 1944 en myndin var tekin er þeir hittust í fyrsta skipti frá árinu 1962 er Mandela var dæmdur til fangelsisvistar vegna baráttu sinnar fyrir auknum réttindum blökkumanna í Suður-Afríku. Á blaðamannafundi í Stokkhólmi í gær hvatti Mandela þjóðir heims til að slíta öllum stjórnmálasamskiptum við stjórn hvíta minnihlutans í Suður-Afríku sökum kynþáttastefnunnar. Síðar um daginn ávarpaði hann sænska þingmenn og var ræða hans sýnd í beinni sjónvarpsútsendingu. í dag, miðvikudag, mun Mandela m.a. eiga fund með utanríkisráð- herrum Norðurlanda. Bush aflétt- ir refsiað- gerðum gegn Nicaragua Washington. Reuter. GEORGE Bush Bandaríkjafor- seti aflétti í gær efnahagslegum refsiaðgerðum gegn Nicaragua. Var það gert í þeim tilgangi að styrkja nýkjörna leiðtoga, sem taka við völdum I landinu í næsta mánuði. Ákveðið var snemma árs 1980 að grípa til refsiaðgerða gegn stjórn sandinista í Nicaragua sem naut stuðnings Sovétmanna. Sandinistar biðu nýlega ósigur í fyrstu lýðræðislegu kosningunum, sem fram hafa farið í landinu frá valdatöku þeirra fyrir rúmum ára- tug. Ásamt því að aflétta refsiað- gerðunum tilkynnti Bush að hann hefði ákveðið að biðja þingið um 'sérstaka 800 milljóna dollara fjár- veitingu til þess að styðja lýðræði- söflin í Nicaragua og Panama. Evrópubandalagið: Þremur milljörðum chtla veitt til A-Evrópu Brussel. Frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunbladsins. Reuter. Fjármálaráðherrar aðild- arríkja Evrópubandalagsins (EB) samþykktu á fundi sínum í fyrradag að bandalagið skyldi veita Austur-Evrópuríkjum þriggja milljarða dala (um 190 milljarða ísl. kr.) efhahagsað- stoð á þremur árum, 1990-92. Jafnframt voru samþykktar til- lögur frá framkvæmdastjórn- inni um reglugerðir til að sam- ræma stefiiu aðildarríkjanna í gjaldmiðils- og efhahagsmálum. Lítill ágreiningur var um efna- hagsaðstoðina en írski fjármála- ráðherrann, Albert Reynolds, sem stjórnaði fundinum, sagði að nokk- urn tíma hefði tekið að komast að samkomulagi um aðrar fjárveit- ingar. Ráðherrar frá sunnanverðri álfunni, Spáni, Portúgal og Grikk- landi, höfðu óttast að aukin aðstoð við Austur-Evrópuríkin yrði til þess að minna fé yrði veitt' til fá- tækari ríkja bandalagsins. Samið var um að auka ekki ýmsar fjár- veitingar jafn mikið og ráð var fyrir gert, svo sem til hreinsunar á umhverfinu, samgangna innan EB og aðstoðar við ríki í Asíu, Rómönsku Ameríku og við Mið- jarðarhaf. Á fundinum voru einnig sam- þykktar tillögur að reglugerðum sem varða undirbúning innan EB til að gera bandalagið að einu gjaldmiðilssvæði. Fjármálaráð- herrar EB halda óformlegan fund í lok þessa mánaðar en þar mun framkvæmdastjórnin leggja fram skýrslu um áhrif sameiginlegs gjaldmiðilssvæðis á EB. í skýrsl- unni verður gerð grein fyrir kostn- aði aðildarríkjanna vegna gjald- miðilssvæðisins, fyrirkomulagi þess og yfirstjórn. í Brussel er talið líklegt að sam- eining þýsku ríkjanna og sameig- inleg aðild þeirra að EB myndi stuðla að auknum hagvexti innan bandalagsins. Áætlað hefur verið að hagvöxtur innan EB gæti, sök- um sameiningarinnar, aukist um eitt til eitt og hálft prósent næstu . ERLENT. Austur-Þýskaland: Hver verður forsætisráð- herra eftir kosningarnar? Kosningabaráttan í Austur-Þýskalandi einkennist mjög af viðleitni vestur-þýsku flokkanna til að hafa áhrif á niðurstöð- una. Kosið verður á sunnudaginn kemur og skoðanakannanir sýna að þeir flokkar