Morgunblaðið - 14.03.1990, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. MARZ 1990
Ofbeldi og rangar lausnir
*
mtirArna J. Magnús
Nýlega gerðust þau tíðindi að
borgaryfirvöld ákváðu að banna 14
matsölustöðum í og við miðborgina
að stunda starfsemi sína eftir kl. 2
aðfaranótt laugardags og sunnu-
dags. Þetta er gert vegna ábending-
ar frá lögreglustjóra með það að
markmiði að sporna við því geig-
vænlega ofbeldi sem er farið að
einkenna miðbæjarlífið um helgar.
Vonandi eru flestir sammála um
hversu röng þessi aðgerð er, og
mun ég hér leitast við að færa nokk-
ur rök fyrir þeirri skoðun minni.
Það er aðallega þrennt sem er mein-
gallað. í fyrsta lagi eru þær for-
sendur sem lögreglustjóri gefur sér
kolrangar. í annan stað beinist
bannið að þeim sem síst skyldu
verða fyrir því. Og í þriðja lagi virð-
ist fólkið á þessum bæ forðast að
höggva að rótum vandans, sem
hvorki er margbrotinn né vandleyst-
ur.
Til að skýra mál mitt tel ég nauð-
synlegt að reifa í sem stystu máli
kenningar mínar um upphaf of-
beldisvandans í miðbænum, en sem
tíður gestur á þessum slóðum tel
ég mig hafa örlitla innsýn í þróun
mála.
Til að byija með er ef til vill
heppilegt að minna á að ofbeldi
verður aldrei endanlega útrýmt úr
miðbænum þar eð til er fólk sem er
í eðli sínu árásarhneigt. En þar er
ekki um fyrirfram skipulagt ofbeldi
að ræða, heldur ólukku fáeinna ein-
staklinga. Við þá er ekki að sakast
nema að litlu leyti um ástandið eins
og það er nú. En byijum þá kenn-
ingasmíðina. í gegnum árin' hefur
mér og öðrum fundist fjöldi lög-
reglumanna, sem gæta eiga laga
og reglu í miðbænum, hafa minnk-
að og fjöjdi slagsmála að sama
skapi aukist. Þrátt fyrir það fannst
mér öryggi mínu aldrei ógnað. En
ýmislegt vakti mig til umhugsunar.
Síðastliðið sumar starfaði ég sem
flokkstjóri í Vinnuskóla Reykjavík-
ur (unglingavinnunni) og eitt sinn
bar þar ofbeldi á góma. í máli ungl-
inganna kom margt á óvart. Þeir
töldu sig á engan hátt örugga í
miðbænum og höfðu oft átt fótum
fjör að launa undan vopnuðum
klíkum sem réðust eftir geðþótta á
hvern sem er. Flestir þekktu einnig
einhveija sem lent höfðu í slæmum
málum vegna ofbeldissinnaðra
unglinga. Annað atvik sem vakti'
migtil umhugsunar var af öllu verra
tagi en umræðan ein. I stuttu máli
var ég næsta fyrirvaralaust kýldur
og er þá ekki öll raunasagan sögð.
Ég fór með blóðnasir inn á lögreglu-
stöðina í miðbænum í því skyni að
gera að sárum mínum og kæra pilt-
inn, sem ekki var eldri en 13-14
ára gamall. Átti ég þá hinar for-
vitnilegustu samræður við nokkra
velviljaða Iögregluþjóna. Þar kom í
ljós að vonlaust er að kæra svona
tilvik, jafnvel þótt ég fyndi ungling-
inn og færði hann inn á stöð, því
kæran myndi bara þvælast í kerfinu
þar til ég gæfist upp á biðinni eftir
málsmeðferð, eða kæran myndi ná
að fyrnast áður en hún yrði tekin
fyrir. 0g fróðleikurinn streymdi inn.
Því næst komst ég að því að lögregl-
an gengi aldrei um í miðbænum og
kæmi aldrei þangað nema á bíl, og
bara ef hún væri tilkölluð. Það var
ne'fnilega það. Frá og með þeirri
stundu vissi ég að í miðbænum
væri ég og aðrir samborgarar á
svæði þar sem enga lögregluvernd
væri að fá. Auðvitað skynja of-
beldisseggirnir þetta með tíð og
tíma. Þeir finna það út að það eru
mjög litlar líkur á því að þeir þurfi
að svara til saka og að nálægð lög-
reglu þarf ekki að óttast niðri í bæ.
Svo prófa þeir sig áfram og ganga
lengra og lengra og finna að mið-
bærinn er kjörinn vettvangur fyrir
skrílslæti og ofbeldisverk af öllu
tagi. Kærumálin kafna í kerfinu,
engin lögga á staðnum og nóg af
fólki til að lúskra á. Betra gæti
þetta varla verið.