sem njóta mikils stuðnings að vestan eiga mesta möguleika. En þótt vestur-þýskir stjórnmálamenn liafi látið mikið að sér kveða í kosningabaráttunni verður það einn þriggja lítt þekktra austur-þýskra sljórnmálamanna sem að öllum Iíkindum verður forsætisráðherra eftir kosningarnar og stýrir íbúum landsins í sameiningarhöfn. Ibrahim Böhme, formaður ber síðastliðnum. Hann getur austur-þýska jafnaðarmanna- flokksins, er 45 ára gamall. Lítið er vitað um æsku hans. Hann fæddist í nágrenni Leipzig og sumir halda því fram að foreldrar hans hafi verið gyðingar, aðrir segja að hann hafi alist upp munaðarlaus. Framan af ævinni sóttist Böhme, sem er sögukenn- ari, eftir frama í kommúnista- flokknum en var síðar stungið í fangelsi fyrir að hafa stutt opin- berlega andstæðinga stjórnvalda. Hann var einn af stofnendum jafnaðarmannaflokksins í októ- ekki talist einn af helstu hug- myndafræðingum flokksins, það hlutverk leikur Markus Meckel, skeggjaður, dálítið dularfullur prestur, sem bauð sig fram á móti Böhme til formennsku í flokknum en beið lægri hlut. Böhme þykir hafa góða kímnig- áfu og höfðar til fólks með orð- heppni sinni. Lothar de Maiziere, formaður kristilegra demókrata (CDU), virðist hins vegar fremur sinna stjórnmálum af skyldu heldur en andagift. Þegar ljósmyndavél- arnar blika lítur hann gjarnan feiminn undan. Mönnum dettur helst í hug að hann kynni betur við sig heima hjá fiðlunni sinni. De Maiziere var eitt sinn atvinnu- maður í tónlistinni en gerðist síðan lögmaður. Formannsem- bættið í CDU fékk hann eiginiega vegna þess að fæstir aðrir forr- áðamenn flokksins höfðu hreinan skjöld eftir að hafa starfað í ára- tugi undir handaijaðri kommún- ista. Eins og nafnið gefur til kynna er de Maiziere af húge- nottaættum og fjölskylda hans flúði undan ofsóknum í Frakkl- andi til Berlínar fyrir nokkrum öldum. Kristilegir demókratar hafa myndað kosningabandalag með Lýðræðisvakningu og Þýska só- síalsambandinu (DSU) og nefnist það Bandalagið fyrir Þýskaland. Eins og nafnið bendir til vill bandalagið, sem fær dyggilegan Ibrahim Böhme. Lothar de Maizi- Wolfgang Schnur. ere. stuðning frá kristilegum demó- krötum Helmuts Kohls, kanslara Vestur-Þýskalands, skjóta sam- einingu. DSU er ekki spáð miklu fylgi ogsegir vikuritið DerSpieg- el að flokkurinn sé nokkurs kon- ar aðdáendaklúbbur Kristilega sósíalsambandsins- í Bæjaralandi, flokks Franz Jósefs Strauss heit- ins. Kristilegir demókratar eru stærstir þessara þriggja flokka og þykir sennilegt að de Maiziere verði forsætisráðherra vinni Bandalagið fyrir Þýskaland kosnin'garnar. Wolfgang Schnur, formaður Lýðræðisvakningar, varð fyrir alvarlegu áfalli í síðustu viku sem kann að koma niður á fylgi flokksins. Schnur var sakaður um að hafa gefið Stasi, austur-þýsku leyniþjónustunni sem nú er verið að leggja niður, upplýsingar um starfsemi andófsmanna. Schnúr hefur árum saman verið einn þekktasti lögmaður stjórnarand- stæðinga og notið mikillar virð- ingar sem slíkur. Vinir hans segja að Stasi hafi komið fölsuðum skjölum fyrir í íbúð Schnurs og minna á að áður hafi kommúnist- ar reynt að koma á hann lognum sökum. Schnur varð svo mikið um þegar ásakanirnar komu fram í síðustu viku að hann fékk taugaáfall og lagðist inn á spítala. Flokkurinn hefur tekið skýringar Schnurs, sem neitar sakargiftum, góðar og gildar. Heimild: T/ie Economist

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.