Nú getum við sett atriðin sem
minnst vará í upphafi inn í mynd-
ina. Auðvitað er það ekki mannsöfn-
uður utan við pylsuvagna, sjoppur
og hamborgarastaði sem orsakar
ofbeldi, heldur fæð lögregluþjóna í
miðbænum. Eðli ofbeldisins mun
því ekkert breytast eftir að bannið
skellur á, ef lögreglan verður jafn-
sjaldséð og hingað til. Ef til vill
fækkar ofbeldisverkum eitthvað,
þar sem minna verður um manninn
til að beija, en vandamálið er enn
óleyst.
I öðru lagi beinist bannið að heið-
arlegu, friðsömu, svöngu og um-
fram allt saklausu fólki sem er að
kaupa sér snarl eftir nótt úti á lífinu,
en ekki gegn ofbeldisseggjunum.
Bannið breytir engu fyrir þá og
kemur alls ekki í veg fyrir vafasamt
framtak þeirra í miðbænum. Það
er hinn heiðarlegi, friðsami, svangi
og saklausi meirihluti sem á nú að
taka út fyrir ástand sem hann ber
enga ábyrgð á og vildi gjarnan losna
við.
í þriðja lagi er engan veginn
verið að höggva að rótum vandans
með þessum aðgerðum. Vandinn
er sá að í miðbænum ganga of-
beldisseggir um og efna til óláta
og vandræða af ásettu ráði, og það
gera þeir ekki vegna fjöldans sem
sækir miðbæinn heim, heldur vegna
þess að þeir hafa smátt og smátt
uppgötvað að þeir komast upp með
framkomu sína í langflestum tilvik-
um. Lausnin er að stórauka lög-
gæslu í miðbænum, jafnvel að
stofna til sérstakrar miðbæjarlög-
reglu. Við slíkar aðstæður myndu
vandræðagemlingarnir halda að sér
höndunum, og vopnunum. Máli
mínu til stuðnings er hægt að nefna
það tilvik þegar Iöggæsla var aukin
til muna eina helgi. Voru þá lög-
reglumenn um allt, bæði gangandi
og akandi og var flest með kyrrum
kjörum. Þessu una heiðvirðir borg-
arar vel, enda hafa þeir ekkert að
óttast í fari lögreglunnar og gera
sér grein fyrir að hún verndar rétt-
indi þeirra gegn ágengni ribbalda
ogólátalýðs.
í undanförnu máli er ég ekki að
saka lögregluna sjálfa fyrir illa
unnin störf, langt því frá. Hins veg-
ar sakfelli ég vinnuveitendur henn-
ar fyrir slælega framgöngu. Sjálfur
tel ég óeðlilegt að ríkið komi krumlu
sinni í alla þætti þjóðlífsins og sífellt
er deilt um hlutverk þess, en um
það eru langflestir sammála að því
beri að vernda réttindi, frelsi og
eignir einstaklinganna. Til þess er
lögreglan. Það hneyksli hefur hins
vegar átt sér stað að þessari mikil-
vægu stofnun hefur verið haldið í
Ijársvelti í mörg herrans ár, og
starfsmönnum hennar gert erfitt
að gegna skyldustörfum sínum.
Ekki þarf að taka stóra sneið af
niðurgreiðslum til landbúnaðarmaf-
íunnar, eða af alls kyns millifærslu-
sjóðum, til að færa starfsemi lög-
reglunnar í gott horf. Hér mætti
ríkið fara að íhuga sinn gang alvar-
lega.
I lokin vil ég aðeins drepa á bann-
ið almennt. Bannið er nú frekar
afturköllun sérleyfa, sem ýmsir
staðir hafa og heimila þeim að
starfa fram á nótt. Nú efast ég og
margir aðrir um réttmæti þess að
einhver tileinki sér vald til að
skammta verslunum opnunartíma.
I raun hefur það nú sannast hvern-
ig slíkt vald er misnotað á röngum
forsendum. Ég fæ ekki betur séð
en að það sé einkamál verslunareig-
anda að velja verslun sinni opnun-
artíma. Telji eigandinn og starfsfólk
hans sig reiðubúið til að hafa opið
á nóttunni, þá kemur það engum
öðrum við, nema það valdi öðru
fólki ónæði. Þá yrði það tekið sér-
staklega fyrir og þeirri verslun
meinað að hafa opið á þeim tíma.
Árni J. Magnús
„Það er hinn heiðar-
legi, friðsami, svangi og
saklausi meirihluti sem
á nú að taka út fyrir
ástand sem hann ber
enga ábyrgð á og vildi
gjarnan losna við.“
Slíkt heyrði til undantekninga, auk
þess sem fáir sæju sér hag í að
hafa opið á nóttunni. Sú ályktun
að lausn ofbeldisvandans sé að
finna í takmarkaðri opnunartíma
er röng og beinist að saklausu fólki,
eins og vonandi hefur komið skýrt
fram í þessum skrifum. Staðreyndir
sýna að mikil hætta er á því að
beiting slíks valds verði óréttmæt
og klúðursleg og nái í engu mark-
miðum sínum, og væri því skynsam-
legast að afsala því í hendur þeirra
sem eiga raunverulegra hagsmuna
að gæta, þ.e.a.s. verslunareigendur.
Ég vona að yfirvöldum í þessu
máli snúist hugur með þessa
ákvörðun, en reyni þess í stað að
koma í veg fyrir vandann á þann
hátt að saklaust fólk fagni aðgerð-
unum í stað þess að verða fyrir
barðinu á þeim.
Höfundur er heimspekinemi við
Háskóla Islands.
Grímutölt í Reiðhöllinni:
Um sjötíu keppendur á
skemmtilegri samkomu
_________Hestar_____________
Valdimar Kristinsson
Nýstoftiaður Reiðskóli í Reið-
höllinni gekkst fyrir all nýstár-
legri töltkeppni þar sem kepp-
endur klæddust grímubúning-
um. Var það skilyrði sett að
þeir væru óþekkjanlegir, ení
sumum tilvikum reyndust þó
knaparnir auðþekkjanlegir á
hestum sínum.
Utsláttarfyrirkomulag var á
keppninni líkt óg í firmakeppni.
Þegar fimm voru eftir inn á vellin-
um var þeim raðað í sæti og hveij-
um veittur eignarbikar sem Álftá-
rós gaf.
Sigurvegari varð Sigríður Bene-
diktsdóttir á Árvakri, í öðru sæti
varð Viktor Viktorsson á Herði,
þriðji Sævar Haraldsson á Kjarna,
fjórði Maaike Burggrafer á Prins
og í fimmta sæti Guðrún Edda
Bragadóttir á Kviku. Sérstök verð-
laun voru veitt fyrir besta grímu-
búninginn eins og tíðkast á góðum
grímuböllum. Hlaut þá viðurkenn-
ingu Guðný Eysteinsdóttir frá
Gufunesi.
Að sögn Péturs Jökuls Hákonar-
sonar umsjónarmanns Reiðskólans
voru um sex hundruð manns í reið-
höllinni á föstudagskvöldið og þar
af um sjötíu keppendur. Þótti þessi
samkoma hafa tekist með miklum
ágætum og líklegt að framhald
verði á samkomum í þessum dúr.
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
Verðlaun voru veitt fyrir besta
búninginn og hreppti þau
Guðný Eysteinsdóttir frá
Gufúnesi.
Sigurvegarar í töltkeppni í
nýstofnuðum Reiðskóla í
Reiðhöllinni þar sem
keppendur klæddust
grímubúningum.
Bústaðakirkja
Bústaðakirkja:
Myndpré-
dikun á
kirkjukvöldi
í kvöld klukkan 20.30 verður
kirkjukvöld í Bústaðakirkju. Þar
mun dr. Gunnar Kristjánsson flytja
myndprédikun. Myndprédikun er
nýyrði í íslensku máli og felur í
sér, að jafnframt hinu talaða orði
verður því fylgt eftir með myndum,
sem sýndar eru á tjaldi.
Kirkjukór Bústaðakirkju syngur
og organistinn Guðni Þ. Guðmunds-
son leikur á orgel. Lesið verður úr
píslarasögunni og Passíusálmum.
Eftir samveruna í kirkjunni verð-
ur gengið yfir í safnaðarheimilið
og gefst fólki þar kostur á að tala
við ræðumann kvöldsins og spjalla
saman.
Þetta er samvera fyrir alla fjöl-
skylduna og verður framhald á
næstu miðvikudagskvöld. Þar verða
meðal ræðumanna dr. Ásgeir B.
Ellertsson yfirlæknir og dr. Björn
Björnsson prófessor. Allir munu
ræðumennirnir tala um efni er teng-
ist tímabili föstunnar.
Reikna mná með að hver sam-
vera í kirkjunni og molasopinn á
eftir taki rúma klukkustund.
Allir eru hjartanlega velkomnir
til þessara kirkjukvölda. Von mín
er að sem flestir sjái sér fært að
koma í Bústaðakirkju í kvöld og
næstu miðvikudagskvöld.
..... SívPálmi Matthíasson